Morgunblaðið - 25.05.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 11
FRÉTTIR
Mosfellsbær
•
M
Þröstur Karlsson Róbert B. Agnarsson
Rólegt
yfirbragd
kosninga-
baráttu
KOSNINGABARÁTTAN í Mos
fellsbæ hefur verið með rólegr;
móti að mati viðmælenda Morgun
blaðsins, þeirra Róberts B. Agn
arssonar, bæjarstjóra og efst;
manns á lista Sjálfstæðisflokksim
og Þrastar Karlssonar, efst;
manns á lista Framsóknarflokks
Báðir segja þeir að mikilvægt si
að vinna að atvinnuuppbyggingv
í bænum. Einnig eru í framboð
A-listi Alþýðuflokks og G-listi A1
þýðubandalags.
í síðustu kosningum buðv
Framsóknarflokkur, Alþýðu
bandalag, Alþýðuflokkur o;
Kvennalisti fram sameiginlega
E-listann. Hann hlaut tvo fulltrú;
en Sjálfstæðisflokkur fimm.
Frekari uppbygging
Róbert B. Agnarsson, bæjarstjói
og efsti maður á lista Sjálfstæðis
flokksins, segir að á næst;
kjörtímabili vilji flokkurinn stefn;
að frekari uppbyggingu í atvinnu
málum. Hann segir að gott lóða-
framboð sé fyrir ýmis konar iðnac
í bænum og markmiðið vera að
stilla gjöldum í hóf.
Einnig vilji sjálfstæðismenn
leggja áherslu á öflugt skólastarf.
Þeir vilji efla innra starf grunn-
skólanna og hefja byggingu nýrra
skóla. Þá eigi að hefja byggingu
framhaldsskóla, í samvinnu við
Reykjavíkurborg og ríkið, sem
verður tekinn í notkun á næstu
árum.
Róbert segir að fjárhagsstaða
bæjarfélagsins sé nokkuð góð,
skuldir hafi aukist á yfirstandandi
kjörtímabili en hafa beri í huga
að framkvæmdir hafi einnig verið
miklar.
Verið sé að vinna að stórum
verkefnum eins og uppbyggingu
íþróttamannvirkja, byggingu bæj-
arskrifstofa og bókasafns.
Átak í atvinnumálum
Þröstur Karlsson, efsti maður á
lista Framsóknarflokksins, segir
að hingað til hafí lítið verið gert
í atvinnumálum í Mosfellsbæ og
því þurfí að breyta. Þvi vilji flokk-
urinn að ráðinn verði atvinnufull-
trúi og gert átak í atvinnumálum.
Koma þurfi á stofn eignarhalds-
fyrirtæki sem hefði yfir áhættu-
fjármagni að ráða til að styrkja
nýsköpun í bænum.
Bærinn þurfi að taka sig á í
umhverfismálum og lagfæra
göngustíga sem væru ófrágengnir.
Þá þyrfti að laga skólalóðina í
kringum grunnskólann þar sem
sel og timburkofar væru notaðir
til að leysa húsnæðisvanda skól-
ans. Nauðsynlégt sé að byggja
nýjan grunnskóla á Reykjakotsmel
og ljúka byggingu gagnfræðaskól-
ans sem væri hálfkláraður.
Þá sé brýnt að bjóða út allar
framkvæmdir bæjarins og setja
skólabílaakstur aftur á laggirnar.
Jafnframt ætti að varast skulda-
söfnun bæjarins, en skuldir hefðu
aukist verulega á yfirstandandi
kjörtímabili.
Launa- og verðlagsþróun 1986 til 1992
Laun hækkuðu
meira en verðlag
LAUN landverkafólks innan Alþýðu-
sambands ísiands ef miðað er við
meðaltímakaup hafa hækkað úr
220,10 krónum að meðaltali á árinu
1986 í 552,90 krónur að meðaltali
á árinu 1992. Þessi hækkun jafngild-
ir því að tímakaupið hafi hækkað
um rúmlega 151% en framfærsluvís-
itöla hækkaði á sama tímabili um
tæplega 130%.
Ef litið er til hækkunar launa ein-
stakra stétta á þessu tímabili sam-
kvæmt upplýsingum sem koma fram
í yfirliti Kjararannsóknanefndar um
laun og vinnutíma hafa skrifstofu-
konur á höfuðborgarsvæðinu hækk-
að að meðaltali úr 240,10 krónum
á tímann 1986 í 631 krónu 1992
eða um 163%. Iðnaðarmenn hafa
hækkað úr 287 krónum að meðal-
tali 1986 í 709 krónur 1992 eða um
147% og verkakarlar á höfuðborgar-
svæði úr 214,80 kr. í 496 kr. eða
um 131%.
Meðaltímakaup og lánskjaravísitala 1986-92
260
240
220
200
180
160
140
120
100
'86 '87 ’88 '89 '90 '91 ’92
K R. 2.495.000
► Staðalbúnaður m.a.: 130 ha. 2.51 vél, fjarstýrðar samlæsingar, rafdrifnar rúður, speglar og loftnet, veltistýri, álfelgur o.fl.
hreinir yfirburðir!
190 ha. 4.01 vél faanleg
90% þeirra sem keyptu amerískan jeppa
á síðasta ári, völdu Jeep. Það sem af er
þessu ári hefur ekki verið hægt að anna
eftirspurn eftir nýja Cherokee Jamboree
jeppanum, enda verðið hreint ótrúlegt.
Með tilkomu aukasendinga, er þessi
sígildi lúxusjeppi nú til afgreiðslu strax!
Klassísk vönduð innrétting.
vJeep
NÝBÝLAVEGUR 2, KÓPAVOGUR, SÍMl 42600
Bestu jeppakaupin!
jeep cherokee jamboree