Morgunblaðið - 05.05.1994, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Lágt vöruverð er skilyrði
fyrir rekstri Þorpsins
Fyrir skömmu var
opnað Þorp í Borgar-
kringlunni og eru þar
25 verslanir. Jóhanna
Ingvarsdóttir brá sér
þangað til að skoða
úrvalið.
Gingseng-
þykkni á
markað
RAUTT eðalgingsengþykkni er nú
aftur komið á markað eftir að
hafa ekki verið til í um það bil ár.
Verð á þykkninu hefur lækkað
að sögn Sigurðar Þórðarsonar inn-
fljAjanda og segir hann ástæðuna
þá að nú sé gingsengið flutt beint
inn frá Kóreu, en áður hafi það
verið flutt inn í gegnum Þýska-
land.
„Algengt útsöluverð á glasi af
þykkninu er um 3.300 krónur, sem
er sama verð og fyrir sex árum.
í hveiju glasi eru 35-40 skammtar
og má til dæmis hræra þykknið út
í heitt vatn eða te.“
Sigurður segir að sala á gings-
engi aukist alla jafna á þessum
árstíma. „Menn taka gjarnan
gingseng þegar álagið er mikið.
Bændur fá sér margir gingseng
meðan sauðburður er og náms-
menn meðan þeir eru í prófum.
Þá er algengt að íþróttamenn taki
gingseng og einnig eldra fólk.“
Sigurður segir að gingseng hafi
meðal annars hressandi áhrif. „Til
gamans má líka geta þess að
Kóreumenn gerðu rannsókn á
áhrifum þess í tengslum við áfeng-
isneyslu. í ljós kom að úthreinsun
var mun hraðari hjá þeim sem
fengu gingseng en hjá samanburð-
arhópnum og líðan þeirra daginn
eftir var miklu betri en hjá þeim
sem ekki fengu gingseng.“
Fljótandi
Akra
smjörlíki
SMJÖRLÍKISGERÐ KEA hefur
nýlega sett á markað fljótandi
AKRA smjörlíki. Víða erlendis
hefur fljót-
andi smjörlíki
verið að ryðja
sé til rúms og
nýtur þar
aukinna vin-
sælda, sér-
staklega
vegna þess
hversu hent-
ugt og þægi-
legt það er í notkun.
Fljótandi smjörlíki er hægt að
nota í stað smjörlíkis eða smjörs
í matargerð, bakstur, sósur og er
jafnframt hentugt til steikingar.
AKRA fljótandi smjörlkíki inni-
heldur rabsolíu, sem er talin með
allra hollustu olíum og inniheldur
lítið af mettaðri fitu.
----♦--»-♦--
Tilboð fyrir
nýja seljendur
í Kolaportinu
UM helgina verður nýjum seljend-
um boðinn sérstakur afsláttur á
sölubásum í Kolaportinu og mun
básinn kosta 1.800 krónur.
Talið er að meira en 20.000
Islendingar hafi prófað að selja í
Kolaportinu og nú fer hver að
verða síðastur að prófa söluhæfi-
leika sína í gamla Kolaportinu því
þann 21. maí næstkomandi flyst
það í Tollhúsið.
----» ♦ ♦---
„Pítudagar“
í Hagkaup
ÞESSA dagana standa yfir svo-
kallaðir „pítudagar" í Hagkaup.
Kynningar verða á pítum, ýmis
tilboð eru í gangi og viðskiptavin-
um gefnar uppskriftir um leið og
þeir smakka.
kAK RAÍ
Öryggi
barna
Oryggishellur þeirra
Jóhanns Bjarna-
sonar og félaga hafa
reynst vel á þeim leik-
völlum þar sem þeim
hefur verið komið fyrir.
A
IBorgarkringlunni, nánar til-
tekið á annarri hæð í því
húsrými sem áður hýsti
Kringlusport, hefur Þorpið verið
starfandi frá því í mars sl. I Þorp-
inu eru 25 verslanir í um 800
fermetra rými.
„Viðtökurnar hafa verið mjög
góðar enda hefur það sýnt sig
að Þorpið er komið til að vera,“
segir Hannes Ragnarsson, sem
gengur gjarnan undir titlinum
„sveitarstjórinn" í Þorpinu.
Hannes er einn þriggja rekstrar-
aðila, en hinir eru Jón Sigurðsson
og Daníel Daníelsson. Saman
ráku þeir Stórmarkaðinn í Faxa-
feni þangað til um síðustu mán-
aðamót, en auk þess að reka nú
Þorpið, rekur Daníel fataverslun-
ina Nínu á Akranesi og þeir Jón
og Hannes standa að þremur
verslunum í Keflavík: Kódu, K-
sporti og Fatamarkaðnum.
25 verslanir
Af þeim 25 verslunareining-
um, sem er að fínna í Þorpinu,
reka þremenningarnir sjálfir fjór-
ar þeirra: Thomsens-magasín
sem selur fatnað á börn og full-
orðna og íþróttavörur, Grund sem
er verslun með fatnað og skó á
verði frá 99 kr. og upp í 990
kr., Bristol sem verslar með inn-
fluttan notaðan tískufatnað á
yngri kynslóðina og svo Antik-
flóru sem selur m.a. antik-hús-
gögn og „Churchill“ matar- og
kaffistell. Sex manna matarstell,
sem í eru 30 hlutir, kostar um
3.400 kr. „Ef þú umbreytir verð-
inu yfir í karamellur, þá kostar
hvert stykki í stellinu þijár kara-
mellur, eða 113 krónur,“ segir
afgreiðslumaðurinn Jón Magnús
Björnsson.
