Morgunblaðið - 05.05.1994, Síða 1
80 SIÐUR B/C
100. TBL. 82. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 5 . MAÍ1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sjórinn
aðhitna
London. Reuter.
SVO VIRÐIST sem heimshöfin
séu að hitna en þó ekki með
þeim hætti, sem kenningin um
gróðurhúsaáhrifín segir, heldur
eins og þau væru inni í risastór-
um örbylgjuofni. Hitastig
vatnsins miðja vegu milli botns
og yfirborðs hækkar hraðast.
Skýrðu breskir vísindamenn frá
þessu í gær.
Þetta er niðurstaða rann-
sókna og mælinga, sem gerðar
voru í Atlantshafi, á sömu leið
og Kólumbus sigldi fyrir 502
árum, eða á milli Vestur-Afríku
og Flórída.
„Með því að bera saman
þessar síðustu mælingar við
þær, sem áður hafa verið gerð-
ar á þessum breiddarbaug, 24°
norður, kemur í ljós, að hitinn
í sjónum hefur hækkað jafnt
og þétt frá 1957 og líklega
vegna aukins koltvísýrings í
andrúmsloftinu," segja vísinda-
mennirnir í grein í vísindatíma-
ritinu Nature. Hitastigið á
1.100 metra dýpi er nú 4,5°,
hefur hækkað um 0,32°, en
samkvæmt kenningum um
gróðurhúsaáhrif ætti sjórinn að
hitna mest við yfirborðið.
Reuter
Sveðjusafn
í Rúanda
TALSM AÐUR Rauða krossins í
Kigali, höfuðborg Rúanda, sagði
í gær að ástandið þar væri „al-
gjör hörinung" og svo hættulegt
væri að fara um göturnar að lið
hans gæti ekki náð í særða eða
dreift matvælum. Talsmaðurinn
sagði að ógnaröld ríkti í Kigali,
menn vopnaðir sveðjum dræpu
því sem næst alla sem á vegi
þeirra yrðu. Hundruð þúsunda
manna hafa beðið bana í óöldinni
í Rúanda og mikill fjöldi hefur
flúið til nágrannaríkjanna að
undanförnu. Á myndinni er haug-
ur af sveðjum sem teknar voru
af flóttamönnum við landamærin
að Tanzaníu.
Tímamótasamkomulag um hernumdu svæðin undirritað í Kaíró
Þráttað um Jeríkó
Reuter
SHIMON Peres, utanríkisráðherra ísraels, deilir við Yasser
Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO), sem
neitaði að undirrita kort yfir Jeríkó á Vesturbakka Jórdanar
og sagði að ekki hefði enn verið samið um stærð fyrirhugaðs
sjálfstjórnarsvæðis þar. Hann lét þó að lokum undan.
Palestmumenn
fá sjálfstjóm í
Jerflkó og Gaza
ísraelskir landnemar mótmæla
samkomulaginu harðlega
Kaíró. The Daily Telegraph.
YITZHAK Rabin, forsætisráðherra ísraels, og Yasser Arafat, leið-
togi Frelsissamtaka Palestínumanna, undirrituðu í gær tímamóta-
samkomulag um brottflutning ísraelskra hersveita og sjálfstjórn
Palestínumanna á Gaza-svæðinu og í Jeríkó á Vesturbakka Jórdan-
ar. Viðbrögð Palestínumanna á hernumdu svæðunum voru var-
færnisleg en ísraelskir landnemar mótmæltu samkomulaginu.
Vandræðaleg deila kom upp við
undirritun samkomulagsins í Kaíró,
en henni var sjónvarpað beint víða
um heim. ísraelsku ráðherrarnir og
Arafat körpuðu fyrir framan rúm-
lega 1.000 gesti og fulltrúa er-
lendra ríkja sem voru viðstaddir
athöfnina. Deilan snerist um stærð
Jeríkó og leiðtogarnir ákváðu að
semja um hana síðar svo hægt yrði
að undirrita samkomulagið. Nokkur
önnur ágreiningsmál eru enn óleyst
og verður einnig samið um þau síð-
ar.
ísraelsstjórn kvaðst reiðubúin að
ljúka brottflutningi hermanna sinna
frá Gaza og Jeríkó innan þriggja
vikna. Rabin sagði þó síðar að Ara-
fat hefði viljað að því yrði frestað
„í nokkrar vikur“ þar sem Palest-
ínumenn væru ekki enn undir það
búnir að taka við löggæslu á svæð-
unum.
