Morgunblaðið - 03.05.1994, Síða 41

Morgunblaðið - 03.05.1994, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994 41 Minning Helga Hjálmars dóttir Gandil sama bekk í skóla. Síðar vorum við saman til sjós á togaranum Agli Skallagrímssyni. Þar sýndi Jonni mikinn kraft og dugnað sem ávallt einkenndi hann, enda fékk hann viðurnefndið „kappinn“ og hafði gaman af. Jonni lærði bílamálun og vann við það í mörg ár. Hann taldi ekki eftir sér að snyrta okkar bíla ef á þurfti að halda og er þá minnisstæð- ust sprautun á Blazer-jeppa annars undirritaðs sem var mjög sérstak- lega unnin, algjört meistarastykki. Jonni hafði alla tíð mikinn áhuga á íþróttum og spilaði handbolta með meistaraflokki Breiðabliks. Hann eignaðist tvö börn, þau Margréti og Guðmund, með unn- ustu sinni Elsu Þórðardóttur, en þau slitu samvistir. Hafði Jonni alla tíð gott samband við börn sín, sem hafa hlúð að honum í veikindum hans. En fyrir u.þ.b. áratug fór Jonni að fínna fyrir þeim sjúkdómi sem dró hann til dauða og dvaldi hann síðustu ár í Hátúni 12 við góða umönnun. Við viljum votta móður hans, börnum, systkinum og öðrum aðstandendum okkar dýpstu sam- úð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Jón Ingi og Skúli. Látinn er vinur okkar og vinnufé- lagi Jóhannes Gunnarsson langt um aldur fram, aðeins fjörutíu 'og eins árs að aldri, eftir erfiðan sjúkdóm sem hann barðist við af miklu hug- rekki og karlmennsku. Jói var mikill húmoristi og hafði einstaka frásagnarhæfileika. Sagði hann okkur margar ógleymanlegar sögur og ekki gleymist hláturinn hressilegi sem á eftir fylgdi. Jói var mikið hraustmenni og íþróttamaður og lék um árabil handknattleik með Breiðabliki. Hann var mikill skákáhugamað- ur og var skákin það sem létti hon- um stundir fram á síðasta dag. Hann var meðlimur í óformlegum skákklúbbi sem við vinnufélagarnir stofnuðum og um langan tíma spil- uðum við fótbolta saman. Okkar góði félagi, við þökkum þér samverustundirnar sem seint gleymast. Við vottum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Magnús Þorgeirsson, Þór Hreiðarsson, Freyr Hreiðarsson, Kjartan Hilmisson. Góðum manni fær ekkert grand- að, hvorki lífs né liðnum. Þessari setningu skaut upp í huga mér þeg- ar mér var sagt að Jóhannes væri dáinn. Það að hafa kynnst Jóhannesi fyrir þremur árum og fylgst með baráttu hans við hinn illkynja sjúk- dóm sem að lokum dró hann til dauða, hefur kennt mér meira en nokkur orð fá lýst. Hugtökin hetja og stórmenni hafa allt aðra merk- ingu fyrir mér nú en þá, því að Jóhannes tók þjáningum stundanna af ótrúlegri glaðværð, bjartsýni og æðruleysi. Það að heyja slíka baráttu fullur af kjarki og von þrátt fyrir dökkt útlit bendir manni á hversu óþarft það er að láta veraldlega smámuni hversdagslífsins angra sig ef hugur og heilsa éru óskert. Minningin um þennan glaðværa bjartsýnismann mun alltaf standa ljóslifandi i huga mér og minna mig á það góða og fallega í lífinu. Eg votta öllum aðstandendum Jóhannesar innilega samúð mína og vona að Guð gefi þeim styrk til að sætta sig við tilveruna án hans. Minningin lifir um merkan mann. Björgvin G. Sigurðsson. Fædd 24. janúar 1906 Dáin 26. apríl 1994 í dag kveðjum við tengdamóður mína Helgu Hjálmarsdóttur Gandil hinztu kveðju. Útför hennar verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnar- firði. Helga var fædd 6. janúar 1906 á Ekru í Nesi í Norðfirði, eldri dóttir hjónanna Bjarnýjar Stefánsdóttur og Hjálmars Olafssonar verkstjóra. Systir hennar, Guðrún Ólafía Sig- urðsson, sem var þremur árum yngri lést í febrúar sl., svo ekki varð langt á milli þeirra systranna enda tengsl- in milli þeirra sterk alla tíð. Fleiri börn ólust upp á heimilinu, því Bjarný og Hjálmar tóku í fóstur bræðurna Randver og Ólaf Bjarnasyni en móð- ir þeirra lést af barnsförum þegar Randver fæddist. Nokkrum árum síð- ar tóku þau þriðja barnið í fóstur, Maríu Guðmundsdóttur. Randver og Ólafur eru báðir látnir en María er gift Magnúsi Má Lárussyni, fyrrver- andi háskóiarektor. Af þessu má ljóst vera að heimilið á Ekru stóð opið þegar þurfti að veita stuðning þar sem sorgin hafði barið dyra. En þar upplifði Helga líka margar gleði- stundir og þar fékk hún það vega- nesti og þann styrk sem hjálpaði henni til að takast á við sorg og gleði í lífinu, en hvoru tveggja kynntist hún ríkulega. Til að búa sig undir lífið hleypti Helga heimdraganum og fór fyrst til Akureyrar þar sem hún nam einn vetur við Gagnfræðaskól- ann en næsta ár hélt hún til Reykja- víkur og settist í Kvennaskólann og útskrifaðist þaðan árið 1925. Hugur Helgu stóð til að kynnast framandi löndum og sama ár hélt hún til Kaup- mannahafnar þar sem hún lærði kjólasaum og lauk meistaraprófi í þeirri grein árið 1929. Helga starf- aði við það fag bæði í Danmörku og síðar hér heima og var hún flink og eftirsótt saumakona alla tíð. Marga brúðarkjóla og stúdentadragtir saumaði hún um dagana fyrir utan ballkjóla og annan klæðnað og marg- ir viðkiptavinir héldu tryggð við hana árum saman. í Kaupmannahöfn kynntist Helga mannsefni sínu Helge J.P. Gandil, verslunarmanni og gengu þau í hjónaband árið 1931. Þau eignuðust tvö börn en slitu samvistir eftir 15 ára hjónaband. Börn þeirra eru Hedda Louise f. 17. ágúst 1933, og Öm (skírður Ernst Wally) f. 17. mars 1938. Hedda lést 5. júní 1974 langt um aldur fram. Hún var gift Kristni Sigurðssyni, flugumferðar- stjóra og eignuðust þau þrjá syni, Hjálmar, Helga Gunnar og Jóhann Örn, sem voru 16, 13 og 10 ára þegar móðir þeirra dó af erfiðum sjúkdómi. Það var sársaukafullur atburður i íjölskyldunni sem markaði djúp spor, ekki síst á drengina henn- ar sem sáu á bak ástkærri og um- hyggjusamri móður. Örn, prófessor við Háskóla íslands, er giftur undir- ritaðri og eigum við einnig þrjá syni; Ivar Örn, Hörð Hinrik og Lúðvík. Barnabarnabörn Helgu eru orðin 10 talsins. Árin í Kaupmannahöfn urðu 20 og voru viðburðarík í lífi Helgn. Þar kynntist hún menningu og lifnaðar- háttum sem voru ólíkir því sem hún ólst upp við í íslensku sjávarþorpi. Þar kynntist hún einnig lífi stríðsár- anna í hernumdu landi en hún flutti heim til íslands með börnin sín tvö þegar stríðinu lauk. Eftir heimkom- una starfaði Helga í verslun Harald- ar Árnasonar í Reykjavík þar sem hún stýrði kjólasaumastofunni um 12 ára skeið en rak síðan eigin saumastofu að Skólavörðustíg 30 og síðar að Svalbarði 8 í Hafnarfirði. Helga talaði oft um árin í Haraldar- búð þar sem hún hún minntist Har- aldar sem einstaklega styðjandi at- vinnuveitanda og hann hefur greini- lega vitað að ánægt starfsfólk vinnur best og er allra hagur. Þar