Morgunblaðið - 29.06.1994, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Fáðu
Moggann
til þín í fríinn
Morgunblaðið þitt sérpakkað
á sumarteyfisstaðinn
Viltu fylgjast með í allt sumar?
Morgunblaðið býður áskrifendum sínum þá þjónustu
að fá blaðið sitt sérpakkað og merkt á sölustað nálægt
sumarleyfisstaðnum innanlands.
Hringdu í áskriftardeildina í síma 691122 eða sendu
okkur útfylltan seðilinn og þú fylgist með
í allt sumar.
- kjarni málsins!
lá takk, ég vil nýta þjónustu Morgunblaðsins og fá
blaðið sent á eftirfarandi sölustað á tímabilinu
frá
til
□ Esso-skálinn Hvalfirði
□ Ferstikla, Hvalfirði
□ Sölustaðir í Borgarnesi
□ Baula, Stafholtst., Borgarf.
□ Munaðarnes, Borgarfirði
□ Bitinn, Reykholtsd., Borgarf.
□ Hvttárskáli v/Hvttárbrú
□ Sumarhótelið Bifröst
□ Hreöavatnsskáli
□ Brú í Hrútafirði
□ Staðarskáli, Hrútafiröi
□ lllugastaðir
□ Hrísey
□ Grímsey
□ Grenivík
□ Reykjahliö, Mývatn
NAFN
□ Söluskálar Egilsstöðum
□ Skaftárskáli, Kirkjubæjarklaustri
□ Víkurskáli, Vík 1 Mýrdal
□ Hlíðarlaug, Úthlíð Biskupst.
□ Bjarnabúð, Brautarhóli
□ Verslun/tjaldmiðstöð, Laugarv.
□ Minniborg, Grimsnesi
□ Verslunin Grund, Flúðum
□ Gósen, Brautarholti
□ Árborg, Gnúpverjahreppi
□ Syðri-Brú, Grímsnesi
□ Þrastarlundur
□ Þjónustumiðstöðin Þingvöllum
□ Ölfusborgir
□ Annað
KENNITALA,
HEIMILI___
PÓSTNÚMER_
SlMI .
Utanáskriftin er:
Morgunblaöiö, áskrlftardeild, Krlnglunnl 1,103 Reykjavík.
ÍDAG
Pennavinir
ÚKRAÍNSK 52 ára gömul
kona með margvísleg
áhugamál. Hún og maður
hennar eru bæði barna-
læknar:
Olga Myasoed,
320005 Ukraine,
Dnepropetrovsk,
per. Chemovitsky 7,
TVÍTUGUR Ghanapiltur
með áhuga á ferðalögum:
Emmanuel Bright
Mensah,
Church of Christ,
P.O. Box 35,
Breman Esikuma,
Central Region,
Ghana.
FERTUG rússnesk lista-
kona sem safnar munn-
þurkum og leikföngum úr
klæði, leðri eða skinni:
Larisa Gora,
453200 USSR,
Bashkortostan,
Salavat-15,
Leningradskaya st.,
53-34.
Russia.
Cosper
MÆTTIÉG biðja um næsta dans?
TÍU ára tékkneskur piltur
með áhuga á ensku, skátum
og dýrum:
Peter Mecir,
Tyrsova 367,
507 81 Lazne Belohrad,
Czech Republic.
FRÁ Chile skrifar piltur
sem á heima suður af höf-
uðborginni Santiago. Getur
ekki um aldur eða áhuga-
mál en segist geta skrifað
bæði á spænsku og ensku:
Juan Jose Rivera Sar-
amillo,
X Region,
Lanco,
Arturo Prat Nro. 117,
Chile.
FRÁ Ghana skrifar 26 ára
stúlka, grafískur hönnuður,
með áhuga á kvikmyndum,
bókamenntum o.fl.:
Linda Ama Hooper,
P.O. Box 42,
Malam,
Accra,
Ghana.
