Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Sigurður Björnsson
Fannfergi
tefur
hreiðurgerð
Ólafsfirði - ÞAÐ sem af er
sumri hefur mikill snjór verið
í Ólafsfirði. Um miðjan maí-
mánuð hafði ekki séð á dökkan
díl mánuðum saman. Nú eru
melar hins vegar byijaðir að
gægjast undan snjónum. Fann-
fergið kemur illa við fuglana
sem stunda nú hreiðurgerð og
varp af kappi. Þrastarhjón ein
dóu ekki ráðalaus og bjuggu
um eggin sín í fjallajeppanum
hans Hinna í Túngötunni.
Hinni tók gestunum vel þótt
óboðnir væru, frestaði síðustu
fjallaferðinni og lagði jeppan-
um. Og þannig verður það
þangað til ungarnir eru komn-
ir í heiminn.
Bónus fékk ekki nógu góðar viðtökur á Akureyri og hefur verið lokað
Aldamótahugsun
og sinnuleysi um
eigin hagsmuni
„ÞAÐ má segja að þetta sé til marks um þann doða sem ríkir á Akur-
eyri, þetta er eitthvað sinnuleysi hjá neytendum," sagði Vilhjálmur Ingi
Arnason formaður Neytendafélags Akureyrar og nágrennis eftir að Bónus-
verslunin á Akureyri lokaði um helgina. Hann sagði að samkvæmt síðustu
verðkönnun félagsins hefði verðmunur á algengum vörutegundum í ódýr-
ustu versluninni sem var Bónus og þar sem verð var hærra numið nokkurn
veginn sömu upphæð og eingreiðslan til launþega sem samið var um í lið-
inni viku.
„Ef launþegum þykir það kjarabót
að fá þessar 6.000 kónur skyldi
maður ætla að umtalsverð kjarabót
fylgdi því að versla þar sem ódýrast
er. Munurinn á sömu körfu með al-
gengum vörutegundum slagar hátt
upp í þessa eingreiðslu eftir því hvort
keypt er í Bónus eða Hagkaupum,"
sagði Vilhjálmur Ingi.
Aldamótahugsunarháttur
Sigurður Gunnarsson verslunar-
stjóri í Bónus á Akureyri sagði að
ekki hefði verið grundvöllur fyrir
rekstrinum, viðskiptavinirnir hefðu
ekki verið nægilega margir til að
standa undir því lága vöruverði sem
verslunin hefði boðið. „Viðtökurnar
voru mjög góðar í upphafi, en fljót-
lega fór að bera á þeim aldamóta-
hugsunarhætti að fólk ætti að versia
við fyrirtæki úr heimabyggð. Ætli
heyrðist ekki hljóð úr horni ef fólk
af höfuðborgarsvæðinu neitað að
kaupa norðlenskar vörur en norð-
lensk fyrirtæki selja umtalsvert af
sinni vöru í versiunum syðra,“ sagði
Sigurður og benti á að Bónus keypti
vörur fyrir um 7 miiljónir króna á
viku af norðlenskum fyrirtækjum.
„Það verður spennandi að sjá hvað
KEA-Nettó gerir nú en þeir lækkuðu
verðið hjá sér um 12% eftir að við
komum norður í haust,“ sagði Sig-
urður og Vilhjálmur Ingi tók í sama
streng en hann kvaðst óttast mjög
að vöruverð myndi hækka aftur
„þrátt fyrir að þeir hafi gefið um
það yfirlýsingar hið gagnstæða. Við
munum kanna það sérstaklega og
eftirleiðis verður einnig kannað verð
í Bónus í Reykjavík til samanburð-
ar,“ sagði Vilhjálmur Ingi.
Sterk viðbrögð
„Kannski er þetta til marks um
að kjör á Akureyri séu svo góð að
fólk þurfi ekki að versla þar sem
ódýrast er,“ sagði formaður Neyt-
endafélagsins en saðgi að fjöldi fólks
hefði haft samband við félagið og
þótt miður að versluninni yrði lokað.
„Margir tala um að veija eigi fyrir-
tæki í heimabyggð, en það myndi
lítið þýða að ætla sér að efla bæinn
sem miðstöð matvælaframleiðslu í
landinu ef einungis heimamenn
keyptu framleiðsluna.“
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Pakkað saman
ALBERT og Anton starfsmenn Bónus voru í óða önn að pakka
saman í Bónusversluninni á Akureyri í gær.
Sjávarútvegsdeildin
á Dalvík - VMA
veturinn 1994-1995
DAtVÍK oalnív^
SKIPSTJÓRNARNÁM:
Kennt er til skipstjórnarprófs, 1. og 2. stigs.
FISKIÐNAÐARNÁM:
Kennt er til fiskiðnaðarmannsprófs.
ALMENNT FRAMHALDSNÁM:
1. bekkurframhaldsskóla.
Heimavist á staðnum.
