Morgunblaðið - 05.05.1994, Side 9

Morgunblaðið - 05.05.1994, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994 9 FRÉTTIR Foreldrar fá að þjálfa börn sín í akstri bifreiða Varðstofa vegna neyðarsímanúmers Rættum samstarf við rekstur VIÐRÆÐUR hafa átt sér stað milli Slökkviliðs Reykjavíkur, Slysavarnafélags íslands, Vara og Securitas um sameiginlegan rekstur varðstofu í höfuðborg- inni með tilkomu neyðarsíma- númersins 112, sem ráðgert er að komið verði á eigi síðar en í lok ársins 1995. Að sögn Hrólfs Jónssonar slökkviliðs- stjóra eru viðræðurnar enn skammt á veg komnar. Nefnd sem dómsmálaráð- herra skipaði lagði til að komið yrði á samræmdu neyðarsíma- númeri, 112, fyrir landið allt, til að taka allan sólarhringinn við beiðnum um neyðaraðstoð lögreglu, slökkviliðs, sjúkra- flutningamanna, lækna og björgunarsveita í stað þeirra um 150 símanúmera sem nú þarf að hringja í um landið allt eftir slíkri þjónustu. í skýrslu nefndarinnar er gert ráð fyrir einni vaktstöð á höfuðborgar- svæðinu með sólarhringsvökt- un fyrir landið allt en að eftir því sem aðstæður og fjárhagur leyfi verði byggðar upp vakt- stöðvar í einstökum landshlut- um. Lagafrumvarp þessa efnis hefur verið lagt fyrir Alþingi. Uppboðs- markaðurinn hægt af stað UPPBOÐ á notuðum bíium hjá uppboðsmarkaðinum Krónunni hf. hefur farið heldur hægt af stað, að sögn Hilmars Krist- jánssonar eiganda fyrirtækis- ins. Fjögur uppboð hafa verið haldin, og sagði Hilmar sifellt fleiri koma og fylgjast með, en menn væru tregir til að taka virkan þátt enn sem komið er. Hilmar sagði talsvert um að menn gerðu tilboð í bíla að loknu uppboði, og því hyggðist hann vera með tiiboðsmarkað alla virka daga, en halda upp- boðunum engu að síður áfram á laugardögum. ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráð- herra hefur breytt reglugerð um ökukennslu í þá veru að foreldrar eða velunnarar ökunema mega hér eftir taka að sér þjálfun þeirra. Þjálf- unin kemur til viðbótar hefðbundinni ökufræðslu sem ökukennarar sinna. Dómsmálaráðherra segist binda miklar vonir við að breytingin verði til bæta umferðarmenningu á Islandi og fækka slysum. Fyrir u.þ.b. einu ári var umferðarlögum breytt og sett inn í þau ákvæði sem kveður á um að sérstakir leiðbeinendur megi taka að sér þjálfun ökunema. Jafn- framt var heimilað að ökun- ám mætti heflast sex mán- uðum áður en ungmenni ná 17 ára aldri, en eldra ákvæði miðaði'við þijá mán- uði. Sú breyting sem gerð hefur verið felur ekki í sér að dregið verður úr kennslu ökukennara. Þjálfun undir leiðsögn foreldra eða vel- unnara felur í sér hreina viðbót við hefðbundna ökukennslu. 4-6 mánaða þjálfun Vilji ökunemi nýta sér möguleika á þjálfun undir leiðsögn aðstand- enda hefur hann samband við öku- kennara sem tekur hann í ökutíma og kennir honum grundvallaratriði varðandi akstur bifreiðar. Eftir að nemandinn hefur fengið þessa fræðslu í 2-4 vikur getur foreldri eða einhver annar leiðbeinandi tek- ið við að þjálfa hann. Sá þjálfunar- timi getur staðið yfir í 4-6 mánuði. Við þjálfunina verður bíll leiðbein- andans merktur með sérstöku skylti sem á stendur „Æfingaakstur“. Áður en þjálfun hefst leggur öku- kennarinn mat á hæfni nemandans til að fara í þjálfun hjá leiðbein- anda. Einnig verður að fá vottorð frá tryggingarfélagi og sérstakt leyfi frá lögreglustjóra. Leiðbein- andi verður að vera orðinn 24 ára og hafa reynslu af akstri bifreiðar í a.m.k. fimm ár. Hann verður einn- ig að hafa haft gilt ökuskírteini síð- ustu 12 mánuði og má ekki hafa gerst sekur um vítaverðan akstur. Að loknum þjálfunartimanum legg- ur ökukennari mat á hæfni nemend- ans og