Morgunblaðið - 29.06.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.06.1994, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Verðlaunaveiting í Kaupmannahöfn Smitandi bjartsýni í fomu menningarsetri Helga Ingólfsdóttir semballeikari hlaut á dögunum bjartsýnis- verðlaun Bröstes fyrir tónlistariðkun sína og uppbyggingu sumartón- leika í Skálholti. Sigrún Davíðsdóttir var við verðlaunaafhendinguna. Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. HELGA INGÓLFSDÓTTIR sembal- leikari fékk á sunnudaginn afhent bjartsýnisverðlaun Bröstes við hátíð- lega athöfn í Nikolaj sýningarsalnum rétt við Strikið í Kaupmannahöfn. Verðlaunaféð nemur 385 þúsund ís- lenskum krónum. Vigdís Finnboga- dóttir forseti íslands var viðstödd athöfnina, en verðlaunin voru stofn- uð sama ár og hún tók við embætti, í þakklætisskyni fyrir smitandi bjart- sýni hennar. í ávarpi sínu til verðlaunahafans sagði Peter Bröste forstjóri Bröste- fyrirtækisins að bjartsýni íslendinga og þá ekki síst Vigdísar, væri smit- andi. Það væri ótrúlegt hve marga afburðamenn Islendingar hefðu alið og nú síðast hefðu sjö íslenskir stór- meistarar teflt eftirminnilegar hrað- skákir við danska skákmenn um daginn. Danir ættu aðeins tvo stór- meistara í skák, þó þeir væru tuttugu sinnum fleiri en íslendingar. Bröste minntist lýðveldisafmælisins og nefndi að það væri sérlega ánægju- legt að Helga væri dönsk í móðurætt- ina, því það minnti á tengsl Dana og íslendinga. Von um sameinuð Norðurlönd í Evrópusamstarfi Eftir að hafa nefnt ástand heimsmála og friðarvonir, sagði Bröste það von sína að öll Norð- urlöndin fímm samein- uðust innan vébanda Evrópusambandsins og gætu þar unnið að friði í heiminum. Vigdís Finnbogadótt- ir sagði að dugnað ís- iendinga mætti rekja til þess að þeir byggðu eld- fjallaeyju. Hún þakkaði Bröste fyrir framlag hans til ís- lenskra listamanna. Það væri ein- stakt að einstaklingur legði sitt af mörkum á þennan hátt. Til Helgu vék hún þeim orðum að hún væri óþreytandi að byggja upp tónlistar- starf í Skálholti, þar sem Islendingar gætu notið þess að hlusta bæði á íslenska og erlenda tónlistarmenn. Fornt menningarsetur endurlífgað Vigdís sagði að Skálholt hefði einu sinni verið menningarmiðstöð, og nú yrði staðurinn það aftur fyrir elju- semi Helgu. í þakkarávarpi sínu sagði Helga að það hefði verið sér óvænt gleði að fá verðlaunin og það væri yndislegt að fínna starf sitt metið. Verðlaunin hnýttu enn frekar bönd hennar við Danmörku, en svo skemmtilega vildi til að verðlauna- veitinguna bar upp á afmælisdag móður Helgu, sem varð 92 ára þenn- an dag. í samtali við Morgunblaðið á eftir sagði Helga að sér væru efst í huga þakkir til allra þeirra, sem störfuðu með sér, bæði til fólks í Skálholti, tónlistarmannanna og annarra, sem við sögu kæmu. Verðlaunin væru sér hvatning til að halda áfram starf- inu, en næsta ár verður haldið upp á tuttugu ára afmæli sumartón- leikahaldsins í Skál- holti. Geisladiskur til hátíðabrigða Verðlaunin hvettu sig til að gera eitthvað sérstakt og Helga sagði að hún hefði hug á að nota þau til að kosta útgáfu á geisladiski. Væntanlega yrði það annaðhvort Goldbergtil- brigði