Morgunblaðið - 05.05.1994, Qupperneq 56
m
HEWLETT
PACKARO
HPÁ [5LANDI HF
Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000
Frá möguleika til vendeika
MORGUNBLAÐID, KRINGIAN 1 103 REYKJAVÍK
SlMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Tillaga um rammasamkomulag við Bandarikin um viðskipti
Gæti orðið fyrsta skref
að fríverslunar samningi
RÍKISSTJÓRNIN telur að efla megi viðskipti
íslands og Bandaríkjanna frekar ef gerður verði
rammasamningur um reglulegt samráð um efna-
hags- og viðskiptatengsl landanna, og hefur
sent bandarískum stjórnvöldum orðsendingu þar
að lútandi sem Einar Benediktsson, sendiherra,
hefur þegar kynnt þeim. Fékk hann þau svör
að málið yrði tekið til alvarlegrar og gaumgæfi-
legrar athugunar.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra, sagði við
Morgunblaðið í gær, að tillaga um rammasamn-
ing gæti verið fyrsta skrefið að fríverslunar-
samningi við Bandaríkin eða aðild í einhverri
mynd að NAFTA. „Við erum þarna að lýsa
áhuga okkar á nánum samskiptum við Banda-
ríkjamenn á viðskiptasviðinu og teljum það af-
skaplega mikilvægt að áhugi okkar sé banda-
rískum stjórnvöldum og bandarísku þingi kunn-
ur. Málið hefur verið rætt efnislega í utanríkis-
málanefnd, og ég held að vilji standi til þess á
Alþingi að skoða þessa kosti rækilega og gera
Bandaríkjamönnum ljóst að við höfum áhuga á
að skoða þessa þætti og loka ekki fyrir þá
möguleika sem kunna að vera á fríverslunar-
samningum við Bandaríkjamenn. Auk þess að
laga þá annmarka sem hafa verið á annars af-
skaplega góðum samskiptum okkar við þá á
viðskiptasviðinu," segir Davíð.
Margt flókið í NAFTA
Aðspurður um hvers vegna íslensk stjórnvöld
stígi því ekki skrefið til fulls og óski eftir frí-
verslunarsamningum við Bandaríkin, segir Dav-
íð ekki vera efnisástæður til slíks á þessu stigi
málsins. „Margir þættir í NAFTA-samkomulag-
inu, m.a. á landbúnaðarsviðinu, gætu orðið okk-
ur flóknir og erfiðir og menn þurfa að fara
mjög nákvæmlega yfir þá. Við erum að leita
eftir bættri stöðu í viðskiptasamvinnu við Banda-
ríkjamenn og þessi ályktun lýsir því ágætlega
að mínu mati,“ segir Davíð.
í orðsendingunni er lagt til að samráð taki
m.a. til fjárfestinga og tekið verði á nauðsyn
þess að tryggja íslenskum starfsmönnum fyrir-
tækja í Bandaríkjunum vegabréfsáritun á sama
hátt og gildir um mörg önnur ríki. Einnig er
getið um atriði svo sem íslenskar heilbrigðiskröf-
ur í matvælaframleiðslu og útgáfu heilbrigðis-
vottorða vegna útflutnings, flugsamgöngur,
upplýsingatækni og rétt íslenskra námsmanna
til að stunda háskólanám í Bandaríkjunum.
Islenskir verktakar
Kaupa lóðir
undir íbúðir
í Stuttgart
VERKTAKAFYRIRTÆKIN Ár-
mannsfell og Islenskir aðalverktak-
ar hafa stofnað í sameiningu sér-
stakt hlutafélag, Ger hf., sem er
ætlað að reisa íbúðir í Þýskalandi
með Permaform-aðferðinni svo-
nefndu. Félagið hefur þegar fest
kaup á lóðum í nágrenni Stuttgart
í þessu skyni.
Ármann Örn Ármannsson, fram-
kvæmdastjóri Ármannsfells, sagð-
ist ekkert geta tjáð sig um það
hversu margar íbúðir yrðu byggðar
í Þýskalandi á vegum fyrirtækisins.
„Það eina sem við vitum er að
markaðurinn er gífurlega stór. Á
því svæði sem við áætlum að byggja
á verða byggðar um 30 þúsund
íbúðir á þessu ári.“
Ármann kveðst gera ráð fyrir að
íslenskir starfsmenn verði í Þýska-
landi fyrst í stað til að stjóma fram-
kvæmdunum. Mál myndu hins veg-
ar öll skýrast á næstunni en teikn-
ingar eru nú til samþykktar hjá
yfirvöldum í Þýskalandi.
■ Permaform-hús/Bl
ÁRBÆJARSAFNIð er vinsæll
staður fullorðinna og barna sem
sækja þangað angan af liðnum
tima í gömlum húsum og mun-
um. Montinn hani hefur helgað
sér land í safninu og var ekki
Monthani
seinn að vinna hugi og hjörtu
barnanna með fettum sínum og
brettum og sérkennilegu göngu-
Morgunblaðið/Rax
lagi á hlaðinu, eins og sjá má á
fasi hans á þessari mynd. Ljóst
er að honum hugnast hlutskipti
sitt ekki illa — og stendur undir
því nafni sem forfeður hans
hafa gegnt um aldaraðir.
Þyrla
valin á
morgun?
