Morgunblaðið - 25.05.1994, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
TRÚLOFUNARHRINGAR
BRUÐKAUPSDAGAR
DEMANTAHUSIÐ BORGARKRINGLUNNI S: 679944
I
I
í SUMAR
EnTU BARNINU
ÞÍNU FORSKOT
í LÍFINU!
TÖLVUSKOLIFYRIR10-16 ARA
í sumar býður Tölvuskóli Reykjavíkur upp á 24 klst. 2 vikna
tölvunámskeið, þar sem kennt er á PC tölvur, en Reykjavíkurborg
hefur nú tölvuvætt alla grunnskóla borgarinnar með PC tölvum.
Námið miðar að því að veita almenna tölvuþekkingu og koma
nemendum af stað við að nýta tölvuna sér til gagns og gamans við
Farið er í fingrasetningu og vélritunaræfingar, Windows
og stýrikerfi tölvunnar, ásamt almennri tölvufræði. Með
þann grunn i farteskinu, liggur leiðin i töflureikna og
ritvinnslu- teikni- og leikjaforrit.
Verð námskeiðanna er vel undir almennum námskeiðsgjöldum.
Kennt er alla virka daga frá 9 - 12 eða 13 - 16.
TÖLVUNAM FYRIR 6-10 ARA
Skemmtilegt og gagnlegt
Á ndmskeiðinu er lögð áhersla á:
Windows gluggakerfið og ýmis notendaforrit sem
tengjast þvi.
Forritunarmálið Logo - búin verða til forrit og ýmsar
teiknlskipanir skoðaðar.
Litið á ýmis kennslu- og teikniforrit.
Forrit sem þjálfa rökhugsun, t.d. Maths Dragon frá
Coombe Valley Software.
í lokin fá allir nemendur 5 diska með um 70 tölvuleikjum og
skemmtilegum kennsluforritum sem veganesti frá Tölvuskóla
Reykjavikur, auk flest allra forritanna sem notuð verða og
viðurkenningarskjal.
FORRITUNARNAM FYRIR UNGLINGA
30 klst. gagnlegt nám fyrir unglinga þar sem kennd verður forritun
í QBasic.
Markmiðið með náminu er að nemendur verði vel að sér
i notkun QBasic og geti sett saman einfalda leiki með
hreyfimyndum og hljáði.
í Iokin fá allir þátttakendur afrit af vinnu hinna og um 1 MB af
forritunarkóðum og auðvitað viðurkenningarskjal.
Hringdu og fáðu sendan bækling
Tölvuskóli Revkjavíkur
BORGfiRTÚNI 28. 105 REVKJAUÍK, sími 616699. fax 616696
ERLENT
Reuter
Hættuleg bakteríu-
sýking í Englandi
London. Reuter, The Daily Telegraph.
SKÝRT hefur verið frá þremur
nýjum tilfellum hættulegrar bakt-
eríusýkingar á sjúkrahúsum í Suð-
ur-Englandi en sagt er, að bakter-
ían beinlínis éti í sundur hold
þeirra, sem sýkjast. Vitað er um
10 tilfelli alls í landinu og eru fimm
sjúklinganna látnir.
Sýkingin kom fyrst upp í Glouc-
estershire á Vestur-Englandi en
síðan í London og nágrenni. I Glo-
ucestershire veiktust sjö og eru
þrír látnir og tveir þeirra þriggja
á suðurlandinu. Eru læknar sagðir
standa næstum ráðþrota frammi
fyrir þessri nýju bakteríu, sem
leggst á vefi í hörundi og holdi
og getur leitt til dauða á fáum
klukkustundum, en hingað til hef-
ur verið um að ræða eitt eða tvö
dauðsföll á ári af líkum sýkingum.
Sumir læknar telja, að hér sé á
ferðinni stökkbreytt útgáfa af
„streptococcus bacterium", bakt-
eríu, sem getur valdið eymslum í
hálsi og finnst yfirleitt í 10% íbúa-
fjöldans hveiju sinni. Hún á það
til að breyta um mynd og fyrr á
tímum olli hún stundum mann-
skæðum faröldrum. Leikur grunur
á, að ákveðin veira, sem leggst á
bakteríur og hefur áhrif á arfbera
þeirra, eigi hlut að máli.
Sjúkdómseinkennin eru sótthiti,
miklir verkir, uppköst og niður-
gangur. Á síðari stigum veldur
sjúkdómurinn sjaldgæfu drepi,
sem étur sig í gegnum fitu og
vöðva og getur valdið dauða á
einum sólarhring. Sumir sjúkling-
anna í Gloucestershire voru skorn-
ir upp og sýktir vefir fjarlægðir
og af einum var tekinn fótur. Ör-
verufræðingar hafa tekið veijar-
sýni til að komast að því hvaða
baktería er hér á ferðinni.
Jacqueline
Kennedy
Onassis
jarðsett
JACQUELINE Kennedy Onassis
var á mánudag jarðsett við hlið
fyrri eiginmanns síns, John F.
Kennedy Bandaríkjaforseta, í Arl-
ington kirkjugarðinu í Washing-
ton. Viðstaddir voru nánir vinir
og fjölskylda hennar en útför
hennar var gerð frá St. Ignatius
Loyola kirkjunni í New York að
viðstöddum um 1.000 manns. Um
4.000 manns komu saman fyrir
utan kirkjuna til votta Jacqueline
hinstu virðingu. Á myndinni krýp-
ur sonur hennar, John F. Kennedy
yngri við gröf föður síns í Arling-
ton en systir hans, Caroline
Kennedy Schlossberg, stendur
fyrir aftan hann. Fram hjá kistu
Jacqueline gengur Maurice Temp-
elsman, sambýlismaður hennar
síðustu árin.
Viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna
á írak ber árangur
Hussein talinn vera
orðinn valtur í sessi
Lundúnum. The Daiiy Telegraph.
SADDAM Hussein kann að vera
að missa tökin á stjórn íraks vegna
viðskiptabannsins á landið, að mati
breskra og bandarískra embættis-
manna.
Embættismennirnir segja að við-
skiptabannið sem sett var eftir inn-
rás íraka í Kúveit sé farið að draga
mjög úr möguleikum Husseins til
að kaupa sér hollustu og þar með
aukist líkurnar á að valdarán takist.
Fregnir um flótta úr hernum og
sprengjuárásir á opinberar bygg-
ingar í Bagdad hafa kynt undir
vangaveltum um að stjórnin sé orð-
in völt í sessi.
„Nú berast tíðar fregnir um
valdaránstilraunir og óánægju með-
al forréttindastéttarinnar í írak,“
sagði Anthony Lake, þjóðaröryggis-
ráðgjafi Bandaríkjaforseta, nýlega.
Þar sem Bandaríkjastjórn bindur
vonir við að Hussein verði steypt
af stóli í náinni framtíð er hún stað-
ráðin í að ljá ekki máls á því að
slakað verði á viðskiptabanninu.
Rússar og Frakkar hafa hins vegar
reynt að knýja fram tilslakanir inn-
an öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna vegna þess að Irakar hafa
reynst samvinnuþýðari við eftirlits-
menn samtakanna sem eru að leita
að gereyðingarvopnum þeirra.
írakar eru einir af helstu skuldu-
nautum Rússa og Frakkar voru í
miklum viðskiptum við íraka fyrir
stríðið, keyptu af þeim olíu og seldu
herflugvélar.
Deilt um viðskiptahagsmuni
Frönsk fyrirtæki eru nú þegar
farin að búa sig undir að notfæra
sér þá möguleika sem gefast þegar
viðskiptabannið verður afnumið.
Frönsk olíufyrirtæki hafa til að
mynda efnt til viðræðna við íraka
um starfrækslu tveggja oiíuvinnslu-
stöðva í suðurhluta íraks þegar
fram líða stundir.
Fyrirtækin segja að enginn
samningur verði undirritaður fyrr
en viðskiptabanninu verði aflétt en
viðræðurnar hafa valdið mikilli ólgu
meðal breskra keppinauta, sem
segja Frakka grafa undan við-
skiptahagsmunum Breta og rjúfa
samstöðu aðildarríkja Atlantshafs-
bandalagsins gegn Hussein.