Morgunblaðið - 25.05.1994, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Davíð Oddsson forsætisráðherra
um Smugudeiluna
Ekkí afskíptí
af veiðunum
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, segir að íslensk stjórnvöld muni ekki
hafa afskipti af veiðum íslenskra skipa í Smugunni í sumar nema að
samningar takist um þessar veiðar við aðrar þjóðir sem hagsmuni eiga
að gæta á þessu hafssvæði.
„Ég lít þannig á að Smugan sé al-
þjóðlegt hafsvæði og ég tel víst að
Bsrii
Kópur(
Bjargtangar
Hafís fyrir
Vestflörðum
23. maí 1994
Flugvél Landhelgisgæslunnar,
TF Sýn, fór á mánudag í eftir-
lits- og ískönnunarflug yfir
Dohmbanka og miðin norðvest-
ur og norður af Vestflörðum.
ísjaðarinn var næst landi í 35
sjómflur norðvestur af Barða, en
í 65 sjómflur vestur af Bjarg-
töngum og 38 sjómflur norðvest-
ur af Straumnesi. Veður til ís-
könnunar var gott, austan and-
vari, léttskýjað og gott skyggni.
Norðmenn og Rússar muni virða
alþjóðalög. Norðmenn telja hins
vegar að staða þeirra á Svalbarða-
svæðinu sé sterkari en í Smugunni
og eru ákveðnir í að fylgja sínum
rétti þar fram. Ég felli engan dóm
um það og viðurkenni það ekki út
af fyrir sig,“ sagði Davíð.
Davíð var spurður hvort íslensk
stjórnvöld ætli að hafa afskipti af
veiðum íslenskra skipa í Smugunni
í sumar.
„Nei, ekki nema að náist samn-
ingar við þá aðila sem koma að
málinu. íslensk lög gera ekki ráð
fyrir því að íslensk stjórnvöld geti
skipt sér að málinu nema að slíkur
samningur sé í gildi.“
Fyrir nokkrum dögum fékk ís-
lenska ríkisstjórnin bréf frá stjórn-
völdum í Rússlandi og Noregi þar
sem veiðum íslenskra skipa í Smug-
unni er mótmælt. Davíð sagði rétt
sem haft er eftir Júríj Retsjetov,
sendiherra Rússa á íslandi, í Morg-
unblaðinu fyrir helgi að Rússar
hóti ekki aðgerðum í Smugunni í
sínu bréfi. Hafi þvf verið haldið fram
sé það misskilningur íslenskra fjöl-
miðla. Davíð sagði hins vegar ekki
fara á milli mála að þjóðirnar hafi
haft samráð þegar þær sendu bréf-
in.
Jeltsín hvetur til
meiri samskipta
GUNNAR Gunnarsson afhenti Borís N. Jeltsín, forseta Rússlands, trúnað-
arbréf sitt sem sendiherra íslands í Rússlandi á föstudag. Gunnar sagði að
í spjalli við forsetann og Andrej Kozyrev utanríkisráðherra eftir afhending-
una í Kreml hafi forsetinn sagt að samskipti þjóðanna væru með miklum
ágætum og engin vandamál væru í samskiptum ríkjanna.
Veiðar íslenskra skipa í Smug-
nnni í Barentshafi og samskipti
þjóðanna vegna þeirra komu ekki
til umræðu við þetta tækifæri.
Gunnar hefur verið sendiherra í
Moskvu frá 1. mars. Stutt er síðan
hann afhenti svarbréf Davíðs Odds-
sonar vegna athugasemda Viktors
Tsjernomyrdín forsætisráðherra
Rússa við veiðar íslendinga í Smug-
unni. Hann kvaðst ekki vita hvenær
væri von á viðbrögðum Rússa.
Gunnar sagði að Jeltsín hafi kom-
ið fyrir sem mjög sterkur persónu-
leiki og jafnframt viðkunnanlegur.
Hann væri frískur og líflegur.