Aðdráttaraflið
Útlit sitt sækja verslanirnar í
gamla burstabæja-formið og
verslunarheitin láta líka kunnug-
lega í eyrum. Þarna er t.d. Geirs-
búð, Duus-verslun, Fjalaköttur-
inn, Geysir, Nóra-magasín og
Borg svo eitthvað sé nefnt. Ljóst
er að verðmerkingar eru jafn-
framt í heiðri hafðar og það á
áberandi stöðum innan veggja
Þorpsins enda eiga þau að vera
eitt aðal aðdráttarafl Þorpsversl-
unarinnar. „Það má segja að
þeir kaupmenn sem fá hér inni
verði að sætta sig við það að
bjóða lágt vöruverð. Það er jú
markmiðið. Þorpið er einskonar
millistig milli stórmarkaðar og
Kolaportsins og ég myndi segja
að vöruverð hér væri almennt
30-40% lægra en í venjulegum
verslunum. Þetta er hægt með
Öryggishellur úr gúmmmíi
geta hindrað slys á börnum
ÖRYGGISHELLUR úr endurunnu
gúmmíi fengu viðurkenningu frá
átakinu Öryggi barna okkarábyrgð
fyrir skömmu. Gúmmívinnslan hf.
endurvinnur gúmmíið en Islensk
vöruþróun hf. hannaði hellurnar.
Upphaf þessa má rekja nokkur
ár aftur í tímann, þegar Jóhanr.
Bjarnason og félagar hans voru við
nám í Tækniskólanum.
„Þegar kom að lokaverkefni,
ákváðum við að huga að umhverfís-
vernd og vinna með endurunnið og
endurvinnanlegt efni. Við höfðum
samband við Gúmmívinnsluna og
vorum í samstarfi við Herdísi
Staargard, sem hefur unnið mikið
að öryggismálum barna.“
Eftirlíking af barnshöfði gerð
úr áli
Þegar afráðið var að vinna ör-
yggishellur úr endurunnu gúmmíi,
smíðuðu þeir félagar mælitæki sem
lokaverkefni. Tækið mælir demp-
unareiginleika á öryggishellunum.
„Við gerðum álkúlu sem eftirlík-
ingu af barnshöfði og til að mæla
fallhraða var kúlan sett í gálga.
Með því að herma eftir höggi var
reiknað út hvernig hellur væru ör-
uggastar miðað við að barn félli á
þær.“
Nú er unnið að því að staðla
gæðakröfur um undirlag og yfir-
borðsefni á leikvöllum í öllum Evr-
ópulöndum. „Krafa verður um að
undir rólum séu hvorki steyptar
hellur né viður, heldur sandur eða
öryggishellur úr gúmmíi. Evrópsk-
ur gæðastaðall er líkur þeim breska
og voru því öryggishellurnar sendar
þangað í prófanir og mælingar
stóðust mjög vel.
Nokkrir leikskólar hér hafa látið
setja öryggishellur á lóðirt.d. Lauf-
ás á Þingeyri. „Við létum setja þær
undir rólur s.l. sumar með öryggi
barnanna í huga,“ segir Sonja Elín
Thompson leikskólastjóri. „Snjór
bráðnar vel af þeim og reynslan
er góð. Ég býst við að 'keyptar
verði hellur undir fleiri leiktæki
eftir því sem fjármagn leyfir.“
Snjólausar gúmmítröppur
Jóhann útilokar ekki útflutning.
„Við vitum að framleiðsla okkar
er 30-40% ódýrari en sambærileg
framleiðsla í Þýskalandi og e.t.v
kæmi að því að flytja út seinna.“
Þeir félagar hefja senn framleiðslu
á gúmmíhellum með innbyggðu
snjóbræðslukerfi, einnig í samvinnu
við Gúmmívinnsluna og gætu þær
verið komnar á markað eftir eitt
ár. „Við ætlum að nota tvenns
konar orkugjafa svo fólk geti valið
hvort kerfið notar heitt vatn eða
rafmagn. Hægt verður að leggja
gúmmíhellurnar ofan á tröppur og
fá þannig snjóbræðslukerfi án þess
að bijóta upp tröppurnar. Gúmmí
er góður kostur, sterkt efni sem
er stamt og er því ekki jafn sleipt
í bleytu og steypa eða viður. Síðast
en ekki sist er það endurunnið."
Morgunblaðið/Sverrir
Þorpið er einskonar
millistig milli stór-
markaðar og Kola-
portsins.
Hannes Ragnars-
son, sveitarsljóri í
Þorpinu, t.h. á
myndinni, ásamt
Jóni Magnúsi
Björnssyni af-
greiðslumanni í
Antik-flóru, sem er
ein 25 verslanna í
Þorpsins.
minni álagningu, minni tilkostn-
aði, styttri opnunartíma og yfir
höfuð hagstæðari rekstrarein-
ingu,“ segir Hannes.
Verðlag
Á gönguferð um Þorpið mátti
svo dæmi séu tekin fá bómullar-
skyrtur á 1.790-2.490 kr., Relco
enskar gallabuxur á fullorðna á
1.990, Struggle’s gallabuxur á
990 og Big Time barnagallabuxur
í nokkrum litum á 880 kr. íþrótta-
galla á fullorðna er hægt að fá á
4.900 og íþróttaskó frá 500 kr.
og upp í 4.900 kr. Adidas leður-
golfskór kosta 1.990 og takka-
skór á börnin 890 kr. Stutterma-
boli má fá á 290 kr. eða þtjá
saman í pakka á 590 kr. Slæður
úr hrásilki kosta 290-590 og
stígvél á börnin frá 650-990 kr.
svo fátt eitt sé nefnt.