Morgunblaðið - 25.05.1994, Síða 35

Morgunblaðið - 25.05.1994, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ1994 35 T AÐSEIMDAR GREIIVIAR Ábending vegna skipulagsmála við Þingvallavatn ÞAÐ er skoðun undirritaðs að miklu skipti fyrir framtíð þessarar þjóðar að til skipulagsmála veljist fjölhæft fólk á mörg- um sviðum. Þeir ein- staklingar sem að þeim málum vinna þurfa að vera hug- myndaríkir með raun- hæfa og góða framtíð- arsýn, leita eftir hug- myndum fólks um skipulags- og hags- munamál á viðkom- andi svæðum hverju sinni og síðast en ekki síst séu tilbúnir að sætta mismun- andi sjónarmið svo víðtæk sátt sé um hvert mál. Það getur verið freistandi að setja ákveðnar og umdeildar hug- myndir á víð og dreif, með loðnu orðalagi, í þykk kynningarrit. Efni sem hagsmunaaðilar komast ekki yfir að lesa með annarri vinnu þannig að þeir geti gert sér fylli- lega grein fyrir innihaldinu og áhrifum þess. Ég er þeirrar skoð- unar að slík vinnubrögð geti kallað á eftirmála og grafi undan því trausti sem almenningur þarf að geta borið til skipulagsyfirvalda. Ég vil hér taka undir orð Helga Þórssonar sem hann ritar í grein sinni í Morgunblaðinu 7. apríl sl. um skipulagsmál umhverfis Þing- vallavatn. Þar tekur Helgi fram að samráð við hagsmunaaðila og kynning á skipulagi Þingvalla- svæðisins uppfylli ekki grundvall- arkröfur til stjórnsýslu. Einnig segir Helgi í fyrrnefndri grein sinni að það þurfi að skera um- rædda greinargerð niður úr hundr- að og fimmtíu blaðsíðum í þijátíu síður. Það er að mínu mati hægt með því að sleppa ýmsum atriðum sem eiga þar ekki heima og eru ekki í takt við raunveruleikann (sjá fyrri útgáfu) en þó með því að koma nægjanlega á framfæri þeim atriðum sem bæta þarf úr og koma skipan á. Ég var því undrandi er ég las grein í Morgunblaðinu frá skipu- lagsyfírvöldum þar sem Helgi er gagnrýndur vegna greinarinnar. Eg hefði frekar talið að skipulags- yfirvöld myndu fagna ábendingum og hugmyndum um skipulagsmál á svæðinu. Ekki gat ég séð að það kastaði rýrð á skipulag ríkisins þótt Helgi bendi á að í einstaka tilfellum geti einstaklingar valist til skipulagsmála sem ekki upp- fylla þær kröfur sem til þeirra þarf að gera. Við eigum að horfa til framtíðar og vera opin fyrir gagnrýni í viðkvæmum málum sem þessum. Ekki hvað síst á stöð- um eins og Þingvallasvæðinu sem snertir ekki aðeins íbúana og hags- muni þeirra heldur einnig þorra landsmanna. Enn jókst undrun mín er Helgi var gagnrýndur af skipulagsyfir- völdum fyrir að vera mótfallinn öllum hug- myndum um vernd á svæðinu, þar sem ég hef um áratuga skeið verið í og átt leið um Grafningshrepp og því fylgjast með vernd og skógrækt sem Helgi Þórsson og Bjarni Helgasoh og fjölskyld- ur þeirra hafa stundað á jörð sinni í Hagavík. Fullyrðing þessi kom mér því mjög á óvart. Jarðir íjölskyldnanna, sem ná yfir stóran hluta Ölfusvatns svo og alla Hagavíkina, eru lýsandi dæmi um að núverandi búseta umhverfis Þingvallavatn getur átt góða samleið með vernd og rækt- un, ef rétt er að verki staðið og samvinna góð. Það er rétt hjá Helga Þórssyni að kynning á skipulagi umhverfis Þingvallavatn og ónógt samráð við hagsmuna- aðila uppfyllir vart grundvallarkröfur til -------------------»----- stjórnsýslu, segir Omar G. Jónsson, sem telur skipulagsyfirvöld ekki nægjanlega opin fyrir nýjum hugmyndum um skipulagsmál. Ef skipulagsfulltrúar svæðisins telja það hinsvegar andsnúið allri vernd að vera á móti hugmyndum um bann við ræktun allra fram- andi tijátegunda á ákveðnu land- svæði og áhuga á að hagsmunir ábúenda, landeigenda og sum- arbústaðaeigenda verði tryggðir, þá er mér það óskiljanlegt. Einnig hefur heyrst sú hugmynd að heim- ila þurfi kauprétt ríkisins á landi í eigu einstaklinga þarna á svæð- inu. Ef svo er tel ég að meirihluti þjóðarinnar hljóti að vera andsnú- inn hugmyndum sem geta varðað eignaupptöku á eigum og rétti ein- staklinga og skerðingu á ræktun til nytja og fegrunar á Þingvalla- svæðinu, samanber þau sígrænu grenitré sem þar eru fyrir og fegra svæðið á köldum vetrarmánuðum ekki síður en á sumrin og ekki myndi skaða fallegur fiskur við strendur. Höfundur er rannsóknarlögreglumadur og áhugamaður um Þingvallasvæðið. Ómar G. Jónsson Taktu prjónana með! í sumarfríið * í sumarbústaðinn rF í ferðalagið lyrir framan sjónvarpið Við eiguin uppskriftir, föndurblöð og prjónagam við öll tækifæri. 15%afsláttur afbómull. Garnhúsið, Suðurlandsbraut 52 (bláu húsunum við Fáka- og Faxafen). % i. m v x % wk m i císS* LANCYL Cellulite burt! Sjáanlegur árangur eftir 15 daga Byrjaðu strax! Sækjum það heim! Dagana 25. maí til 4. júní verður víðtæk kynningar- og skemmtihátíð í Kringlunni í tengslum við átakið Island, sækjum það heim. Upplýsingamiðstöð ferðamála og fjöhnargir aðrir sem tengjast ferðamálum á íslandi kynna starfsemi sína í Kringlunni. Ýmislegt markvert verður sýnt sem gagnlegt er að kynna sér á þessu mikla ferðaári landsmanna. Kynntir verða atburðir víða um land á þjóðhátíðarárinu, þar á meðal dagskrá þjóðhátíðar á Þingvöllum. Margir góðir listamenn koma og leika listir sínar þessa daga og Kringlan er komin í þjóðbúninginn. Dæmi um dagskrá: 25. maí Hátíðin sctt kl. 16 í,dag kl. 16 selur Árni Sigfússon borgarstjóri hátíðina. Magnús Oddsson ferða- málastjóri flytur ávarp. Tónlist, danssýning og skemmtiatriði. 26. maí Félagar úr Stangveiði- félagi Reykjavíkur sýna snilldartakta í fluguhnýtingum. Söngur, tískusýning og fyrirlestur. 30. maí 27. maí úrðaröryggis Umferðarráð með Rósu Ingólfs sér til halds og trausts fer yfir umferðarreglurnar fyrir sumarfríið á vegum landsins. Skemmtiatriði og kammerhljómsveit . 31. maí Oli H. flylur• ermdi. Söngatriði, tískusýning og húsdýrakynning. irður Víkingarnir úr Firð- inum taka Kringluna herskildi um stund. Kórsöngur, fegurðardrottningar, lúðrasveit og Alsherjargoðinn. 28. maí 1. júní Keykjavíkurdugur Skemmtiatriði, söngur, handverkskynning og tískusýning. Ferðakynningar, tónlist, Skagafjarðarlag. __________h Island Síðustu þrír dagarnir verða helgaðir ferðalögum innanlands. S*T*lfh im Fjölmargir aðilar víða af landinu munu þá kynna starfsemi sína í "ITlf vg9 iTT|*vn, Kringlunni. Sýning frá Nýjum víddum. Ðregið úr ferðavinningum o.fl. samgóngurAduneytio pBO ncim. KRINGLíN • •• góð heim að sækja Kringlan eropin mánudaga til fimmtudaga 10-18.30, föstudaga 10-19, laugardaga 10-16 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.