Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 56
56 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMIMINGAR
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
KRISTÍNAR SIGURÐARDÓTTUR,
Sörlaskjóli 17,
Reykjavík.
Sigurður Þorgrímsson, Þorbjörg Skarphéðinsdóttir,
Amalia Ragna Þorgri'msdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinsemd við andlát og útför mannsins míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
GUNNLAUGS GUÐMUNDSSONAR
fyrrverandi tollvarðar,
Álfaskeiði 46,
Hafnarfirði.
Þórdís Steinsdóttir,
Maria Þ. Gunnlaugsdóttir,
Guðmundur Gunnlaugsson, Vilborg Sigurðardóttir,
Geir A. Gunnlaugsson, Kristín Ragnarsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför systur okkar,
MARGRÉTAR
TÓMASDÓTTUR JOHNSEN
hjúkrunarkonu,
Eiríksgötu 35.
Fyrir hönd systkinabarna og annarra
ættingja.EP
Ásta Tómasdóttir,
Guðrún Sandvig Pedersen.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför,
PÉTURS EGGERZ,
Suðurgötu 29,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til öldrunardeildar og
krabbameinsdeildar Landspítalans.
Erna Eggerz,
Páll Ólafur Eggerz,
Sólveig Eggerz,
tengdabörn og barnabörn.
Fallegt og varan-
legt á leiði
Smíðum krossa úr ryðfríu
stáli, hvlthúðaða. Stuttur
afgreiðslufrestur.
Sendum um allt land.
Ryðfrítt stál - endist um
ókomna tíð.
Blikkverk sf.,
sími 93-11075.
INGIBJORG ODDSDOTTIR
+ Ingibjörg Odds-
dóttir fæddist
13. janúar 1916.
Hún lést 8. maí
1994. Móðir hennar
var Hermanía
Helgadóttir og fað-
ir Oddur Sveinsson.
Þau eru bæði látin.
Ingibjörg var fædd
að Minnidölum í
Mjóafirði. Ingibjörg
átti fimm systkini
og eru tveir bræður
hennar á lífi, þeir
eru Vilhjálmur
Oddsson sem býr í
Reykjavik og Helgi Oddsson
sem býr á Akranesi. Ingibjörg
var gift Eiríki K. Sigurðssyni.
Þau áttu saman fjögur börn,
þau eru Kristín, fædd 1943,
Helgi, f. 1944, Sigurður, f. 1949,
og Elín, f. 1951. Ingibjörg og
Eiríkur slitu samvistir 1961.
Ingibjörg átti 9 ömmubörn og
13 langömmubörn. Eftirlifandi
sambýlismaður hennar er Þor-
steinn Hermannsson frá Seyðis-
firði. Útför Ingibjargar var
gerð í kyrrþey 16. maí.
Elsku hjartans mamma mín, nú
kveð ég þig í hinsta sinn. Nú ertu
komin heim í dalinn þinn bjarta
með ljósi til að lýsa þér inn í ham-
ingju, ást og frið. Megi Guð leiða
þig inn í eilífðar ljósið bjarta. En
mamma mín, þú munt aldrei hverfa
mér frá, því minningu þína geymi
ég í hjarta mínu. Ást þína og um-
hyggju sem þú gafst mér og bömum
mínum mun ég ætíð muna. Ætíð
er myrkur skall á í lífi mínu voru
dymar þínar opnar og ráð og hugg-
un fékk ég frá þér. Þú varst mér
allt í þessu lífi, já, þú varst mér
móðir og faðir og nú sakna ég þín
svo sárt, ég hrópa nafn þitt um
svarta nótt, þá finn ég nálægð þína
svo fljótt, þú strýkur yfir vanga
minn og huggar mína sám sorg.
Elsku hjartans mamma mín, þakka
þér fyrir að þú varst alltaf við mína
hlið, þakka þér fyrir allt sem þú
hefur gefið mér og börnum mínum.
Elsku hjartans mamma mín, -nú
sefur þú svo ofur rótt í sólardalnum
þínum. Hjartans litla mamma mín,
ég elska þig svo heitt og þú munt
ávallt alla tíð búa í hjarta mínu.
Þín ástkær dóttir
Elín.
