Morgunblaðið - 05.05.1994, Síða 29
28 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100.
Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SlMBRÉF: Ritstjórn 091329, frétt-
ir 691181, íþróttir 691156, sérbjöð 691222, auglýsingar 691110, skrif-
stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan-
lands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
SJÁLFSTJÓRN
PALESTÍNUMANNA
"VT’ITZHAK Rabin, forsætisráðherra ísraels, og Yass-
er Arafat, forseti Frelsissamtaka Palestínu (PLO),
undirrituðu í gær samkomulag um gildistöku sam-
komulags um sjálfstjórn Palestínumanna á Gaza-svæð-
inu og í Jeríkóborg á Vesturbakkanum. Munu ísraelar
á næstu vikum færa herlið sitt.frá þessum hluta her-
numdu svæðanna í fyrsta skipti frá því þau voru her-
numin í sexdagastríðinu árið 1967.
Palestínumenn vonast til að með þessu hafi fyrsta
skrefið verið stigið í átt að sjálfstæðu ríki. ísraelar
vona á móti að þeir geti loks treyst því að búa við frið
í fyrsta skipti frá því Ísraelsríki var stofnað árið 1948.
Þrátt fyrir að þetta sé söguleg og langþráð stund
er fagnaðarlátunum stillt í hóf. Það ríkir ekki lengur
sama bjartsýnin og í september á síðasta ári þegar
ísraelar og PLO undirrituðu friðarsamkomulag í Was-
hington, sem fól í sér gagnkvæma viðurkenningu og
heimastjórn Palestínumanna á Gaza og í Jeríkó.
Á því rúma hálfa ári, sem síðan er liðið, hefur
greinilega komið í ljós að mörg flókin vandamál eru
enn óleyst. Margsinnis varð að fresta gildistöku sam-
komulagsins um sjálfstjórn vegna deilna, m.a. um
hvernig halda bæri uppi öryggisgæslu og landamæra-
eftirliti á sjálfstjórnarsvæðunum.
Það liggur líka fyrir að jafnt meðal ísraela sem
Palestínumanna eru til öfl sem vilja ekkert frekar sjá
en að samkomulagið fari út um þúfur. Fjöldamorð ísra-
elsks landnema á Palestínumönnum í mosku í Hebron
er hrikalegasta dæmið um slíkt. Þá hafa öfgasinnaðir
Palestínumenn staðið fyrir sprengjutilræðum og árás-
um á undanförnum vikum, sem kostað hafa tugi ísra-
ela lífið.
Allt fram á síðustu stundu var óvíst hvort samkomu-
lagið yrði undirritað og má segja að samningaviðræð-
urnar hafi haldið áfram jafnvel meðan á sjálfri undir-
rituninni stóð. Neitaði Arafat að undirrita landakort,
sem var fylgiskjal samkomulagsins, fyrr en Warren
Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafði
rætt við hann einslega.
í kjölfar gildistöku samkomulagsins er nauðsynlegt
að koma á friði á hernumdu svæðunum. Það verður
að bæta lífskjör þeirra Palestínumanna sem þar búa
og að sama skapi tryggja að árásum á ísraela linni.
Það eru forsendur þess að þetta sögulega skref verði
ekki það eina.
Til að það megi takast vérður umheimurinn að styðja
hið mikla uppbyggingarstarf, sem er fyrir höndum á
hernumdu svæðunum. Þar þarf nauðsynlega að bæta
t.d. samgöngur, skolpkerfi, fjarskiptakerfi og byggja
upp mennta- og heilbrigðiskerfi. Þarna verður að koma
til jafnt aðstoð einstakra ríkja sem alþjóðlegra stofn-
ana á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Alþjóða-
bankann.
Það verður líka að örva og stuðla að auknum við-
skiptum og samvinnu milli ísraels og hernumdu svæð-
anna. Þannig skapast sameiginlegir hagsmunir, sem
eru forsenda friðar.
Friður milli ísraela og Palestínumanna er mál sem
varðar heimsbyggðina alla. Átök og spenna á þessu
svæði hafa sett mark sitt á síðari hluta þessarar aldar
og haft áhrif langt út fyrir Mið-Austurlönd. Friður í
Mið-Austurlöndum myndi að sama skapi hafa jákvæð
áhrif á heimsbyggðina alla. Það er því mikilvægt að
þessum þjóðum sé veittur allur sá stuðningur, jafnt
efnahagslegur, pólitískur sem siðferðislegur, sem þær
þurfa á að halda.
SKÓLAMÁL
Íliilillí
VERKNÁM var á undanhaldi, en nú eru málin að sniúast við.
