Morgunblaðið - 25.05.1994, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ1994 51
LESENDAÞJONUSTA MORGUNBLAÐSINS
Arni Sigfússon borgarstjóri svarar
spurningum lesenda
SPURT OG SVARAÐ UM BORGARMAL
fegranir á Hlemmi og nágrenni séu
fyrirhugaðar. Einnig hvort standi til
að endurskipuleggja strætisvagna-
ferðir við Hlemm?
Svar:
Unnar hafa verið tillögur að fegr-
un Hlemms. Beðið hefur verið með
að setja þær á framkvæmdaáætlun
vegna þess að nú stendur yfir endur-
skoðun á leiðakerfi SVR. Hlutverk
Hlemms gæti hugsanlega breyst
eitthvað við þá endurskoðun og þess
vegna talið skynsamlegt að bíða með
fullnaðarhönnun torgsins eftir niður-
stöðum hennar.
Sama gjald ein-
stæðra foreldra
Ester Gísladóttir, Laufengi 128,
112 Reykjavík, spyr:
Árni Sigfússon talar um að borga
eigi þeim mæðrum einhverja upp-
hæð, sem kjósa að vera heima með
börnum sínum í stað þess að setja
þau á dagheimili. A að gera eitthvað
fyrir það fólk sem ekki hefur efni á
að vera heima og sinna sínum börn-
um, t.d. einstæðra foreldra? Ein-
stæðir foreldrar með börn á skóla-
aldri þurfa að vinna meira til að sjá
fyrir sér og sínum og hafa því enga
aðstöðu til að vera heima.
Svar:
Allir foreldrar 2'A til 4'A árs
barna, sem kjósa að vera heima með
börnum sínum fá greidda sömu fjár-
hæð og greidd er vegna barna sem
eru í hálfsdagsvist í leikskóla. Ein-
stæðir foreldrar fá forgang í leik-
skólum og á skóladagheimilum og
borga lægra gjald fyrir þjónustuna.
Ef einstæðir foreldrar fá ekki pláss
í leikskóla eða skóladagheimili en
eru með börn sín hjá dagmóður eða
á einkareknum leikskóla fá þeir
greiddan mismun á dvalargjaldi,
þannig að allir einstaeðir foreldrar
greiða sama gjald fyrir dagvistar-
þjónustu.
Upplýsingalína Sjálfstæðismanna 6*1209^ 1
Hringdu núna
árfram xí Reylcjavík % D
Árni Sigfússon
borgarstóri í
Reykjavík og efsti
maður á framboðs-
lista sjálfstæðis-
fólks í borgar-
stjórnarkosningum,
sem fram fara 28.
maí næstkomandi,
svarar spurningum
í Morgunblaðinu
um borgarmál í til-
efni kosninganna.
Lesendur Morgun-
blaðsins geta hringt
til ritstjórnar blaðs-
insísíma 691100 á
milli kl. 11 og 12 árdegis, frá
mánudegi til föstudags, og lagt
spurningar fyrir
borgarstjóra sem
blaðið kemur á
framfæri við hann.
Svörin birtast síðan
í þættinum Spurt og
svarað um borgar-
mál. Einnig má
senda spumingar í
bréfí til blaðsins.
Utan á bréf skal
rita: Spurt og svar-
að um borgarmál,
ritstjórn Morgun-
blaðsins, pósthólf
3040,103 Reykja-
vík. Nauðsynlegt er
að nafn og heimilisfang spyij-
anda komi fram.
Sr. Friðrikskvöld í
Friðrikskapellu
í kvöld kl. 20.30 minnast aðildarfélög Friðrikskapellu
afmælis sr. Friðriks Friðrikssonar.
Á dagskrá verður kórsöngur, upplestur og almennur söngur.
Ræðumaður verður Hermann Þorsteinsson.
Allir velkomnir.
Stjórn Friðrikskapellu. ,
Göngustígur
malbikaður
Auðbjörg Erlingsdóttir, Háaleit-
isbraut 115, 108 Rvík, spyr:
Hvenær hefjast framkvæmdir við
opna svæðið á Háaleiti?
í framhaldi af bréfi Leifs Sveins-
sonar í Morgunblaðinu 17. maí vil
ég benda Árna Sigfússyni á það að
fá sérgöngutúr á göngustígnum sem
byrjar við Fellsmúla. Þessi göngu-
stígur er um Háaleitiyfir að Armúla-
skóla. Þá mun hann sjá sjálfur hveiju
væri ábótavant, þóttýmis frágangur
sé til fyrirmyndar.
Það sem íbúar þessa svæðis vilja
sjá eru framkvæmdir strax. M.a.
þyrfti að malbika göngustíga, fyrir-
tæki máli bakhlið húsa sinna við
Síðumúla og frágangur malarvallar
verði bættur hið fyrsta.
Svar:
ítrekað skal að göngustígurinn
verður malbikaður í sumar og svæðið
snyrt. Þá verður unnið í viðhaldi og
lagfæringum á malarvellinum. Reynt
verður að hafa áhrif á lóðarhafa á
ófrágengnum lóðum að þeir gangi frá
lóðum sínum og máli hús sín.
Laugalækjar-
skóli
Elísabet Magnúsdóttir, form. For-
eldra- og kennarafélags Laugalækj-
arskóla, Miðtúni 76, 105 Reykjavík,
spyr:
Laugalækjarskóli og Fósturskóli
eiga sameiginlega lóð að hluta til í
Laugardalnum, perlu útivistarsvæða
í Reykjavík. Þetta hefur verið talin
aðalástæða þess að ekki hefur verið
gengið frá lóð Laugalækjarskóla,
sem borgin á að sjá um þar sem
ekki hefur náðst samkomulag við
ríkið vegna lóðar Fósturskólans.
Ég spyr því:
a) Eru einhverjar hugmyndir uppi
um það hjá borginni að laga leik-
svæði nemenda Laugalækjarskóla?
b) Eru einhverjar hugmyndir uppi
um það hjá borginni að ganga frá
bilastæðum við Laugalækjarskóla?
c) Er borgarstjóri ekki sammála
því að nauðsynlegt sé að bæta útlit
Laugalækjarskóla og lóðar hans til
þess að það stingi ekki í stúf við
glæsilegt útlit Laugardalsins?
Svar:
a) Leiksvæðið verður lagað í sum-
ar.
b) Ekki eru uppi hjá borginni
áform um að malbika bílastæði í
sumar. Laugalækjarskóli og Fóst-
urskóii eru á sameiginlegri lóð, eins
og kemur fram í spurningunni, en
notkun mjög mismunandi. Nemend-
ur Laugalækjarskóla eru einir um
að nota leiksvæðið, en starfsfólk og
nemendur Fósturskóla, sem eru
komnir á „bílprófsaldur", nota miklu
stærri hluta bílastæðisins en starfs-
fólk Laugalækjarskóla, en nemendur
þess skóla eru ekki komnir með bíl-
próf. Ágreiningur hefur verið milli
ríkis og borgar um skiptingu lóðar-
innar og hefur það staðið þarna fyr-
ir þrifum.
c) Ég held að allir geti verið sam-
mála um að svarið við þessum lið
er jákvætt.
Hlemmur
Aðalbjörg Karlsdóttir, Laugavegi
145, 105 Reykjavik, spyr:
Mig langar að fá upplýsingar um
hvort einhverjar endurbætur eða
sólpallur
c
stigi^ ■KTS
bað
I
Til sölu
Til sölu nýtt heilsárs sumarhús,
nær fullklárað. (2. byggingastig)
Húsið er tilbúið til flutnings.
Grunnflötur 44 fm auk 20 fm
| svefnlofts. Verönd ca.12 fm.
E Verð 2.260 þús. eða hæsta boð.
Upplýsingar í síma 91 - 88 40 60
íslandsbanki býður
ókeypis myndatöku vegna
Debetkorta!
r
J6n Sigur&sson
Kennitaia 12106341180
T étcKaáby rgöamúmer
0580-000274
uNomsKRrr/authorized antuiuw
Kortfl má •* «trm nol* m þtð «■ g«M <* é. I
gliMnf m0Ur. Fkmndl «r tMðinn aSaMk M • ’
íslandsbanki býöur
viöskiptavinum sínum
ókeypis myndatöku
vegna Debetkorta.
Debetkortiö er í senn staögreiöslukort,
hraöbankakort, persónuskilríki og tékkaóbyrgö-
arkort. Þó er einnig ódýrara aö nota Debetkort
en aö greiöa meö tékka.
Notabu tœkifœrib og sœktu um Debetkort
núna á meöan þér býöst ókeypis myndataka
og kortagjald. Þetta tilboö stendur aöeins í
takmarkaban tíma.
Ókeypis myndataka fer
fram í eftirtöldum
útibúum íslandsbanka
á höfubborgarsvœbinu:
Lœkjargötu 12............. kl. 09:15 - 16:00
Laugavegi 105............. kl. 09:15 - 16:00
Háaleitisbraut 58......... kl. 13:00- 16:00
Stórhöfba 17.............. kl. 11:00- 16:00
Kringlunni 7.............. kl. 11:00 - 16:00
Þarabakka 3............... kl. 09:15 - 16:00
Dalbraut 3................ kl. 13:00 - 16:00
Strandgötu 1.............. kl. 13:00 - 16:00
Einnig er boöiö upp á ókeypis myndatöku í
útibúum utan höfuöborgarsvœbisins.
ISLANDSBANKI