LEIÐRÉTT
Hilmar Örn á frums-
amda tónlist við Bíó-
daga
í UMFJÖLLUN um kvik-
myndina Bíódaga síðastlið-
inn laugardag átti að koma
fram að Hilmar Örn Hilm-
arsson á alla frumsamda
tónlist við Bíódaga, en önn-
ur lög velur leikstjórinn
Friðrik Þór Friðriksson.
Eftirmál
fyrirsagnar
VILLA VAR í fyrirsögn
fréttar blaðsins í gær á bls.
2 um sveitarstjórnarkosn-
ingar í sameinuðum Hólma-
víkurhreppi. Þar sagði:
„Eftirmálar sveitarstjóm-
arkosninga....", en á að
sjálfsögðu að vera „ Eftir-
mál....“. í orðabók Menn-
ingarsjóðs segir: „Eftirmál
- eftirköst, afleiðing... eftir-
máli - niðurlagsorð, texti
aftan við meginmál."
Ljóst má vera, að eftir-
máli sameiningarsögu
Hólmavíkurhrepps, hvað þá
margir, hefur ekki enn ver-
ið ritaður. í trausti þess,
að engin eftirmál verði af
villunni biður Morgunblaðið
lesendur sína velvirðingar.
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Veiðitaska
tapaðist
VEGNA mistaka var
veiðitaska skilin eftir á
bílastæðinu við Óseyrar-
brú. Sá sem hefur tösk-
una undir höndum vin-
samlega hringi í síma
91-19515.
Leðurjakki
tapaðist
DÖKKBRÚNN leður-
jakki tapaðist á tónleik-
um Bjarkar í Laugar-
dalshöll 19. júní sl.
Finnandi vinsamlegast
hringi í Leó í síma 13193.
Gleraugu
fundust
GULLSPANGARGLER-
AUGU í hulstri fundust
á planinu við Stjömubíó
fyrir nokkru. Eigandi
hafi samband í síma
22678.
Gæiudýr
Læða í óskilum
GRÁBRÖNDÓTT læða
með hvíta bringu og gul-
brúna bletti á baki hefur
gert sig heimakomna í
Hlunnavogi 14. Hún er
mjög gæf og er með ólar-
far á hálsinum, en enga
ól. Kannist einhver við
gripinn er hann vinsam-
lega beðinn að hafa sam-
band í síma 33751.
Páfagaukar í
óskilum
TVEIR litlir páfagaukar
flugu inn í hús nálægt
Stjörnubíói við Lauga-
veg. Kannist einhver við
þá er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma
22678.
BRIDS
Umsjðn (iuðm. Páll
Arnarson
VESTUR hittir á besta út-
spilið gegn sex laufum suð-
urs — tromp.
Norður gefur; NS á
hættu. Norður
♦ ÁD642
T G6
♦ ÁG64
♦ D9
Suður
♦ 53
V ÁK42
♦ 3
♦ ÁKG1087
Vestur Norður Austur Suður
- 1 spaði Pass 2 lauf
Pass 2 tíglar Pass 2 hjörtu
Pass Pass 2 grönd 6 lauf Pass Allir pass 4 lauf
Útspil: lauffimma.
Hvemig er best að spila?
Með öðru útspili væri spil-
ið léttunnið með þvi að
trompa tvö hjörtu í borði.
Það er ekki lengur hægt, svo
það lítur út fyrir að sagn-
hafi þurfi að treysta á spaða-
svíninguna. Einn möguleiki
er að taka hjartastunguna
strax og svína svo í spaðan-
um upp á líf og dauða. Held-
ur betri áætlun er að svína
spaðadrottninguna strax. Ef
vömin trompar aftur út,
vinnst slemman ef spaðinn
fellur 3-3:
Norður
♦ ÁD642
f G6
♦ ÁG64
♦ D9
Vestur Austur
♦ G98 ♦ K107
T 975 IIIIH V D1083
♦ D10875 111111 ♦ K92
♦ 54 + 632
Suður
♦ 53
r ÁK42
♦ 3
♦ ÁKG1087
En spili vömin tígli eru
sagnhafa allar bjargir bann-
aðar.
