Morgunblaðið - 25.05.1994, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C/D
115. TBL. 82.ARG.
MIÐVIKUDAGUR 25. MAI1994
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Scud-flaug hæfir Sanaa
TÓLF manns biðu bana og 90
særðust þegar Scud-eldflaug
var skotið á Sanaa, höfuðborg
Jemens, í fyrrakvöld. Afdrif
þriggja fjölskyldna voru óljós í
gær en sex hús eyðilögðust. A
myndinni má sjá eitt þeirra á
barmi gígs sem myndaðist er
eldflaugin sprakk. Flaugin
sprakk rétt hjá sjúkrahúsi og
greip þar um sig mikil skelfing
er rúður brotnuðu og glerbrot-
um rigndi yfir sjúklinga og
starfsfólk./21
Forseti Ukraínu gagnrýnir Rússlandsforseta
Segir Jeltsín ala
á spennu á Krím
Kíev. Reuter.
LEONÍD Kravtsjúk, forseti Úkra-
ínu, sakaði í gær Borís Jeltsín, for-
seta Rússlands, um að kynda undir
spennu á Krímskaga. Hann sagði
að Jeltsín hefði verið með tilhæfu-
lausar viðvaranir og brotið gegn
samskiptavenjum þjóða.
Kravtsjúk sagði þetta í Kænu-
garði þegar forsætisráðherrar
Úkraínu og Rússlands komu saman
í Moskvu til að ræða deilu ríkjanna,
sem snýst um þá ákvörðun þingsins
á Krím að endurvekja stjórnar-
skrána frá 1992. Litið er á það sem
fyrsta skrefið í átt að aðskilnaði frá
Úkraínu. Meirihluti íbúanna er af
rússneskum uppruna og þingið vill
nánara samband við Rússland.
„Forseti getur aðeins gefið út
Kravtsjúk
Jeltsín
viðvaranir til eigin stofnana og ráð-
herra en ekki til forseta annarra
ríkja,“ sagði Kravtsjúk á fundi með
fyrrverandi hermönnum án þess að
nefna Jeltsín á nafn. „Þetta brýtur
gegn viðteknum venjum, er ólýð-
ræðislegt og gagnast engum.“
Kravtsjúk var augljóslega að vísa
til orða sem Jeltsín lét falla á fundi
leiðtoga Samveldis sjálfstæðra ríkja
í vikunni sem leið. Rússneski forset-
inn réð þá Kravtsjúk frá því að
reyna að leysa deiluna með hervaldi.
Viktor Tsjernomyrdín, forsætis-
ráðherra Rússlands, ræddi deiluna
við starfsbróður sinn frá Úkraínu,
Yefim Zviagilsky. Rússneska
fréttastofan Interfax sagði að þeir
hefðu samþykkt að bjóða forsætis-
ráðherra Krímar, Jevgeníj Sabúrov,
til viðræðna.
Fyrir fund forsætisráðherranna
ræddi Tsjernomyrdín við Douglas
Hurd, utanríkisráðherra Bretlands,
og lagði þá áherslu á að Rússar
vildu komast hjá uppgjöri við há-
grannaríki sitt.
*
Island
ekkií
hópnum
Genf. Reuter.
ÍSLAND er ekki lengur talið
með í skýrslum Alþjóða heil-
brigðisstofnunarinnar (WHO)
um ástand þjóða vegna smæðar
íslensku þjóðarinnar.
í skýrslu WHO um árið 1993
segir að annað árið í röð séu
lífslíkur karla og kvenna mestar
í Japan. Að meðaltali geti jap-
anskar konur orðið 83 ára en
næstar komi franskar konur
með 82 ára meðaltals lífaldur.
Lífslíkur japanskra karla eru
76,3 ár. Segir að íslendingar
hafí lengstum verið í efstu sæt-
um á skrám um lífslíkur en
þjóðin er ekki lengur talin með
þar sem WHO lætur nægja að
rannsaka ástand þjóða sem fylli
hálfa milljón íbúa.
