Morgunblaðið - 05.05.1994, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994 17
Tíu lyklar að
Atvinnulíf í Reykjavík þarf að þróast í takt við breytt viðskiptaumhverfi í heim-
inum. Hafin er úttekt á samkeppnisaðstöðu íslands og Reykjavíkur en slík úttekt
er forsenda árangursríkrar stefnumörkunar í atvinnumálum.
Sjálfstæðismenn viija hlúa að því sem vel hefur tekist í atvinnumálum í Reykjavík,
svo sem framleiðslu tækjabúnaðar. tengdum sjávarútvegi, matvælaframleiðslu,
verkefnaútflutningi og margvíslegri þjónustu. Með samvinnu Reykjavíkurborgar,
Háskóla íslands og atvinnufyrirtækja í borginni verður unnið að langtíma-
stefnumótun og nýsköpun í atvinnurekstri.
nýjum tímum
Reykjavíkurborg átti frumkvæði að nýju þróunarfyrirtæki sem ber nafnið Aflvaki
Reykjavíkur hf. Hlutverk þess er að styðja rannsóknar- og þróunarverkefni og að
skapa smáfyrirtækjum aðstöðu til þróunarstarfs.
Borgarstjóri vinnur nú að því að koma á samstarfsvettvangi aðila úr atvinnulífinu,
jafnt úr röðum vinnuveitenda og launþega, til að móta frekari stefnu í atvinnu-
málum borgarinnar til ársins 2000. Markmiðið er öflugt og fjölbreytt atvinnulíf í
höfuðborginni.
/f Heilnæmasta
• borg í heimi
Mikilvægt er að skapa Reykjavík
jákvæða ímynd með tilliti til marg-
víslegra möguleika okkar í viðskiptum
við umheiminn, t.d. í ferðaþjónustu og
matvælaframleiðslu. Sjálfstæðismenn
vilja ráðast í alhliða aðgerðir til að
treysta ímynd Reykjavíkur sem heilsu-
borgar, þar sem hreinleiki lofts og lagar
sé í fyrirrúmi. Leitað verður eftir
auknu samstarfi aðila í ferðaþjónustu
um kynningu á höfuðborginni og
eflingu hennar sem funda- og ráð-
stefnuborgar, ekki síst með áherslu á
þjónustu utan háannatíma.
Unnið er að heildstæðri áætlun um
áframhaldandi uppbyggingu í ferða-
þjónustu. Þeirri áætlun tengist meðal
annars athugun á Reykjavík sem al-
þjóðlegri heilsumiðstöð og aukinni
nýtingu Nesjavallasvæðisins til útivistar
og heilsuræktar. Kannaðir verða mögu-
leikar á samstarfi Reykjavíkurborgar
við önnur sveitarfélög í þessu sam-
bandi.
Sjálfstæðismenn leggja áherslu á að
komur erlendra farþegaskipa tvöfaldist
fram til aldamóta. Samstarf Reykja-
víkurhafnar við erlenda aðila gefur já-
kvæðar vísbendingar um að það muni
takast. Þjónusta hafnarinnar verði
aukin, svo sem með starfrækslu frí-
hafnarverslunar fyrir erlendar áhafnir
og farþega.
,jli \ Smáfyrírtækin
* vaxtarbroddur
■ , í atvinnulífinu
Smáfyrirtæki og samstarfsnet þeirra
verða áberandi á heimsmarkaði fram-
tíðarinnar. Reykvíkingar eiga mikla
möguleika á þessum markaði vegna
góðrar menntunar og tæknivædds um-
hverfis. Efla þarf því uppbyggingu
lítilla fyrirtækja í borginni. Mörg
smærri fyrirtæki eða einstaklingar, með
nýjar hugmyndir í atvinnurekstri, geta
ekki nýtt sér þá aðstöðu sem fyrir er og
eru með of lítinn rekstur til að falla að
fjármagnsmarkaðnum. Sjálfstæðis-
menn vilja útbúa nýja aðstöðu fyrir
slíkan atvinnurekstur, sem gæti starfað
í samstarfsneti við önnur smáfyrirtæki.
í athugun er hvernig best verði staðið
að sköpun slíkrar aðstöðu, m.a. með
nýtingu húsnæðis í eigu Reykjavíkur-
borgar eða einkaaðila. Sjálfstæðismenn
vilja greiða fyrir því að viðskipti borg-
arinnar við smáfyrirtæki verði grund-
völlur að frekari uppbyggingu þeirra.
3.
„Islenskt
Já takk”
Augljóst er að innlend framleiðsla
skapar fleiri störf. Borgarstjóri hefur
ákveðið að koma á starfshópi sem
markar stefnu til að innkaup taki mið
af eflingu innlends iðnaðar. Borgarráð
samþykkti á fúndi sínum 22. mars sl.
tillögu borgarstjóra um að við útboð
og verðkannanir hjá borgarsjóði og
fyrirtækjum borgarinnar verði tryggt
að hlutur innlendra framleiðenda og
þjónustuaðila verði hvergi fyrir borð
borinn. Jafnframt að núgildandi fyrir-
mæli og starfshættir verði endurskoð-
aðir í samræmi við þetta markmið.
4.
Þjónustumiöstöð
í Norður-
Atlantshafi
Reykjavíkurborg og stofnanir hennar
hafa verið virkir þátttakendur í úrlausn
ýmissa verkefna í atvinnulífinu. Nú
vantar aðeins herslumuninn á að
íslendingar taki forystu í flestu sem
viðkemur fiskveiðum og vinnslu
sjávarfangs úr Norður-Atlantshafi. í
því sambandi má nefna hugmyndir um
sjávartæknigarða. Reykjavíkurhöfn
hefur þegar hafið samstarf við
einkafyrirtæki í borginni til að kynna
þjónustu hafnarinnar og þeirra
fyrirtækja sem tengjast sjóflutningum
og sjávarútvegi.