Þótt spaðadrottningin ver-
ði að gefa slag, þarf ekki að
svína henni með bestu spila-
mennsku. Sagnhafi byijar
strax á því að spila tígulás
og trompa tígul. Síðan spilar
hann hjarta þrisvar og
trompar. Þá innkomu notar
hann til að trompa aftur tígli.
Eftir að hafa tekið trompin
af AV spilar suður loks
hjarta. Eins og spilin liggja,
fær austur slaginn og neyð-
ist til að spila spaða upp í
gaffalinn.
Víkverii skrifar...
essa dagana er mikil sjón-
varpsveisla daglega fyrir
áhugamenn um knattspyrnu, þar
sem eru beinar útsendingar frá
HM í Bandaríkjunum. Víkveiji er
einn þeirra sem setið hefur óhóf-
lega mikið við „imbann“ þessa
dagana og hyggur á enn frekari
setur, þegar næsta umferð hefst,
með 16 liða úrslitunum, og enn
frekari, þegar að sjálfum úrslitun-
um dregur. Þær útsendingar sem
Ríkissjónvarpið stendur fyrir eru
í sjálfu sér þakkarverðar og ekk-
ert nema gott eitt um þær að
segja, að því undanskildu, sem
Víkverja fínnst sem íþróttafrétta-
menn Sjónvarps, sem lýsa leikjun-
um, tali iðulega af takmarkaðri
þekkingu, bæði um íþróttina sem
slíka, leikaðferðir, leikfléttur og
þess háttar og einnig um leikmenn
einstakra liða.
xxx
En þó er hálfu skondnara að
fylgjast með auglýsingum
Stöðvar 2 á þessu vinsæla sjón-
varpsefni, HM í knattspyrnu. Eins
og kunnugt er, sendir Stöð 2 ekki
beint út frá HM og getur því ekki
státað af slíku í auglýsingum sín-
um og kynningum. Þess í stað
grípur Stöðin til þess að greina frá
því að áskrifendur Fjölvarpsins
geti notið beinna útsendinga frá
HM með því að horfa á eina rás-
ina í Fjölvarpinu, Eurosport. Um
þetta væri lítið að segja, ef ekki
væri fyrir þá staðreynd, að út-
breiðsla Fjölvarpsins hjá Stöð 2
virðist engin vera og markaðssetn-
ing þess hafa mistekist með öllu.
Þannig skilst Víkverja að enn sem
komið er séu ekki nema örfá
hundruð áskrifenda að Fjölvarpi
Stöðvar 2.
xxx
Við þessi orð er því svo að
bæta, að fjölmargir hafa fyrir
tilstilli móttökudisks nú þegar
beinan aðgang að erlendum sjón-
varpsstöðvum í gegnum gervi-
hnattarsendingar. Þar er um að
ræða stöðvar eins og Sky One,
Sky News, Eurosport, Film Net,
MTV og fleiri. Víkveiji er í þeirra
hópi og getur því notið beinna
útsendinga Eurosport á knattspp-
yrnuleikjunum frá HM. Frómt frá
sagt er þar ólíku saman að jafna,
að fylgjast með útsendingum Eu-
rosport á leikjunum og útsending-
um Ríkissjónvarpsins. Það sem
gerir gæfumuninn er framlag
Bretanna, sem lýsa hveijum leik
af slíkri innlifun, þekkingu og
húmor, að einatt er unun á að
hlýða. Þessu er ekki fyrir að fara
hjá íslensku leiklýsendunum og því
er það svo, að áhorfendur að út-
sendingum Ríkissjónvarpsins fá
ekki notið útsendinganna í sama
mæli og þeir sem geta notfært sér
Eurosport. Raunar vill Víkverji
beina þeim vinsamlegu tilmælum
til íþróttafréttamanna Sjónvarps,
að þeir spari sér umsagnir sínar
og leyfi áhorfendum að njóta leikj-
anna, án þess að vera stöðugt með
óþarfar og innihaldsrýrar umsagn-
ir, sem oft eru beinlínis til þess
fallnar að trufla. Þeir gætu haft
í huga málsháttinn: „Þögn er betri
en þarflaus ræða.“ En það gætu
vissulega svo fjölmargir aðrir einn-
ig — ekki satt!