Morgunblaðið - 03.05.1994, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994
49
íslandsmót grunnskóla
Þriðji signr Æfinga-
skóla kennaraháskólans
Sigursveit Æfingaskólans. Frá vinstri: Bragi Þorfinnsson, Arnar
E. Gunnarsson, Björn Þorfinnsson, Oddur Ingimarsson og Davið
O. Ingimarsson.
Skák
Margeir Pétursson
ÆFINGASKÓLI Kennaraháskóla
íslands sigraði á Islandsmóti
grunnskólasveita með miklum
yfirburðum, hlaut 32VÍ v. af 36
mögulegum. Þetta er þriðja árið
í röð sem Æfingaskólinn sigrar í
keppninni. Sveitum utan Reykja-
víkur vegnaði vel í keppninni.
Sveitir Digranesskóla í Kópavogi
og Garðaskóla í Garðabæ komu
næstar með 25 vinninga, og
hreppti Digranesskóli naumlega
annað sætið á stigaútreikningi.
Það sáust mikil tilþrif í keppn-
inni, sem er fyrir grunnskólanem-
endur á öllum aldri, alveg frá fyrsta
upp í tíunda bekk. Stærðarmunur á
teflendum var því oft mikill. Margir
hinna yngri fara ekki nægilega vel
með tímann, nota oft ekki nema
5-10 mínútur af þeim 30 sem þeir
hafa á skákina. Aðrir eru orðnir
þaulvanir, tveir úr sigursveitinni
tóku t.d. þátt á alþjóðlega Reykja-
víkurskákmótinu og stóðu sig vel.
1. Æflngaskóli KHI, A sv., 32'/2 v.
2. Digranesskóli, Kópavogi, 25 v.
3. Garðaskóli, Garðabæ, 25 v.
4. Hólabrekkuskóli, A sv., 24Vi v.
5. Gagnfræðaskóli Akureyrar 20 v.
6. Hlíðaskóli 18‘/2 v.
7. Grandaskóli I8V2 v.
8. Hólabrekkuskóli, B sv. I8V2 v.
9. Borgarhólsskóli, Húsavík, 18 v.
10. Breiðholtsskóli, A sv., 18 v.
11. Æfíngaskóli KHÍ, B sv., 18 v.
12. Breiðagerðisskóli 17 V2 v.
13. Ártúnsskóli 17 v.
14. Seljaskóli I6V2 v.
15. Fossvogsskóli I6V2 v.
16. Vesturbæjarskóli 15 v.
17. Hagaskóli 13 v. o.s.frv.
Sérstök verðlaun fengu þeir Matt-
hías Kjeld, Garðaskóla, sem hlaut
8V2 v. af 9 mögulegum á fyrsta
borði og Amar E. Gunnarsson,
Æflngaskólanum, sem vann allar
níu skákir sínar á fyrsta borði.
í sigursveitinni voru þeir Bragi
Þorfínnsson, Amar E. Gunnarsson,
Björn Þorflnnsson, Oddur Ingimars-
son og Davíð Ó. Ingimarsson.
Fyrir Digi-anesskóla í öðru sæti
tefldu Einar Hjalti Jensson, Matthí-
as Kormáksson, Hjalti Rúnar Óm-
arsson, Tómas Árnarson og Steinar
Albertsson.
I liði Garðaskóla í þriðja sæti
vom Matthías Kjeld, Sindri Guðjóns-
son, Baldur Möller, Kjartan Wikfeldt
og Gísli Bjöm Bergmann.
Skákstjórar vom Ólafur H. Ólafs-
son og Haraldur Baldursson.
Undirritaður kom að í síðustu
umferð þar sem þeir tefldu Bragi
Þorflnnsson, 13 ára og margfaldur
meistari í sínum aldursflokki, og
Sigurður Páll Steindórsson, Granda-
skóla, nýbakaður íslandsmeistari í
flokki tíu ára og yngri.
Svart: Sigurður Páll
Sjá stöðumynd.
Hvítt: Bragi Þorfinnsson
Svartur hefur fómað manni fyrir
stórhætt.uleg sóknarfæri. Keppend-
ur höfðu notað tímann vel og áttu
aðeins rúmar fímm mínútur eftir
hvor. Nú er eðlilegasta framhald
hvíts 1. d6 - Bd8 2. Bf4
1. Bf4? - Bb4+ 2. Bd2 - Bxd2+
3. Kxd2 - Hg3!
Finnur vinningsleik í stöðunni.