Mikilvæg forsenda þjónustumiðstöðvar
af þessum toga er að Reykvíkingar geri
kröfú um að skipum bjóðist olía á sam-
keppnishæfu verði.
Brýnt er að ráðast í enduruppbyggingu
skipasmíðaiðnaðarins í Reykjavík þar
sem leitað verður eftir víðtæku sam-
starfi um verkaskiptingu á landsvísu,
fjölþættari þjónustu og stóraukna er-
lenda verkefnaöflun.
5.
Frísvæói í
Reykjavík
Sjálfstæðismenn styðja að Reykjavíkur-
höfn vinni, í samstarfi við fyrirtæki í
borginni, áfram að þróun áætlana um
frísvæði með tilliti til vöruflutninga á
milli Evrópu og Ameríku, svo og auk-
inna flutninga til og frá Grænlandi.
x Fjárfestingar-
& • kostir í Reykjavík
Sjálfstæðismenn vilja vekja athygli á
Reykjavík sem eftirsóknarverðum val-
kosti fyrir erlend fyrirtæki. Hún þarf
að vera samkeppnishæf við erlendar
borgir t.d. hvað varðar rekstrarkostnað,
menntun og þjálfun vinnuafls.
Forvinna til kynningar á Reykjavík
fyrir erlendum fjárfestum er hafin en
sú vinna er m.a. byggð á ítarlegri starfs-
skilyrðaúttekt og mati á samkeppnis-
stöðu íslands.
7.
Stuöningur viö
verkefnaútflutning
Reynslan hefur þegar sýnt að mörg
fyrirtæki eiga fullt erindi á erlendan
markað og sum þeirra hafa nú þegar
náð umtalsverðum árangri, með stuðn-
ingi Reykjavíkurborgar. Aflvaka
Reykjavíkur hf. er ætlað það hlutverk á
þessu sviði að sameina kraftana og
stuðla að því að reynsla eins útflutn-
ingsaðila nýtist öðrum. Um leið og
erlend fyrirtæki, m.a. frá nágranna-
þjóðum okkar, sækja hingað eftir verk-
efnum í auknum mæli er brýnt að
fyrirtæki í borginni leiti á erlenda
markaði.
S'.
Samstarf
Reykja víkurborgar,
atvinnulífsins og
Háskóla íslands
sín fólk. Þannig er unnt að láta hjól
atvinnulífsins snúast hraðar. Sjálfs-
tæðismenn vilja að fyrirtækjum og ein-
staklingum verði gert kleift með skatt-
kerfisbreytingum að leggja fé í þróun-
arverkefni og atvinnuuppbyggingu.
Viðræður þess efnis eru þegar hafnar
við ríkisvaldið.
Sjálfstæðismenn telja það grundvallar-
atriði að fjárfestingar í atvinnulífinu
hafi forgang svo grunnur sé lagður að
verðmætasköpun. Tímabundnir erfið-
leikar í atvinnulífinu gefa sérstakt til-
efni til að hvetja til fjárfestingar eftir
nýjum leiðum.
Með því að leyfa flýtifyrningar yrðu
fyrirtæki hvött til að hraða fjárfesting-
um sínum. þannig mættu þau afskrifa
hraðar þær fjárfestingar sem ráðist
verður í næstu eitt til tvö árin.
Borgarstjóri hefúr óskað eftir viðræð-
um við ríkisvaldið um þessar mikil-
vægu breytingar.
Sjálfstæðismenn vilja að jafnræði gildi í
skattlagningu á atvinnurekstur. Því
mun sérstakur skattur á verslunar - og
skrifstofúhúsnæði verða lagður niður.
Menning er
atvinnuskapandi
Tæknigarður við Háskólann, sem
Reykjavíkurborg stóð m.a. að, hefur
reynst vettvangur fyrir lítil rannsóknar-
og þróunarfyrirtæki og uppspretta ný-
sköpunar. Sjálfstæðismenn vilja að
frekari uppbygging tækni- og iðngarða
eigi sér stað þar sem nýtt verði sú
þekking sem fyrir liggur á þessu sviði. í
þessu sambandi þarf ennfremur að
huga að aukinni þátttöku stofnana og
fyrirtækja borgarinnar í margvíslegum
þróunarverkefnum.
Skattfrelsi í
V » þróunarverkefnum
og hvatning til
fjárfestingar
Lækkun skatta á fyrirtæki í borginni
þýðir að þau fjárfesta meira og ráða til
Menningarlíf í Reykjavík gerist sífellt
fjölbreyttara en sjálfstæðismenn hafa
sýnt mikið frumkvæði á þessu sviði.
Það hefúr birst í öflugum stuðningi við
margvíslega listræna starfsemi, tíma-
bundnum starfssamningum við lista-
menn og með Listahátíð í Reykjavík,
sem mikilla vinsælda hefur notið meðal
borgarbúa, jafnt sem innlendra og
erlendra gesta.
Menning er útflutningsvara og líta ber
'á hana sem hugsanlegan vaxtarbrodd í
atvinnulífinu. Fjöldi ungs fólks hefúr
menntun og hæfileika á þessu sviði
sem þarf að virkja. Gera þarf úttekt á
möguleikum menningar í borginni,
m.a. leiklist, kvikmyndagerð, myndlist,
tónlist o.fl. Haft verður samstarf við
félög listamanna um þetta verkefni og
við þau fyrirtæki og stofnanir sem hafa
sinnt menningarstarfi.
Reylijavík