FYRIR allmörgum árum var megináhersla lögð á bóknám.
Verknám
á imdanhaldi
AF
INNLENDUM
VETTVANGI
Töluvert færri sækjast eftir verknámi hér á
landi en í nágrannalöndunum. Anna G.
—jp--------------------------------------
Olafsdóttir kannaði ástæður þessarar þró-
unar. Hvort ætlunin væri að snúa henni við
\——■—------------------------------------
og hversu langt ætti að ganga.
un á fyrstu skólastigum geti stang-
ast á við markmið um frelsi ein-
staklingsins til mennta. Þeir telja
að list- og verkgreinum séu gerð
nægilega góð skil með núverandi
mynd- og handmenntakennslu og
engin ástæða sé til að leggja meiri
áherslu á verkgreinar á kostnað
annarra námsgreina á unglinga-
stigi. Meðmælendur þessa sjónar-
miðs eru hins vegar þeirrar skoðun-
ar að ekki sé réttilega hægt að
tala um frelsi grunnskólanema til
að velja annaðhvort framhaldsnám
í bók- eða verkgreinum að loknum
grunnskóla á meðan þeim sé aðeins
gefinn kostur á að kynnast öðru,
þ.e. bóknámi, svo einhveijir nemi.
Þeir minna líka á, sjónarmiði sínu
til stuðnings, að aðeins sé prófað í
bóknámsgreinum á samræmdum
prófum. Verklegum greinum sé ýtt
til hliðar og einkunnir tæpast til
þess fallnar að segja til um hæfni
nemenda til að leggja stund á verk-
nám.
Hver sem niðurstaðan verður er
staðreyndin sú að nemendum í
framhaldsskólum hefur fyrst og
fremst fjölgað í bóknámi. Skýring-
arnar eru af ýmsum toga og lagði
Krisrún ísaksdóttir, deildarsér-
fræðingur í menntamála-
ráðuneytinu, áherslu á
fjórar þeirra þegar rætt
var við hana. Hún byijaði
á að nefna að þörf væri
fyrir fleiri möguleika á
spennandi námstækifærum í verk-
legum greinum. Á sama hátt skipti
viðhorf þjóðfélagsins miklu máli og
augljóst að bóknám nyti meiri virð-
ingar en verknám.
Kristrún gat þess líka að ef til
vill væri ekki óeðlilegt að í óvisSu-
ástandi eins og nú ráðlegðu foreldr-
ar börnum sína að fara bóknáms-
leiðina. Þeir tryðu því að námið
auðveldaði börnunum að aðlaga sig
breyttum aðstæðum og taka upp
hvers kyns nýjungar. Að lokum
Sú staðreynd hefur lengi
blasað við að meiri áhersla
hefur verið lögð á bóknám
en verknám í íslensku
menntakerfi. Fínt hefur þótt að
stunda menntaskólanám á meðan
ófínna og jafnvel óæðra hefur talist
að leggja stund á starfsnám. Afleið-
ingin hefur orðið sú að grunnskóla-
nemendur hafa hópast í bóknám
og færri en eðlilegt getur talist
hafa valið verkgreinar. Því til
stuðnings má minna á að í yfirlits-
skýrslu Aflvaka Reykjavíkur um
verk- og tæknimenntun á íslandi
kemur m.a. fram að aðeins 32%
nemanda fari í verknám hér á landi
miðað við 70% í Danmörku, Þýska-
landi og Noregi.
Ýmsar ástæður, s.s. almennur
samdráttur í þjóðfélaginu, hafa orð-
ið til þess að íslendingar
hafa smám saman verið
að gera sér grein fyrir
ofangreindri tilhneigingu
og helstu ókostum hennar
fyrir samfélagið. Stjórn-
málamenn hafa fengið áhuga á
málinu, kannanir hafa verið gerðar
og einn afraksturinn er frumvarp
til nýrra laga um framhaldsskóla.
Veigamesta breytingin þar felst í
meiri áherslu á starfsnám. Sú
spurning hlýtur að vakna hvort
ekki sé ástæða til að hefjast fyrr
handa og leggja meiri rækt við
starfsmenntun í grunnskólum en
verið hefur.
Andstæðingar þessa sjónarmiðs
hafa bent á að áhersla á verkmennt-
Þörf á spenn-
andi leiðum í
verknámi
Sérfræðingurinn
Kristrún ísaksdóttir
Skólastjórinn
Ingvar Ásmundsson
Unnið að eflingu
verknámsgreina
KRISTRÚN erþeirr-
ar skoðunar að jöfn
skipting bók- og
verknáms sé ákjós-
anleg hér á landi.
benti Kristrún á afleiðingar breyttr-
ar þjóðfélagsmyndar. Ekki væru
mörg ár liðin frá því að hægt hefði
verið að sinna flest öllum fram-
leiðslustörfum án sérstakrar
menntunar. Með vaxandi áherslu á
markaðsmál, þjónustu og gæði,
hefði hins vegar smám saman
myndast þrýstingur um viðeigandi
starfsmenntun.