Lakara var 3. — Hxbl 4. Hxbl —
De3+ 5. Kdl - Hd3+ 6. Dxd3 -
Dxd3+ 7. Kcl með góðum jafnteflis-
líkum eða 3. — Ha4 4. Dc2 — Ha2!
(Ekki 4. — Dxc2+ 5. Kxc2 — Ha2+
6. Kcl — Hxe2 7. d6 og svartur
getur ekki unnið) 5. Kcl! og getur
enn veitt harðvítugt viðnám. Eftir
þennan lúmska hróksleik gætir hvít-
ur ekki að sér, en staðan var töpuð:
4. dxe6? - Ha2+ 5. Kel - Hg.l+
6. Kf2 - Dg3 mát.
Rúnar Norðurlandsmeistari
Skákþing Norðlendinga 1994 fór
fram á Sauðárkróki. Mótið var það
60. í röðinni, en það var fyrst haldið
árið 1935 og hefur aldrei fallið
niður. Að venju fór mótið vel fram,
en félagar í Skákfélagi
Sauðárkróks sáu um
framkvæmdina. Rúnar
Sigurpálsson frá Akureyri hreppti
titilinn skákmeistari Norðlendinga
1994, en hann varð í efsta sæti
ásamt Stefáni Andréssyni frá
Bolungarvík. Teflt var um sæti í
landsliðsflokki á Skákþingi íslands
í haust og mun væntanlega þurfa
einvígi um það á milli þeirra Rúnars
og Stefáns. Rúnar varð einnig
hraðskákmeistari Norðlendinga.
Yfirskákstjóri var Albert
Sigurðsson. Úrslit í einstökum
flokkum urðu þessi:
Opinn flokkur:
1. Rúnar Sigurpálsson, Ak., 5‘/2 v.
af 7
2. Stefán Andrésson, Bolungarvík,
5‘/2 v.
3. Matthías Kjeld, Garðabæ, 5 v.
4. Þór Valtýsson, Akureyri, 4'/2 v.
5. Jón Arnljótsson, Skagafirði, 4 v.
6. Guðmundur Daðason,
Bolungarvík, 4 v.
7. Páll Þórsson, Akureyri, 4 v.
Unglingaflokkur:
1. Halldór I. Kárason, Ak., 6 v. af 7
2. Björn Finnbogason, Akureyri, 5
v.
3. Bjöm Margeirsson, Skagafirði, 5
v.
4. Orri Freyr Oddsson, Húsavík, 5 v.
Kvennaflokkur:
1. Harpa Siguijónsdóttir, Húsavík,
4'/2 v.
2. Þórhildur Kristjánsdóttir,
Akureyri, 3 v.
3. Birna Rún Amarsdóttir,
Akureyri, 2 v.
Flokkur 12 ára og yngri
1. Sverrir Arnarsson, Akureyri, 6'/2
v.
2. Benedikt Siguijónsson, Húsavík,
6‘/2 v.
3. Friðrik Hjörleifsson, Dalvík, 5 v.
Hraðskák, opinn flokkur:
1. Rúnar Sigurpálsson, Ak., 11 v.
+ V/i v.
2. Sigurjón Sigurbjörnsson, Ak., 11
v. + '/2 v.
3. Matthías Kjeld, Reykjavík, 10 v.
4. Þórleifur K. Karlsson, Ak., 9‘A v.
Hraðskák unglinga
1. Halldór I. Kárason, Ak., 11'/2
v. af 13
2. Björn Margeirsson, Skagafírði,
10 v.
3. Davíð Stefánsson, Akureyri, 9 v.
Ævintýraferb meb
Kínaklúbbi Unnar
Á morgun, miðvikudaginn 4. maí, kynnir Unnur Guðjónsdóttir,
baliettmeistari, 6. hópferð Kínaklúbbsins til Kína, á veitingahúsinu
Shanghæ, Laugavegi 28, kl. 19.30. Sýndar verða litskyggnur, dans og
leikfimi. Kínverskur hljómlistarmaður leikur einleik og borinn verður á
borð gómsætur matur skv. matlagningu Sichuan-héraðs, en kokkur
þaðan sér um matseldina. Borðapantanir hjá Shanghæ í síma 16513,
en verbiö er aöeins 1.100,- kr. á mann.
