Morgunblaðið - 05.05.1994, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEINIT
Sáttagjörð ísraela o g PLO
næstum farin út um þúfur
Reuter
Fagna fríðargjörð
PALESTÍNSK ungmenni klifra girðingu umhverfis ísraelska
lögreglustöð í Jeríkó í gærmorgun og skreyta hana pálmagrein-
um og blómum í tilefni friðargjörðar ísraela og PLO. Níu þús-
und manna palestínsk lögregla tekur við hlutverki ísraelskra
hersveita í Jeríkó og Gazasvæðinu þegar ísraelar hverfa brott.
ísraelar slepptu hundruð palestínskra
fanga eftir undirritunina í gær
Kairó. Reuter.
MINNSTU munaði að hátíðleg athöfn þar sem leiðtogar ísraela og
Palestínumanna (PLO) voru komnir saman til að undirrita sögulega
friðarsamninga færu út um þúfur fyrir framan 2.500 tigna gesti. Jass-
er Arafat leiðtogi PLO ritaði í fyrstu ekki undir kort sem fylgdi friðar-
skjölunum og stóð upp eftir að hafa skrifað undir hluta þeirra. Yitz-
hak Rabin forsætisráðherra ísraels gerði slíkt hið sama og kom til
orðaskipta á milli Arafats og Shimons Peres utanríkisráðherra ísraels
á sviði leikhússins. Warren Christopher utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna veitti Arafat orð í eyra og féllst hann um síðir að skrifa upp á
landakortið en bætti við athugasemdum á arabísku á spássíu.
Með samkomulaginu, sem er upp
á 200 blaðsíður, fá Palestínumenn
á Vesturbakkanum og Gaza í fyrsta
sinn sjálfsforræði frá í sex daga
stríðinu í Miðausturlöndum 1967.
Eftir undirritunina sagðist Arafat
vona að samkomulagið væri fyrsta
skrefið að stofnun sjálfstæðs ríkis
Palestínumanna. Rabin sagði ísra-
ela vona að það yrði til þess að
tryggja frið við Araba í fyrsta sinn
frá stofnun Israelsríkis 1948.
„Heimsbyggðin hefur orðið vitni
að örlitlu broti þeirra vandamála
sem við verðum að yfirstíga til þess
að gera fyrsta áfanga samkomu-
lagsins að veruleika," sagði Rabin
við athöfnina. „Það er andstaða
með þjóðum okkar beggja við það
sem við erum að gera nú. Það út-
heimtir kjark og áræðni af beggja
hálfu að koma friðsamlegri sambúð
í kring. í því felst mikil áskorun
og við höfum heitið því að tryggja
að árangur náist,“ bætti hann við.
„Samningaumleitanir hafa sann-
að ágæti sitt, friður er mögulegur,“
sagði Warren Christopher. Sam-
komulag ísraela og PLO er árangu-
ar friðarumleitana milli ísraela og
Araba sem hófust í Madríd í októ-
ber 1991 og voru haldnar undir
verndarvæng Bandaríkjamanna og
Rússa. „Enn sér ekki fyrir lyktir
deilna í Miðausturlöndum . . .sú
sáttfýsi sem erum vitni að hér má
ekki dvína,“ sagði Christoþher.
Samkvæmt samkomulaginu
munu Israelar draga nær allar her-
sveitir sínar frá Gaza og Jeríkó inn-
an þriggja vikna. Palestínumenn fá
sjálfstjóm eigin mála að mestu en
þó ekki ytri öryggismála eða utan-
ríkismála. Þegar blekið var að þorna
á sáttagjörðinni í gær slepptu ísra-
elar hundmð palestínskra fanga.
Verður Barry borg-
arstjóri að nýju?
Washington. Reuter.
MARION Barry, fyrrum
borgarstjóri Washing-
ton, sem varð að segja
af sér fyrir ijórum árum
vegna kókaínfíknar
sinnar, hyggst endur-
heimta embætti sitt.
Barry nýtur enn mikilla
vinsælda meðal efna-
minni svertingja borgar-
innar.
Barry segist hafa tekið
Hugsanlegt framboð
hans hefur valdið nokkr-
um skjálfta innan Demó-
krataflokksins, en í
september verður kosið
um borgarstjóraframbjóð-
anda flokksins.
Núverandi borgarstjóri,
Sharon Pratt Kelly, tók
við af Barry og varð þar
með fyrsta konan til að
gegna slíku embætti. Vin-
Marion
Barry
stakkaskiptum eftir að hann var sældir hennar hafa dvínað vegna
handtekinn í janúar 1990 fyrir að slæms fjárhags borgarinnar og
reykja krakk. sívaxandi glæpatíðni.
Óþægilegar grunsemdir vakna hjá vísindamönnum eftir fund toppkvarksins
Fyrirvaralaust
hvarf heimsins?
London. The Daily Telegraph.
FYRIR aðeins tíu dögum unnu
vísindamenn í Bandaríkjunum það
afrek að fínna toppkvarkinn svo-
kallaða en tilvera hans skiptir
miklu máli fyrir hugmyndir
manna um eðli alheimsins. Fund-
urinn hefur hins vegar leitt af sér
heldur óþægilegar grunsemdir:
Að alheimurinn sé fremur óstöð-
ugur og geti gufað upp á hverri
stundu.
Þessar áhyggjur eiga rót sína
að rekja til tilrauna eðlisfræðinga
til að skilja innsta eðli efnisins.
