Morgunblaðið - 29.06.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.06.1994, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ1994 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 125 kr. eintakið. ISLENSKT FRAMLAG TIL FRIÐARGÆSLU NÆR MILLJÓN MANNA víðs vegar úr heiminum hefur lagt lið í friðargæslu á vegum Sameinuðu þjóðanna frá upphafi. Friðargæsla SÞ verður æ umfangsmeiri og við- fang hennar hefur breyst á allra síðustu árum. Til viðbótar friðargæslu og friðarumleitunum hafa SÞ af illri nauðsyn fengið það mannúðarhlutverk að verja almenna borgara og tryggja vistaflutningá hjálparstofnana til sveltandi stríðs- hrjáðra svæða. Eftir að fólk um allan heim fór að hafa fyrir augunum inni í stofu hjá sér hrakninga og hörmungar fólks á stríðssvæðum, hafa kröfur um að alþjóðasamfélagið grípi í taumana orðið æ háværari og þjóðir heims lagt fram sína menn í friðargæslusveitir, sem nú hafa hemil á grimm- um átökum á 28 stöðum. Þetta krefst mikils mannafla og meirihluti aðildarríkja hinna Sameinuðu þjóða hafa lagt fram lið, sem eru sjálfboðaliðar úr herjum viðkomandi landa, undir aga og á launum hjá heimalandinu, en með mótfram- lag frá Sameinuðu þjóðunum, sem líka greiða annan rekstr- arkostnað. Þannig leggja jafnvel mörg fátæku þriðja heims ríkin í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku fram sinn skerf. íslendingar hafa hingað til ekki lagt fram liðsmenn í friðargoéslusveitir. Fjölmargir íslendingar hafa þó á undan- förnum árum starfað að friðargæslu á vegum alþjóðasam- takanna og ráðnir af þeim. Þykja þeir þar góðir liðsmenn. Að við íslendingar höfum ekki eins og aðrar þjóðir lagt sjálfir fram fólk til friðargæslu er skiljanlegt í Ijósi þess að hér er enginn her og því föllum við ekki beint inn í það fyrirkomulag sem er á friðargæslu SÞ á alþjóðavettvangi. Þó var fyrir alllöngu farið að biðja íslendinga ásjár. Nú hafa orðið þarna tímamót og fundin lausn á því að íslendingar geti orðið þátttakendur á sama hátt og aðrar þjóðir. Svo sem komið hefur fram í greinum blaðamanns Morgunblaðsins frá átakasvæðunum í Bosníu að undanförnu eru tveir íslenskir læknar, yfirlæknir frá Akureyri og heilsu- gæslulæknir frá Höfn í Hornafirði, og einn hjúkrunarfræð- ingur þar nú á okkar vegum og með íslenska fánann á öxlinni. Þeir eru í friðargæslusveit Norðmanna, sem er hluti af norrænu friðargæslunni í Bosníu. Sú lausn var fundin í fyrra í samtali utanríkisráðherra íslands, Jóns Baldvins Hannibalssonar, og Johans Jörgens Holts heitins, þáverandi utanríkisráðherra Norðmanna, að þessir íslensku ríkisborg- arar yrðu í norska hernum en undir íslenskum fána. Þannig geta íslendingar sem ein af aðildarþjóðum Sameinuðu þjóð- anna lagt ofurlítinn skerf til friðargæslunnar og komist hjá því að vera nánast eina þjóðin sem stendur hjá og aðgerða- laus þegar horft er upp á þær hörmungar sem víða blasa við og kröfur eru um að alþjóðasamfélagið leysi. Það á einnig mjög vel við að friðargæslustarf okkar Islend- inga sé á sviði iækninga. Þar eigum við reynt og vel mennt- að fólk í fremstu röð. Og þörfin á átakasvæðum heimsins er gífurleg. Lítið framlag eins og okkar getur vegið þar þungt. Þar sem læknar og lyf eru af skornum skammti og stríðssærðir ganga fyrir, er hvarvetna mikið af sjúklingum, konum og börnum, sem enga læknishjálp fær. Þar geta læknar friðargæslunnar og hjúkrunarfólk komið til hjálpar einstaklingum, sem annars mundu deyja. Og af slíku fram- lagi megum við vera stolt. í viðtölum blaðamanns Morgunblaðsins við ísiensku lækn- ana í Bosníu er Máni Fjalarsson þeirrar skoðunar að Samein- uðu þjóðirnar séu besti kosturinn til að grípa inn í á slíkum stöðum og þarna eigi íslendingar að leggja fram sinn skerf. Og Júlíus Gestsson segir: „Við erum hluti af þessu appar- ati og því líka okkar að taka á því sem uppá kemur.“ Auðvitað erum við íslendingar hluti af alþjóðasamfélaginu og hljótum eins og aðrar þjóðir að taka þátt í því friðar- og hjálparstarfi sem aukin og æ útbreiddari átök kalla á með tilheyrandi hörmungum, svo sem við okkur blasir í fréttunum. Það er gott til þess að vita að loks er búið að finna leið til þess að við getum sem þjóð raunverulega orð- ið virkir þátttakendur í þessu mikla og mikilvæga viðfan- gefni alþjóðasamfélagsins. Að íslenski fáninn og nafn lands- ins sjáist líka á öxlum friðargæsluliðanna með bláu hjálm- ana. Eftir því er tekið. LIFNAR YFIR MANNLÍFIP ERNA Rós Kristinsdóttir og Dagmar Lilja Jónasdóttir voru að fá sér ís á Ingólfstorgi í veðurblíðunni. DAGMAR Pétursdóttir, dóttir Péturs í Kjötbúri Péturs, var að selja ávexti, grænmeti og svartfuglsegg í Austurstræti. Hún sagði söluna ganga vel. Mun skemmtilegra sé að vera úti en inni meðan veðrið sé svona gott. MIKIÐ var að gera á kaffihúsum borgarinnar í góða veðrinu í gær. Kaffihús sem gátu boðið gestum sínum að njóta blíðunnar utan dyra voru áberandi vinsæl. ÞAÐ var fjölmenni í Laugardalslau SUI er: Blíðuveður um mest allt land í gær og fólk naut góða veðursins ríkulega Sumarið er komið. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, lýsti því þessu yfir í veður- fréttum í sjónvarpinu í fyrrakvöld. Menn þurfa ekki lengur að velkjast í vafa. Veðurblíðan sið- ustu tvo daga staðfestir komu sum- arsins. 1 gær var sumarveður um mest allt landið og menn nutu veðurblíðunnar. Hiti fór upp í 17 stig á Tannstaðabakka í Hrútafirði, en í Reykjavík var 13 stiga hiti. Veðurfræðingar spá enn meiri hita á Norður- og Austurlandi næstu daga, en íbúar annars staðar á land- inu mega eiga von á rigningu um helgina. Reykvíkingar tóku vel á móti sólinni í gær. Víða mátti sjá létt- klætt fólk út í görðum og út undir vegg. Mikið líf var í sundlaugunum þar sem ungir jafnt sem gamlir nutu sólar. Biðröð var út að dyrum í Laugardalslauginni og allir inni- klefar uppteknir. Greinilegt var að margir fóru í laugina fyrst og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.