Elsku langa ló. Nú ertu farin
mér frá, á friðsælan stað. Ég mun
minnast þín eins og þú_ varst fjör-
ug, glöð og flissandi. Ég man þá
stund er þú reyndir að kenna mér
að segja langamma, en eitthvað
brenglaðist það hjá mér svo ávallt
kallaði ég þig löngu ló. Þú varst
svo ánægð með nafnið langa ló, svo
ég hætti aldrei að kalla þig það
þótt ég yrði eldri.
Vertu sæl elsku langa ló.
Þín Rakel Dögg.
Það er mikið tómarúm í lífi
manns þegar einhver nákominn
hverfur á braut, ekki síst þegar um
er að ræða konu sem gefið hefur
eins mikið og Inga.
Hún var ein af þeim
sem gefa allt en krefj-
ast einskis sér til
handa.
Sjö ára gömul missir
hún föður sinn og 10
ára vistast hún í sína
fyrstu vinnu, því móðir
með fimm börn átti
fárra kosta völ í þá
daga og varð að bjarg-
ast sem best hún gat.
Oft hefur verið erfitt
en þegar Inga sagði frá
liðnu dögunum var
bjart yfir þeim og æsk-
an var góð. Mjóifjörður og það fólk
sem þar bjó átti alltaf sérstakan
sess í huga hennar. Oft sagði hún
okkur sögur um hve gaman og
gott var í þann tíma. Þó vissi mað-
ur að oft hafði verið sárt að geta
ekki verið hjá mömmu og bræðrun-
um.
En Inga hafði kjarkinn og vilj-
ann. Seinna þegar hún stóð ein með
börnin sín eftir erfiðan skilnað lét
hún einskis ófreistað til að halda
þeim saman og lagði á sig mikið
erfiði og vinnu til að ná endum
saman. En þar kemur líka til henn-
ar meðfædda þrjóska en um leið
lífsgleði að allt tókst vel.
Bömin uxu úr grasi og bjuggu
sér sín eigin heimili, sum úti á landi,
og yngsta dóttirin bjó lengi í Sví-
þjóð.
Árin liðu en Inga var okkur börn-
unum sá kjarni sem fjölskylda er.
Á hverju sumri fóru þau Steini,
sambýlismaður hennar, vítt um
landið í heimsóknir til bama og
barnabarna og vom þær heimsókn-
ir okkur alltaf mikils virði.
Seinna þegar flestir voru fluttir
aftur á höfuðborgarsvæðið fannst
mömmu við ekki nógu dugleg að
rækta sambandið og hafði oft orð
á því þegar maður kom til hennar
í Kópavoginn til þess að fá fréttir
hvert af öðru.
Fyrir rúmu ári fluttust mamma
og Steini á Barónsstíg 33. Þá var
hún þegar orðin veik og fékk þann
úrskurð mánuði seinna að um
ólæknandi krabbamein væri að
ræða. Hún æðraðist ekki og lét
engan bilbug á sér finna ef maður
skólar/námskeið
■ Vinsælu barna- og
unglinganámskeiðin
Námskeið, sem veita börnum og ungling-
um verðmætan undirbúning fyrir fram-
tíðina. Eftirtalin námskeið eru í boði:
1) Tölvunám barna 5-6 ára.
2) Tölvunám barna 7-9 ára.
3) Tölvunám unglinga 10-15 ára.
4) Framhaldsnám ungl. 11-16 ára.
Námskeiðin verða haldin í júní og ágúst.
Fyrstu námskeiðin hefjast 1. júní. Skráið
fyrir 15. maí og njótið 10% afsláttar.
Hringið og fáið sendar upplýsingar.
STJÓRNUNARFÉLAGS (SLANDS
OG NÝHERJA
69 77 69 CQ>
62 1 □ 66 NÝHERJI
matreiðslusköunn
KKAR
■ Bökugerð
matarbökur og sætar bökur. Kennari:
Ingibjörg Pétursdóttir. Dags. 30.-31.
maí kl. 19.30-22.30.
Skráning í síma 91-653850.
hringdi eða kom í heimsókn og
spurði hvernig heilsan væri var
svarið: „Það er ekkert að mér, en
hvernig hafíð þið það?“ Svo var því
tali eytt.
