Morgunblaðið - 03.05.1994, Side 56
Nefnd alþingismanna
Eðlilegi að
Jiefja hval-
veiðar í at-
vinnuskyni
NEFND alþingismanna telur eðli-
legt að Islendingar hefji á ný hval-
veiðar í atvinnuskyni, og í fyrstu
verði leyfðar takmarkaðar veiðar
á hrefnu. Gætt verði heildarhags-
muna Islands með tilliti til stöðu
landsins á alþjóðavettvangi, mark-
aða fyrir hvalaafurðir og áhrifa
hvalveiða á aðra útflutningsmark-
_aði landsmanna. Nefndin telur
ekki rétt að ísland leiti eftir inn-
göngu í Alþjóðahvalveiðiráðið
meðan það standi í vegi fyrir sjálf-
bærri nýtingu hvalastofna.
Allir þingflokkar áttu fulltrúa í
nefndinni, sem skipuð var af sjávar-
útvegsráðherra í haust til að gera
tillögur um stefnu íslendinga í hvala-
málum. I skýrslu sinni segja nefndar-
menn að halda eigi fast við það sjón-
armið að allar lifandi auðlindir sjávar
séu nýtanlegar, enda séu veiðar
stundaðar á sjálfbæran hátt þannig
aö ekki sé farið fram úr veiðiþoli
hvers stofns til langs tíma litið.
Nefndin telur skynsamlegt að leyfa
aðeins í fyrstu takmarkaðar veiðar
á hrefnu og miða í upphafi við sölu
afurðanna innanlands, jafnframt því
sem möguleikar á sölu hrefnuafurða
í útlöndum verði kannaðir.
Samráð við NAMMCO
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Birgðir af salti
iins hf. á Reykjanesi, e
Islenska saltfélagið og móðurfélag þess hf. óska eftir gjaldþrotaskiptum
MIKLAR birgðir af salti eru nú á lóð Islenska saltfélagsins hf. á Reykjanesi, en sljórn þess hefur nú óskað eftir gjaldþrotaskiptum og
starfsemi verið hætt.
Nefndin segir að við veiðamar
skuli haft eðlilegt samráð við aðrar
þjóðir innan viðeigandi alþjóðastofn-
unar. Norður-Atlantshafssjávarspen-
dýraráðið, NAMMCO, sé eðlilegur
vettvangur fyrir slíkt samráð við ríkj-
andi aðstæður.
Nefndin skilaði tillögum sínum til
sjávarútvegsráðherra í gær og verður
IfSýrsla hennar væntanlega rædd á
ríkisstjómarfundi í dag. I nefndinni
voru Matthías Bjarnason þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sem var formaður,
Guðjón Guðmundsson þingmaður
Sjálfstæðisflokks, Sigbjörn Gunnars-
son þingmaður Alþýðuflokks, Hjör-
leifur Guttormsson þingmaður Al-
þýðubandalags, Ingibjörg Pálma-
dóttir þingmaður Framsóknarflokks
og Kristín Einarsdóttir þingmaður
Kvennalista.
Heildarskuldir fyrirtæk-
isins 600 milljónir króna
HEILDARSKULDIR íslenska saltfélagsins hf. á Reykjanesi
og móðurfélags þess, Saga Food Ingredients A/S (SFI)
nema um 600 milljónum króna, en stjórnir félaganna hafa
óskað eftir því að félögin verði tekin til gjaldþrotaskipta.
Eru eignir félaganna nær allar bundar í saltverksmiðjunni
á Reykjanesi. Ollum starfsmönnum verksmiðjunnar hefur
verið sagt upp, 40 að tölu, og fengu þeir ekki greidd laun
um mánaðamótin.
Aðalsteinn Hauksson, trúnaðar-
maður starfsmanna, segir að gjald-
þrotabeiðnin hafi komið starfs-
mönnunum algerlega á óvart. Ekk-
ert hefði bent til þess að fyrirtækið
yrði lýst gjaldþrota á næstunni.
