Morgunblaðið - 05.05.1994, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Haraidur í Andra um skýrslu Ríkisendurskoðunar:
qry
------■***■-- —■ —— .««, SfG-Mc/AJO
Haraldur bíður með hausinn undir hendinni eftir því að þú saumir hann á aftur, hr.
Þorsteinn . . .
Góðrar þátttöku vænst á reyklausum degi sem er í dag
Færri veikjast nú en
áður vegna reykinga
REYKLAUS dagur er haldinn í dag
og hvetja heilbrigðisyfirvöld allt
reykingafólk til að nota ekki tóbak
í dag. Könnun sem Tóbaksvamar-
nefnd hefur gert bendir til að mjög
margir reykingamenn fari að tilmæl-
um um að reykja ekki á reyklausum
degi og allmargir noti tækifærið og
hætti að reykja. Helgi Guðbergsson
læknir og nefndarmaður í Tóbak-
svamamefnd segir að farið sé að
draga úr tíðni reykingasjúkdóma hér
á landi. Hann segir að þetta megi
rekja til minni reykinga, en reyking-
ar hafa verið að minnka í öllum ald-
urshópum á síðustu tveimur áratug-
um. Margt bendir til að reykingar
séu að aukast að nýju í yngstu ald-
urshópunum.
Hugðust ræna
24 fegurðar-
drottningum
SVALA Björk Arnardóttir, fegurð-
ardrottning íslands, var ein 24 feg-
urðardrottninga sem íslamskur
öfgahópur hugðist ræna og krefjast
lausnargjalds fyrir á Filipseyjum.
Svala Björk er stödd þar í landi til
að taka þátt Ungfrú alheimur-
keppninni sem fram fer 21. maí.
Órn Bárður Jónsson, faðir Svölu,
sagði í samtali við Morgunblaðið
stúlkurnar hefðu verið staddar á
eyju einni á Filipseyjum. Öfgahóp-
urinn hafi reynt að koma sprengjum
fyrir til að taka rafmagnið af borg-
inni og síðan hafi hugmyndin verið
að ræna stúlkunum.
Fjölnir Þorgeirsson, unnusti Svölu
Bjarkar, sagði að í kjölfar þessa
hafi allar öryggisráðstafanir verið
hertar til muna í kringum keppnina.
Til dæmis fengju þær ekki að fara
á milli hæða í hótelinu í lyftu nema
í fylgd vopnaðra varða.
P
LEIÐIR TIL AÐ HALDA
mmmmm
Helgi sagði
að svo virðist
sem margir
reykingamenn
vilji gjarnan
hætta við ein-
hver ákveðin til-
efni. Þannig
hætti margir
um áramót, á
afmælisdegin-
um sínum og á
reyklausa deg-
inum.
Helgi sagði
engan vafa
leika á að
fræðsla um
skaðsemi reyk-
inga hafí skilað
árangri í bættu
heilsufari fólks
og þar með minni kostnaði í heil-
brigðiskerfinu.„Það er farið að
draga úr sjúkdómum sem stafa af
reykingum. Það er farið að draga
úr tíðni kransæðasjúkdóms og
dauðsföllum af kransæðasjúkdómi
bæði hjá körlum og konum. Það er
farið að draga úr æðakölkun í fótum
sem er mjög reykingatengdur sjúk-
dómur. Það er farið að draga úr
lungnakrabbameini hjá körlum og
nýjustu upplýsingar benda til að
tíðni sjúkdómsins meðal kvenna sé
hætt að aukast og sennilega eitt-
hvað farin að lækka,“ sagði Helgi.
UQtotniuMuitimn vmtu i ■oxhönskum
gerð könnun á tíðni reykinga meðal
nemenda í grunnskólum. Könnunin
náði til um 28 þúsund ungmenna.
Niðurstöður könnunarinnar liggja
ekki fyrir, en niðurstaðnanna er
beðið með óþreyju.