Snemma á sjöunda áratugnum
uppgötvaði bandaríski eðlisfræð-
ingurinn Murray Gell-Mann, að
hægt væri að skýra eðli ýmissa
einda, sem efnið byggist á, með
því að gera ráð fyrir, að þær sam-
anstæðu af enn smærri eindum,
sem hann kallaði kvarka. Með því
að mynda fræðilegt samband
tveggja eða þriggja kvarka gat
Gell-Mann skilið allar þekktar
eindir og spáð fyrir um tilveru
annarra. Það kom líka í ljós, að
þær höfðu þá eiginleika, sem sagt
var fyrir um, og á öndverðum
áttunda áratugnum voru vísinda-
menn orðnir sannfærðir um, að
kvarkarnir væru til, eilíflega lok-
aðir inni í öðrum eindum.
Mikilvægur massi
Síðar kom í ljós, að skýra mátti
öll fyrirbærin með aðeins sex
kvörkum og toppkvarkurinn, sá
sjötti og síðasti, er nú fundinn.
Það kom hins vegar a óvart hvað
hann hefur mikinn massa eða 190
sinnum meiri en róteindin. Það
svarar til massa heillar gullfru-
meindar. Áhyggjuefnið er svo aft-
ur það, að þessi mikli massi skipt-
ir máli fyrir örlög alheimsins: Sé
hann „of“ mikill, er hætt við, að
alheimurinn sé óstöðugur.
Vísindamenn telja, að skömmu
eftir fæðinguna eða hvellinn mikla
fyrir 15 milljörðum ára hafi al-
heimurinn lokast inni í óstöðugu
ástandi. Þannig gat það þó ekki
gengið til lengdar með hann,
fremur en með þlýant, sem stend-
ur á oddinum, og hann „féll“ nið-
ur í stöðugra lágorkusvið, gaf frá
sér gífurlegan hita og þandist út
með gífurlegum hraða. Sumir ef-
ast þó um, að alheimurinn hafi
náð að komast alla leið þangað
sem stöðugleikinn er mestur og
þar kemur einmitt toppkvarkurinn
inn í myndina.
„Éta“ Higgs-eindina
Árið 1990 sýndu tveir vísinda-
menn, John EIlis og Andrei Linde,
við Evrópsku kjarneðlisfræði-
stofnunina, CERN, fram á, að
stöðugleiki alheimsins færi bæði
eftir massa toppkvarksins og
massa annarrar eindar, sem enn
er ófundin, Higgs-eindarinnar.
Talið er, að hún gefí undireindum
frumeindarinnar massa sinn eða
með öðrum orðum, að eindirnar
öðlist massa með því að „éta“
Higgs-eindir. Um allan heim eru
vísindamenn að leita að vísbend-
irigu um Higgs-eindina en hafí
þeir Elli og Linde rétt fyrir sér,
er kannski eins gott, að hún finn-
ist aldrei.
„Algjört umhverfisslys?"
Samkvæmt kenningu þeirra
félaga og með tilliti til massa
toppkvarksins þá er alheimurinn
óstöðugur vegi Higgs-eindin
minna en svarar til massa 150
róteinda. Það þýðir, að hætta geti
verið á hinu „algjöra umhverfis-
slysi“, að alheimurinn komist í
stöðugara ástand og kollvarpi
þannig öllu og þar með lífinu
sjálfu.
Eftirlits-
menn SÞ
til Brcko
SAMEINUÐU þjóðirnar (SÞ)
bjuggu sig í gær undir að
senda eftirlitsmenn sína til
múslimsku borgarinnar Brcko
í norðurhluta Bosníu til að
reyna að koma í veg fyrir hörð
átök um leiðina sem Serbum
berast aðföng um. í gær var
skotið á flugvél SÞ á flugvellin-
um í Sarajevo en meðal far-
þega var þýski sendiherrann í
Bosníu. Enginn slasaðist í árá-
sinni.
Aftengja SS-
24-fIaugar
ÚKRAÍNUMENN hafa af-
tengt nærri allar SS-24 eld-
flaugarnar, sem eru í landinu.
Er þetta í samræmi við samn-
inga um fækkun langdrægra
kjarnorkuvopna, að sögn varn-
armálaráðuneytisins í Kiev.
Létust við brot-
lendinguna
KOMIÐ hefur í ljós að að
minnsta kosti % farþeganna í
tævönsku þotunni sem brot-
lenti í Japan í fyrri viku, létust
við sjálfa brotlendinguna en
ekki í eldhafinu sem kviknaði
er sprengingar urðu í vélinni.
Höggunum
fækkað
ÓLÍKLEGT
er talið að
ákvörðun yf-
irvalda í Sin-
gapore um að
bandaríski
unglingurinn
Michael Fay
verði hýddur
færri höggum
Michael Fay. en dómur
kveður á um, verði til þess að
binda endi á harðar deilur um
hýðingar sem risið hafa upp í
kjölfar máls hans. Eftir mót-
mæli Bandaríkjaforseta og
ýmissa mannréttindasamtaka,
var höggunum fækkað úr sex
í fjögur.
Lausn á hár-
vanda sauðfés
HÁRLEYSI ástralsks sauðfés
kostar Ástrali, stærsta ullarút-
flytjanda heims, um 35 millj-
ónir dala á ári vegna minni
framleiðslu. Um 30 af 140
milljónum sauðkinda eiga við
hárleysi að stríða, aðallega
vegna streitu. Lausnin er hins
vegar skammt undan; gras,
sem inniheldur hærra hlutfall
amínósýru er nefnist meþíónín.