að síðustu fer hann í öku- próf. Óli H. Þórðarson framkvæmda- stjóri Umferðarráðs sagði að það sé almennt viðurkennt að reynsluleysi ungra ökumanna sé ein stærsta or- sök fyrir umferðaróhöppum hér á landi. Hann sagðist því binda miklar vonir við að slysum fækki með þess- ari breytingu. Þau leyfi sem ökuneminn þarf að afla sér hjá ökukennara og lögreglu- stjóra fela ekki í sér neinn auka- kostnað. Hins vegar hafa trygging- arfélögin ekki svarað því hvernig þau muni bregðast við þessari nýj- ung. Talsmenn þeirra segja að aukin áhætta fylgi tryggingum þegar próf- laus ökumaður situr undir stýri þó að fullgildur leiðbeinandi fylgist með akstri hans. Líklegt er talið að þau muni bregðast ólíkt við þessu. Dóms- málaráðherra benti á að stefnt sé að því að þessi breyting skili betri ökumönnum þegar fram í sæki og þar með lægri útgjöldum fyrir trygg- ingarfélögin. Reynsla annarra þjóða er góð Reynsla annnarra þjóða af öku- þjálfun undir leiðsögn leiðbeinanda er mjög góð. Slys meðan á þjálfun stendur hafa verið mjög fá. Svíjar og Norðmenn hafa í nokkur ár hag- að ökukennslu með svipuðum hætti og nú er verið að taka upp hér á landi. Þar fá ungmenni ökuréttindi við 18 ára aldur og þjálfunartíminn getur staðið í allt að tvö ár. Morgunblaðið/Sverrir Oli H. Þórðarson framkvæmdastjóri Umferðarráðs (t.v.) og Þorsteinn Páls- son dómsmálaráðherra. ______STEINAR WAAGE_________ SKÓVERSLUN Villtar tær í villtum mosa Nýjung gæðir BAMA skóna sérstökum kostum. Þeir hafa innbyggðan skógarmosa sem nemur til sína raka, er þægilegur, ferskur og hefur góð áhrif á húðina. BAMA skórnir eru framúrskarandi. Þar má nefna sérstaklega hina vel hönnuðu fótahvílu. Fæturnir hvíla á þeim stuðningi, sem hið góða innlegg veitir. ! f ? BAMA hefur einkaleyfi á þessum mosasóla, sem hefur náð miklum vinsældum í Þýskalandi og víðar. Auk þess eru allar afurðir BAMA í sérflokki hvað gæði varðar. STEINAR WAAGE ^ SKÓVERSLUN J? SÍMI 18519 <P STEINAR WAAGE ^ SKÓVERSLUN ^ SÍMI 689212 ^ lU'BVtturjipu uí.'Slí -wniimium 01 Ný töskusending Frábært úrval Fræbært verð Verð frá kr. 2.985,- Snyrti- og gjafavöruverslun, Miðbæ, Háaleitisbraut. SILFURSKEMMAN Silfurskartgripir frá Chile og Mexíkó Tilvalið til fermingagjafal Opið dagl. frá kl. 15-18, laugard. frá kl. 10-12 eða eftir samkomulagi. Sími 91-628112 Miðbraut31, 170 Seltjarnarnesi. Qj^amK gjafverði STÓRFELLD VERÐLÆKKUN Á næstunni kynnum við nýjar gerðir (írmm kæliskápa. I sam- vinnu viDanmörku bjóðum við því síðustu skápana af 1993 árgerðinni, og nokkrar fleiri gerðir, með verulegum afslætti, eins og sjá má hér að neðan: (ÍIUM Ytri mál mm: Rými Itr. Verð Verð nú aðeins: gerð: HxBxD Kæl.+ Fr. áður m/afb. stgr. K-180 865x595x601 172+ 0 53.750 45.690 42.490 K-285 1265x595x601 274+ 0 56.980 49.980 46.480 K-395 1750x595x601 379+ 0 83.850 73.970 68.790 KF-185 1065x550x601 146+ 39 51.580 48.990 45.560 KF-232 1265x550x601 193+ 39 55.900 53.740 49.980 KF-263 1465x550x601 199+ 55 59.130 57.950 53.890 KF-250 1265x595x601 172+ 62 63.430 56.950 52.960 KF-355 1750x595x601 274+ 62 77.400 67.730 62.990 KF-344 1750x595x601 194+ 146 84.900 74.160 68.970 Dönsku kæliskáparnir eru rómaðir fyrir glæsileika, styrk, sparneytnlog hagkvæmni. Verðið hefur aldrei verið hagstæðara. Láttu því þetta kostaboð þér ekki úr greipum ganga! Veldu - GÆÐANNA og VERÐSINS vegna. GjFtA/yt rftniv fyrsta flokks frá D3» ftT UI 11 HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420 örtgg\ss^or Vet» bó Vt. 3.750.- Vinnuvernd í verki 1954 - 1994 Allt fyrir öryggiö í 40 ár Skeifan 3h - Sími 81 26 70 • FAX 68 04 70 B >. i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.