STEFNT er að því að taka
ákvörðun um kaup á þyrlu fyrir
Landhelgisgæsluna á ríkis-
stjórnarfundi á morgun. Að
sögn Þorsteins Pálssonar dóms-
málaráðherra rennur frestur sá
sem veittur var til þess að ná
niðurstöðu í viðræðum við
Bandaríkjamenn út á miðnætti
í kvöld. Beint liggi við, í fram-
haldi þess, að taka ákvörðun.
Litlu nær
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði við Morgunblaðið í
gær ljóst að þó nokkur
tækniatriði hafí skýrst séu
stjórnvöld litlu nær eftir
viðræðurnar sem átt hafa sér
stað við Bandaríkjamenn. Telji
Bandaríkjamenn sig þurfa mán-
uði eða ár til að koma þeim
hugmyndum í framkvæmd sem
Perry, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, hafi orðað við
bæði sig og utanríkisráðherra,
geti íslendingar ekki beðið þess.
„Menn hafa viljað kanna
þessa kosti eins náið og hægt
er, en þó við kaupum eina þyrlu
þá er hún seljanleg aftur og vilji
menn laga þyrlukost að samn-
ingum við Bandaríkjamenn þá
er hægt að selja þyrlu sem menn
hafa keypt. Ef menn kjósa er
meira að segja hægt að kaupa
þyrlu með fyrirvörum og endur-
sölumöguleikum. Allt þetta
þurfa menn að skoða,“ sagði
Davíð. Hann kvaðst algjörlega
sammála utanríkisráðherra um
það að íslendingar eigi alls ekki
að kasta frá sér þeim kosti að
taka yfir rekstur þyrlusveitar
varnarliðsins, „og ég tel að við
séum ekki að því“, sagði hann.
Reyna á til þrautar
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra kvaðst vilja
láta reyna til þrautar á það,
hvort innistæða væri fyrir tilboði
bandarískra stjórnvalda, sem dr.
Perry gerði íslenskum stjórn-
völdum í ársbyijun. Hann telur
koma til greina að óska eftir
fundi með dr. Perry, þannig að
viðræðurnar flytjist á æðra
stjórnstig.
■ Fundur með Perry?/6
Stofna hlutafélag um
loðnubræðslu í Keflavík
AÐILAR á Suðurnesjum munu í næstu viku stofna hlutafélag um stofn-
un og rekstur loðnubræðslu sem komið verður upp í Helguvík og hefji
bræðslu í febrúar nk. Undirbúningsfélag hefur undanfarið þreifað fyrir
sér með kaup á loðnubræðslu í Noregi, sem rifin yrði niður, flutt til
landsins og sett upp í Helguvík. Niðurstöður í þeim tilraunum liggja
ekki fyrir. Ein forsenda þess að loðnuverksmiðjan taki til starfa er að
áður verði gerður 150 metra viðlegukantur við höfnina í Helguvík.
Minkur
leikur á
bónda
Hvolsvelli, Morgunbladið.
BÓNDI í Landeyjum varð ný-
verið fyrir því að minkur braust
inní hænsnahúsið á bænum.
Drap minkurinn allar heimilis-
hænurnar, 15 að tölu. Bóndinn
fékk sér nýjar hænur og hugð-
ist leika á minkinn, útvegaði sér
minkabúr og setti hænurnar í
það. Dugði þetta nokkurn tima
eða þar til kvöld eitt að einhver
gleymdi að setja hespuna fyrir
minkabúrið. Þá gerði minkur-
inn sér lítið fyrir og hafði það
af að opna búrið og heimsótti
hænur bóndans aftur. Að þessu
sinni skildi minkurinn eftir
fimm hænur og hefur sennilega
hugsað sér að spara þær þar
til síðar. Að sögn bóndans voru
hænurnar lélegar til varps eftir
heimsókn minksins en eru þó
farnar að ná sér eftir áfallið.
Að sögn Péturs Jóhannssonar,
hafnarstjóra í Keflavík, sem á
sæti í undirbúningsnefndinni, hef-
ur undirbúningsnefndin undanfar-
ið átt í viðræðum um kaup á loðnu-
verksmiðju sem afkastað gæti um
1.000 tn á sólarhring, við aðila á
ónefndum stað í Noregi. Uppkomin
verksmiðja í nýjum húsum gæti
kostað um 500 milljónir króna, að
sögn Péturs Jóhannssonar, og
skapað 20 ársverk. Dregist hefur
að fá niðurstöðu í málið, að sögn
Péturs, og segir hann að undirbún-
ingsstjórnin sé nú farin að huga
að því að leita fyrir sér annars
staðar.
Stofnun hlutafélags verður ekki
látin bíða þess að samþykkt kaup-
tilboð liggi fyrir heldur verður
hlutafélag um verksmiðjuna stofn-
að í næstu viku. Helstu eigendur
verða væntanlega útgerðarfyrir-
tæki og frystihús á Suðurnesjum.
Hlutafé verður yfir 100 milljónir
króna að sögn Péturs.
Forsenda þess að verksmiðjan
verði rekstrarhæf í febrúar á næsta
ári er að áður verði gengið frá 150
metra viðlegukanti við höfnina í
Helguvík. Það mál verður m.a.
rætt á fundi hafnarstjórnar Kefla-
víkur í dag en áætlað er að til
þeirrar framkvæmdar þurfi 6 mán-
uði.