Morgunblaðið - 25.05.1994, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Undirbúningur hafinn að stofnun
næststærsta lífeyrissjóðs landsins
Samruni fimm
SAL-sjóða á
næstu grösum
LÍKUR eru á að fimm sjóðir innan
Sambands almennra lífeyrissjóða,
SAL, sameinist fyrir árslok 1995.
Ef af þessu verður myndast þarna
næst stærsti lífeyrissjóður landsins
með eignir upp á 20 milljarða
króna samkvæmt reikningum sjóð-
anna fimm um síðustu áramót.
Sjóðirnir fimm sem um ræðir
eru Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og
Framsóknar, Lífeyrissjóður Félags
starfsfólks í veitingahúsum, Líf-
eyrissjóður Hlífar og Framtíðar-
innar, Lífeyrissjóður Sóknar og
Lífeyrissjóður verksmiðjufólks.
Að sögn Hrafns Magnússonar,
framkvæmdastjóra SAL, hefur
verið skrifað undir viljayfirlýsingu
meðal sjóðanna fimm um að stefna
að sameiningu. í sumar væri gert
ráð fyrir að sjóðirni'r færu í trygg-
ingafræðilega athugun sem miðað-
ist við stöðu þeirra í árslok 1993.
„Þegar því verki lýkur hefjast frek-
ari viðræður um sameiningu og ef
allt gengur að óskum er stefnt að
því nýi lífeyrissjóðurinn hefji starf-
semi í síðasta lagi 1. janúar 1996,“
sagði Hrafn.
Nýi sjóðurinn mun ef af verður
yfirtaka eignir og skuldbindingar
eldri sjóðanna. Mat á eignum verð-
ur samræmt og við samanburð
réttinda verður miðað við áfalinar
lífeyrisskuldbindingar.
Aðspurður hvort vænta mætti
frekari samruna lífeyrissjóða innan
SAL sagði Hrafn að viðræður
væru i gangi á milli Lífeyrissjóðs
Vesturlands og Lífeyrissjóðs Vest-
firðinga. Þar væri einnig beðið eft-
ir tryggingafræðilegri athugun.
IMordquote
Norræn samvinna í
kauphallaviðskiptum
Stokkhólmi. Reuter.
ÞRJÁR norrænar kauphallir hafa
hafið sameiginlega starfrækslu
kerfis til samvinnu í hlutabréfavið-
skiptum og kalla það Nordquote.
Nordquote er ekki viðskipta-
kerfi. Það gegnir aðallega hlut-
verki tilkynningatöflu, sem gerir
aðilum kerfisins kleift að láta í ljós
áhuga á viðskiptum.
Kauphallirnar í Kaupmanna-
höfn, Helsinki og Stokkhólmi
hleyptu kerfinu af stokkunum, en
kauphöllin í Ósló hefur frestað fyr-
irhugaðri þátttöku vegna „tækni-
legra tölvuerfiðleika“.
„Starfræksla Nordquote hefur
byijað hægt og vel eins og við var
búizt,“ sagði Bent Mebus, for-
stöðumaður kauphallarinnar í
Kaupmannahöfn, í samtali við Re-
uter. Kauphallarforstjórar Norður-
landa komu saman í Höfn til þess
að ræða stofnunina, en ekki var
reynt að vekja athygli á fundinum.
Frá því var skýrt í kauphöllinni
í Stokkhólmi að Nordquote mundi
í fyrstu ná til hlutabréfa í félögum,
sem skráð eru í einni norrænni
kauphöll eða fleirum, eða hlutafé-
lögum, þar sem hægt er að sýna
fram á samnorræna hagsmuni.
Upplýsingar, sem skipzt verður á,
verða aðeins sýndar miðlurum, sem
eru tengdir kerfinu. í raun verður
um að ræða hlutabréf í sænskum
félögum á svokölluðum „ Top-16“-
lista kauphallarinnar í Stokkhólmi,
18 finnskum hlutafélögum, 21
dönsku og 15 norskum.
Með Nordquote-samvinnunni er
þátttakendum boðin markaðsað-
stoð í viðskiptum við fjárfesta utan
Norðurlanda. Talað hefur verið um
að Nordquote marki upphaf skjótr-
ar þróunar, sem muni leiða til þess
að sameiginlegum markaði verði
komið á fót á Norðurlöndum, en
Mebus segir að samnorræn kaup-
höll verði varla að veruleika fyrr
en í fyrsta lagi 1996, þegar reglu-
gerð ESB um fjármálaþjónustu
tekur gildi. Samkvæmt reglugerð-
inni fá verðbréfasalar greiðan að-
gang að öllum mörkuðum og geta
verzlað óhindrað yfir landamæri.
Almenn víxillán:
Lægstu forvextir
8j25% 8,20% 8ioo% 8,10%
Alm. skuldabr.lán:
Kjörvextir
8,00%
7,85%
Landsbanki
l I íslandsbanki
l i Búnaðarbanki
B Sparisjóðir
Vísitölub. lán:
Kjörvextir
5,45% 5,50% 5,50% 5,50%
Verðbréfakaup, dæmi um ígildi nafnvaxta
ef bréf eru keypt af öðrum en aðalskuldara
Viðskiptavíxlar: Óverðtr. viðskipta-
Forvextir skuldabréf:
Yfirdráttarlán:
13,75%
13,50%
12,95%
11,75%
SPARISJÓÐIRNIR lækkuðu á laugardag vexti af tlánum og boðpðu frekari
lækkun um næstu mánaðamót á vöxtum yfirdráttarlána fyrirtækja. A myndinni
hér að ofan má sjá samanburð á tlánsvöxtum og upplýsingar um lækkun
sparisjóðanna. Bnaðarbankinn er enn með lægstu kjórvextina af almennum
vxillánum og skuldabréfalánum en Landsbankinn býður bestu kjörin á
viðskiptavxlum og óverðtryggðum skuldabréfum. Hins vegar eru vextir af
yfirdrattarlánum lægstir hjá slandsbanka eða 12,5%. Um næstu mánaðamót
munu vextir sparis|óðanna af yfirdráttarlánum til fyrirtækja lækka 12,5%.
Samkvæmt upplýsingum viðskiptabankanna liggja engar ákvarðanir fyrir um
vaxtabreytingar um næstu mánaðamót.
Sjónvarp
Fox-kerfi
Murdochs
kemstyfir
12 stöðvar
New York. Reuter.
SJÓNVARPSKERFI fjölmiðla-
kóngsins Ruperts Murdochs, Fox
Broadcasting, hefur komizt að
samkomulagi við New World
Communications um 500 milljóna
dollara sameignarfyrirtæki, sem
hefur í för með sér að 12 stöðvar
í eigu New World munu tengjast
Fox og rjúfa tengsl sín við sjón-
varpsnet ABC, CBS og NBC.
Framleiðslufyrirtæki New
World framleiðir framhalds-
myndaflokkana „The Wonder Ye-
ars“ og „Santa Barbara" og
bandalag þess og Fox mun leiða
til mestu uppstokkunar í sjón-
varpssögunni, að sögn forstöðu-
manna fyrirtækjanna.
Fox og New World munu þar
að auki framleiða í sameiningu
sjónvarpsefni, sem sýnt verður í
stöðvum beggja aðila.
„Þetta samkomulag mun leiða
til ævarandi breytinga á umhverfi
samkeppninnar í sjónvarpsheimin-
um,“ sagði Murdoch þegar skýrt
var frá samkomulaginu.
Sjónvarpsnet hans hefur höfðað
til ungra áhorfenda, en hyggst nú
ná til fleiri aldurshópa og olli ný-
lega uppnámi keppinauta með því
að yfirbjóða þá þegar tilboð voru
gerð í rétt til þess að sjónvarpa
frá leikjum í amerískum fótbolta
á næstu leiktíð. New World-stöðv-
arnar WJBK-TV Detroit, WJW-TV
Cleveland, WAGA-TV Atlanta,
WTVT-TV Tampa og WITI-TV
Milwaukee tengjast nú Fox.
Framkvæmdir
Börgin geri verkefna-
áætlun til lengri tíma
ÁRNI Sigfússon, borgarstjóri í
Reykjavík, segir æskilegt að
Reykjavíkurborg geri áætlun lengra
fram í tímann um helstu fram-
kvæmdir í borginni. Hann segir að
þetta geti auðveldað íslenskum fyr-
irtækjum að bjóða í verk á vegum
borgarinnar. Arni telur einnig að
þetta gefi íslenskum fyrirtækjum
VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VÉLADEILD FÁLKAN
SHCHS HÖGQDEYFAR
«FARAR-
BRODDI
SACHS verksmiöjurnar eru leiöandi
framleiöendur á höggdeyfum og
kúplingum í evrópska og japanska bíla.
Þjónusta
SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVÍK
SlMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84
• VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS
Getur auðveldað
íslenskum fyrir
tækjum að bjóða
í verk á vegum
borgarinnar
betra tækifæri til að hanna mann-
virki og ná þeim til sín í útboðum.
Árni sagði þetta á fundi sem Sam-
tök iðnaðarins efndu til með bæjar-
stjórum stærstu sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu. Hann tók sem
dæmi nokkrar framkvæmdir sem
séu til umræðu, s.s. yfirbyggingu
yfir íþróttavöll í Laugardal, bygg-
ingu ráðstefnu- tónlistarhallar og
alútboð á leikskólum. Samtök iðnað-
arins hafa m.a. fundið að í sam-
bandi við útboð sveitarfélaganna er
að tíminn sé of skammur. Sigurður
Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi,
sagði að Kópavogsbær hefði reynt
að koma á móts við fyrirtæki að
þessu leyti og haldið fundi með fyrir-
tækjum og gert þeim grein fyrir
hvaða framkvæmdir séu framundan.
Árni sagði vel koma til greina að
Reykjavíkurborg setji fram tillögur
um framkvæmdir til lengri tíma en
gert hefur verið. Hann sagði að þetta
ætti að gefa íslenskum fyrirtækjum
tækifæri til að koma með nýjar
lausnir í sambandi við hönnun mann-
virkja og nefndi yfirbyggingu yfir
íþróttavöll í Laugardal sem dæmi
um þetta. Hann sagðist vera sann-
færður um að á þessu sviði eigi ís-
Iensk fyrirtæki möguleika.
Á fundinum var bent á að þess
sé krafist af stjórnendum opinberra
stofnanna að þeir reki stofnanir sín-
ar innan ramma fjárhagsáætlunar,
en jafnframt að þeir kaupi íslenskt.
Þetta tvennt fari stundum illa saman
því íslenska framleiðslan sé oftar
dýrari. Ingimundur Sigurpálsson,
bæjarstjóri í Garðabæ, benti á að
oft séu það félagsmenn í Samtökum
iðnaðarins sem sem taki ákvarðanir
um að velja frekar erlent að útboði
loknu. Þá ráði bæjarstjórnir litlu um
hvaða vara sé keypt.
Árni var spurður hvort Reykjavík-
urborg áformaði að einkavæða sorp-
hirðu í borginni og trésmíðaverk-
stæði borgarinnar. Báðum spurning-
um svaraði hann neitandi og sagði
að athugun sem á þessu hefði verið
gerð fyrir nokkru hefði ekki leitt í
ljós að eitthvað benti til að einkavæð-
ing gerði þessa starfsemi ódýrari
fyrir skattgreiðendur í Reykjavík.
Á fundinum var harðlega gagn-
rýnt hvernig Reykjavíkurborg stóð
að byggingu íbúða fyrir aldraða við
Lindargötu, en þar var ekki viðhaft
útboð. Jafnframt lýstu fundarmenn
yfir ánægju með að borgin skuli
hafa móta reglur um útboð og inn-
kaup á vegum borgarinnar. Menn
sögðu afar mikilvægt að farið verði
eftir þeim reglum í einu og öllu.