Morgunblaðið - 25.05.1994, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 53*
RAÐAUGÍ ÝSINGAR
Húsá Flórída
Nýtt einbýlishús á Orlando-svæðinu til leigu
í júlí. 3 svefnh. og öll þægindi.
Sundlaug, tennis- og golfvöllur.
Stutt í Disney og Seaworld.
Upplýsingar: Fax (91 )-13803.
Frá Fósturskóla íslands
Fósturskóla íslands verður slitið föstudaginn
27. maí 1994 kl. 14.00 í Bústaðakirkju.
Skólastjóri.
Frá Fósturskóla íslands
Umsóknir um næsta skólaár Fósturskóla ís-
lands verða að berast fyrir 31. maí 1994.
Skólastjóri.
Frá Héraðsdómi
Reykjavíkur
Kjörskrármál sem höfðuð verða í lögsagnar-
umdæmi Héraðsdóms Reykjavíkur, verða
þingfest í dómsal 102, í Dómhúsinu við
Lækjartorg, fimmtudaginn 26. maí nk. kl.
16.00 og föstudaginn 27. maí nk. kl. 14.00.
Reykjavík, 24. maí 1994.
Dómstjórinn í Reykjavík.
Silfurlínan
Sfma- og viðvikaþjónusta fyrir aldraða.
Námskeið fyrir nýja sjálfboðaliða fimmtudag-
inn 26. maí kl. 17.00 í Risinu, Hverfisgötu
105.
Upplýsingar í síma 28812 og 616262.
Félag eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni.
Tækniteiknarar
Aðalfundur Félags tækniteiknara verður
haldinn á morgun, fimmtudaginn 27. maí
kl. 20.00 á skrifstofu félagsins í Hamraborg
7, Kópavogi.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Léttar veitingar.
Stjórnin.
Aðalfundur Látravíkur hf.
verður haldinn föstudaginn 3. júní nk. kl. 15.00
ífundarsal SVFR, Háaleitisbraut68,2. hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
HEIMILI OG SKÓLI
Aðalfundi frestað
Áður auglýstum aðalfundi Heimilis og skóla
er frestað til miðvikudagsins 8. júní kl. 20.30.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin.
Fundarboð
Stjórn Límtrés hf. boðartil aðalfundar þriðju-
daginn 31. maí nk. kl. 21.00
að Brautarholti, Skeiðum.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 7.
grein samþykkta félagsins.
2. Onnur mál.
Stjórnin.
Foreldrar - er barnið
ykkar í fallhættu?
Helga Sigurjónsdóttir, kennari/námsráðgjafi
boðar til fundar um málefni barnanna sem
árlega falla á grunnskólaprófum. Fundurinn
er í dag, miðvikudaginn 25. maí í Mennta-
skóianum í Kópavogi og hefst ki. 20.30.
Allir foreldrar og aðrir áhugamenn um skóla-
mál eru velkomnir.
Félagsstarf aldraðra í
Reykjavík
sumar- og orlofsferðir
Hinar árlegu sumar- og orlofsferðir hafa ver-
ið skipulagðar og tímasettar.
Nánari upplýsingar eru í fréttabréfi um mál-
efni aldraðra sem sent er Reykvíkingum 67
ára og eldri og liggur frammi til kynningar á
öllum félagsmiðstöðvum.
Upplýsingar og pantanir í Félags- og þjón-
ustumiðstöðinni, Vesturgötu 7, í síma 17170
frá og með 24. maí nk. milli kl. 9.00 og 12.00.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar,
öldrunarþjónustudeild.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
Aðalfundur
Aðalfundur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík
verður haldinn sunnudaginn 29. maí nk.
Fundurinn hefst í kirkjunni kl. 14.00, með
minningarathöfn um þá sem látist hafa frá
síðasta aðalfundi.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14.
gr. safnaðarlaga.
Safnaðarstjórn.
Verslunar- og skrifstofu-
húsnæði við innanverðan
Laugaveg til leigu
43 fm verslunarhúsnæði á 1. hæð og 20 fm
skrifstofuhúsnæði á 2. hæð (kaffistofa o.fl.
sameiginlegt með öðrum) er til leigu.
Vinsamlega hafið samband í síma 17560 á
vinnutíma.
Sumarhús í sérflokki
KR sumarhús fást í mörgum stærðum og
gerðum. Margviðurkennd og þrautreynd.
Til nota allt árið.
Uppl. í síma 51070, 658480, fax 654980.
KR sumarhús,
Hjallahrauni 10, Hafnarfirði.
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Sjálfstæðisfólk
Hafnarfirði
Opinn fundur í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29, í kvöld, miðviku-
dagskvöld, kl. 20.00 til 21.00.
Sex efstu menn framboðslistans flytja stutt ávörp.
Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði.
/jFStarfsmiðstöð eldri
borgara íValhöll
Á\ Reykjavíkurferðir
Starfsmiðstöð eldri borgara í Valhöll er opin
alla virka daga frá kl. 12.00 til 18.00. Boðið
er í skoðunarferðir um borgina og síðdegis-
kaffi. Allt stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins
er velkomið. Frambjóðendur og forystumenn
Sjálfstæðisflokksins koma í heimsókn. Kynn-
isferð um borgina verður nk. fimmtudag 26.
maí. Lagt verður af stað frá Breiðholtskjöri
kl. 14.00. Síðan verður haldið að Hólagarði,
Gerðubergi og Drafnarfelli (SVR-stöð). Loks
verður komið við í Furugerði 1 um kl. 14.30.
Þaðan verður farið í 1-1V2 tíma skoðunar-
ferð um borgina, sem endar með síðdegi-
skaffi í Valhöll. Fólki verður síðan ekið heim
í sín hverfi um kl. 16.30.
Það eru allir velkomnir, en við hvetjum sérstak-
lega borgara 60 ára og eldri til að koma með.
Hittumst hress og glöð! Áfram Reykjavík.
Útboð
Hraðfrystihús Eskifjarðar óskar eftir tilboð-
um í byggingu um 2600 m2 þaks yfir loðnu-
þró á Eskifirði. Boðið skal í verkið skv. teikn-
ingum í útboðsgögnum. Einnig er heimilt að
bjóða aðra útfærslu.
Tilboðsfrestur er til 7. júní nk.
Útboðsgagna skal vitja til Forsjár hf., FRV,
Skólavörðustíg 3, Reykjavík, gegn 10.000 kr.
skilatryggingu.
Málverkauppboð
Tekið er á móti málverkum fyrir næsta list-
munauppboð Gallerís Borgar í Gallerí Borg
v/Austurvöll alla virka daga frá kl. 12-18.
BÖRG
v/Austurvöll,
sími 24211.