Umsóknarfresturtil 10. júní.
Upplýsingar í símum 61083,61380,61160,61162.
Skólastjóri.
Verslunarstjóri KEA-Nettó um lokun Bónus
Engar U-beygjur
„ÉG ER jafnbjartsýnn nú við brotthvarf Bónuss og þegar verslunin kom.
Það eru engar blikur á lofti um að við munun taka U-beygju þó að
Bónus hafi lokað,“ sagði Júlíus Guðmundsson verslunarstjóri KEA-Nettó.
„Það hefur frá upphafi verið
stefna okkar að bjóða lægsta vöru-
verð á Akureyri og frá þeirri stefnu
verður ekki hvikað. Ef fólk heldur
að við förum að hækka vörur í
okkar verslun í gríð og erg þá er
það misskilningur. Við munu alltaf
skoða þá verðmyndun sem er á
markaðnum hveiju sinni,“ sagði
Júlíus aðspurður um hvort vöruverð
myndi hækka í versluninni í kjölfar
þess að Bónus hefur lokað.
Hann sagði samkeppnina á
markaðnum á Akureyri ekki hafa
verið eðlilega að undanförnu.
„Vöruverð hefur verið lægst hér
enda hart verðstríð í gangi, aðstæð-
ur á markaðnum eru allt aðrar hér
þar sem tveir eru að keppa en i
Reykjavík." Júlíus sagðist ekki
líta svo á að KEA-Nettó hefði farið
með sigur af hólmi í verðstríðinu,
„ég lít frekar svo á að Bónus hafi
gefist upp.“
„í mínum huga er það um-
hugsunarefni fyrir þá sem standa
í reksti á Akureyri að formaður
Neytendafélags Akureyrar og ná-
grennis lýsir yfir stuðningi við
ákveðna aðila og mér er spurn;
mega nýir rekstraraðilar hér í bæn-
um eiga von á því að formaðurinn
gerist talsmaður þeirra ef kvartaði
er undan móttökunum?" sagði Júl-
íus.
Minning
um ítölsku
borgina
HALLDÓRA Arnardóttir flytur
fyrirlestur við Háskólann á.
Akureyri sem nefnist „Minning
um ítölsku borgina" og er meg-
inviðfangsefni hans þær hug-
myndir sem einkenna ítölsku
borgirnar og hvað geri þær svo
minnistæðar þeim sem þær
heimsækja.
Halldóra stundar doktors-
nám við University College
London, Barlett School of Arc-
hitexture þar sem verkefni
hennar snýst _um menningu og
stjórnmál á Italíu eftir seinni
heimstyijöldina og hvernig ítal-
ir byggðu upp land sitt og þjóð
íframhaldi af því segir í frétta-
tilkynningu frá Háskólanum á
Akureyri. Áhersla er lögð á
þijár borgir, tilliti til bygginga-
listar, hönnunar, kvikmynda og
lista.
Fyrirlesturinn sem hefst kl.
20.30 er öllum opinn og verður
hann fluttur í stofu 24.
Frambjóðend-
ur ræða
atvinnumál
ATVINNUMÁL verða til um-
fjöllunar á opnu húsi Miðstöðv-
ar fólks í atvinnuleit í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju í dag,
miðvikudag frá kl. 15.00 til
18.00. Frambjóðendur kynna
viðhorf flokka sinna og svara
spurningum þátttakenda. Ýms-
ar tilkynningar eru á dagskrá
opna hússins, boðið verður upp
á kaffi og brauð og dagblöðin
liggja frammi. Lögmannavakt-
in er starfandi í Safnaðarheim-
ilinu frá kl. 16.30 til 18.30 á
miðvikudögum og tekur um-
sjónarmaður á móti pöntunum
og annast skráningu.
Djáknanemi
með framsögu
SAMTÖK um sorg og sorgar-
viðbrögð efna til pallborðsum-
ræðna í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju annað kvöld,
fimmtudaginn 26. maí kl.
20.30. þar sem málefni samtak-
anna verða rædd. Valgerður
Valgarðsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur sem er í djáknanámi verð-
ur með framsögu og leiðir um-
ræðuna. Samtökin verða með
opið hús hálfsmánaðarlega í
sumar eins og verið hefur.
Eldur í
gasgrilli
SKEMMDIR urðu á sólpalli eft-
ir að kviknaði í gasgrilli við hús
í Borgarsíðu um helgina.
Slökkvilið Akureyrar var kallað
að húsinu laust fyrir kl. 19. á
laugardag eftir að kviknaði í
slöngu sem lá frá gaskút í grill-
ið. Eldtungur stóðu upp úr grill-
inu og hætt við að maturinn
hafi ekki bragðast sem best.
Slökkviliðið var einnig kallað
út að morgni sama dags, en
þá hafði gufa úr baðherbergi á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri sett viðvörunarkerfið í
gang.