Stækkun ESB sam-
þykkt á Evrópuþingi
Strasbourg. Reuter.
EVRÓPUÞINGIÐ samþykkti
áformin um aðild fjögurra þjóða,
Austurríkismanna, Finna, Norð-
manna og Svía, að Evrópusam-
bandinu með miklum meirihluta
atkvæða í gær.
Áformin um að fjölga aðildar-
ríkjum sambandsins úr 12 í 16
fengu mun meiri stuðning á þing-
inu en búist hafði verið við. „Eg
er mjög ánægður,“ sagði Theodore
Pangalos, Evrópumálaráðherra
Grikklands, sem stjórnaði samn-
ingaviðræðunum við löndin fjögur.
„Þetta voru langar samningavið-
ræður þannig að ég finn til léttis.
Ég bjóst við sigri en ekki svo stór-
um.“
Aðild Austurríkismanna og
Norðmanna var samþykkt með 374
atkvæðum gegn 24, Finna með 374
gegn 21 og Svía með 380 atkvæð-
um gegn 21. 517 fulltrúar eiga
sæti á þinginu og 259 þeirra þurftu
að samþykkja inngöngu ríkjanna.
Egon Klepsch, forseti þingsins,
sagði eftir atkvæðagreiðsluna að
þessi niðurstaða myndi auka til-
trúna á Evrópuþingið. Kosið verður
til þingsins eftir sex vikur.
Ekki er þó enn víst hvort af
aðild ríkjanna verður þar sem hún
verður borin undir þjóðaratkvæði
og mikil andstaða er í sumum
þeirra við inngöngu í Evrópusam-
bandið.
Frekari viðræður innan
tveggja ára
Eftir brottflutning ísraelsku her-
mannanna hefja ísraelar og PLO
samningaviðræður um sjálfstjórn
Palestínumanna á öðrum svæðum
á Vesturbakkanum og um kosning-
ar til nýs palestínsks bráðabirgða-
þings sem stjórna á svæðunum í
fimm ár.
Viðræður eiga að hefjast innan
tveggja ára um varanlega lausn á
deilunni um framtíð hernumdu
svæðanna. Þá verður samið um við-
kvæmustu málin, svo sem um fram-
tíð Jerúsalem, byggðir gyðinga,
flóttamenn og landamæri. Þangað
til fara ísraelar með öryggismál
svæðanna og utanríkismál.
■ Sáttagjörð ísraeIa/20
■ Kemst á friður?/29
■ Leiðari: Sjálfstjórn/28
Síðasta stjórn hvíta minnihlutans í Suður-Afríku
Ráðherr-
ar kveðja
Pretoríu. Reutcr,
RÁÐHERRAR síðustu stjórnar
hvíta minnihlutans í Suður-Afríku
héldu síðasta fund sinn í gær.
Ráðherrarnir 24 brostu þegar
teknar voru af þeim myndir á þess-
um sögulega fundi. „Við erum ekki
alltaf svona léttir á brún,“ sagði
F.W. de Klerk forseti.
De Klerk víkur fyrir Nelson
Mandela, sem tekur líklega við for-
setaembættinu á þriðjudag.
■ Kosningasvindl?/21
Reutor
SÍÐASTA stjórn hvíta minnihlutans í Suður-Afríku á síðasta
fundi sinum i gær. Þjóðstjórn verður mynduð í næstu viku.
Ást í há-
loftunum
Meriden. Reuter.
BANDARÍSKA flugfélagið
Meriden Aviation Services hefur
breytt sex sæta flugvél af gerð-
inni Piper Cherokee í ástarhreið-
ur með vatnsrúmi og ýmsum
þægindum.
„Við erum ekki að gera út á
kynlífið,11 sagði Frank Gallagher,
eigandi félagsins. „Við gerum
út á rómantíkina."
„Ástarflugið", eins og það er
kallað, kostar 220 dali, rúmar
15.000 krónur, á klukkustund.
Farþegarnir fá einnig kampa-
vínsflösku, rauða rós, gullnál og
aðild að félagi fólks sem hefur
notið ástarsælu í háloftunum.