myndað- ist samheldinn starfshópur því vin- konur Helgu frá þessum árum hafa haldið sambandi og hittust alltaf á afmælum og tyllidögum meðan heilsa leyfði. Það var oft gaman að heyra þær tala um starfið og lífið í miðbæ Reykjavíkur frá þessum tíma. Það hefur áreiðanlega ekki verið auðvelt að vera einstæð móðir með tvö börn fyrstu árin eftir stríð frekar en í dag. En Helga hafði mikinn metnað fyrir hönd barna sinna og af dugnaði og harðfylgi hvatti hún þau til mennta og lagði á sig mikla vinnu til að styrkja þau og styðja svo þau mættu þroskast og vaxa. Það álag fékk hún áreiðanlega endur- goldið því þeim var báðum ákaflega umhugað um hana eftir að þau fóru að heiman og stofnuðu eigin fjjöl- skyldur. Þegar Hedda og Kristinn byggðu sér hús í Hafnarfirði var gert ráð fyrir íbúð handa Heigu og bjó hún þar og starfaði í mörg ár. Þegar Hedda féll frá lagði hún heim- ili Kristins og drengjanna lið eftir mætti og þannig var gagnkvæmur stuðningur einkennandi fyrir þessa litlu fjölskyldu alla tíð. Helga naut þess að ferðast og þegar börnin voru uppkomin heim- sótti hún Danmörku árlega meðan heilsa entist. Danmörk var henni allt- af ákaflega kær, þar átti hún góða vini og eftir að heilsan fór að gefa sig virtist hún fá aukinn þrótt við það eitt að talið barst að Kaup- mannahöfn. En hún ferðaðist víðar og ferðasögurnar hennar frá Ítalíu, Sviss og Austurríki báru þess vott að hún drakk í sig fegurð og menn- ingu þeirra staða sem hún sótti heim. Hún gleymdi þó ekki æskustöðvun- um og síðari árin dró hún upp marg- ar myndir frá uppvaxtarárunum á Norðfirði sem hún hafði greinilega geymt í minningunni eins og hvern annan íjársjóð til að grípa til þegar hún dvaldi fjarri ættingjum sínum á erfiðum tímum. Þannig var Helga rammíslensk en líka mikil heims- kona. Hún hafði góða frásagnagáfu og naut sín þegar hún gat miðlað af reynslu sinni frá viðburðaríkri ævi sem spannaði vítt svið. Þótt heilsunni hrakaði síðari árin hélt Helga andlegri reisn allt fram í andlátið. Henni var mikið í mun að þurfa ekki að vera upp á aðra komin en hún var þakklát fyrir þann stuðn- ing og umhyggju sem starfsfólk heimahjúkrunar og heimilishjálpar Hafnarfjarðar sýndi henni og gerði henni kleift að búa á eigin vegum þar til yfir lauk. Nú er lífi hennar lokið, ég þakka henni samfylgdina, Guð blessi minningu hennar. Bjarney Kristjánsdóttir. Nú þegar amma hefur kvatt þenn- an heim langar okkur bræðurna að minnast hennar með nokkrum orð- um. Amma ólst upp á Norðfirði en fór sem ung kona til Kaupmannahafnar til að læra kjólasaum, þar sem hún dvaldist fram yfir síðari heimsstyij- öld. Þessir tveir staðir voru henni ævinlega mjög hugleiknir og þegar umræðan barst að þeim gleymdi hún stund og stað og naut þá hin frá- bæra frásagnargáfa hennar sín enn betur en ella. Þrátt fyrir að hún hafi haft frá mörgu merkilegu að segja eru okkur minnisstæðastar frásagnir hennar af Kaupmannahöfn á seinni stríðsárunum. Þó að frásögn hennar hafi verið mjög lifandi getur maður sennilega aldrei gert sér fyllilega í hugarlund þær hörmungar sem Kaupmannahafnarbúar þurftu að búa við á þessum árum. Það var þó ekki bara um fortiðina sem hægt var að ræða við ömmu, hún fylgdist ævinlega með því sem var efst á baugi hveiju sinni, og tjáði sig án nokkurrar feimni um