Morgunblaðið - 03.05.1994, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994
Allt í pústkerfið
ÍSETNING Á STAÐNUM
Hljóðkútar og púströr eru okkar sérgrein. Fjöðrin hf. er
brautryðjandi í sérþjónustu við íslenska bifreiðaeigendur.
Eigin framleiðsla og eigið verkstæði tryggir
góða vöru og gæðaframleiðslu.
Gaddstaðaflatir
Mjölnir o g Bjarni efstir
__________Hestar_______________
Valdimar Kristinsson
FÉLAGAR í Hestamannafé-
laginu Geysi í Rangárvalla-
sýslu héldu þriðja og síðasta
vetrarmót sitt á Gaddstaða-
flötum 16. apríl sl. í blíðskap-
arveðri.
Þátttaka var með ágætum um
það bil 50 í flokki fullorðinna og
22 í barnaflokki.
Efstir í mótinu urðu í flokki
fullorðinna:
1. Mjölnir 5 v. iarpur, frá Sand-
hólafeiju, knapi Bjarni Davíðs-
son, eig. Sandhólafeijubúið.
2. Gjafar 8 v. brúnn, Hvassa-
felli, Eyjaf., knapi og eig. Vignir
Siggeirsson.
3. Dagrenning 6 v. rauðvind., frá
Hólmum A-Landeyjum, knapi og
eig. Haukur G. Kristjánsson.
4. Þröstur 6 v. rauðblesóttur frá
Búðarhóli A-Landeyjum, knapi
Þórður Þorgeirsson, eig. Þráinn
Þorvaldsson.
5. Tígull 8 v. rauður frá Stóra-
Hofi, knapi Þórður Þorgeirsson,
eig. Þórður Þórðarson.
Efstur að samanlögðum stig-
um úr öllum mótunum urðu
Mjölnir frá Sandhólafeiju og
Bjarni Davíðsson, og fengu að
launum verðlaunagrip til eignar
sem gefinn var af versluninni
Reiðsport í Reykjavík.
í barnaflokki urðu efst:
1. Eik 6 v. jörp, frá Hvolsvelli,
kn. Elvar Þormarsson, eig.
Þormar Andrésson.
2. Dagfari 5 v. bleikálóttur frá
Lýtingsstöðum, kn. og eig. Er-
lendur Ingvarsson.
3. Rán 6 v. rauð frá Efri-Rauða-
læk, knapi Hrefna Hafsteins-
dóttir, eig. Anton Kristinsson.
4. Þengill 9 v. rauður frá Lýt-
ingsstöðum, kn. og eig. Eydís
Tómasdóttir.
5. Dreyri 7 v. rauður frá Vatns-
dal, knapi Logi Guðmundsson,
eig. Þormar Andrésson.
Efstir að samanlögðum stig-
um fyrir öll vetrarmótin í barna-
flokki urðu Elvar Þormarsson
Hvolsvelli og Erlendur Ingvars-
son Hvolsvelli og hlutu þeir verð-
launagripi frá Reiðsporti í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Með tvenn verðlaun af þremur
Knútur Hrafn Ármann úr Mosfellsbæ varð hlutskarpastur í keppninni
um Morgunblaðsskeifuna á Bændaskólanum á Hólum á sunnudag. í
síðasta áfanganum, sem var gangtegundapróf, keppti hann á hryssu
sinni Gerplu frá Efri-Brú sem er sex vetra undan Áspari frá Sauðár-
króki og Lipurtá 8633 frá Efri-Brú. Knútur hlaut einnig Eiðfaxabikar-
inn fyrir besta hirðingu á hrossi sínu. Ásetuverðlaun Félags tamninga-
manna hlaut Valur Valsson, sem keppti á hryssunni Hrafnhildi frá
Ytra-Skörðugili, en hún er undan Hei’vari 963 frá Sauðárkróki og
Brúðkaups-Jörp 5678 frá Vatnsleysu.
VWWWWW'V
wwwwwwww
SPARIÐ ALLT AÐ 50% OG
SETJIÐ SAMAN SJALF
wm
B
'jöminn býður upp á gott og
Qölbreytt úrval efniviðar til
smíði á eldhús- og baðinnréttingum
og fataskápum.
Fagmenn okkar sníða efnið eftir
þínum þörfum.
Þú setur innréttinguna saman
sjálf(ur) og sparar þannig
peninga.
Gerðu verðsamanburð,
— Það borgar sig.
Eldhúsinnréttingar.
Baðherberg
Fataskápar.
li.iðherlHrgisinnréttingan^HHm^
Fundur um frumvarp
til laga um
atvinnuréttindi útlendinga
Félagsmálaráðuneytið heldur opinn kynningarfund
um frumvarp til laga um atvinnuréttindi útlendinga.
Áhersla er á það lögð að erlendir ríkisborgarar, sem
búsettir eru hérlendis og vilja kynna sér efni þess,
mæti á fundinn. Ennfremur að samtök útlendinga á
íslandi sendi fulltrúa, sem komi á framfæri athuga-
semdum við frumvarpið.
Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 6, 4. hæð,
fimmtudaginn 5. maí 1994, kl. 16.00 til 18.30.
Félagsmálaráðuneytið, 27. apríl 1994.