Bachs, en þau lék hún í fyrsta skipti opinberlega í fyrra, eða íslensk verk sem samin hafa verið fyrir hana. Hún væri þakklát fyrir verkin og þætti hún skuldbundin tónskáldun- um, svo hún vildi gjarnan gera sitt til að koma þeim frekar á framfæri. Helga sagði að sumartónleikarnir hæfust næsta laugardag og stæðu fram í ágúst. Á þessu sumri verða allar sónötur Bachs fyrir fiðlu og sembal fluttar, en meðleikari Helgu verður Jaap Schröder, sem er þekkt- ur flytjandi barokktónlistar. Helga sagði að ánægjulegt væri hve undir- tektir væru góðar, því kirkjan væri oftast full. Sumartónleikarnir stefna í að verða kirkjutónlistarhátíð, þar sem aðaláherslan er lögð á flutning íslenskrar kirkjutónlistar og svo bar- okktónlistar. Framlag tónlistar- mannanna er sérstakt að því leyti að þeir koma ekki aðeins og spila, heldur vinna saman í fimm vikur. Á hverju ári er eitt staðartónskáld og í ár er það Mist Þorkelsdóttir. Helga Ingólfsdóttir ATRIÐI úr sýningu „Light Nights“ sem Ferðaleikhúsið sýnir í sumar í Tjarnarbíói. Kristín G. Magnús leikkona segir draugasögu. Sýningar á „Light Nights“ að hefjast ÁRLEGAR sýningar Ferðaleik- hússins hefjast 30. júní og standa í allt sumar en ráðgert er að síð- asta sýning verði 3. september. Sýningarstaður er Tjamarbíó, eins og verið hefur í 12 ár, en miklar endurbætur hafa verið gerðar á leiksviði og sal. í tilefni 25 ára afmælis „Light Nights" hefur sýningin verið end- urnýjuð, nokkrir nýir þættir skrif- aðir, dansatriði samin af David Greenal og tónlistin af Ríkarði Þórhallssyni. Efnið í sýningunni er allt íslenskt og samanstendur af mörgum atriðum, sem eru ýmist færð í leikbúning eða sýnd með svokallaðri fjölmyndatækni. Stærsta hlutverkið í sýningunni er hlutverk sögumanns, sem er leikið af Kristínu G. Magnús, leikkonu sem er jafnframt leikstjóri „Light Nights". Leiksviðslýsing er hönnuð af Lárusi Björnssyni og margir tónlistarmenn, söngvarar, tón- skáld, listmálarar, teiknarar og ljósmyndarar hafa lagt sýningunni lið. Sýningin er flutt á ensku. Sú nýbreytni verður höfð að sýna öll kvöld vikunnar nema á sunnudögum. Sýningar hefjast kl. 21 og standa yfir í tvo tíma. Þekktasta ástar- saga Norðmanna LIV Ullman og Sven Nykvist við gerð kvikmyndarinnar Kristin La vransda tter. Anne Barbier í Gallerí II LIV Ullman hefur hafið vinnu við eitt stærsta kvikmyndaverkefni sem Norðmenn hafa ráðist í. Unnið er að upptökum á kvikmyndinni Kristin Lavransdatter eftir Sigrid Unset í Gudbrandsdalen í Noregi í sumar. Ullman leikstýrir myndinni, en hún skrifaði einnig handritið eftir sögu Nóbelsverðlaunaskálds- ins. Norðmenn hafi lengi átt í deil- um við Bandaríkjamenn um hver ætti réttinn til að kvikmynda þessa frægu ástarsögu. Það var ekki fyrr en sænski framleiðandinn Ingmar Ejve tryggði sér hann að hægt var að ráðast í gerð myndarinnar. Biddu um Banana Boat alnáttúrulegu sólkremin (Alt naturat Chemical Free) □ Um 40 Banana Boat sólkrem, -olíur og -gel með sólvörn upp á #50, framleidd úr Aloe Vera, jojoba, kollageni, lanollni, minkaolíu, banonum, kókos, A,B,D og E-vítamíni. o Sérhönnuð barnasólkrem, barnasólvarnar- úði, barnasólvarnarsalvi og barnasól- varnarstifti. BananaBoat. Verðfrá kr. 494,-. □ Banana Boat Aloe Vera gelið er hreinna (99,7%), ódýrara (40-60%) og I fleiri túpu- og brusastærðum (6) en önnur Aloe gel. Biddu um Banana Boat í sólbaðsstofum.snyrti vöruverslunum, apótekum og öllum heilsu- búðum utan Revkiavíkur.