Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Aukinn
hagnaður
British
Airways
London. Reuter.
BREZKA flugfélagið British
Airways skilaði 301 milljónar
punda hagnaði fyrir skatta á eins
árs tímabili til marzloka í ár
miðað við 185 milljónir punda
1993/1994 og hefur treyst sig í
sessi sem eitt arðbærasta flugfé-
lag heims.
Að sögn félagsins hefur hagn-
aður þess aukizt þrátt fyrir
áframhaldandi harða samkeppni
vegna ráðstafana til þess að
draga úr kostnaði og auka tekj-
'ur, einkum á ábatasömum við-
skiptafarrýmum, þar sem far-
þegum hefur fjölgað um 6%.
Rekstrartekjur jukust um 60%
í 496 milljónir punda og tekjur
af hlutabréfum í 31,3 pens af
hveiju bréfi úr 23,1 pensi í fyrra.
Arðgreiðslur námu 11,10 pens-
um á hlutabréf alla tólf mánuð-
ina og hækkuðu úr 9,3 pensum
ári áður.
Farþegum fjölgaði um 8,9% í
30,6 milljónir og markaðshlut-
deild BA á leiðum til og frá Lond-
on jókst um 3% í 46%. Farþegum
British Airways, sem fóru um
Heathrow og Gatwick í London,
fjölgaði um 11%, þótt markaðs-
aukningin næmi aðeins 5%.
LOTUS
kaupir IRIS
Cambridge, Massachusetts. Reuter.
FYRIRTÆKIÐ Lotus Develop-
ment hefur samþykkt að kaupa
Iris Associates, fyrirtæki sem
hefur þróað þijár útgáfur af
Lotus Notes-tölvuhugbúnaðinum
vinsæla - fyrir 84 milljónir
Bandaríkjadala.
Iris fékk fjármagn frá Lotus
Development til þess að þróa
tölvupóstshugbúnað þann sem
gengur undir nafninu Lotus Not-
es og endurbætur á honum gegn
einkaleyfisþóknun fyrir selt
magn af Lotus Notes.
Jim Manzi, forstjóri Lotus,
sagði að lagfæring hefði verið
gerð á 10 ára samvinnu við Ir-
is.„Þar með hefur verið viður-
kennt að Notes eru höfuðatriði
þeirrar stefnu fyrirtækisins að
viðhalda frábæru samstarfi okk-
ar við Ray Ozzie og liðskjarna
hans,“ sagði Manzi.
Hlutabréf í Lotus hækkuðu
um 2,25 dollara í 62,25 þegar
skýrt hafði verið frá kaupunum.
Bók um
skattaíviln-
anir frá
KPMG
ALÞJÓÐLEGA ráðgjafar- og
endurskoðunarfyrirtækið KPMG
hefur gefið út bókina „ Tax and
Financial Incentives for Business
around the WorId“. í henni er
að finna samantekt á skatta- og
fjármálalegum hvötum í 35 hag-
kerfum víðs vegar í heiminum.
Bókin kemur út í dag hér á landi
eins og í 116 löndum þar sem
KPMG hefur útibú.
Ríkisstjómir í ýmsum löndum
bjóða skattalega eða íjármála-
lega hvata af þessu tagi, að því
er segir í fréttatilkynningu. Þar
segir einnig að breytingar hafi
verið að eiga sér stað að þessu
leyti hjá ríkjum Evrópusam-
bandsins. Ríkisstjórnir þeirra
hafi verið að afnema slíka hvata
og látið svæðisbundna styrki eða
hvata koma í þeirra stað.
Bókin er fáanleg hjá KPMG
Endurskoðun hf.
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 19
HP DeskJet 310 bleksprautuprentarinn:
kostur
Hewlett-Packard
Kr. 33.500,-
staðgreitt m/vsk.
Hewlett-Packard DeskJet 310 bleksprautuprentarinn er án efa
einn sá allra sniðugasti á markaðinum í dag. Hann er fyrirferðalítill,
vandaður og skilar góðum afköstum. Hann er hljóðlátur, hefur
möguleika á litaprentun og arkamötun, er auðveldur í notkun og
hentar í raun nánast hvar sem er. Verð.ið er einnig álitlegt
HP DeskJet 310 bleksprautuprentari og fylgihlutir: Stgr.verð m/vsk.
• HP DeskJet 310, sv/hv, án arkamatara* kr. 33.500,-
• HP DeskJet 310, sv/hv, með arkamatara kr. 39.900,-
• HP DeskJet 310 litaprentari með arkamatara kr. 46.900,-
HP DeskJet 310 bleksprautuprentarinn fæst til afgreiðslu strax!
Kynntu þér heila fjölskyldu af Hewlett-Packard prenturum í Tæknivali
og þú finnur örugglega álitlegan kost fyrir þig.
TÆKNILEG ATRIÐI:
1 Fyrirferðalítill, þyngd aðeins 2 kg.
i Prentar i svart/hvítu og í lit
á A4 pappír og glærur.
i Ársábyrgð frá framleiðanda.
i Hljóðlát bleksprautuprentun.
i Arkamatari.
i Aukabúnaður fæst fyrir þá
sem vilja ferðast með prentarann,
Viðskiptavinir athugið:
Frá og með 28. maí er verslunin lokuð á laugardögum.
Verið velkomin alla virka daga - í allt sumar!
s.s. rafhlöður með hleðslutæki
og þægileg handtaska.
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími 681665 - Fax 680664