Morgunblaðið - 25.05.1994, Page 64
64 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTU
Draumurinn
rættíst - tvisvar
LIAM
NEESON
Erfitt að
fá tækifæri
í Hollywood
LIAM Neeson sem sló
eftirminnilega í gegn í
kvikmyndinni Listi
Schindlers sagði á dög-
unum frá því þegar hann
reyndi fyrst fyrir sér í
Hollywood. „Þegar ég
kom til Hollywood var
ég spurður af feitum
manni með vindil hvað
ég hefði leikið áður. Þeg-
ar ég sagðist hafa fengið
góða dóma fyrir hlutverk
mitt í Mýs og menn hváði
hann og spurði: „Lékstu
mús?“
Stærðar-
munur
hjónanna
raskarekki
hamingjunni
JON og Torill eru
óvenjuleg hjón. Tor-
01 er 97 cm á hæð
en Jon er 190 cm.
Þau eru afar ást-
fangin og láta
stærðarmuninn ekki
raska hamingjunni.
Jon og Torill
tóku mikla
áhættu fyrir
tveimur árum
þegar þau
ákváðu að eign-
ast barn. Lækn-
arnir sögðu þeim
að veikburða lík-
ami Torill þyldi
ekki erfiða fæð-
ingu, en Torill
lét sér ekki segj-
ast: „Að baki
lönguninni í
barn bjó ekki þörfín fyrir að
sanna neitt. Mig langaði ein-
faldlega til að verða móðir.“
Fæðingin gekk vel og þau
eignuðust heilbrigða stúlku.
Þar með varð Torill minnsta
móðir í heiminum. Flestir
bjuggust við að þau myndu
hætta við svo búið en nú hafa
þau eignast annað barn, lítinn
strák. „Líklega verður hann
dvergur alveg eins og ég,“ seg-
ir Torill. Hún hefur þó engar
áhyggjur af því. Miklu máli
skipti að hann hafí fæðst árið
1994 en ekki fyrir þijátíu
árum, þegar fordómar voru
meiri. „Mig skiptir ekki nokkru
máli hvort strákurinn minn er
tveggja eða eins metra hár.
Mikilvægast er að hann sé
ánægður og trúr sjálfum sér.“
Morgunblaðið/Kristinn
MARGIR gestir sóttu sýninguna á opnunardaginn.
Eins og sjá má er
nokkur hæðarmunur
á hjónakornunum.
Undir lok meðgöngu-
tímans var Torrill
meiri á breiddina
(105 cm) en lengdina
(97 cm).
Hin síunga Diana Ross.
Diana Ross
á fullri ferð
►DIANA Ross virðist ekkert eld-
ast með árunum. Hún hélt upp á
fimmtugsafmæli sitt um páskana
ásamt skipakóngnum Arne Næss.
Þau hafa verið gift í átta ár.
Ekki var talið að Diana Ross
ætlaði í tónleikaferðalag í ár sök-
um kvikmyndar og hljóðritunar-
skuldbindinga. Þvert ofan i allar
spár mun Diana Ross halda tón-
leika í Bandaríkjunum og á Bret-
landi í sumar.
Robin Williams
heldur sig sjaldan
við handritið
►ROBIN Will-
iams sem lék
aðalkvenhlut-
verkið í „Mrs.
Doubtfire" er
jafnvel enn
fyndnari í eigin
persónu. Ef
hann tekur að
sér hlutverk í
kvikmynd má
treysta því að
hann auðgar
það með uppfinningasemi sinni.
Sally Field og Pierce Brosnan,
sem voru mótleikarar hans i
„Mrs. Doubtfire", áttu oft bágt
með sig þegar Robin Williams
komst á skrið. I einu atriði kvik-
myndarinnar borðar öll fjöl-
skyldan saman á veitingahúsi.
Robin Williams lætur þá Mrs.
Doubtfire missa tennurnar sínar
í vatnsglasið. Siðan þarf Brosnan
að hjálpa henni að veiða þær
aftur upp úr glasinu. Þetta atriði
var ekki í handritinu! Eins og
að líkum lætur var Brosnan
hlátri næst, en hann stóðst próf-
raunina og lék hlutverk sitt án
þess að stökkva bros.
Forskot
á sæluna
LAUGARDAGINN 21. maí var
opnuð sýning á Kjarvalsstöðum
á íslenskri samtímalist. Markmið-
ið er að bregða ljósi á íslenska
samtíma höggmyndalist eða öllu
heldur skúlptúragerð. Óðum
styttist í opnun listahátíðar og
þessi sýning er forskot á sæluna.
Það má segja að hún sé afar ljúf-
fengur forréttur.
a Mor^unblaðið/Krisiinn
VEÐURBLIÐAN leyfði gestum að spóka sig undir berum himni.
Hatar að búa einn
„ÞIÐ MEGIÐ kalla það galgopahátt eða
gráa fíðringinn. Polly og ég vorum ham-
ingjusamlega gift í fullkomnu hjóna-
bandi þegar ég varð ástfanginn af ann-
arri konu.“ Roy Marsden, sem sjónvarps-
áhorfendur þekkja sem lögreglumanninn
Adam Dalgliesh, situr núna einmana í
eins herbergis íbúð í London. Ástarævin-
týrið tók enda og hans einasta gleði er
að vera faðir drengjanna sinna tveggja,
Roys sem er tólf ára og Bills sem er sjö
ára. Dalgliesh er augsýnilega fullur eftir-
sjár og hylur höfuðið í lúkum sér þegar
hann segir: „Ég hata að búa einn. Alveg
síðan ég var 17 ára hef ég verið í sam-
búð með konum."