Morgunblaðið - 05.05.1994, Síða 39

Morgunblaðið - 05.05.1994, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994 39 arlyndi var mjög ríkur þáttur í fari hans, og hann var ekki hneykslunar- gjarn né dómharður, yrði mönnum eitthvað á, eða skripluðu á skötunni eins og hann tók stundum til orða. Þessi eiginleiki stafaði af mikilli þekkingu á mannlegu eðli, og næm- um skilningi á krókaleiðum mann- lífsins. Þær hliðar á samferðamönn- unum sem hann átti erfiðast með að þola var hroki og tilefnislaust mont sem honum fannst engin inn- stæða vera fyrir. Honum fannst í lagi að menn væru góðir með sig ef þeir hefðu af einhveiju að státa, en annars ekki. Skúli hafði þroskað með sér mjög heilsteyptan persónuleika; marg- siunginn og stundum sérkennilegan, en þó ávallt sjálfum sér samkvæm- an. Þótt hann væri viðræðugóður um flest, gat hann líka verið dulur, og þögull um þau mál sem hann viidi láta liggja í þagnargildi. Hann var traustur og sterkur einstakling- ur sem ógjarnan lét hlut sinn fyrir neinum. Osnortinn mátti hann hins vegar ekkert aumt sjá, og barngóð- ur var hann með afbrigðum. Hvílíkt karlmenni hann var kom hins vegar best í Ijós þegar hann veiktist af Parkinsonsveiki. Hann vissi vel hver örlög honum voru búin, en tók því af einstöku æðruleysi. Skúli hóf árið 1948 sambúð með Önnu Björnsdóttur Maack, ekkju Pjeturs A. Maack sem fórst með togaranum Max Pemberton 1944. Þrem ungum dætrum Önnu gekk hann í föðurstað, og reyndist þeim ákaflega vel og einnig elstu dóttur- inni þó hún væri ekki á heimilinu. Anna og Skúli voru um margt ólík, en áttu mörg sameiginleg áhuga- mál, og voru samheijar í stjórnmál- um. Sambúð þeirra var mjög far- sæl. Þau studdu hvort annað í lífs- baráttunni áratugum saman og áttu saman fallegt heimili, sem annálað var að gestrisni og rausnarskap. Árin liðu, dætur Önnu giftust og eignuðust börn og barnabörn og hveiju nýju barni fagnaði Skúli af hjartans einiægni. Nú er hópurinn orðinn æði stór, og ég veit að ég mæli fyrir munn þeirra allra er ég þakka Skúla Árnasyni fyrir allt það sem hann gaf af sjálfum sér. Eins og fram hefur komið var fátt Skúla Árnasyni dýrmætara en einlæg samskipti og viðræður við góða vini. Gott heimili, þar sem öll- um var vel tekið og veitt af rausn- arskap og kunnáttu, var honum því ákaflega mikils virði. Slíkt heimili bjó Anna honum eins og henni einni er lagið. Þar var ávallt gestkvæmt, og þaðan eiga margir góðar minn- ingar. Skúli var mörg ár heima eft- ir að hann veiktist og má nærri geta hveija breytingu það hafði í för með sér á högum þeirra. Þá reyndist Anna honum frábærlega vel, og reyndi eftir mætti að gera honum lífið bærilegt. En sorglegt var að þau skyldu ekki geta eytt ævikvöldinu saman við betri aðstæð- ur. Veikindi Skúla voru mjög dapur- leg og átakanlegt að sjá þennan sterka mann láta smám saman und- an síga eftir því sem þau ágerðust. Sjúkdómur hans olli því meðal ann- ars að hann missti það sem var honum svo mikils virði; mátt til að tjá sig í orði. Hann hafði alla tíð talið það öðru mikilvægara að geta verið sinn eigin málsvari, en því miður var hann það ekki síðustu árin. Síðan 1989 var hann á hjúkr- unarheimilinu Skjóii, og naut þar góðrar umönnunar og læknisþjón- ustu. Fyrir það eru starfsfólkinu þar færðar bestu þakkir. Við Guðrún og böm okkar kveðjum Skúla Árna- son fóstra okkar með þökkum. Blessuð sé minning hans. Sverrir Sveinsson. Fallinn er í valinn Skúli Árnason verslunarmaður. Ég finn þörf hjá mér að minnast þessa vinar míns, vegna vináttu okkar og tryggðar hans til fjölda ára. Þegar kynni okk- ar hófust fyrir hartnær fimmtíu árum vann Skúli sem skrifstofumaður hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, en ég var að hefja sjáífstæðan atvinnu- rekstur við lítil efni svo að ekki var hátt á okkur risið á þeim tímum. Ekki undi Skúli því að ílengjast við MINIUINGAR skrifstofustörf, hugur hans stefndi í aðrar áttir. Þar kom að hann sagði starfi sínu lausu og hóf starfsemi sem hann stundaði alla tíð þar til heilsan bilaði. Það vom húsbyggingjar og skyld störf í því sambandi. Skúla vegnaði vel í starfí og var það ekki síst vegna þess hversu heiðarlegur hann var og traustur í öllum viðskipt- um enda naut hann virðingar og trausts í viðskiptalífinu. Einn var sá þáttur í fari Skúla sem ég kynntist einna best, en það var hve vinfastur og trygglyndur hann var og tel ég það lán að hafa notið vináttu hans í hartnær fimmtíu ar sem aldrei hefur fallið skugga á. Ég stend í þakkarskuld við hann, því það fer ekki hjá því að ég hafi orðið fyrir áhrifum af jafn hreinlyndum og sterkum persónuleika og hann var. Mig langar að minnast á atvik sem sýnir trygglyndi hans og um- hyggju fyrir öðrum. Þannig var að stuttu eftir að við kynntumst var ég einhleypur og leigði mér herbergi á Vesturgötunni og var fjarri vensla- fólki mínu. Það var komið að jólum og ekki annað að gera en halda jólin í herberginu. Klukkan fimm á að- fangadag birtist Skúli og erindið var að sækja mig og bjóða mér í jólamat- inn hjá foreldrum sínum og var ég þar í góðu yfirlæti. Margt fleira þessu líkt gæti ég talið sem sýnir hver drengur hann var. Því miður missti Skúli heilsuna einmitt á þeim tíma þegar starfsorka hans var í hámarki og hefði hann efalaust áorkað miklu enn ef ekki hefði til þess komið. Sambýliskona Skúla var Anna Maack og þakka ég henni margar ánægjulegar stundir á heimili þeirra sem bar vott um smekkvísi og mynd- arskap húsmóðurinnar. Skúli var sonur hjónanna Árna Pálssonar prófessors og Finnbjargar Kristófersdóttur. Þau hjón eignuðust fimm börn. Þau voru Karen, Dagm- ar, Guðný, Skúli og Guðmundur. Skúli átti eina dóttur, Guðrúnu. Ekki gat hjá því farið að Skúli tæki í arf frá æskuheimili sínu góðan bók- menntasmekk og átti hann stórt og vandað bókasafn og voru ljóðabækur í öndvegi. Á þeim kunrii hann góð skil enda ljóðelskur með afbrigðum og margra stunda minnist ég þegar gripið var til góðskáldanna. Mér finnst hlýða að ljúka þessum kveðjuorðum með erindi úr kvæðinu Sigling eftir föður Skúla. Seiðir moldin svört og köld. Sigrinum allir hrósa. Bakvið hennar hlífiskjöld hníga sá ég öld af öld. í moldinni glitrar gullið rauða og ljósa. (Árni Pálsson) Við hjónin sendum Önnu og öðr- um aðstandendum samúðarkveðjur. Hreiðar Jónsson. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Ölkeldu II, Staðarsveit, sem lést að kvöldi 1. maí, verður jarð- sungin frá Staðastaðarkirkju laugardag- inn 7. maí kl. 14.00. Þórður Gíslason, Gísli Þórðarson, Tama Bjarnason, Ingibjörg Þórðardóttir, Snæbjörn Sveinsson, Stefán Konráð Þórðarson, Ragna ívarsdóttir, Jón Svavar Þórðarson, Bryndís Jónasdóttir, Haukur Þórðarson, Rósa Erlendsdóttir, Signý Þórðardóttir, Helgi Jóhannesson, Kristján Þórðarson, Astrid Gundersen, barnabörn og barnabarnabarn. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR BJARNFREÐSDÓTTIR, fyrrv. alþingismaður og formaður Sóknar, Kirkjuhvoli, verður jarðsungin frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn 7. maí kl. 14.00. Minningarathöfn verður í Hallgrímskirkju föstudaginn 6. maí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Styrktarsjóð Vífils- staðaspítala. Guðsteinn Þorsteinsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANNES HRAFN ÞÓRARINSSON, Baldursbrekku 3, Húsavfk, er lést 27. apríl, veröur jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju föstudag- inn 6. maí kl. 14.00. Eva María Þórarinsson, börn, tengdabörn og barnabörn. + Systir okkar, HÓLMFRIÐUR GUÐBJÖRG E. LEVY, Ósum, Vatnsnesi, sem lést 26. apríl, verður jarðsungin frá Vesturhópshólakirkju laugardaginn 7. maí kl. 14. Jarðsett verður í heima- grafreit að Ósum. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Slysavarnafélag fslands. Óskar E. Levy, Sigurbjörg E. Levy, Ragnhildur E. Levy, Alma Á. Levy. + Eiginmaður minn, KRISTÓFER BJARNASON, Fossi á Síðu, er andaðist 29. apríl, verður jarðsunginn frá Prestsbakkakirkju laugardaginn 7. maí kl. 14.00. Þórunn Skúladóttir. + Elskulegur bróðir okkar, GUÐMUNDUR HERMANN GÍSLASON, Erikfeldsgatan 74b, Malmo, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 6. maí kl. 13.30. Systkini hins látna. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON, Hvassaleiti 137, lést á heimili sinu 26. apríl. Jarðarförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Erla Vilhelmsdóttir, Eva Vilhjálmsdóttir, Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, Irene Bang Meller, Sigríður Vilhjálmsdóttir, Gísli Jón Kristjánsson, Erla Dóra Gísladóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS MAGNÚSSON, Bræðraborg, Garði, er lést í Sjúkrahúsi Keflavíkur 26. apríl, verður jarðsunginn frá Útskálakirkju laugardaginn 7. maí kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Minningarsjóð Félags aðstandenda Alzheimersjúklinga. Unnur B. Gisladóttir, Gunnar M. Magnússon, Magnea Inga Víglundsdóttir, Unnar Már Magnússon, Erna Nilssen, Sigfús K. Magnússon, Gyða Minný Nilssen, Hreinn R. Magnússon, Elísabet S. Steinsdóttir, Björgvin Magnússon, Laufey Þorgeirsdóttir, Kristvina Magnúsdóttir, Guðmundur Pétur Meekosha, Sigurður H. Magnússon, Birna Björk Skúladóttir, Magnea B. Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Við viljum, með hrærðum hug, þakka innilega þeim fjölmörgu, sem vottuðu okkur samúð við fráfall og aðstoðuðu í veikindum ástkærrar eiginkonu, móður, systur og mágkonu, HÖNNU HARALDSDÓTTUR, Skálagerði 4, Akureyri. Eiríkur E. Jónsson, Anna Eyfjörð Eiriksdóttir, Geir Haraldsson, Guðrún Jóhannsdóttir, Hulda Haraldsdóttir, Sigurður Ringsted. + Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, TRYGGVAJÓNSSONAR skipstjóra, Staðarbakka, Arnarstapa, Snæfellsnesi. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunar- fólks á 12-G á Landspítalanum. Svanborg Tryggvadóttir, Guörún Tryggvadóttir, Konráð Gunnarsson, Lárus T ryggvason, Ólöf Svavarsdóttir, Jón Tryggvason, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Skrifstofur og heilsurækt Sóknar verða lokaðar frá kl. 12 föstudaginn 6. maí nk. vegna minningar- athafnar um AÐALHEIÐI BJARNFREÐSDÓTTUR, fyrrverandi formann Sóknar. Starfsmannafélagið Sókn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.