Morgunblaðið - 29.06.1994, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
Ég býst við að þeir hafi
rétt fyrir sér... golf er
nákvæmnisleikur...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691 !()()• Símbréf 691329
Ohreinu börnin
hennar Evu
Frá Gesti Fríðjónssyni:
ÞAÐ kann að vera að borið sé í
bakkafullan lækinn, að minnast
frekar á þjóðhátíðina á Þingvöllum
eftir alla þá réttmætu umræðu
sem orðið hefur um frámunalegt
skipulagsklúður í umferðar- og
salernismálum og lítilmannlega
tilburði formanns og fram-
kvæmdastjóra þjóðhátíðarnefndar
við að fírra sig allri ábyrgð á þeim
endemum.
Þó er enn ógetið eins þáttar í
klúðrinu er sneri að hátíðarhöldun-
um og fyrirkomulagi þeirra á Þing-
völlum.
Við undirbúning hátíðarhald-
anna leitaði þjóðhátíðamefnd til
fjölmargra aðila sem flytja skyldu
margþætt efni meðan á hátíðar-
höldum stæði. Meðal þessara aðila
voru tíu hópar sem gert var að
flytja sitt efni afsíðis, það er að
segja að „fjallabaki í Stekkjargjá".
Engar merkingar eða leiðbein-
ingar voru á staðnum um hvar
þessi gjá væri eða hvað ætti að
fara þar fram.
Einu ábendingarnar til hátíðar-
gesta voru á afar illa gerðu smálet-
urskorti og á óskipulegu tímaplani
um skemmtiatriði.
Þessum tíu hópum var sem sagt
stillt upp þar sem fáir hátíðar-
gesta höfðu möguleika á að fylgj-
ast með framlagi þeirra til hátíðar-
haldanna.
Þar að auki komu umferðarmál-
in við sögu því sumir hóparnir
komust seint og illa á ákvörðunar-
stað þannig að tímamörk riðluðust
verulega frá því sem áætlað var.
Það verður því að teljast grófleg
móðgun við alla þessa hópa, sem
lagt höfðu á sig æfíngar og erfiði
til að skila sínum hlutverkum sem
best, að einangra þá á þennan
hátt frá hátíðarsvæðinu þar sem
þeirra vandaði flutningur fór fyrir
ofan garð og neðan allflestra há-
tíðargesta.
Þessir hópar sem þjóðhátíðar-
nefnd þótti við hæfi að þarna
væru í hlutverki „óhreinu barn-
anna hennar Evu“ voru eftirtaldir:
1. Fjallkonur, 2. Dómkórinn, 3.
Skólahljómsveit Kópavogs, 4.
Skagfirska söngsveitin, 5. Lúðra-
sveit Þorlákshafnar, 6. Söngsveit-
in Fílharmonía, 7. Skólahljómsveit
Mosfellsbæjar, 8. Kvæðamannafé-
lagið Iðunn, 9. Emil og Anna
Sigga og 10. Harmonikkufélag
Reykjavíkur.
Það er ef til vill þetta sem for-
maður og framkvæmdastjóri þjóð-
hátíðarnefndar eiga við þegar þeir
beija á bijóst og segja: „Þjóðhátíð-
in tókst afar vel og allir á staðnum
voru mjög ánægðir með það sem
fram fór.“
GESTUR FRIÐJÓNSSON,
Austurbraut 6, Keflavík.
Þögn er betri
en bull
Athugasemd vegna „fjölmiðlarýni“
Frá Sveinbirni I. Baldvinssyni:
PISTLAR um dagskrár útvarps-
og sjónvarpsstöðva eru fastur liður
í flestum dagblöðum. Það er ekki
nema eðlilegt og sjálfsagt að um
þessar dagskrár sé fjallað reglu-
lega á þennan hátt, miðað við það
hve ríkur þáttur þær eru í fjölm-
iðlaneyslu nútímafólks. Morgun-
biaðið birti sl. laugardag pistil af
þessu tagi eftir Ólaf M. Jóhannes-
son, „fjölmiðlarýni", eins og hann
nefnir sig.
Ég hef auðvitað ekkert við skoð-
anir Ólafs að athuga, en hitt hlýt
ég að gera alvarlega athugasemd
við, að í því sem líklega á að telj-
ast umfjöllun hans um níu klukku-
stunda langa hátíðarútsendingu
Sjónvarpsins á þjóðhátíðardaginn
fer hann með hreint fleipur og
bull og segir fátt annað. .
í þrígang í fáeinum setningum
rangnefnir hann umsjónarmenn
dagskrárinnar og kallar Kastljós-
menn, en þau sem báru liita og
þunga af efni dagskrárinnar 17.
júní sl. voru auðvitað umsjónar-
menn og dagskrárgerðarmenn
Dagsljós-þáttanna.
Onnur missögn rýnisins felst í
því að tilgreina Jón Egil Bergþórs-
son einan sem aðalútsendingar-
stjóra dagskrárinnar, en hann
deildi þeirri ábyrgð og heiðri með
Styrmi Sigurðssyni.
Ég . get ekki krafíst þess að
Morgunbiaðið fjalli endilega um
það yfírleitt, þegar Sjónvarpið
sendir út einhveija viðamestu og
flóknustu dagskrá í sögu sinni.
En sé það gert þykir mér eðlilegt
að gera þá lágmarkskröfu, að sú
umijöllun sé unnin af sama metn-
aði og virðingu fyrir viðfangsefn-
inu og blaðið vill viðhafa þegar
aðrir efnisflokkar eiga í hlut.
Sú „umfjöllun“ sem hátíðardag-
skráin hlaut í Morgunblaðinu á
laugardaginn er blaðinu ekki sæm-
andi og hrein vanvirðing við þá
hátt í hundrað starfsmenn Sjón-
varps sem lögðust á eitt við að
framkvæma þetta stórvirki í dag-
skrárgerð. Fyrir þeirra hönd leyfi
ég mér að frábiðja mér frekari
umfjöllun af þessu tagi. Þá er
þögnin betri.
SVEINBJÖRNI. BALDVINSSON,
dagskrárstjóri innlendrar
dagskrárdeildar Sjónvarps.