„Við höfum verulegar áhyggjur
af því að reykingar séu að aukast
meðal ungs fólks. Bæði virðist það
vera tilfínning skólamanna að þetta
sé að aukast. Það er ýmislegt í tísk-
unni sem virðist ýta undir þetta,
en við erum að vona að þetta sé
tímabundin uppsveifla," sagði
Helgi.
Reykingar ungs fólks að
aukast?
Helgi sagði að kannanir sem
Tóbaksvarnarnefnd hefur látið gera
síðastliðin 10 ár sýni að dregið hef-
ur stöðugt úr reykingum og á það
við um alla aldurshóps. Hann sagði
að sennilega hefði þessi þróun stað-
ið yfír síðustu 20 ár. Á síðasta ári
mældist í fyrsta skipti aukning í
aldurshópnum 15-20 ára. í apríl var
í tilefni reyklausa dagsins hefur
Tóbaksvarnarnefnd sent um 2.500
veggspjöld til meira en 2.500 fyrir-
tækja um allt land ásamt eyðublaði
fyrir umsókn um viðurkenningu
sem Hjartavemd, Krabbameinsfé-
lagið, SÍBS og Tóbaksvamarnefnd
hafa undanfarin tvö ár veitt reyk-
lausum vinnustöðum. Um átta
hundmð vinnustaðir hafa þegar
fengið slíka viðurkenningu.
Eitt samfélag fyrir alla - fatlaða líka
Einstakt tæki-
færi sem ekki
gefst aftur í bráð
Ásta B. Þorsteinsdóttir
*
ráðstefnu um mál-
efni fatlaðra í
Reykjavík 1. til 3.
júní stendur til að gera
grein fyrir lífskjörum fatl-
aðra á sem víðtækastan
hátt. Yfirskrift hennar er
Eitt samfélag fyrir alla og
að sögn Ástu B. Þorsteins-
dóttur formanns Lands-
samtakanna þroskahjálpar
munu um 100 fyrirlesarar
frá öllum heimshornum
fjalla um margvíslegar
hliðar fötlunar, til dæmis
daglegan reynsluheim fatl-
aðra og aðstandenda
þeirra, fræðilegar rann-
sóknir henni tengdar og
pólitískar aðgerðir - eða
aðgerðaleysi. Eru þeir í
fremstu röð á alheimsvísu,
hver á sínu sviði og segir Ásta
ráðstefnuna eiga erindi við alla
sem láti sig málefni fatlaðra varða
og leggur áherslu á menntunar-
og fræðslugildi hennar.
Á erindi við alla
„Meðal fyrirlesara verða Krist-
ján Tómas Ragnarsson prófessor
í endurhæfingu í Bandaríkjunum,
Kristjana Kristiansen sem er hug-
myndafræðingurinn bak við um-
bótastefnu í málefnum fatlaðra í
Noregi, Hill-Martha Sulberg fé-
lagsmálaráðherra í Noregi, sem
mun gera grein fyrir stefnu stjórn-
valda þar í málefnum fatlaðra og
Bent Linquist fyrrverandi félags-
málaráðherra í Svíþjóð sem er
blindur. Auk þess mun Douglas
Biklen frá Bandaríkjunum fjalla
um tjáningu með stuðningi (facilit-
ated communication) fyrir ein-
hverfa og fatlaða sem ekki geta
talað, eitt umdeildasta málefnið
sem varðar fatlaða um
þessar mundir. Thakur
V. Hari Prasad kemur
frá Indlandi en hann
er forsvarsmaður fyrir
málefni fatlaðra þar í
landi. Einnig má nefna Edward
Roberts frá Bandaríkjunum, einn
skeleggasta baráttumann fyrir
málefnum fatlaðra í Bandaríkjun-
um. Hann var fyrsti mikið fatlaði
nemandinn sem komst til náms í
háskóla í Kalifomíu.“ s
Hún leggur áherslu á að ráð-
stefnan eigi erindi við alla og að
þarna muni gefast einstakt tæki-
færi til þess að afla sér upplýsinga
um það sem efst sé á baugi í
málefnum fatlaðra um heim allan
um þessar mundir. Sé óvíst að slíkt
tækifæri gefist aftur í bráð. Einn-
ig verður fjallað um stefnu og
markmið Sameinuðu þjóðanna fyr-
ir fatlaða, og nýsamþykktar
grundvallarreglur sem eru undanf-
ari alþjóðalaga um málefni þeirra.