Tiilögur á tillögur ofan á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins
Griðasvæði
fyrir hvali fer
minnkandi
Puerto Vallarta. Daily Telegraph, Reuter.
FJÖGUR ríki, Mexíkó, Chile, Svíþjóð og Sviss, lögðu í gær fram mála-
miðlunartillögu um stærð griðasvæðis fyrir hvali í suðurhöfum á ársfundi
Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) í Puerto Vallarta í Mexíkó. Japanir lögðu
fram gagntillögu við tillögu Frakka sem vildu að svæðið næði hálfa leið
að miðbaug frá Suðurskautinu eða norður að 40. breiddargráðu. Gert er
ráð fyrir atkvæðagreiðslu um tillögurnar í dag eða á morgun.
Tillaga ríkjanna fjögurra gengur hvali við Suðurskautslandið en jafn-
út á að griðasvæðið nái að 55°. Sidn-
ey Holt, fulltrúi í vísindanefnd IWC,
sagði að nær sama vernd væri
tryggð með þessari tillögu og tillögu
Frakka. Tillaga Japana gengur út á
að stofnað verði griðasvæði fyrir
Roman Herzog kosinn forseti Þýskalands
Deilt um réttmæti
for setakj örsins
Berlín. Reuter.
KIIISTILEGI demókratinn Roman
Herzog bar sigurorð af Johannes
Rau, frambjóðanda Jafnaðar-
mannaflokksins, og var kjörinn
næsti forseti Þýskalands í atkvæða-
greiðslu í sérstakri kjörmannasam-
kundu á mánudag. Herzog fékk 696
atkvæði gegn 605 í þriðju umferð
atkvæðagreiðslunnar.
Rudolf Scharping, leiðtogi Jafn-
aðarmannaflokksins, iét í ljós efa-
semdir um kjörið og sagði að kjör-
mannasamkundan hefði hunsað
vilja kjósenda. Rau naut miklu
meira fylgis en Herzog á meðal
Þjóðveija, samkvæmt skoðana-
könnunum.
Helmut Kohl, kanslari Þýska-
lands, sagði þessa gagnrýni til
marks um að jafnaðarmenn kynnu
ekki að tapa og kallaði það hræsni
þegar Scharping ýjaði að því að
taka bæri upp beinar forsetakosn-
ingar.
■ Roman Herzog/37
framt að leyfðar verði veiðar á 4.000
hrefnum utan þess þegar IWC hefur
komist að niðurstöðu um vísinda-
stjórnun hvalveiða.
Tillaga Japana er svar við tillögu
sem Frakkar hafa lagt fram um
stofnun griðasvæðis fyrir hvali frá
Suðurskautslandinu og hálfa leið að
miðbaug. Tillaga um griðasvæði
þarf að hljóta stuðning þriggja fjórðu
hiuta ríkja á fundinum til að ná fram
að ganga.
Hvalavinir deila
Hvalfriðunarsinnar deila um af-
stöðuna til stofnunar griðasvæðis en
hermt er að nokkur umhverfisvernd-
arsamtök hafi fallist á að takmark-
aðar hvalveiðar yrðu hafnar að nýju
gegn því að hvalveiðiþjóðir féllu frá
andstöðu við griðasvæði í suðurhöf-
um. Ný samtök, Breach, með aðset-
ur í Englandi, hafa verið stofnuð tii
að berjast gegn hvers kyns hvalveið-
um. í heilsíðuauglýsingu í blaðinu
Guardian i síðustu viku gagnrýndi
Breach bæði Greenpeace og tvenn
önnur umhverfisverndarsamtök og
spurði hvert baráttufólkið væri horf-
ið. Þar sagði að Breach ætlaði að
stöðva hvalveiðar Norðmanna í eitt
skipti fyrir öll i sumar.
HALTET EUCH ENDUCH
£N$ VIALFANGVERBOT!
Skorað á Norðmenn
Reuter
GRÆNFRIÐUNGAR mótmæltu hvalveiðum Norðmanna með því
að hengja borða á ferjuna Harald krónprins. Á borðanum eru
Norðmenn hvattir til þess að fallast á bann við hvalveiðum.