Áhersla á starfsnám er ekki að-
eins að aukast hér á landi. Kristrún
nefnir sem dæmi að í ------------
Ungveijalandi og fleiri
fyrrum austantjalds-
löndum sé stefnt að því
að 30% nemenda fari í ____________
bóknám til stúdentsprófs
og 70% fari í starfsnám. Hún seg-
ist hins vegar þeirrar skoðunar að
jöfn skipting sé ákjósanleg hér á
landi. Til þess þurfí að gera tvennt.
Annars vegar að veita starfsnámi
forgang við uppbyggingu. Hins
vegar að halda uppi stöðugri kynn-
ingu á atvinnulífí og starfsnámi
almennt, allt niður í grunnskóla.
Leggja þurfí aukna áherslu á list-
og verknám og samþættingu bók-
og verknáms í hagnýtum viðfangs-
efnum.
Fjölgun fyrst
og fremst í
bóknámi
Stefnt er að ofangreindri áherslu-
breytingu með frumvarpi til nýrra
framhaldsskólalaga og verða hér
sérstaklega nefnd þijú atriði. Hið
fyrsta og trúlega veigamesta er að
með samstarfsnefnd og starfsgrein-
aráðum á að stuðla að meira sam-
starfi skóla og atvinnulífs. Önnur
breyting felur í sér að inntökuskil-
yrði á einstakar námsbrautir miðist
fyrst og fremst við að nemendur
hafi nægilegan undirbúning til að
takast á við nám á viðkomandi braut
og geti náð lokamarkmiðum hennar
á eðlilegum náms-
tíma. Síðast en ekki
síst felur frumvarpið
í sér breytingu í þá
átt að nám verði frá
upphafi byggt upp í
samræmi við loka-
markmið þess. Ríkj-
andi stefna gerir ráð
fyrir að nemendum á
mismunandi náms-
brautum séu kenndar
sömu námsgreinar
eins lengi og kostur
er.
Ekki eru allir jafn
sáttir við frumvarpið
og telur Ingvar Ás-
mundsson, skólastjóri
Iðnskólans, að yfir-
lýstu markmiði um
áherslu á starfsgrein-
ar sé ekki fylgt nægi-
lega vel eftir. Hann
gagnrýnir frumvarp-
ið og efast um að
stórar og þunglama-
legar samstarfs-
nefndir tryggi sam-
starf skóla og at-
vinnulífs með þeim
hætti sem nauðsyn-
legt sé. Viðlíka
nefndir séu til og óvíst að störf
annarra nefnda með nýjum nöfnum
yrðu árangursríkari. Hann lætur
þess jafnframt getið að eitt af því
mikilvægasta og jafnframt nei-
kvæðasta við frumvarpið sé að í því
sé gert ráð fyrir að nemendur sem
ekki hafi uppfyllt skilyrði á grunn-
skólaprófí fari í eins árs fornám og
þeir sem ekki uppfýlltu skilyrði á
einstökum brautum fari í eins árs
almennt viðbótarnám. Einangrun
af þessu tagi sé í senn
óréttlát og óþörf, a.m.k í
áfangaskólum, og líklegar
afleiðingar mótþrói og aga-
________ vandamál í skólum.
Við boðaða áherslubreyt-
ingu hiýtur líka að vakna sú spurn-
ing hversu langt eigi að ganga að
hvetja nemendur til verknáms. Má
í því sambandi geta þess að þijú
grundvallaratriði í mótun náms-
skrár eru að taka mið af þörf þjóð-
félagsins, einstaklingsins og fag-
greinarinnar. Með augljósri áherslu
á þarfír þjóðfélagsins verður að
gæta þess að gleyma ekki einstakl-
ingum og huga verður að sambandi
almennrar menntunar og sérhæf-
ingar.
INGVAR dregur í
efa að þunglamaleg-
ar nefndir tryggi
samstarf atvinnulífs
og skóla.
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994 29
Undirritun samkomulags leiðtoga ísraela og PLO um sjálfstjórn
Palestínumanna á Gazasvæðinu og í Jeríkó
Yasser
Arafat
Yitzhak
Rabin
LEIÐIR
ÍSRAELSKUR hermaður veifar fána Palestínumanna á Gazasvæðinu í gær.
FRIÐARSAMKOMULAG
TIL FRIÐAR?
Sögulegt samkomulag um sjálfstjórn Palestínu-
manna á Gazasvæðinu og í borginni Jeríkó á
Vesturbakkanum var undirritað í Kairó í gær-
morgun. Steingrímur Sigurgeirsson kannar
efnisatriði samningsins og veltir fyrir sér þróun
mála í Mið-Austurlöndum í framhaldi hans.
að tók hálft ár að semja
um hvernig framkvæma
ætti samkomulag ísraela
og Paiestínumanna frá í
fyrra um takmarkaða sjálfstjórn
hinna síðarnefndu á hernumdu
svæðunum. Þó að samkomulag um
sjálfstjórn Palestínumanna hafí ver-
ið undirritað við hátíðlega athöfn í
Washington þann 13. september á
síðasta ári hafa deilur, fyrst og
fremst um öryggismál, komið í veg
fyrir að hægt væri að hrinda því í
framkvæmd. Margsinnis hafa báðir
samningsaðilar hótað að slíta við-
ræðunum og blóðug hermdarverk
öfgamanna hafa tafið fyrir lausn
máia.
Þó að tvöhundruð blaðsíðna sam-
komulag lægi fyrir er fulltrúar ísra-
ela og Palestínumanna auk 2.500
gesta frá öllum heiminum byijuðu
að streyma til Kairó í fyrradag var
ekki búið að útkljá öll mál. Arafat
neitaði að samþykkja landakort, sem
var fylgiskjal samkomulagsins, og á
samningafundum aðfararnótt mið-
vikudagsins ákváðu deiluaðilar að
vera sammála um að vera ósammála
um endanlega stærð þess svæðis í
kringum Jeríkó, sem ísraelar af-
henda Palestínumönnum. Eftir að
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, lét málið til sín
taka samþykkti Arafat að skrifa upp
á landakortið með fyrirvara.
Samkomulagið, sem undirritað var
í gær, gerir ráð fyrir að Isrelar dragi
herlið sitt að mestu í burtu frá Gaza
og Jeríkó innan þriggja vikna og
mun brottflutningurinn hefjast þegar
í stað. í stað ísraelsku hermannanna
mun palestínsk lögregla undir stjórn
bráðabirgðastjórnar sjá um að halda
uppi öryggi á svæðinu til að byija
með líklega með aðstoð ísraelskra
starfsbræðra. Raunar munu Palest-
ínumenn sjá um flest sín mál sjálfir
þegar upp verður staðið að undan-
skildum hervörnum og alþjóðlegum
samskiptum.
Þá gerir samkomulagið ráð fyrir
að samningaviðræður um endanlega
stöðu Vesturbakkans og Gaza-svæð-
isins hefjist innan tveggja ára.
Sjálfstjórn í fyrsta sinn
Þetta er í fyrsta skipti sem Palest-
ínumenn á hernumdu svæðunum fá
sjálfstjórn af einhveiju tagi. Vestur-
bakkinn tilheyrði áður Jórdaníu en
Gaza-svæðið Egyptalandi. ísraelar
náðu þessum svæðum á sitt vald,
ásamt Gólanhæðum við landamæri
Sýrlands, í sexdagastríðinu árið
1967. Arabaríkin gerðu tilraun til
að endurheimta hernumdu svæðin í
Yom Kippur-stríðinu árið 1973 en
höfðu ekki erindi sem erfiði.
Árið 1978 undirrituðu ísralear og
Egyptar friðarsamning í Camp
David. Var það í fyrsta skipti sem
arabaríki fri'ðmæltist við stjórnvöld í
ísrael, frá stofnun ríkisins árið 1948.
Þar til PLO féllst á að hefja friðarvið-
ræður hafði ekkert arabaríki fylgt í
kjölfarið, ekki síst þar sem enga
lausn á vanda Palestínumanna var
að fínna S samningi ísraela og
Egypta. Nú standa hins vegar vonir
til að Jórdanir og jafnvel Sýrlending-
ar og Líbanir geri á næstu misserum
friðarsamkomulag við ísraela.
Óformlegar viðræður um slíkt hafa
farið fram undanfarna mánuði.
