Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 45 BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARNAR 28. MAÍ Eiga opinberir starfsmenn að vera í pólitík? ALÞYÐUFLOKK- URINN í Kópavogi reynir nú allt hvað hann getur að níða niður skóinn af Gunn- ari I. Birgissyni, odd- vita Sjálfstæðis- flokksins, vegna þeirra framkvæmda sem fyrirtæki hans hefur unnið fyrir Kópavogsbæ. Spurningin er sú, hvort það sé óeðlilegt að bæjarfulltrúi vinni verk sem eru borguð af skattgreiðendum og hvort hagsmunir rekist þar á. Þegar Gunnar eða hans bjóða í verk í Jón Kristinn Snæhólm fyrirtæki Kópavogi er mikilvægt að vissar leikreglur séu hafðar í heiðri. Embættismenn bæjarins útbúa verkin og eru þau síðan boðin út. Gunnar fær sömu útboðsgögn og aðrir og víkur af fundum þar sem þau eru til umræðu. Lægsta tilboðinu er svo tekið. Allir verk- takar sitja við sama borð. Það að brigsla Gunnari og embættis- mönnum um eitthvað leynimakk er alvar- legur hlutur. Alþýðu- flokksmenn eru að saka embættismenn Kópavogs um óeðlileg vinnubrögð við gerð útboða, ef þeir stunda það að leka þeim til bæjarfulltrúa áður en þau eru opnuð. Það er engu líkara að stefn Alþýðuflokksins sé að menn úr atvinnulífinu megi ekki vera í stjórnmálum. Stjórnmál séu ein- ungis fyrir opinbera starfsmenn sem hvergi koma nálægt arðsköp- un og atvinnulífi, því að þar rek- Fjórir efstu menn á lista Alþýðuflokksins í Kópa- vogi eiga hagsmuna að gæta hjá því opinbera, segir Jón Kristinn Snæhólm. ast hagsmunir fyrirtækjanna og bæjarins á. Þetta sést best á framboðslista Alþýðuflokksins í Kópavogi þar sem fimm efstu menn listans hafa aldrei komið nálægt atvinnurekstri fyrirtækja, heldur verið opinberir starfsmenn og hafa því takmark- iiðan skilning á þörfum atvinnul- ífsins. En hvaða hagsmunir rekast á? Fjórir efstu menn á lista Alþýðu- flokksins hafa allir einhverra hagsmuna að gæta hjá Kópa- vogsbæ. Guðmundur Oddsson er skólastjóri í Kópavogi og verður starfsmaður bæjarins þegar grunnskólar verða færðir frá ríki til sveitarfélaga. Kristján Guð- mundsson fyrrverandi bæjarstjóri og núverandi starfsmaður Alþýðu- flokksins í Hafnarfirði lítur nú löngunaraugum til gamla bæjar- stjórastólsins. Helga E. Jónsdóttir er leiksskólastjóri í Kópavogi og Sigríður Einarsdóttir er kennari myndlistarskólans, sem af veru- legum hluta er styrktur af Kópa- vogsbæ. Allir þessir einstaklingar hafa barist ötullega fyrir sínum málaflokkum. Sannleikurinn er sá að enginn hefur sakað forystumenn Alþýðu- flokksins um að ota sínum tota enda hafa leikreglurnar verið í lagi hjá Kópavogsbæ og rógur um óeðlileg vinnubrögð og sérgæslu rangur og ógeðfelldur. Það sem Kópavogur þarf eru fleiri forystumenn sem kunna skil á atvinnulífi og arðsköpun. Gunnar I. Birgisson nýtur trausts meðal Kópavogsbúa. Hann og fyrirtæki hans eiga að njóta þeirra sjálf- sögðu réttinda að taka þátt í fram- kvæmdum Kópavogsbæjar. Höfundur er sagnfræðinemi og skipnr 8. sætí D-Iista íKópavogi. Gamalt fólk í háhýsum ■ hvers vegna? Helga Sigurjónsdóttir SKAMMT er síðan aldrað fólk varð til sem sérstakur hópur í þjóð- félaginu. Um aldir annaðist fjölskyldan jafnt unga sem aldna enda var gamla fjöl- skyldan bæði skóli, dvalarheimili og sjúkrahús. Nú hafa opinberir aðilar og stofnanir komið fjöl- skyidunni til aðstoðar á mörgum sviðum, þar á meðal að sjá öldruð- um fyrir húsnæði þeg- ar gamla heimilið hentar ekki lengur. Víðast hefur lausnin orðið háhýsi með þjón- ustuíbúðum. Þar hefur þjónustan hins vegar reynst af skornum skammti þó að flestir aldraðir hafi einmitt valið þennan kost vegna þjónustunnar og öryggisins _ sem þeir bjuggust við að finna þar. íbúð- ir þessar eru dýrar, líklega mun dýrari en aðrar sambærilegar og hefur ekki komið fram viðhlítandi