Morgunblaðið - 05.05.1994, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Atvinna
Tillögur frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins
fyrir borgarstjórnarkosningar 28. maí 1994 um
í Reykjavík þarf um 6 þúsund ný störf fram til ársins 2000 til að mæta árlegri
fjölgun fólks á vinnumarkaði og koma í veg fyrir viðvarandi atvinnuleysi.
Öryggi er það sem fjölskyldunni er mikilvægast. Grunnur fjárhagslegs öryggis
hvílir á atvinnunni sem er stærsta hagsmunamál fjölskyidunnar þótt hið félagslega
öryggi sé ekki síður mikilvægt. Sjálfstæðismenn kynna hér á eftir leiðir sem ætlað
er að skapa íslandi sérstöðu með einstökum tækifærum til þróttmikils atvinnulífs
og góðrar þjónustu í þágu allra borgarbúa.
Skapa þarf traustara fyrirtækjaumhverfi, sem stuðlar að öflugu nýsköpunar- og
þróunarstarfi og hefúr í för með sér fjölgun vel launaðra starfa fyrir borgarbúa.
Það er helst gert með því að hlúa að vaxtarbroddum í atvinnulífinu eins og
ýmsum smáiðnaði, þróunarfyrirtækjum, fyrirtækjum í ferðaþjónustu og nýjum
framsæknum hugmyndum.
Með átaksverkefnum verður áfram
dregið úr afleiðingum atvinnuleysisins
á sama tíma og lögð verður aukin
áhersla á langtímaaðgerðir sem stuðla
að þróttmeira atvinnulífi í framtíðinni.
vlrnw á ffiHfii! vikum
samgönguverkefnum á vegum ríkisins,
svo sem framkvæmdum við mislæg
gatnamót í Reykjavík. Unnið er að
hugmyndum um fjármögnun verkefna
af þessum toga. Sjálfstæðismenn leggja
áherslu á að framlag Reykjavíkurborgar
í Atvinnuleysistryggingasjóð verði nýtt
að fullu til átaksverkefna í borginni.
Þá verður sem fyrr kappkostað að veita
reykvískum unglingum og öðru skóla-
fólki, sem ekki fær vinnu á hinum al-
menna vinnumarkaði, sumarstörf á
vegum borgarinnar.
Námsiramboó sniöió
þörfum
mMmwlmmm
í framhaldi af samþykkt borgarstjórnar
frá 3. mars sl. um úrræði í atvinnumál-
um fá 1.200 manns af atvinnuleysis-
skrá tækifæri tii að halda tengslum við
vinnumarkaðinn. Sjálfstæðismenn
munu beita sér fyrir því í samvinnu við
aðila á vinnumarkaðinum að nýta öll
tiltæk úrræði til að skapa sem flestum
störf við margvísleg átaksverkefni.
Einnig verði reynt að flýta arðbærum
Reykjavíkurborg hefur lagt aukna
áherslu á viðhaldsverkefni á eignum
borgarinnar. Sjálfstæðismenn vilja enn
aukna áherslu á þessu sviði, t.d. varð-
andi leikskóla og grunnskóla.
Mikilvægt er að gera atvinnulausum
kleift að stunda nám sem byggir upp
sjálfstraust þeirra. Stuðla þarf að auk-
inni uppbyggingu starfsmenntabrauta
með því að samhæfa starfsemi fræðslu-
aðila. Þannig yrði atvinnulausu fólki
gefinn kostur á að skapa sér möguleika
til að sækja inn á vinnumarkaðinn í
góð og betur launuð störf. Að þessu er
nú unnið á vegum Atvinnumála-
nefndar Reykjavíkur en borgin hefur
að eigin frumkvæði lagt fram mikla
fjármuni til fræðsluverkefna í þágu at-
vinnulausra. Yfirstandandi breytingar á
Vinnumiðiun Reykjavíkurborgar
munu ennfremur stuðla að stórbættri
þjónustu í þágu atvinnulausra.
Sjálfstæðismenn ætla ekki að einka-
væða þjónustufyrirtæki í eigu Reykja-
víkurborgar. Hins vegar ber áfram að
leita allra leiða til að ná fram aukinni
skilvirkni í rekstri fyrirtækja og stofn-.
ana borgarinnar, m.a. með aukinni
ábyrgð stjórnenda þeirra og
áframhaldandi útboðum þar sem það á
við. Forsenda öflugs atvinnulífs í
borginni eru lágar álögur á fyrirtækin
og skilvirkur borgarrekstur, sem gefur
tiiefni til lækkunar á gjaldskrám.
Umbætur í borgarrekstrinum eiga að
hafa það meginmarkmið að bæta
þjónustu við borgarbúa og að ná fram
hagræðingu. Sjálfstæðismenn vilja
greiða fyrir starfsemi smærri fyrirtækja
með því að haga útboðum þannig að
þau eigi í auknum mæli kost á
verkefnum hjá Reykjavíkurborg.