Börðu stúdent
og óku á hann
ÓKUNNIR menn í leit að partíi
réðust á tvítugan nýstúdent, Við-
ar Guðmundsson, utan við heimili
hans í einbýlishúsagötu í Hóla-
hverfi Reykjavík aðfaranótt
sunnudags, slógu hann í andlit að
fjölskyldu hans og vinum ásjáandi
og óku síðan bíl sínum
á Viðar á flótta frá
heimili hans. Viðar
dróst um 40 metra með
bílnum áður en hann
skall til jarðar og komst
naumlega hjá því að lenda undir
þjóli bílsins. Hann er rifbrotinn,
meiddur á hálsi, ef til vill kinn-
beinsbrotinn og hugsanlega með
sjónskaða eftir árásina.
Faðir Viðars, Guðmundur Sig-
urðsson, fer hörðum orðum um
viðbrögð lögreglunnar við málinu
og segir hana ekkert hafa aðhafst
til að hafa upp á árásarmönnun-
um sem höfðu ekki verið hand-
teknir I gær. Árásarmennirnir
hafa hringt á heimilið til að biðja
Viðar að draga kæruna til baka.
Viðar Þór Guð-
mundsson var að
kveðja gesti í stúdents-
veislu sem haldin hafði
verið heima hjá honum
um kvöldið og hafði
gengið með gesti út á hlað þegar
hann sá unga menn, „sniglast við
hús hinu megin við götuna." Einn
þeirra gekk í átt að Viðari og
spurði hvort ekki væri hægt að
komast þarna í partí. „Ég sagði
að það væri ekkert partí í gangi
Voru í leít að
partíi í stúd-
entsveislu
FRÉTTIR
^ Morgunblaðið/Sverrir
Utívistarsvæðið íNauthólsvík
DRÖG að nýju skipulagi útivistarsvæðis í Nauthólsvík hafa verið kynnt í borgarráði. Þar er
gert ráð fyrir baðströnd, aðstöðu fyrir siglingar, íþróttir og Ieiki auk stríðs- og friðarminjasafns.
Útivistarsvæði í Nauthólsvík á að verða tilbúið 1996
Siglingar og sjóböð
náttúru, landslags, söguminja,
umhverfis- eða útivistargildis.
Borgarstjórn getur þó leyft vissa
starfsemi eða framkvæmdir sem
tengjast eðli eða hlutverki svæð-
anna eða eru í þágu almennings.
Þrír áfangar
Gert er ráð fyrir að í fyrsta
áfanga verði bætt við skeljasandi
í fjöruna. Mikilvægt er talið að
sporna við sjávarrofi með því að
nýta efni úr bryggjunni til að hlaða i
lágan kant meðfram baðströndinni. i
Þá þyrfti að hlaða sjóvarnagarð j
sitt hvoru megin við sjósetningar-
rennuna og á nokkrum stöðum
verður að setja upp girðingar og
vamaðarskilti, þar sem holbakkar
hafa myndast.
Í öðrum áfanga er miðað við að
flytja afrennslisrör frá heita lækn-
um um 80 metra að potti sem verð- j
ur upp á bökkunum. Athuga þarf j
með hvaða hætti sjávarlónið verður j
hitað upp. Til greina kemur að auk
þess vatns sem rennur úr pottunum
og laugum til sjávar verði upphitun
frá pípum í fjöruborðinu þannig að
lónið verði með jafnari hita. Þá er j
gert ráð fyrir að í þessum áfanga
verði byggðir búningsklefar, bíla-
stæði gerð og vegir, pottar og laug-
ar auk þess sem náttúrurminjar
verða merktar. í þriðja og síðasta
áfanga verður reist stríðs- og frið-
arminjasafn.
FRUMDRÖG að skipulagi útivist-
arsvæðis í Nauthólsvík hafa verið
kynnt í borgarráði. Meginmarkmið
skipulagsins er að Nauthólsvíkur-
svæðið verði aðgengilegt og fjöl-
breytt útivistarsvæði, þar sem
áhersla verði lögð á siglingar, bað-
strönd og fræðslu um náttúru- og
söguminjar. Ráðgert er að fram-
kvæmdum verið lokið sumarið
1996.
í greinargerð með skipulagi
Nauthólsvíkur segir að á árum fyrr
hafi þar verið baðstaður sem dró
að sér fjölmenni á góðviðrisdögum
en vegna vaxandi skólpmengunar
hafi sjóböð verið bönnuð árið 1968.
