Morgunblaðið - 25.05.1994, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGÚR 25. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BORGAR- OG SVEITARSTJORNARKOSNINGARNAR 28. MAI
Stemmning eða herfræði?
Er það „herfræði“ eða
til þess gjört að vekja
UM ÞESSAR mundir er mikið
að gerast vegna borgarstjórnar-
kosninganna 28. maí næstkomandi
og allt að komast á fleygiferð í
Reykjavík. Fyrir okkur þessa
venjulegu kjósendur er margt að
sjá og heyra varðandi kosningaund-
irbúning fylkinganna tveggja sem
nú takast á í höfðuborginni; sjálf-
stæðismenn annars vegar undir
D-listanum og hins vegar sameigin-
legt framboð minnihlutaflokkanna
í borgarstjórn (Alþýðu- og Fram-
sóknarflokks, Alþýbandalag og
Kvennalista auk ýmissa flokks- og
félagsbrota) með listabókstafinn R.
Hjá sjálfstæðismönnum í
Reykjavík er allt með venju, skil-
merkileg og vel útfærð málefna-
vinna rækilega kynnt af kraftmikl-
um og samhentum hópi frambjóð-
enda. Kosningastarf sem vekur
traust og tilfinningu fyrir samhengi
og framvindu í málefnum borgar-
innar.
Ekki eitt orð um málefni
Hjá R-listafólkinu er aftur á
móti ýmislegt á döfinni sem vekur
furðu manna og sumt sem er ekki
laust við að vera skoplegt. Til dæm-
is kom svokallaður kosningastjóri
Sumarskólinn sf.
Sumarönn ffrá 30. maí-30. júní 1994
Nám fyrir framhaldsskólanemendur. Yfir 60
áfangar eru í boði. Námið er yfirleitt matshæft milli
skóla. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja flýta sér
í námi eða bæta fyrir gamlar syndir! Taka má tvo áfanga.
Verð kr. 16.900.
Nám fyrir starfsmenn fyrirtœkja í markaðs-
frceðun^0flstrarhagfrœði, stjórnun, sölu-
tækni Og þjóðhagfræði. Námið er ætlað þeim sem
litla þekkingu hafa á þessu efni. Verð kr. 16.900.
Tölvunám fyrir starfsmeuvtfyrirtækja í
Nami
Windows, Word Og Excé& NSmið er ætlað þeim
sem litla eða enga tölvukunnáttu hafa. Verð kr. 16.900.
Nám fyrijþófaglært fólk á sjúkrahúsum í líf-
færajjfi$\ífeðlisfræði, heilbrigðisfræði og
skyndihjálp. Námið er matshæft í framhaldsskóla.
Verð kr. 16.900.
Nám fyrir ahne^0$jjf í aðhlynningu aldraðra
og sjúkra í heimahúsum. Verð kr. 11.900.
Nám í uppeldisfræði fyrir foreldra, dæ iftffur
og aðstoðarfólk á leikskólum. Verð kr. PP.9ÖO.
Reyndir kennarar eru í öllum námsgreinum.
Innritun er í Fjölbrautaskólanum í
Breibholti 17.-30. maí frá kl. 16:00-18:00.
listans tvívegis fram í
Ríkissjónvarpinu með
nokkru millibili til að
svara spurningum fjöl-
miðlafólks um kosn-
ingavinnuna og í
hveiju hún fælist helst.
í fyrra skiptið var talað
um að hún ætti að vera
skemmtileg, gleði ríkja
í kosningaskrifstof-
unum og stemmningin
sem myndaðist fleyta
fylginu að. En í síðara
skiptið var orðað að
kosningastarfið lyti í
lögmálum tiltekinnar Valdimar
herfræði. Ekki var vik- Garðarsson
ið einu orði að málefn-
um sem barist væri fyrir.
Spyija verður hvort það heyri
undir stemmningu eða herfræði að
borgarstjóraefnið, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, svífur um á fundum í
skólum og á vinnustöðum, í fjöl-
miðlum og hjá félagasamtökum,
með póleraðan skjöld líkust
„hvítskúruðum engli“ (svo notuð
séu hennar eigin orð), meðan Sig-
rún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi
framsóknarmanna og oddviti R-
listans, sveitist um,
farin á taugum nánast
á nornaveiðum í fjöl-
miðlum og á fundum.
Er það stemmning eða
herfræði að Guðrún
Ágústsdóttir borgar-
fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins í 2. sæti listans
sést hvorki né heyrist;
sama er að segja um
karlmennina sem list-
ann skipa, þeir láta
varla svo lítið að tala
til borgarbúa einu orði.
Eru þeir yfirgengnir
af konunum á listanum
eða eru þeir ekki fram-
bærilegir og því her-
fræði að láta lítið á þeim bera?
Alltaf þykir nú heldur lítilmótlegt
af körlum að láta konur kúga sig,
konuríki kallast það og þykir illt
við að búa.
Frambjóðendur segja sem fæst
Hvort sem þessi atriði og mörg
sams konar flokkast undir stemmn-
inguna eða herfræðina er ekki
traustvekjandi hvernig þetta sam-
eiginlega framboð birtist kjósend-
„R-lista stemmningu“,
spyr Valdimar Garð-
arsson, að hvorki sést
né heyrist í borgarfull-
trúa Alþýðubanda-
lagsins.
um höfuðborgarinnar. Engu er lík-
ara en verið sé að reyna að breiða
yfir eitthvað, ef til vill málefnafá-
tæktina eða einfaldlega þá augljósu
staðreynd að allt innra samkomu-
lag skortir. Látið er líta svo út utan
frá að allt leiki í lyndi og þess vegna
kjósa frambjóðendurnir að segja
sem fæst til þess annars vegar að
koma ekki upp um sig og hins veg-
ar vera óbundnir innbyrðis eftir á
ef svo slysalega skyldi vilja til að
borgarbúar héldu ekki vöku sinni
og færu að greiða þessu furðufram-
boði atkvæði.
