Morgunblaðið - 05.05.1994, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Misjöfn þjónusta í bönkunum fyrir þá sem eiga í basli með ij ármálin
Heimilishjálp
bankanna er
fólki liðsauki
Viðskiptavinir bankanna eiga kost á aðstoð til
að koma skikki á heimilisbókhaldið. Guðbjörg
R. Guðmundsdóttir kannaði hvernig er staðið
að þessari þjónustu og hvað bankarnir taka fyrir.
Sparisjóður vélstjóra
Hjá Sparisjóði vélstjóra hefur
fram að þessu ekkert verið tekið
fyrir að aðstoða viðskiptavini sem
þurfa hjálp við þetta. „Við höfum
beðið fólk að koma með skattseðla,
launaseðla, greiðsluseðla og öll önn-
ur gögn og setjumst svo niður og
reynum að aðstoða," segir Edda
Einarsdóttir afgreiðslustjóri. Tekin
er þóknun ef starfsmenn sparisjóðs-
ins sjái um að borga reikninga fyr-
ir viðskiptavini sína og hefur það
hingað til kostað 110 krónur fyrir
hvern seðil sem handfærður er.
Stendur til að lækka upphæðina
verulega á næstunni.
Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis
Að sögn Ólafs Haraldssonar að-
stoðarsparisjóðsstjóra hefur spari-
sjóðurinn boðið viðskiptavinum sín-
um upp á einfalt greiðslumat og þá
sleppt gjaldtöku. Sparisjóðurinn fer
jafnvel fram á að viðskiptavinir í
fjárhagserfíðleikum komi með reikn-
inga og farið sé yfir fjármálin með
þeim ef þeir hafa verið að sækja um
lán.
Sumum nægir að fá ráðleggingar
og sérstaka möppu í hendur sem
viðskiptavinir fylla út og koma þann-
ig reiðu á fjármálin. Mappan sem
ber heitið Fjármálaþjónusta heimilis
kostar 600 krónur.
Oft er viðskiptavinum ráðlagt að
stofna sérstakan greiðslureikning.
Þá er föst upphæð lögð á reikning-
inn mánaðarlega og síðan sjá starfs-
menn sparisjóðsins um að borga á
gjalddögum. Kostar 100 kr. að láta
sjá um að borga hvern handfærðan
reikning en ekki er tekið gjald fyrir
sjálfvirkar skuldfærslur. Stendur til
að lækka_ gjaldið í 50 kr. á næstu
dögum. Ólafur segir að þjónustan
verði útvíkkuð á næstunni, en kerfíð
sem er í notkun er frá 1984 og það
mun verða sjálfvirkara en það er
núna.
Landsbankinn
Guðný Benediktsdóttir sérfræð-
ingur í markaðsmálum hjá Lands-
bankanum segir að Varðan sé víð-
tæk fjármálaþjónusta sem viðskipta-
vinir geti nýtt sér. Árgjaldið er 2.900
kr. I þeim pakka felst þrennt,
greiðsluáætlun, greiðsluþjónusta og
útgjaldadreifing.
Viðskiptavinir koma með alla
reikninga og greiðsluáætlun sem
gerð er í bankanum gildir í 12 mán-
uði. Þá geta Vörðufélagar nýtt sér
greiðsluþjónustu en bankinn sér um
greiðslu reikninga og er kostnaður
innifalinn í árgjaldi. Loks er svoköll-
uð útgjaldadreifing, bankinn skuid-
færir mánaðarlega fasta upphæð af
launareikningi og sér um að greiða
föst gjöld fyrir viðskiptavini sína.
Viðskiptavinir þurfa ekki að vera
í Vörðunni til að fá gerða greiðslu-
áætlun sem kostar 825 kr. Þeim sem
hafa lent í vandræðum með ijármál-
in er bent á að fá útgjaldadreifingu
og þá verða þeir að ganga í Vörðuna.
Guðný segir að æ fleiri biðji um
þessa þjónustu og vilji láta skuld-
færa reikninginn sinn. Beingreiðslur
ryðja sér til rúms í auknum mæli.
Þá er skuldfært á reikning viðkom-
andi fyrir gjöldum eins og raf-
magni, hita og ríkisútvarpinu og er
reikningseiganda að kostnaðarlausu.
íslandsbanki
Að sögn Sigurveigar Jónsdóttur
upplýsingafulltrúa reyna starfsmenn
íslandsbanka að hjálpa viðskiptavin-
um sínum að finna leiðir til að ná
endum saman ef þeir eiga í basli
með fjármálin. Um er að ræða svo-
kallaða greiðsluerfiðleikaþjónustu
og er hún ókeypis. Sérstök greiðslu-
áætlun er gerð fyrir viðskiptavini
sem þeir geta síðan farið eftir.
Vildarvinum og þeim sem eru á
menntabraut stendur til boða að láta
sjá um að borga reikninga fyrir sig
á gjalddögum og þá er þjónustan
ókeypis.
Viðskiptavinir íslandsbanka geta
síðan látið taka af reikningum af-
borganir af skuldabréfum og slíkt
kostar ekkert en sparar 85 kr. af
hverjum gjalddaga. Sigurveig bendir
að lokum á boðgreiðslur á kreditkort
en korthafar þurfa ekki að hafa
kort til að notfæra sér boðgreiðslurn-
ar og sú þjónusta er ókeypis.
Búnaðarbankinn
Það kost.ar viðskiptavini Búnaðar-
bankans frá 1-2000 kr. að fá aðstoð
við að fara yfir fjármálin og kóma
skipulagi á þau. Friðrik Halldórsson
yfirmaður verðbréfaviðskipta segir
að starfsmenn setji þá upp greiðslu-
áætlun fyrir viðskiptavininn og síðan
geti hann gengið í Heimilislínuna.
