Morgunblaðið - 25.05.1994, Page 60

Morgunblaðið - 25.05.1994, Page 60
60 MIÐVTKUDAGUR 25. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Tommi og Jenni Ljóska g Smáfólk YOU KMOW, OLAF, WE 5H0ULD U)RITE T0 OUR. BROTHER 5NOOPY.. UUE HAVEN'T 5EEN HIM 5INCE HE WA5 IN THE H05PITAL H I THINK I KNOU) UJHERE THERE'5 50ME 5TATIONERV'.. Lubbi, veistu, við ættum að skrifa Snata bróður okkar_____ Við höfum ekki séð hann síðan hann var á spítalanum Eg held ég viti hvar finnst... bréfs- efni — En við þurf- um líka blý- ant Eru þeir mjög þungir? BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Þjóðsöngur * Islendinga Opið bréf til þjóðarinnar Frá Árna Þ. Jónssyni: UNDANFARIÐ hefur borið nokkuð á þeirri umræðu að við íslendingar þurfum á nýjum sönghæfari þjóð- söng að halda! Vitanlega stafar þessi umræða af þeirri staðreynd að á afmælisári lýðveldisins vilja allir geta tekið undir og sungið hinn íslenska þjóðsöng sem oftast og víðast. Einkennileg umræða? Ég verð að viðurkenna að þessi umræða virkaði einkennilega á mig í fyrstu og ekki síst vegna þeirrar hugmyndar að efna ætti til sér- stakrar samkeppni um nýjan þjóð- söng. Ekki þar fyrir að ég hafi ekki trú á samkeppni og þeirri já- kvæðu hvatningu sem hún getur verið í listsköpun sem og á öðrum sviðum. Ég hef aftur á móti vissar efasemdir um störf misvitra/mis- tækra dómnefnda sem oft fá, eins og samkeppnisaðilar, allt of lítinn tíma til að vinna sitt verk. Ég ætla ekki að dæma, fyrir mitt leyti, réttmæiti þeirrar fullyrð- ingar að okkar lögmæti þjóðsöngur sé erfiður til söngs, svo virðist sem þjóðin hafi í reynd úrskurðað svo, annars væri þessi umræða varla komin upp. Ég vil hins vegar benda þjóðinni á þá staðreynd að hún hefur í reynd sjálf valið sér nýjan „þjóðsöng" og er ef til vill kominn tími til að viðurkenna það opinber- lega á einhvem hátt. ísland er land þitt... Hið gullfallega lag Magnúsar Þórs Sigmundssonar, við ekki síðra Ijóð Margrétar Jónsdóttur: „ísland er land þitt“, hefur sungið sig inn í hjörtu landsmanna og staðist „tímans tönn“, það er staðið af sér allar tískusveiflur þau tólf ár sem það hefur hljómað. Það er deginum ljósara að það snertir alla þá strengi í sál þjóðarinnar sem þjóðsönguf á að gera. Ljóðið lýsir þeim tilfinnihg- um sem hver sannur íslendingur ber til landsins og menningar okkar. Hvort sem það hefur verið sungið af ástsælustu söngvurum þjóðarinn- ar ellegar af einlægum barnakórum um allt land, eru áhrif þess þau sömu; lotning og ást á landi okkar og menningararfi. Ég skora á kjörin yfirvöld þessa lands að gera lag og ljóð þessu þann sóma sem það á skiiið, þjóðin hefur sjálf kveðið upp sinn dóm! Umræður og afgreiðsla á slíku máli væri til að mynda verðugt viðfangsefni há- tíðarþinghalds á Þingvöllum 17. júní næstkomandi. Það er trú mín að hvort sem Alþingi kýs að álykta úm þetta mál á einn eða annan hátt, ellegar að farið verði úti samkeppni um nýjan þjóðsöng, sé lag þetta og ljóð orðið það ástsælt með þjóðinni að það verði áfram nokkurs konar „auka“-þjóðsöngur íslendinga. ÁRNIÞORV. JÓNSSON arkitekt, Lynghaga 11, Reykjavík. Hvað með Laug- ardalshöll? Opið bréf til Arna Sigfússonar og Sigrúnar Magnúsdóttur Frá Unni Bjarklind: ÞAÐ HEFUR verið töluvert ritað um samskipti Sjálfstæðisflokks og Knattspymufélagsins Þróttar. Tals- menn R-lista hafa haldið því fram að Sjálfstæðisflokkurinn hafi á sumardaginn fyrsta notað aðstöðu sína til að auglýsa flokkinn. Það fólst í því að Ami Sigfússon leiddi skrúðgöngu barna frá Vogaskóla að heimili Þróttar við Holtaveg. Þar tók við annar sjálfstæðismaður, sem að eigin fmmkvæði grillaði ofan í börnin baki brotnu. Einnig mætti þar þriðji sjálfstæðismaðurinn, Sig- Gagnasafn Morgunblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. urður Sveinsson, sem er nú reyndar gamall Þróttari og mætti að eigin frumkvæði til að rifja upp gamla tíma. Og hvað svo? Við sem eigum börn í Þrótti vit- um vel að við þurfum meira en skrúðgöngu og grillaðar pylsur! Og víkur nú sögunni að Sigrúnu Magnúsdóttur. Hún hefur um ára- bil búið í næsta nágrenni við Þrótt, nánast hinum megin við götuna. Um árabil hefur foreldrafélag og forráðamenn Þróttar farið fram á stuðning Sigrúnar í borgarstjórn þess efnis, að Þróttur fái aðstöðu til inniæfinga í Laugardalshöll, sem hefur alls ekki verið fullnýtt sem slík. Undirtektir hafa verið mjög dræmar! Aftur til Árna Hvað ætlar þú að gera til að Þróttur fái mannsæmandi aðstöðu til æfinga? Munt þú leiða hina ungu og upprennandi Þróttara inn um dyr Laugardalshallar? Málið er brýnt, og við foreldrar barnanna í Þrótti bíðum spennt eftir svari og það svar mun örugglega ráða úrslit- um um það hvar við setjum okkar merki í kjörklefanum. UNNUR BJARKLIND, húsmóðir og „Þróttaramóðir".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.