skoðanir sínar á hinum og þessum málefnum og pólitíkusum. Einnig passaði amma alltaf upp á að fylgjast með því sem við í kringum hana vorum að gera. Okkur þótti ávallt gaman að ræða helstu íþróttaviðburði við hana enda hún iðuiega með á nótunum í því sem þar var að gerast. Amma vildi líka hafa hlutina á hreinu og gat virkað mjög stíf og formföst en það var alltaf stutt í húmorinn hjá henni og tók hún virkan þátt í öllu glensi, ekki síst þegar skemmtunin var á hennar kostnað. Þó að veikindi hafi sett mark sitt á hana núna síðustu árin þá var andleg heilsa hennar óskert fram í andlátið. Undir það síðasta var Ijóst að amma var tilbúin að fara, yfir henni var friður og hún virtist sátt. Með þakklæti fyrir samverustundirn- ar kveðjum við ömmu okkar, hennar verður sárt saknað.__ ívar Örn, Hörður Hinrik og Lúðvík. Hún amma Heiga er dáin. Hún var reyndar amma hans Heiga Gunn- ars og langamma barnanna okkar, en öll kölluðum við hana ömmu — líka ég. Frá fyrstu kynnum fann ég hve vel hún vildi öllum þeim sem til henn- ar leituðu, hve ráð hennar voru góð og yfirveguð. Þegar amma Helga talaði lagði maður við hlustir. Öll sú reynsla, sú þekking og ekki síst skiln- ingur á mönnum og málefnum sem hún hafði aflað sér á langri ævi var hún ævinlega tilbúin að miðla af og deila með öðrum,_ og þá þurfti ekki alltaf mörg orð. Eg spurði hana eitt sinn hvers vegna allt væri svona ein- falt þegar hún segði það, þá sló amma Helga á hné sér og hló og sagði það koma með aldrinum. Síðan hef ég oft hugleitt þetta svar. Orðin hennar Helgu eins og orð Björns í Brekkukoti voru dýr. Þess á milli gat hún með frásagnargleði sinni farið með mann í löng ferðalög. Hún veif- aði hendi og allt í einu vorum við komin til Ítalíu að vori þegar lífið lifnar við. Frásögnin og lýsingin var svo lifandi að maður sá litina, fjöllin og næstum fann lyktina af gróðrin- um sem var að springa út — og eins snögglega og maður fór í huganum yfir sjó og land var maður kominn aftur heim í kaldan veturinn er Helga beitti sömu töfrunum og sagði: Já, maður á að fara snemma að vori áður en allt skrælnar í sólinni, þá er fallegast. Helga kunni ótal sögur, þulur og ævintýr. Mér er svo minnis- stætt þegar við Helgi vorum eitt sinn á ferðalagi og barnabækurnar sem áttu að vera kvöldlesningin fyrir börnin gleymdust heima. Eg kunni bara eina sögu. Helgi Gunnar var þess fullviss að amma Helga hefði ekki boðið sér upp á sömu söguna sjö daga í röð. Hennar sögur voru gæddar lífi og höfðu boðskap, oft djúpan boðskap. Helga var farin að þrá það að fá að fara. Þegar ég talaði við hana síðast orðaði hún það einmitt þannig „að fá að fara“. Þessi lágvaxna, granna og fíngerða kona sem var samt svo sterk og virtist styrkjast við hverja raun fannst hún vera búin ~að ljúka þeim verkefnum sem henni voru ætluð hér á jörð. Hún var tilbú- in. En við sem eftir erum og höfum ekki náð þeim þroska sem hún bjó yfir erum svo eigingjörn að við vild- um hafa hana svo miklu lengur, því það er svo margt sem við ekki enn skiljum, svo margt sem við áttum eftir að spyija um, svo margt sem við eigum ólært. Næst þegar mikið liggur við verður ekki hægt að biðja ömmu Helgu auglitis til auglitis um að hugsa hlýlega til þess sem á þarf að halda. Framvegis þegar einhver á afmæli hringir amma ekki fyrir