Heimilislínan er ekki ætluð fyrir fólk
sem á í basli með fjármálin heldur
þurfa viðskiptavinir að leysa fyrst
úr vandamálunum áður en þeir fara
í Heimilisiínuna. Friðrik segir að
með henni sé stefnt að því að halda
íjármálunum í lagi með að jafna
greiðslum á mánuði svo að ekki
komi „erfiðu mánuðir" þegar margir
beijast við að ná endum saman.
Það kostar ekkert að ganga í
Heimilislínuna eins og er en í fram-
tíðinni er áformað að hafa sérstakt
árgjald. Viðskiptavinir greiða núna
150 kr. á mánuði ef bankinn sér um
að greiða reikningana og ekki skipt-
ir máli hveru margir þeir eru.
Heimsklúbbur Ingólfs og
Ferðaskrifstofan PRÍMA
í samstarfi við best þekktu ferðaþjónustuaðila í Evrópu
og Hong Kong, getur Ferðaskrifstofan PRÍMA boðið
sjálfstæðar Kínaferðir fyrir hópa og einstaklinga á
frábæru verði:
BEIJING (PEKING)
FLUG OG VIKUGISTING FRÁ KR:
99.100
Margs konar ferðir innan Kína og möguleikar á viðdvöl í
S.A. Asíu og Evrópu á heimleið. Vikulegar brottfarir frá
Frankfurt, Kaupmannahöfn eða Hong Kong.
Upplýsingar á skrifstofu
Heims-
klúbbs
Ingólfs
alla virka
daga.
FERÐASKRIFSTOFAN
PRiMA'
HEIMSKLUBBUR INGOLFS
AUSTURSTR&TI 17,4. hæð 101 REYKJAVÍK*SIMI 620400»FAX 626S64
Uppskriftin
Hnallþóra að hætti
Selfyssinga
í VINGJARNLEGU timburhúsi á
Selfossi er n.k. kaffikrá sem heitir
Kaffí krús þar er hægt að sitja við
kertaljós og fá sér til dæmis ein-
hverja af fjölmörgum kaffitegund-
um og heimabakað bakkelsi með
eða smárétti og öl. Anna Árnadótt-
ir ræður ríkjum á Kaffi krús en það
eru um það bil _tvö ár síðan hún
hóf reksturinn. Á ferð um Selfoss
fyrir skömmu rákum við á Daglegu
lífi inn nefið hjá henni og báðum
um eina uppskrift fyrir lesendur en
allt er heimabakað sem selt er þar
á bæ.
Krúsarsæla
Neóri botn:_______
4 eggjahvítur
1 bolli sykur
2 bollar kókosmjöl e&a Rice
Crispies
Morgunblaðið/grg
Anna Árnadóttir
100 g suðusúkkulaði
Eggjahvítur og sykur er stífþeytt
saman. Súkkulaðið brytjað smátt
og bætt út í ásamt kókosmjöli eða
Rice Crispies.
Bakað í velsmurðu lausbotna
tertuformi í 30 mínútur við 150
gráðu hita.
Efri botn
______________4 egg_______________
100 g sykur
50 g hveiti
50 g kortöflumjöl
Eggin eru þeytt mjög vel og sykr-
inum bætt út í og þetta þeytt vel
saman. Hveiti og kartöflumjöl sigt-
að saman og blandað varlega við
með gaffli. Deigið sett í vel smurt
lausbotna form og bakað í um það
bil 15 mínútur við tvö hundruð
gráðu hita fyrstu fimm mínúturnar
og síðan við 175 gráðu hita í um
það bil 10 mínútur.
Á mílli og í skreytlngu
1/2 lítri rjómi
heildós niðurskoðin jarðarber
Rjóminn er þeyttur og jarðarbeij-
unum síðan blandað saman við.
Sett á milli botnanna og utan um
tertuna sem síðan er skreytt með
ferskum jarðarberjum, súkkulaði-
rúsinum og salthnetum.
Kvarg
kemur
NÝ mjólkurafurð, svokallað kvarg,
er væntanlegt á markað innan
skamms. Það er Mjólkurbú Flóa-
manna sem framleiðir kvargið en
Mjólkursamsalan sér um dreifingu.
Að sögn Auðuns Hermannsson-
ar, forstöðum. vöruþróunar hjá
Mjólkurbúi Flóamanna, er kvarg
samheiti í Evrópu fyrir mjólkurvör-
ur allt frá jógúrt og til áleggs.
Þessi mjólkurafurð kemur frá
Mið- og A-Evrópu og elstu heimild-
ir um kvarg segja að biskupinn
John af Morava sem bjó í Brno í
Tékklandi 1070 hafi borðað kvarg
sem þá líktist einr.a helst skyrosti.
Að sögn Auðuns er kvargið sem
nú kemur á inarkað skylt skyrinu
okkar en gert mildara og léttara
svo ekki þarf að nota útálát. Það
fæst með jarðarbeija- og blábeija-
bragði og blönduðum ávöxtum.
Kvargið er á margan hátt líkt
skyri enda búið til á sama hátt.
Undanrenna er sýrð og er mysan
skilin frá með skilvindu og ávöxtum
og ijóma blandað í. Þá eru svokall-
aðir biogarde-gerlar í kvarginu sem
eiga að geta hjálpað til við melting-
arstarfsemina. Auðunn segir að
þróun íslenska kvargsins hafi staðið
yfir í 4 ur ár, það sé líkt því þýska
en aðlagað íslenskum markaði.
. -VfcÞ
i
C
í