Morgunblaðið - 25.05.1994, Síða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARINIAR 28. MAÍ
Mosfellsbær
Tryggjum festu,
höfnum glundroða
HINN 28. maí nk.
verða kosnir 7 fulltrú-
ar í bæjarstjóm Mos-
fellsbæjar til næstu
fjögurra ára. Sjálf-
stæðismenn í Mos-
'féllsbæ hafa und-
anfarin 8 ár haft 5
bæjarfulltrúa af 7 og
biðja kjósendur í Mos-
fellsbæ um nýtt um-
boð til að halda áfram
uppbyggingu í okkar
fallega bæjarfélagi.
Ný forysta
Fjórir stjórnmála-
flokkar bjóða fram í
Mosfellsbæ, en Sjálf-
stæðisflokkurinn var eini flokkur-
inn sem valdi frambjóðendur sína
að undangengnu prófkjöri. 'Mikil
endumýjun er á framboðslista
■■Sjálfstæðismanna því þrír af fimm
bæjarfulltrúum D-listans á síðasta
kjörtímabili tóku þá ákvörðun að
gefa nýju fólki tækifæri og tóku
ekki þátt í prófkjörinu. Róbert B.
Agnarsson, bæjarstjóri í Mos-
fellsbæ, hlaut glæsilega kosningu
í 1. sæti listans í prófkjörinu, en
hann hefur gegnt starfi bæjar-
stjóra sl. 2 ár. Róbert er viðskipta-
fræðingur, 36 ára
gamall og áður en
hann kom í Mos-
fellsbæ starfaði hann
um 10 ára skeið hjá
Kísiliðjunni hf., þar af
í 7 ár sem fram-
kvæmdastjóri. Hann
hefur víðtæka reynslu
af stjómunarstörfum,
því auk þess að starfa
hjá Kísiliðjunni hf. var
hann í stjórn ýmissa
fyrirtækja á Norður-
landi auk þess sem
hann vann að ýmsum
sveitarstj órnarm álum
í Mývatnssveit. Þann
tíma sem Róbert hef-
ur starfað sem bæjarstjóri, hefur
hann reynst ákaflega traustur og
farsæll í starfi og nýtur almennra
vinsælda og álits í bænum.
Sjálfstæðisflokkurinn býður nú
í fyrsta sinn fram starfandi bæjar-
stjóra, sem jafnframt er bæjar-
stjóraefni flokksins á næsta kjör-
tímabili. Þetta fyrirkomulag er við
lýði í flestum bæjarfélögum á höf-
uðborgarsvæðinu. Með þessari
ráðstöfun er verið að styrkja
tengsl kjörinna fulltrúa við starfs-
menn bæjarfélagsins og um leið
Öllum í Sjálfstæðisfé-
lagi Mosfellinga, segir
Vigfús Aðalsteinsson,
var gefinn kostur á að
taka þátt í málefna-
vinnu D-listans.
að gera bæjarstjórann ábyrgari
gagnvart kjósendum flokksins og
öllum íbúum bæjarfélagsins.
Helga A. Richter sem nú er
forseti bæjarstjómar Mosfellsbæj-
ar hlaut örugga kosningu í 2. sæti
í prófkjörinu. Helga er kennari og
hefur verið í bæjarstjóm Mosfells-
bæjar sl. 12 ár. Auk bæjarstjórnar-
starfa hefur hún starfað í fjöl-
mörgum nefndum á vegum bæjar-
félagsins og verið valin til ýmissa
annarra trúnaðarstarfa. í 3. sæti
listans er Valgerður Sigurðardóttir
auglýsinga- og markaðsráðgjafi, í
4. sæti er Guðmundur Davíðsson
vélvirkjameistari, í 5. sæti er Haf-
steinn Pálsson yfírverkfræðingur
og í 6. sæti er Ásta Björg Björns-
dóttir meinatæknir. Állt er þetta
Vigfús
Aðalsteinsson
nýr &fullkominn
Litla trompiðfrá Dancall erfullkomin lausn
fyrirþá sem gera kröfur um fágaða hönnun,
talgœði, lipurð og gott verð.
• Einstaklega auðveldur í notkun
• Vegur aðeins 450 grömm (m/rafhlöðu)
• Rafhlöður endast í 16 klst.
• Innbyggð símaskrá í stafrófsröð
• Flett upp eftir nafni
• Innbyggðursímboði
• Verðlaunaður fyrir hönnun
Kynningarverð kemur á óvart!
radiomidun
Grandagaröi 9 • 101 ReyKjavík • Sími (91) 62 26 40
ungt og kraftmikið fólk, með mikla
félagslega reynslu, sem mikils má
af vænta.