hádegi til að óska afmælisbarninu til hamingju með daginn. En hinum megin í þeirri veröld sem er okkur hulin er ég þess fullviss að hennar bíða margir. Við verðum að sleppa af henni "hendinni og þakka henni fyrir hennar stóra þátt í því að kenna okkur um lífið og gera úr okkur menn. En minningin um þessa ein- stöku konu, sem með æðruleysi, dugnaði ósérhlífni og óeigingirni vann hvern sigurinn eftir annan og aldrei brast þó lífið legði á hennar herðar meira en á marga aðra, sú minnig lifir og á eftir að varða leið- ina fyrir okkur hin sem enn erum hér. Elsku amma Helga, hafðu þökk fyrir allt og allt. Birna Sigþórsdóttir. Hún Helga, fyrrum tengdamóðir mín, elskuleg, er látin. Það kom ef til vill ekki mikið á óvart, því hún hafði verið heilsulítil undanfarið. En það er þó alltaf erfitt að sætta sig við að missa þann, sem er manni kær. Hún tók mér afar vel er ég kom fyrst á heimili hennar í Engihlíðinni eftir að ég kynntist dóttur hennar, Heddu, sem síðar varð ástkær eigin- kona mín. Vorum við alltaf síðan góðir vinir. Helga var ættuð frá Norðfirði, dóttir sæmdarhjónanna á Ekru, Hjálmars Olafssonar og konu hans Bjarnýjar Stefánsdóttur. Fór hún ung að árum til Kaupmannahafnar til náms í kjólasaumi og varð meist- ari í þeirri grein. Var hún frábær verkmaður og mjög eftirsótt sauma- kona. Hún ílentist í Danmörku, því þar kynntist hún og giftist Helge Johan Gandil og eignaðist með hon- um tvö börn, Heddu Louise og Ernst (Örn). Helga kom síðan aftur til ís- lands með börnin með Esjunni, fyrsta skipi að lokinni heimsstyijöldinni. Þegar ég kynntist henni veitti hún forstöðu kjóladeild verslunar Harald- ar Árnasonar og gerði það með mikl- um sóma. Henni þótti gott að vinna í Haraldarbúð. Það myndaðist mikil vinátta með konunum, sem unnu þar, og hafa þær alltaf haft mikið samband síðan. Helga var mikill vinur vina sinna. Við Hedda fluttum árið 1959 í einbýl- ishús, sem við höfðum byggt í Hafn- arfirði og 1961 flutti hún til okkar, í ibúð í risinu, og bjuggum við saman þar til hún_ flutti í íbúð fyrir eldri borgara, á Álfaskeiði, síðla árs 1979. Hún hjálpaði okkur gífurlega mik- ið á heimilinu og var sú hjálp ósér- hlífin og sjálfsögð. Hún sá um dreng- ina okkar, Hjálmar, Helga Gunnar og Jóhann Örn, er við fórum í frí og saumaði alla kjóla á Heddu. Verð- ur slíkt seint þakkað. Helga hélt áfram kjólasaum eftir að hún flutti til Hafnarfjarðar og var hún með saumastofu heima. Var hún mjög eftirsótt og skipti vegalengdin til Hafnarfjarðar ekki máli. Hand- bragðið og smekkvísin báru meistar- anum vitni. Eftir að Hedda lést 1974, tók Helga að sér heimilið og sá um það með miklum ágætum, þar til núver- andi eiginkona mín, Edda Magndís, flutti á heimilið með dóttur sína, Eddu Guðrúnu. Helga tók þeim mjög vel og hlýlega og var mikill vinskap- ur milli þeirra ætið síðan. Langömmubörnunum var hún mikil og góð amma og sýndi það bæði í orði og verki. Elsku Helga mín, ég þakka þér innilega fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, drengina mína, Eddu Magndísi og Eddu Guðrúnu. Guð blessi minningu þína. Við sendum Denna, Bjarneyju, sonum og barnabörnum, okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Góður Guð styrki ykkur í sorginni. Kristinn Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.