Kínaferöin hefst 13. maí- 4. júní. Farið verður til Beijing, Xian,
Guilin, Shanghæ, Suchou, Jiaxing og Hangzhou. Allt það merkilegasta
á hverjum stað verður skoðað. Við munum kynnast háttum, siðum og
daglegu lífi Kínverja, fyrir utan að njóta unaðslegs landslags og
veðurblíðu. Heildarverð er kr. 250 þús. á mann. Nánari upplýsingar
um ferðina gefur Unnur í síma 12596. Síðasti dagur til aö tilkynna
þátttöku í feröina er núna á fimmtudag, þann 5. maí.
Samgönguráöuneytiö
er búiö ab veita Unni leyfi til i a
reksturs feröaskrifstofu... Kf
Skil á vörugjaldi
mm wmm s mk mmm mm wp® ms® hh
Vegna breytinga á lögum um vörugjald, sem tóku gildi 1. janúar
1994, og þar sem ný reglugerð tók gildi 1. maí sl., vill
ríkisskattstjóri minna á skil vörugjalds. Reglur um gjaldstofn
vörugjalds eru óbreyttar, en minnt er á að gjaldstofn af innlendri
framleiðslu er heildsöluverð vara sem eru framleiddar, unnið að
eða pakkað hér á landi.
Gjalddagi vörugjalds er nú fimmti dagur þriðja mánaðar eftir lok
uppgjörstimabils vegna sölu eða afhendingar á því tímabili. Gjalddagi
vörugjalds fyrir timabilið janúar—febrúar 1994 er því 5. maí. Vörugjald
telst greitt á tilskildum tíma hafi greiðsla sannanlega verið póstlögð á
gjalddaga.
Álag skal nú vera 2% af þeirri upphæð sem vangreidd er, fyrir hvern
byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó ekki hærra en 20%. Sé vörugjald ekki
greitt innan mánaðar frá gjalddaga reiknast dráttarvextir af því sem
gjaldfallið er.
GjaldfloMuim vörugjalds er fjölgað i sjö. Jafnframt flytjast vörur á milli
gjaldflokka auk þess sem nýjar vörur bætast við og aðrar falla út. I
gjaldflokki A (6% vörugjald) er m.a. kaffi, te, nasl og ísblöndur. í gjald-
flokki B (11 % vörugjald) eru m.a. ýmsar byggingavörur og snyrtivörur. í
gjaldflokki C (16% vörugjald) eru m.a. ýmsar plastvörur, rafmagnsvörur
og vörur til vélknúinna ökutækja. i gjaldflokki D (18% vörugjald) er m.a.
sælgæti og hráefni til sælgætisiðnaðar, sætakex og ávaxtasafi ásamt
öðrum drykkjarvörum. I gjaldflokki E (20% vörugjald) eru m.a. ýmis
heimilistæki og smávarningur. i gjaldflokki F (25% vörugjald) eru vopn
o.þ.u.l i gjaldflokki G (30% vörugjald) er m.a. sykur, sjónvarpstæki og
hljómflutningstæki.
Útgáfa sölureikninga og uppgjör vörugjalds. Meginreglan er
sú að aöilar í vörugjaldskyldum rekstri skulu færa á sölureikninga
og aðgreina á þeim gjaldskylda sölu eftir gjaldflokkum, þannig að
heildarverð vöru ásamt fjárhæð vörugjalds komi sérstaklega fram
vegna hvers gjaldflokks. Tilteknum aðilum er þó heimilt að tilgreina
á sölureikningi að vara sé með vörugjaldi. Við skil á vörugjaldi í
rikissjóð er gjaldanda heimilt að draga frá innheimtu gjaldi af sölu
það vörugjald, sem hann hefur sannanlega greitt við kaup á
hráefni og efnivöru til gjaldskyldrar framleiðslu á viðkomandi
uppgjörstímabili. Sé vörugjald af aðföngum hærra á uppgjörstíma-
bili en innheimt vörugjald af sölu skal mismunurinn greiddur úr
ríkissjóöi.
Nánari upplýsingar um vörugjald veita skattstjórar og
virðisaukaskattsskrifstofa ríkisskattstjóra.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
: