Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 29
hafi verið bein afleiðing stríðsins
og skorts á gjaldeyri, en svo var
ekki, við vorum þá ríkari af gjald-
eyri en oft áður, þessi ófögnuður
stóð yfir næstu 15 árin eftir stríð.
Siðferðið var á svo lágu stigi að
ráðamenn leyfðu sér að skapa
haftaástand, sem hópur útvaldra
hagnaðist á, en þjóðin tapaði. Þetta
bitnaði t.d. illa á ungum mönnum,
utan klíku, sem höfðu hug á að
stunda erlend viðskipti, - þeir
fengu ekki kvóta. - Á þessum
árum, a.m.k. til 1964, var farar-
leyfi til útlanda bundið kvittun um
fullnaðargreiðslu skatta! Gjaldeyrir
var naumt skammtaður.
Siðleysið gengur aftur
Framangreind tilvik segjum við
að geti ekki gerst hér í dag, slíkt
ástand yrði ekki þolað, en hefur
eins mikið breyst og við ætlum?
Enn er innflutningur takmarkaður,
bankarnir veittu áður verðbólgul-
án, en nú „afskriftalán". Á þessum
árum, rétt eins og nú, þótti það
sjálfsagt að í öll meiri háttar emb-
ætti væri skipað pólitískt, þetta
hefur ekki breyst. Þingmenn og
ráðherrar beittu sér þá fyrir „sér-
tækum aðgerðum" og gera enn.
Þá var kvótum úthlutað ókeypis
til „landgreifa“, en nú til „sæ-
greifa“. Bændur voru styrktir til
að auka framleiðslu, nú til að draga
úr henni og helst hætta. Fámenn
fagfélög gátu og geta enn lamað
heilar starfsgreinar, atvinnurek-
endur hafa ekki enn efni á að borga
kaup. Kjarasamninga-sirkusinn
hefur lítið breyst í hálfa öld,
tímasóunin samfara þeim hefur
aukist, ef nokkuð er. - Það er furðu
margt sem hefur staðnað eða
gengur aftur. - Það læðist stundum
að sá grunur að spilling eigi sér
stað vegna þess að við viljum það
sjálf. Við þegjum og látum hlutina
viðgangast, e.t.v. vegna þess að
við eygjum þann möguleika að
komast seinna að kjötkötlunum, -
þá mætti siðbótin ekki vera afstað-
in!
Höfundur er framkvæmdastjóri
Verktakavals.
Miklar og hraðar breyt-
ingar á jafn flóknu kerfi
og skólakerfinu eru yfir-
leitt ekki til góðs, segir
Atli Harðarson, og síst
ef þær eru framkvæmd-
ar af vanefnum eða ef
ekki er samkomulag
um þær.
því að komið verði á einsetnum
grunnskóla og kjör kennara batni
nóg til að hæfir og vel menntaðir
menn fáist í allar stöður. Þetta er
hvort tveggja hægt að gera án þess
að breyta lögunum. Það er líka
hægt að auka verkmenntun og sam-
starf við atvinnulífið án neinna
lagabreytinga. Mér finnst meira að
segja trúlegt að það sé ódýrara að
gera þetta að óbreyttum lögum
heldur en samhliða verulegum upp-
skurði á kerfinu.
Núgildandi framhaldsskólalög
eru ekki nema 6 ára gömul. Skól-
arnir eru enn að aðlagast þeim og
það er enn verið að slípa til túlkun
þeirra og framkvæmd og laga þau
þannig að veruleikanum. Lög þurfa
að eldast í friði. Nýjungagirni á
sums staðar við og tilbreyting er
víða til góðs. En eins og allir góðir
íhaldsmenn vita á löggjafinn að
forðast nýjungagirni og hringlanda-
hátt.
Höfundur er kennari við
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi.
GÆÐAFIÍSAR Á GÓÐU VERÐI
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
Sjábu
hlutina
í víhara
samhengi!
- kjarni málsins!
cn
Z
LU
—i
<s>
£
3
RAÐSTEFNA
NÁMSKEIÐ EÐA FUNDIR Á DÖFINNI?
I Múlalundi færð þú fundarmöppur, barmmerki
(nafnmerki) , áletranir, merkingar og
annað sem auðveldar skipulag og eykur
þægindi og árangur þátttakenda.
Allar gerðir, margar stærðir, úrval
lita og áletranir að þinni ósk!
HafSu samband viS sölumenn okkar
í síma 68 84 76 eða 68 84 59.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS - Hátúni 10c
Símar: 68 84 76 og 68 84 59.
HALTU HLIFISKILDI
YFIR HUSINU ÞÍNU
Rannila
Þak og útveggjaklæðning
Rannila er glæsileg klæðning á þök og veggi.
Rannila klæðningin fæst í mörgum litum með
mismunandi yfirborði, meðal annars sterkri PVF2
húð sem hefur frábæra vörn gegn veðrun.
Rannila bárujárnið er með sérstaklega þykkri
galvanhúð sem endist vel.
Rannila klæðningin er ódýr og góður skjöldur
fyrir húsið þitt.
HÚSASMIÐJAN
SúðaAÁ)gi 3-5, ReykjaMl<
Helluhrauni 16, Hafnarfirði