Síðustu mánuðirnir hafa örugg-
lega verið mömmu erfiðir en aldrei
var möglað, hún hélt heimili fyrir
sig og Steina með aðstoð heima-
hlynningar Krabbameinsfélagsins
og átti hún engin nógu sterk orð
til þess að þakka því fólki sem lét
sér svo annt um hana.
Tveim vikum áður en mamma
dó var hún flutt fárveik á Landspít-
alann þar sem reynt var að gera
henni lífið léttara. Þar var hún
í níu daga en hún vildi komast
heim, áreiðanlega vissi hún að
hveiju dró og heim kom hún,
reyndar mjög veik en mjög
ánægð.
Daginn eftir voru öll bömin henn-
ar og hluti af barnabörnunum sam-
ankomin á Barónsstígnum. Mamma
sat í rúminu sínu og sagði brandara
og lék á als oddi. Þá var slegið upp
veislu og engin var glaðari en hún.
Daginn eftir varð breyting til hins
verra og við fómm að sjá að hveiju
dró. Öll vorum við smeyk við það
sem framundan var og kviðum
kveðjustundinni sem óhjákvæmi-
lega var framundan. En mamma
vissi hvað hún var að gera, nú
fengum við að finna hve kær-
leiksrík og umhyggjusamt það
fólk sem vinnur við heimahlynn-
ingu Krabbameinsfélagsins er.
Skref fyrir skref leiddi það okk-
ur áfram, fræddi okkur og hugg-
aði þannig að okkur fannst
stundin hennar mömmu þegar
hún kom falleg og getum við
aldrei fullþakkað það. En það
eigum við líka mömmu og hennar
þijósku að þakka.
Megi hún hvíla í friði.
Nú legg ég aupn aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm i nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjöm Egilsson.)
Þorsteinn, Kristín,
Sigurður, Elín,
Helgi og Guðleif.
■ Söngsmiðjan
Söngskóli með nýju sniði, auglýsir
inntöku nemenda í einsöngvaradeild:
Byrjendur - miðstig - framhald.
Einkatímar: Söngkennsla, undirleikur.
Hóptimar: Söngkennsla, samsöngur,
kór, leiklist, dans, tónfræði, tónheyrn,
tungumál, tónleikar og óperuuppfærslur.
Skráningu lýkur 31. maí nk. Allar upplýs-
ingar veittar á skrifstofu skólans, Skip-
holti 25, og í síma 612455.
Morgunblaðið/Arnór
SVEIT Sparisjóðsins í Keflavík/Jóhannesar Signrðssonar
sigraði í meistaramóti Bridsfélags Suðurnesja (Sparisjóðs-
mótinu) og Bridsfélagsins Munins í sveitakeppni á nýliðnu
starfsári. Talið frá vinstri: Heiðar Agnarsson, Pétur Júlíus-
son, Karl Hermannsson, Jóhannes Sigurðsson, Gísli Torfason
og Arnór Ragnarsson.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Vetrarstarfinu
lokið hjá BS
Nýlega lauk vetrarstarfinu hjá
Bridsfélagi Suðurnesja. Spilaður
var síðari hluti í tveggja kvölda
vortvímenningi. Feðgarir Óli Þór
Kjartansson og Kjartan Olason
sigruðu, hlutu samtals 342 stig.
Amór Ragnarsson og Karl
Hermannsson urðu í 2.-3. sæti
með 335 stig ásamt Gísla Torfa-
syni og Jóhannesi Sigurðssyni.
Hæstu skor síðara kvöldið fengu
Jóhannes og Gísli eða 197 stig
en Arnór og Karl voru með 196
stig. Fyrra kvöldið áttu Valur
Símonarson og Kristján Krist-
jánsson hæstu skorina eða 173
og Kjartan og Óli Þór 168.
Vetrarstarf félagsins hefir ver-
ið mjög kröftugt. Þátttaka í
keppni félagsins var mun meiri
en undanfarin ár. Þá hafa staðið
yfir í vetur byggingafram-
kvæmdir á vegum félagsins í
samstarfi við hestamenn. Húsið
er fyrir nokkru tilbúið að utan
og langt komið að steypa gólf.
Næsta verkefni er að einangra
húsið að innan.