Höfundur er kvikmyndagerðar-
maður og framkvæmdastjóri.
Ef allir væru ríkir
MARK Twain sagði
einu sinni að við ættum
að einbeita okkur að
framtíðinni, það væri
þar sem við ættum eft-
ir að vera þau ár sem
við ættum eftir ólifuð.
Það hefur oft verið
kvartað undan því að
stjórnmálamenn séu í
sífellu að leysa vanda-
mál gærdagsins og
sinni aldrei framtíð-
inni, islensk pólitík sé
þjökuð af nauðhyggju.
Forstöðumenn ís-
lenskra iðnfyrirtækja
hafa iðulega kvartað
undan því að með
skyndiákvörðunum
manna sé þeim gert
Guðmundur
Gunnarsson
stjórnmála-
nær ókleift
að keppa við erlend fyrirtæki í út-
boðsverkefnum. Borgaryfirvöld og
hið opinbera eiga að vinna eftir
langtímamarkmiðum í byggingum.
Með því skapast betri tími til út-
boða og lengri undirbúnings- og
framkvæmdatími. Þetta fyrirkomu-
lag gerir íslenskum fyrirtækjum
kleift að taka aukinn þátt í útboð-
um. Með því að sérhanna húsgögn
og húsbúnað í stærri verk skapast
möguleikar til að leggja grunn að
innlendri framleiðslu og þá að
möguleika á sölu í smærri verk
hérlendis og einnig til útflutnings.
Einnig skapast atvinna og kostnað-
ur vegna atvinnuleysisbóta minnk-
ar. Launþegar og fyr-
irtæki fara að greiða
skatta og skyldur til
samfélags í stað þess
að vera þiggjendur
styrkja.
Það að taka lægsta
boði í verk hefur ekki
reynst happadijúg að-
ferð. Hún hefur reynst
verkkaupum, efnissöl-
um og launamönnum
dýr kostur. Fyrirtækin
hafa í villtri keppni við
að ná verkefnum, boð-
ið svo gegndarlaust
niður, að þeim er í raun
ókleift að standa við
tilboð sín. Þetta er
verkkaupum oftast ljóst þegar
gengið er til samninga um verkin,
en samt eru þeir undirritaðir. Hér
er á ferðinni ein stærsta orsök
þeirra lánatapa sem orðið hafa á
undanförnum árum. Og eins og
allir vita þá lenda lánatöpin um
síðir á Iandsmönnum í hærri skött-
um og hærra vöruverði vegna hárra
vaxta. Fjármagn til þess að greiða
lánatöpin verður ekki til í bönkun-
um það verður að koma einhvers-
staðar frá. Á tímum samdráttar er
hagkvæmt að leggja út í fram-
kvæmdir. Fyrirtæki taka að sér
verkefni fyrir lægra verð. En það
þarf að setja gólf þar sem ekki er
farið niður fyrir þegar gengið er
frá samningum um verkin, í raun
Innlend framleiðsla
skapar störf og skatt-
tekjur, segir Guðmund-
ur Gunnarsson, og
minnkar útgjöld at-
vinnuleysistrygginga.
íslenskt, játakk.
græðir enginn á því þegar til lengd-
ar lætur, síst af öllu hið opinbera.
Víða erlendis er innlend fram-
leiðsla tekin athugasemdalaust
fram yfir erlenda, standi hún til
boða. Þessa hugsunarháttar virðist
aftur á móti ekki gæta nægjanlega
hjá íslenskum innkaupastjórum og
opinberum embættismönnum. Inn-
lend framleiðsla minnkar útjöld
atvinnuleysistrygginga, skapar
skatttekjur og auk þess sem við-
komandi eyðir launum sínum í kaup
á innlendri þjónustu.
Ef allir væru ríkir
og allir gætu lifað
á skuldabréfum
eða vöxtum
þyrfti enginn að vinna
og aliir myndu deyja úr hungri.
(John Voight)
Höfundur skipar 11. sæti á D-lista.
Sælureitur ff&lskfléunnmrt
Heitu pottarnir frá Trefjum eru fyllilega sambærilegir við þá bestu erlendu,
bæði hvað varðar verð og gæði. beir eru mótaðir úr akrýli, níðsterku plast-
efni, það er hart sem gler og hita- og efnaþolið.
Þá er auðvelt að þrífa og hægt er að fá laust lok eða létta og trausta
öryggishlíf, sem dregin er yfir pottinn, þegar hann er ekki í notkun.
Pottana má hafa frístandandi eða grafa þá íjörð og ýmis auka-
búnaður er fáanlegur, svo sem loft- og vatnsnuddkerfi.
Akrýlpottarnir frá Trefjum fást í ótal litaafbrigðum og 5 stærðum,
sem rúma frá 4-12 manns. Pað er auðvelt að láta drauminn rætast, því
verðið er frá aðeins 69.875 krónum!
Komið og skoðið pottana uppsetta í sýningarsal okkar, hringið eða
skrifið og fáið sendan litprentaðan bækling og verðlista.
Trefjar hf. Stapahrauni 7, Hafnarfirði, sfmi 5 10 27