Með nýju fráveitukerfi verði mögu-
legt að opna víkina á ný.
Höfðað til fræðslu
Aðalstígur mun liggja um mitt
svæðið og tengja það til vesturs
fyrir flugbrautarendann að Skeija-
firði og til austurs að Fossvogsdal
með göngubrú yfir Kringlumýrar-
braut.
í skipulagstillögunni er höfðað
til fræðslu í sitt hvorum enda svæð-
isins en þar á milli til íþrótta og
leikja. Vestast er gert ráð fyrir
stríðsminjasafni. Starfsemi Brok-
eyjar verður flutt norður fyrir
Siglunes og verður siglingaíþróttin
þar á einum stað í stað þriggja nú.
I tillögunni er gert ráð fyrir nýju
bátaskýli en kanna þarf frekar
Fræðsla um
náttúru- og
söguminjar
staðsetningu skýlisins og verða
nýjar tillögur að skipulagi svæðis-
ins unnar í framhaldi af því.
Sandfjara
Sá hluti Nauthólsvíkur sem er
skjólgóður og með stærstu sand-
fjöruna verður nýttur fyrir bað-
strandargesti. Gert er ráð fyrir
þjónustuhúsi með böðum, búnings-
aðstöðu, snyrtingum og veitingum
miðsvæðis. Þar vestan við verður
affallsvatn frá hitaveitugeymum á
Öskjuhlíð leitt I potta uppá bakkan-
um og í krikum neðan hans og
þaðan í vaðlaug sem verður ofan
sjávarmáls í fjörunni. Leik- og
boltavöllur verður 1 tengslum við
þjónustuhús og á flötinni ofan Kýr-
hamars og minni dvalarsvæði verða
á vestanverðu svæðinu.
F ossvogsbakkar
Fossvogsbakkar eru á náttúræ
minjaskrá Náttúruvemdarráðs. í
aðalskipulagi Reykjavíkur eru
bakkamir skilgreindir sem borg-
arvemdað svæði. Svæði undir borg-
arvemd hefur borgarstjóm sam-
þykkt að vemda vegna sérstakrar
Morgunblaðið/Þorkell
VIÐAR Þór Guðmundsson nýstúdent á heimili sínu í gærkvöldi.
fyrir hann heldur bara stúdent-
sveisla og bað hann að koma sér
í burtu,“ sagði Viðar. Hann sagði
að pilturinn hefði brugðist reiður
við og kallað til félaga sinna sem
sátu þrír í bílnum. Einn þeirra
hefði komið að og slegið Viðar i
andlitið. Eftir árásina fóru menn-
irnir í bíl sinn en Viðar hafði
vankast við höggið, stóð ringlaður
á götunni og vissi ekki fyrr en
bíl þeirra var ekið á hann.
Viðar kastaðist upp á bílinn og
dróst með honum að gatnamótun-
um. Þar kastaðist hann með and-
litið i götunni og munaði hárs-
breidd að höfuð hans yrði undir
afturhjóli. Um 30 vitni horfðu á
og sáu skráningarnúmer bílsins.
Guðmundur Sigurðsson faðir
Viðars sagðist hafa margsinnis
um helgina haft samband við lög-
reglu til að kanna hvort árásar-
mennimir væru fundnir. Hann
sagði við Morgunblaðið í gær-
kvöldi að hann hefði fengið þær
upplýsingar hjá lögreglunni «
Reykjavík að ekki hefðu verið
gerðar ráðstafanir til að lýsa eft-
ir eða leita að bíl mannanna um
nóttina vegna mikilla anna. Guð-
mundur kvaðst telja að mennirnir
hefðu verið ölvaðir eða undir
áhrifum vímuefna.
Guðmundur sagði að rann-
sóknarlögregla hefði sagt um
helgina að ekkert yrði gert í
málinu fyrr en á þriðjudag.
Guðmundur sagðist ekki hafa
fengið nein svör við þeirri spurn-
ingu hvaða mildu annir það væru
sem tafið hefðu lögregluna frá
því að leita þeirra ókunnu manna
sem hefðu stórslasað son sinn að
ættingjum hans og vinum ásjáandi
með því að ráðast inn í stúdent-
sveislu í húsi við friðsæla götu í
úthverfi í borginni.