Málefnavinna
Þegar sjálfstæðismenn höfðu
gengið frá framboðslista sínum í
janúar sl. var ákveðið að gefa öll-
um félögum í Sjálfstæðisfélagi
Mosfellinga, 350 manns, kost á
að taka þátt í málefnavinnu D-list-
ans. Á annað hundrað manns
skráðu sig til þátttöku í sjö mál-
efnahópum. Samræmd drög að
stefnuskrá voru kynnt trúnaðar-
mönnum flokksins á fjölmennum
fundi í nýja bæjarleikhúsinu okkar
í Mosfellsbæ, þar sem fundarmenn
gátu komið að( gangrýni og ábend-
ingum sem nýttust við endanlega
gerð stefnuskrárinnar. Enginn
annar stjórnmálaflokkur í Mos-
fellsbæ hefur boðið til slíkrar al-
mennrar þátttöku flokksmanna í
stefnumótuninni og eru þessi
vinnubrögð til marks um það lýð-
ræði og þá breiðu samstöðu sem
sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ vilja
hafa um öll þau málefni sem flokk;
urinn vill vinna að í framtíðinni. í
stefnuskránni, sem nú hefur verið
borin í hvert hús í Mosfellsbæ, er
lögð eins og áður áhersla á trausta
fjármálastjórn bæjarins, sem er
undirstaða þess að hægt sé að
byggja upp fjölbreytta og góða
þjónustu fyrir bæjarbúa. í stefnu-
skránni er fjallað um 10 málefna-
flokka og alls staðar eru málefni
fjölskyldunnar í fyrirrúmi. Sjálf-
stæðismenn í Mosfellsbæ vilja
halda áfram að byggja upp mann-
eskjulegan bæ, þar sem séð er
fyrir þörfum sem flestra bæjarbúa.
Til þess að kynna sér málefnin
nánar vil ég hvetja kjósendur í
Mosfellsbæ til að lesa stefnuskrá
D-listans.
Glundroði eða festa
Það er sammerkt með fram-
boðslistum vinstri flokkanna í
Mosfellsbæ að boðið er fram í
flestum tilvikum fólk með ákaflega
takmarkaða reynslu af sveitar-
stjórnarmálum. Vinstri flokkarnir
bjóða fram hver í sínu lagi og
hafa enga sameiginlega stefnu-
skrá. Ef þeir ná meirihluta munu
þeir væntanlega eiga erfitt með
að samræma vinnubrögð sín og
ná samkomulagi um stefnu og
stjórn bæjarfélagsins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
haft hreinan meirihluta í bæjar-
stjórn Mosfellsbæjar undanfarin
ár. Með því hefur gefist tækifæri
til að vinna markvisst að málum
og bæjarfélagið verið laust við sí-
felldar málamiðlanir á milli ólíkra
skoðana margra flokka. Takist
vinstri flokkunum að ná meirihluta
í komandi kosningum mun taka
við glundroði málamiðlana þriggja
flokka, sem eru með þijár ólíkar
skoðanir á flestum málum.
Besta tryggingin fyrir áfram-
haldandi uppbyggingu í Mos-
fellsbæ og gegn glundroða er því
að setja X við D á kjörseðlinum
28. maí nk.
Höfimdur er formaður
Sjálfstæðisfélags Mosfellinga.
Afram Akranes
NÚ stytttist óðum
í kosningar til bæjar-
stjórnar. Á Akranesi
ætla sjálfstæðismenn
að leggja höfuð-
áherslu á atvinnu- og
orkumál ásamt ferða-
þjónustu.
Það er ljóst að
styrkja þarf atvinnu-
lífíð hér á Akranesi,
bæði með því að efla
þau fyrirtæki sem fyr-
ir eru í bænum og líka
með því að skapa ný
atvinnutækifæri t.d. í
ferðaþjónustunni. Þá
verður að taka á mál-
efnum Hitaveitu Akraness og
Atvinnu- og orkumál
verða okkar mál, segir
Borgaríjarðar þannig
að rekstrargrundvöll-
ur skapist til að lækka
orkuverð varanlega og
þá verulega.
Atvinnu- og orku-
mál eru því þau mál
er mestu skipta fyrir
Akurnesinga. Verði
þessum höfðuðatrið-
um ekki komið í lag
er til lítils að tala um
blómlegt bæjarlíf eða
velta upp öðrum
möguleikum.
Ég skora á alla
bæjarbúa að kynna
sér vel stefnuskrá
okkar sjálfstæðismanna. í henni
leggjum við fram tillögur til að
gera góðan bæ betri með öflugri
atvinnustefnu og lægra orkuverði
og umfram allt betra mannlífi.
Áfram Akranes, X-D fyrir Akra-
nes.
Höfundur er útibússtjóri og skipar
1. sæti á lista sjálfstæðismanna á
Akranesi.
Gunnar Sigurðsson,
oddviti sjálfstæðisfólks í
bæjarmálum á Akranesi.
Gunnar Sigurðsson
Áfram með Árna
Trausti Jóhannesson
íþróttamáiafulltrúi heyrnarlausra
HildurÁrnadóttir
viðskiptafræðingur
Ragnar Guðbjömsson
iðnskólanemi
Lilja Pálmadóttir
nemi
iii
Haukur F. Hannesson
tónlistarmaður