Mestu máli skiptir hver afstaða
Hafez Assads, forseta Sýrlands verð-
ur. Sýrlendingar hafa um áratuga
skeið verið hatrömmustu andstæð-
ingar ísraela og Assad verið í for-
ystu baráttunnar gegn tilvist ísrael-
ríkis. Á því hefur þó orðið breyting
á allra síðustu árum ekki síst vegna
umskipta í þessum heimshluta vegna
endaloka kalda stríðsins. Assad nýt-
ur ekki lengur góðs af stuðningi
Sovétmanna og verður að líta til
Vesturlanda eigi að takast að bæta
efnahagsástand í landinu. Helsta
hindrunin í vegi friðarsamkomulags
er hernám hinna hernaðarlega mikil-
vægu Gólanhæða. Rabin hefur að
undanförnu gefið í skyn að hann sé
reiðubúin að láta þær af hendi, sem
myndi gjörbreyta stöðunni. Á móti
myndu ísraelar eflaust krefjast
trygginga fyrir því að árásum fjöl-
margra hryðjuverkahópa sem hafa
aðsetur í Sýrlandi linni.
Lífskjör og öryggi
Það er þó ekki ljóst hvort að þetta
dugi Sýrlendingum ekki síst þar sem
Rabin hefur skilyrt brotthvarf frá
Gólanhæðum því að ísraelska þjóðin
samþykki slíkt í þjóðaratkvæðar-
greiðslu. Assad hefur heldur aldrei
látið sig vandamál Palestínumanna
miklu varða og hugsanlega kann
hann að meta stöðuna sem svo að
hagstæðara sé fyrir hann að viðhalda
óbreyttu ástandi. Ef svo fer er nán-
ast óhugsandi að Hussein Jórdaníu-
konungur geri friðarsamkomulag.
Hussein hefur tekið PLO með mikilli
varúð frá því hann varð að reka sam-
tökin úr landi árið 1970 og sjálf-
stætt ríki Palestínumanna er and-
stætt hagsmunum hans. Þá hefur
hann í sjálfu sér litla þörf fyrir friðar-
samning. Samskipti Israela og Jórd-
ana eru að mestu snurðulaus.
Mestu skiptir þó til að byija með
hvernig til tekst með framkvæmd
Kaírósamkomulagsins. Þau vanda-
mál sem Palestínumenn standa
frammi fyrir á Gazasvæðinu og Je-
ríkó eru risavaxin. Hin hatramma
uppreisn, iníi/ada undanfarinna ára
gegn hernámsliði ísraela skilur eftir
sig mörg sár. Margir, ekki síst í röð-
um yngri Palestínumanna, munu
eiga mjög erfitt með að sættast við
Israela og það er langt í frá að póli-
tísk samstaða ríki meðal Palestínu-
manna sjálfra.
Margir saka Arafat um að hafa
fjarlægst raunveruleika hernumdu
svæðanna um of á þeim áratugum
sem hann bjó í útlegð og auðlegð í
Túnis. Þetta þótti koma greinilega
fram í sjálfum samningaviðræðun-
um. Arafat lagði þar mikla áherslu
á ýmis tákn fullveldis. Hann vildi
eigin fána Palestínumanna, her,
gjaldmiðil og vegabréf.
Það sem skiptir íbúa Gaza og Je-
ríkó mestu máli er aftur á móti hvaða
áhrif samkomulagið hefur á lífskjör
þeirra. Óstöðugleiki undanfarinna
ára hefur haft mjög slæm áhrif á
afkomu Palestínumanna á þessum
svæðum enda hafa þeir margir hveij-
ir ekki lengur getað stundað vinnu
í ísrael vegna ástandsins. Biturð og
örbirgði hafa leitt til vaxandi fylgis
við ýmsa öfgasinnaða múslimska
hópa á borð við Hamas. Að sama
skapi hefur dregið úr fylgi hófsam-
ari afia Palestínumanna.
Gazasvæðið er I raun fyrst og
fremst ömurlegt fátæktarhverfi og
Vesturbakkinn frumstætt land-
búnaðarhérað. Ef íbúar þess eiga að
sætta sig við stöðu mála er úrslitaatr-
iði að þeir verði þess varir að hagur
þeirra vænkast. ísraelar bera þar
mesta ábyrgð. Til að tryggja frið
verða þeir nú að styðja fjárhagslega
við bakið á Palestínumönnum. Á
móti verða þeir að fá tryggingar
fyrir öryggi sínu. Það sama á við
um Vesturlönd. Áratugum saman
hafa vestrænar ríkisstjórnir hvatt til
sjálfstjórnar Palestínumanna. Nú
þegar hillir loks undir hana er nauð-
synlegt að færa þessi svæði Palest-
ínumanna inn í nútímann hvað allan
aðbúnað varðar. Það er forsenda
þess að friðarsamkomulagið leiði að
lokum til l'riðar.
1
4
-4
'
Á
4
f
I
!
i
i
5
f
1
í
{
I
i
*