skýring á því. í Kópavogi er sama Vemda ber þá sem veik- burða eru, gamalmenni, og börn, segir Helga Sigurj ónsdóttir, Kvennalistinn í Kópa- vogi heitir því að taka málefni þeirra föstum tökum. stefna uppi. íbúðir fyrir aldraða eru í háhýsum í Fannborg, aldrað fólk býr í háhýsum í Sunnuhlíð og nú er ráðgert að reisa tvö voldug hús fyrir gamalt fólk á Nónhæð. Auk þess er í Kópavogi raðhúsabyggð fyrir aldraða á Vogatungureitnum, falleg lítil hús í ákaflega vinalegu umhverfi. En hvernig hefur þessi stefna reynst? Vill gamalt fólk yfirleitt búa í háhýsum, t.d. fólk sem hefur alla ævi búið niðri við jörð? Nú er vitað að manninum er eðlilegt að vera nálægt jörðinni enda líður flestum best í námunda við hana. Sjálfsagt hefur þetta ekki verið kannað hvað varðar aldrað fólk, samt er haldið áfram á sömu braut og ný og ný há- hýsi rísa, svokallaðar þjónustuíbúðir þar sem gamalt fólk hefur oft keypt köttinn í sekkn- um. Ný stefna — mannleg hlýja Móta þarf nýja stefnu í málefnum aldraðra þar sem þeir sjálfir hafa mest um málið að segja. Kvennalistinn telur að aldrað fólk eigi að vera á gamla heimilinu sínu eins lengi og það getur og vill. Með góðri heim- ilisþjónustu er unnt að hjálpa fólki til þess. Einnig er dagdvöl góður kostur. Þar fær gamla fólkið félags- skap og margs konar þjónustu. Þeg- ar Elli kerling er hins vegar orðin of aðgangshörð er ekki um annað að ræða en fara á hjúkrunarheimili. Þau eru góður kostur og nauðsynleg en aðeins fyrir veikt fólk og elli- hrumt. Þar er vel Séð fyrir líkamleg- um þörfum gamla fólksins. Hins vegar þarf að sinna betur en nú er gert félagslegum og andlegum þörf- um þess. Gamalt fólk á stofnunum er oftast einmana, sumir geta ekki tjáð sig vel en langar samt til að tala og að talað sé við það. Sumir eiga fáa eða enga ættingja, aðrir eiga börn og bamabörn sem koma sjaldan í heimsókn. Það þarf að ráða starfsfólk á dvalarheimilin sem gerir ekkert annað en tala við gamla fólkið, halda í vinnulúna höndina og láta öldunginn finna hlýjuna frá mannlegu hjarta. Hvert einasta gamalmenni á stofnun ætti að hafa „sinn mann“ á staðnum, rétt einsog börnin í skólunum hafa kennarann sinn eða fóstruna sína. Líf allra manna er dýrmætt og við sem erum í fullu fjöri eigum að vernda þá sem veikburða eru, gam- almenni og börn. Kvennalistinn í Kópavogi heitir því að taka málefni beggja hópanna föstum tökum veiti kjósendur honum umboð til þess í komandi kosningum. Höfundur er kcnnari og námsráðgjafi og skipnr fyrsta sætí Kvennalistans í Kópavogi. Jólasveinahagfræðin BLAÐ sjálfstæðis- manna í Kópavogi, Vogar, birti á forsíðu 4. tbl. síðasta árs inni- hald ,jólapakka“ til Kópavogsbúa. Þar var tíundað hvað meirihlutinn hefði nú hugsað sér að gera með fé Kópavogsbúa á næsta ári. Það var jólagjöfin. Nú þótti sumum bæjarbúa það nokkuð einkennilegt að kalla það jólagjöf, sem menn borga sjálfir. Það þykir létt Guðný verk og löðurmann- Aradóttir legt að gefa stórar gjafir og greiða fyrir með Visa- kortum þiggjenda. En þeir „bæj- arfeður“ Sigurður Geirdal og Gunnar Birgisson hugsa málin á Jólasveinahagfræðin, segir Guðný Aradóttir, er ríkjandi fræði innan Sj álf stæðisflokksins. annan hátt, Það eru þeir, sem gefa, það eru þeir sem eru jóla- sveinarnir. Jólasveinahagfræðin leyfir þeim félögum að gefa út bækling um fegrun bæjarins á kostnað bæj- arbúa og skrifa „meirihlutinn“ undir. Jólasveinahagfræðin leyfir þeim að gefa gjaldþrota fyrirtæki sex milljónir án þess að líta á bók- hald eða rekstrarstöðu. Sama hag- fræði leyfir þeim að nota milljónir af almannafé til að gefa út kosn- ingabæklinga sína. Og jólasveina- hagfræðin segir Sigurði Geirdal að hann megi lýsa því yfir í ræðu Höfundur er kerfisfræðingur og skipar 4. sæti á lista G-lista í Kópavogi. Christian Dior Kynning á morgun fimmtudaginn 26. maí frá kl. 13-18. 15% kynningarafsláttur snyrti-oggjafavöruverslun, Miöbæ, Háaleitisbraut. Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut, Kopavogi, simi 571800 Fjörug bílaviðskipti Vantar góða bíla á sýningarsvæðið. að hann hafi ákveðið að styrkja hesta- mannafélag um 20 milljónir til að losna við forsvarsmenn þess af skrifstofunni hjá sér! Bærinn, það erum við, kennir jólasveina- hagfræðin þeim Sig- urði Geirdal og Gunn- ari Birgissyni að sé hið rétta viðhorf. Ein af ,jólagjöfun- um“ í áðurnefndum Vogum var að „vinna gegn atvinnuleysi í Kópavogi". Ætli mönnum þyki það ekki nokkuð einkenni- legt að atvinna eigi allt í einu að vera jólagjöf. Þannig var það raun- ar áður fyrr, áður en verkalýðs- hreyfingin komst á legg. Þá fengu þeir vinnu, sem kaupmanninum voru þóknanlegir. Hinir gátu átt sig. Að mínu viti ber að flokka það til mannréttinda að eiga þess kost að sjá sér og sínum farborða með vinnu sinni. En þannig er það ekki hjá Sjálfstæðisflokknum. Þar er vinnan gjöf, sem jólasveinar flokksins deila út af gæsku sinni. Enda sýna stöðu- og embættaveit- ingar að jólasveinahagfræðin er ríkjandi fræði innan Sjálfstæðis- flokksins. Og ekki hafa samstarfs- aðilarnir slegið slöku við í náminu hvort heldur það er Alþýðuflokk- urinn í ríkisstjórn eða Framsókn- arflokkurinn í Kópavogi. En það er líka tiltölulega auðvelt að nema jólasveinahagfræðina. Gefa, gefa, gefa og láta aðra borga. Peugeot 205 Junior '91, 4 g., 5 dyra, ek. aðeins 36 þ. km. V. 550 þús. p| Vyyr; N — v » r Mazda 323 GLX 1600 Sedan '91, 5 g., ek. 44 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 960 þús. Einnig: Mazda 323 F 16v Fastback '92, rauður, 5 g., ek. 41 þ. km., rafm. í öllu, hiti sætum o.fl. V. 1.080 þús. M. Nissan Vanette diesel '92, 5 g., ek. 107 þ., 7 manna. V. 1280 þús., sk. á ód. MMC Galant GLSi ’89, 5 g., ek. 90 þ. km., rafm. í rúðum, álfelgur o.fl. V. 970 þús., sk. á ód. Subaru Legacy station '90, brúnsans, 5 g., ek. 51 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 1280 þús., sk. á ód. Einnig: Subaru Legacy 2,0 '93, sjélfsk. ek. 14 þ. km., rafm. í rúðum, álfelgur, centrallæs. o.fl. V. 2.050 þús., sk. á ód. Daihatsu Charade TX ’88, rauður, 4 g., ek. 92 þ. km. V. 350 þús. Renault 19 TXE '91, hvítur, sjálfsk., ek. 50 þ. km., 4ra dyra. V. 950 þús. Gott ein- tak. Mazda 626 GLX 2000 '91, hvítur, 2ja dyra, sjálfsk., ek. 47 þ. km. Einn m/öllu V. 1.280 þús. Hyundai Elantra GLSi '92, blár, 5 g., ek. 34 þ. km., rafm. í rúðum, sóllúga, álfelgur o.fl. V. 1.050 þús. Renault Trafic 4x4 húsbfll '85, rauður, góð innrótting. Gott ástand. V. 700 þús. MMC Lancer EXE '92, hlaðbakur, dökk- blár, 5 g., ek. aðeins 15 þ., rafm. í öllu o.fl. V. 1.160 þús., sk. á ód. Toyota Corolla DX '87, 5 dyra, 4 g., ek. 90 þ. V. 390 þús. Daihatsu Charade ’90, 3 dyra, 4 g., ek. 60 þ. km. Tilboðsverð kr. 490 þús. MMC Colt GLX '89, blár, sjálfsk., ek. 77 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 690 þús., sk. á ód. Mercedes Benz 190 E '84, sjálfsk., ek. 135 þ. km., loftræsting, rafm. f rúðum o.fl. V. 950 þús. Mazda 323 GLX 1600 Sedan '90, sjálfsk., ek. 73 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 780 þús., sk. á ód. Toyota Double Cab SR5 ’92, hvítur, ek. 43 þ. Gott eintak. V. 1.830 þús. VW Golf Champ ’89, blár, sjálfsk., ek. 92 þ., 4ra dyra. V. 780 þús. Chevrolet Camaro RS '91, blár, sjálfsk., 6 cyl., ek. 39 þ. km. V. 1.390 þús., sk. á ód. MMC Lancer hlaðbakur GLXi '90, sjálfsk., ke. 52 þ. V. 850 þús. MMC Lancer GLX station 4x4 '87, 5 g., ek. 141 þ. V. 560 þús. xr Sjábu hlutina í víbara samhengi! - kjarni málsinsl , Mll ítViáír5 ' Jf- i ; ;«.s.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.