Starfsmenn verksmiðjunnar
héldu í gær fund með fulltrúum
Verkalýðs- og sjómannafélags
Þrír létust af slys-
förum um helgina
TVEIR menn létust eftir vélsleðaslys á Skjaldbreið sl. laugardag,
tæplega 29 ára íslendingur og 41 árs Belgi. Þá fannst 39 ára
gamall skoskur ferðamaður, sem var gestkomandi í Bláa lóninu,
látinn í lóninu á sunnudag.
Slysið á Skjaldbreið varð með
þeim hætti að vélsleði, sem menn-
irnir voru á, fór fram af blindhæð,
lenti ofan í gjótu og kastaðist á
hamravegg. Belganum tókst að
gera viðvart um slysið, en þegar
þyrla Landhelgisgæslunnar kom á
staðinn var íslendingurinn, sem ók
sleðanum, látinn. I fyrstu var talið
að Belginn væri lítt meiddur, en
við skoðun á sjúkrahúsi kom í ljós
að hann hafði hlotið mikil innvortis
meiðsli. Hann lést aðfaranótt
. sunnudagsins.
Fannst látinn í lóninu
Við Bláa lónið var hópur ferða-
manna í tveimur rútum. Þegar
hópurinn fór úr lóninu kom í Ijós
að einn ferðamann vantaði. I ljós
kom að föt hans voru í búnings-
klefa baðhússins. Eftir að starfs-
fólk þar hafði grennslast fyrir um
manninn án árangurs var haft sam-
band við lögregluna í Grindavík
sem kom ásamt félögum í björgun-
arsveitinni. Maðurinn fannst látinn
á botni lónsins um klukkan 17 eða
fjórum klukkustundum eftir að
hans var saknað.
Ekki er vitað nánar um tildrög
slyssins en að sögn Sigurðar
Agústssonar aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns í Grindavík, vinnur rannsókn-
arlögreglan að rannsókn málsins.
Nöfn hinna látnu
íslendingurinn sem lést á Skjald-
breið hét Ivar Arnórsson, fæddur
2. júní 1965. Ivar var bifreiða-
smíðameistari og rak bílaverkstæði
í Kópavogi ásamt föður sínum.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og
þijár dætur.
Belgíumaðurinn hét Pierre van
de Merlen. Hann var fæddur 14.
febrúar 1953. í gær fengust ekki
Ivar Arnórsson.
upplýsingar um fjölskylduhagi
hans.
Skoski ferðamaðurinn hét
Stephen W. Wincent. Hann var
fæddur þann 11. apríl 1955 og var
því 39 ára gamall. Hann var frá
Edinborg en ekki tókst að afla
upplýsinga um fjölskylduhagi hans.
Keflavíkur þar sem farið var yfir
stöðuna. Aðalsteinn sagði að þar
hefði komið fram að í raun gætu
starfsmenn ekkert gert nema lýsa
kröfum í búið.
Hann segir að starfsmennirnir
muni nú vinna að því að ganga frá
verksmiðjunni þannig að hægt verði
að setja hana af stað aftur og býst
hann við að það muni taka allt að
tvær vikur.
Vildu breytta kornstærð og
eðlisþyngd
Helsta framleiðsluafurð verk-
smiðjunnar er heilsusalt sem hol-
lenska fyrirtækið AKZO hefur
keypt, en það á einnig meirihluta i
fyrirtækinu. í apríl neitaði AKZO
að greiða fyrir það salt sem því var
selt vegna krafna um breytingar á
kornastærð og eðlisþyngd sem SFI
gat ekki orðið við. Fyrirtækið ósk-
aði í framhaldi af því eftir greiðslu-
stöðvun þann 25. apríl þegar það
var komið í greiðsluþrot.
I greinargerð sem framkvæmda-
stjóri Islenska saltfélagsins hf. og
fulltrúar minnihlutaeigenda í stjórn
fyrirtækisins hafa sent frá sér kem-
ur fram að fulltrúar þeirra eru
ósáttir við niðurstöðuna. Þeir lýsa
allri ábyrgð á gjaldþrotinu á hendur
meirihlutaeigenda í stjórn fyrirtæk-
isins vegna þess tjóns sem fyrir-
varalaus stöðvun á greiðslum kann
að valda fyrirtækinu, lánardrottn-
um og starfsmönnum þess.
Sjá: „íslenska saltfélag-
ið...“á bls.22.