______________ Heilsuval, Barónsstíg 20, ® 626275 Saga Unsets fjallar um ástir og örlög ungrar norskrar konu á 14. öld. Ullman hefur látið þau orð falla að sagan sé um sterka konu og sé skrifuð af sterkri konu og því sé eðlilegt að kona leikstýri myndinni. Sigrid Unset var kjarna- kona og var aðeins 46 ára gömul þegar hún hlaut bókmenntaverð- laun Nóbels árið 1928. Ullman leiksfjóri Flestir þekkja Liv Ullman sem leikkonu. Hún sló í gegn þegar hún fór með aðalhlutverkið í sviðssetn- ingu á Kristin Lavransdatter á sjötta áratugnum, en hún er best þekkt fyrir samstarf sitt við Ingmar Bergman á sjöunda og áttunda ára- tugnum. Ullman leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd fyrir rúmum tveimur árum. Sú mynd ber titilinn Sofie og hlaut hún mjög góða dóma. Það er sjálfur Sven Nykvist sem er kvikmyndatökumaður kvik- myndarinnar. Nykvist og Ullman þekkjast vel eftir að híifa starfað saman í myndum Ingmars Berg- mans og óskaði hún sérstaklega eftir því að hann kvikmyndaði Kristin Lavransdatter. íslendingar eiga sinn þátt í myndinni þar sem Karl Júlíusson sér um sviðsmynd hennar. Með að- alhlutverkin í myndinni fara Elisa- beth Matheson og Bjorn Skagested. Matheson er ung norsk leikona sem hefur m.a. fengið mikið lof fyrir túlkun sína á Sólveigu í Pétri Gaut og Möshu í Þremur systrum eftir Tsjékhov. Skagested á að baki 25 ára leikferi! bæði sem virtur sviðs- leikari og í kvikmyndum. FRANSKA myndlistarkonan Anne Barbier opnar sýningu í Gallerí II við Skólavörðustíg 4a á morgun, fimmtudaginn 30. júní, kl. 17. í kynningu segir: „Verk Anne Barbier, sem búsett er í París, hafa vakið athygli innan heimalands hennar sem og utan þess fyrir sér- staka nálgun hennar við hina ýmsa efniviði sem hún vinnur jafnan með hið upphaflega eða endanlega form efnisins svo sem litaduft, bergsalla eða ösku. Af þessum sökum eru verkin mjög viðkvæm og ber að snerta þau með augunum en ekki með höndunum." Anne Barbier hefur haldið sýn- ingar víða og sýning hennar hér á landi er hluti af yfirgripsmeira hnitakerfí sem hún vinnur að. Verk- in I Gallerí 11 teljast til innsetning- ar og eru þau unnin í alíslensk ein- kennandi og einkennileg efni. Sýningunni lýkur fimmtudaginn 14. júlí. Þórunn við verk sín. Þórunn sýnir í Eden ÞÓRUNN Guðmundsdóttir heldur sýningu á vatnslitamyndum í Eden í Hver'agerði dagana 28. júní til 11. júlí. Þórunn er búsett í Sandgerði og hefur stundað nám hjá Eiríki Smith listmálara og Myndlistarskóla Reykjavíkur. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum. Morgunblaðið/Silli Tryggvi Ólafsson sýndi á Húsa- vík um þjóðhátíðarhelgina. Sýning Tryggva á Húsavík Húsavík - Safnahúsið á Húsavík hefur haft ýmsar uppákomur í sam- bandi við þjóðhátíðarárið og fengið þekkta listamenn í heimsókn. Um þjóðhátíðarhelgina sýndi Tryggvi Olafsson listamaður 36 verk og var sýningin vel sótt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.