Ásta segir einnig mikilvægt að
aðrar þjóðir viti að Sameinuðu
þjóðirnar séu einnig vettvangur til
að koma málefnum sem þessu
áleiðis. Ég vil líka vekja athygli á
► STÆRSTAogviðamestaráð-
stefna um mál fatlaðra sem
haldin hefur verið hér á landi
hefst í byijun júní. Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráð-
herra bauð til ráðstefnunnar í
ræðu á allsheijarþingi Samein-
uðu þjóðanna 1992 en hún er
haldin með stuðningi þeirra.
Fluttir verða um 100 fyrirlestr-
ar þar sem tekið verður á flestu
því sem snertir fatlaða, allt frá
daglegri reynslu til fræðilegra
rannsókna og koma fyrirlesar-
arnir víðs vegar að úr heim-
inum. Ráðstefnan er öllum opin,
foreldrum, fötluðum, fræði-
mönnum, fagfólki, stjórnmála-
mönnum og embættis- og sveit-
arstjórnamönnum.
því að ráðstefnan er líka vettvang-
ur til þess að koma á laggirnar
aðstoð við þróunarlönd og lönd í
Austur- og Mið-Evrópu
og að fulltrúum frá
þessum löndum sé boðið
sérstaklega til þátttöku
svo þeir geti nýtt sér
þekkingu og menntun
annarra landa og komið á tengsl-
um sem geta nýst til aðstoðar
heima fyrir,“ segir Ásta.
Enska, franska, táknmál og
blindraletur
Fyrirlestramir verða fluttir á
ensku en auk þess verða gerðar
ráðstafanir -til þess að sem flestir
geti nýtt sér upplýsingamar. Ur-
dráttur verður gefinn út á ensku
auk þess sem þeir verða túlkaðir á
íslensku, frönsku og táknmáli.
Einnig verður efni þeirra gefið út
á blindraletri eftir þörfum. Það eru
Landssamtökin þroskahjálp og Ör-
yrkjabandalagið sem skipuleggja
ráðstefnuna sem haldin er í sam-
vinnu við Sameinuðu þjóðirnar og
með þeirra stuðningi. Auk þess
leggja hönd á plóginn utanríkis-
og félagsmálaráðuneytið, Háskóli
íslands, Flugleiðir, Reylqavíkur-
borg, Swiss Bank Corporation og
fjölmörg íslensk fyrirtæki.
„Ráðstefn-
an á erindi
við alla“
Aðra kosningri þarf til
að velja vígslubiskup
í GÆR voru talin atkvæði í kosn-
ingu til vlgslubiskups í Skálholts-
stifti. Á kjörskrá voru 134. 129 at-
kvæði bárust.
Séra Sigurður Sigurðsson, sókn-
arprestur á Selfossi, hlaut 49 at-
kvæði. Séra Guðmundur Þorsteins-
son, dómprófastur í Reykjavík, hlaut
38 atkvæði og séra Karl Sig-
urbjömsson, sóknarprestur í Hall-
grímskirkju, hlaut 29 atkvæði.
Tveir prestar hlutu 3 atkvæði og
fimm aðrir eitt hver; tveir atkvæða-
seðlar voru auðir.
Þar sem enginn fékk meirihluta
greiddra atkvæða verður kosið að
nýju milli þeirra þriggja manna er
flest atkvæði hlutu.
Búist er við, að úrslit verði Ijós
um næstu mánaðamót.