Morgunblaðið - 24.09.1994, Side 1
64 SIÐUR LESBOK/C/D
STOFNAÐ 1913
217. TBL. 82.ÁRG.
LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Verjast
lungna-
veiki-
faraldri
ÍBÚI í Surat í vesturhluta
Indlands, um 150 km norður
af Bombay, setur klút fyrir
munn barns síns til að koma
í veg fyrir að það veikist af
bráðsmitandi og lífshættu-
legum lungnaveikifaraldri,
en yfir 100 manns hafa lát-
ist úr honum á undanförnum
tveimur dögum. Talið er að
sjúkdómurinn hafi komið
upp á sorphaugum sem
stækkuðu mjög í kjölfar
mikilla flóða og skemmda
af völdum þeirra en aðrir
segja hann hafa borist frá
nálægu sambandsríki. Um
tvær milljónir manna búa í
Surat, 300.000 hafa þegar
flúið borgina en þar hefur
verið lýst yfir neyðarástandi
vegna faraldursins. Óttast
heilbrigðisyfirvöld að fólks-
flóttinn verði til þess að
hann breiðist enn frekar út.
Fólki er ráðlagt að taka tet-
rasýklín-lyf við veikinni en
hún smitast með hósta og
veldur lungnabólgu.
Jafnrétti
til trafala
London. Reuter.
BRESK könnun hefur leitt í ljós að
jafnréttismál á borð við fæðingarorlof
og bætur til kvenna sem sagt hefur
verið upp störfum vegna þess að þær
voru þungaðar, hefur haft slæm áhrif
á störf og starfsframa kvenna. Sögðu
2/3 kvennanna að fæðingarorlof gerði
það að verkum að vinnuveitendum
þættu konur ekki eins fýsilegUr starfs-
kraftur og karlar og um helmingur
kvennanna fullyrti að það drægi úr
möguleikum þeirra á stöðuhækkun.
Talsmaður stofnunarinnar sem
gerði könnunina sagði hana sýna fram
á að enn væru miklar hindranir á
framabraut kvenna þótt ástandið hefði
vissulega batnað.
Um 65% kvennanna kváðust ekki
trúa því að konur og karlar ættu
jafnmikla möguleika í starfi en fyrir
tveimur árum var talan 74%. Um 88%
sögðu konur mæta hindrunum sem
karlar gerðu ekki en um 48% sögðust
sjálfar hafa lent í slíku. Um 62% þeirra
sögðu þá hafa verið raunina frá bytj-
un. Um tvenns konar hindranir væri
að ræða, viðhorf til kvenna á vinnu-
stað og þau vandkvæði sem upp kæmu
þegar konur þyrftu að skipta sér á
milli vinnu og heimilis.
Rússar styðja
loftárás NATO
Kíev, Sarajevo. Reuter.
ANDREJ Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússiands, kvaðst í gær styðja
loftárás Atiantshafsbandalagsins
(NATO) á hersveit Bosníu-Serba við
Sarajevo í fyrrakvöld. Hann sagði
að veija bæri friðargæsluliðið í Bosn-
íu með öllum ráðum. „Múslimarnir
hafa gerst sekir um ögranir og árás-
ir. En Bosníu-Serbar hafa, eins og
alltaf, brugðist of harkalega við,
farið langt yfir strikið," sagði Koz-
yrev. Gert var ráð fyrir því í gær-
kvöldi að öryggisráð SÞ myndi slaka
nokkuð á efnahagslegum refsiað-
gerðum gegn Serbum og Svartfell-
ingum sem segjast hafa hætt öllum
stuðningi við þjóðbræðurna í Bosníu.
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hvatti í, gær
friðargæsluhermenn SÞ til að gjalda
hiklaust í sömu mynt ef Bosníu-Ser-
bar réðust á þá. Þijár orrustuþotur
NATO réðust á serbneskan skrið-
dreka í fyrrakvöld eftir að serbnesk-
ir hermenn höfðu skotið á franska
friðargæsluliða og sært einn alvar-
lega. Yfirmaður gæsluliðsins bað þá
NATO um aðstoð.
Ratko Mladic, yfirmaður hers
Bosníu-Serba, hét því að þeir myndu
hefna sín, „einnig á þeim sem gáfu
fyrirmæli um að vélarnar færu í loft-
ið“ en ekki kom til alvarlegra átaka
í gær í Sarajevo.
Deilt á Bandaríkin
Kozyrev utanríkisráðherra lét í
ljós óánægju með friðarumleitanir
fimmveldanna svokölluðu, sem hafa
beitt sér fyrir áætlun um skiptingu
Bosníu, og sagði að þeim hefði ekk-
ert orðið ágengt í tvo mánuði. Hann
gagnrýndi ennfremur Bandaríkja-
stjórn fyrir að knýja á um að banni
við sölu vopna til stjórnarhersins í
Bosníu yrði aflétt ef Serbar sam-
þykktu ekki friðaráætlunina. „Með
þvi væru ríkin að leggja blessun sína
ýfir stríð. Þetta þýðir að Bosníumenn
beijist til síðasta manns með vopnum
sem við útvegum“, sagði Kozyrev.
Kynþáttahatur í
sjónvarpi
Frétta-
maður
sýknaður
Strassborg. Reuter.
Mannréttindadómstóllinn í
Strassborg hratt í gær úr-
skurði danska hæstaréttarins
sem dæmt hafði sjónvarps-
fréttamann sekan vegna um-
mæla viðmælenda hans er
þóttu lýsa kynþáttahatri.
Dómstóllinn sagði að „mjög
veigamiklar ástæður" þyrftu
að vera fyrir hendi til að rétt-
læta mætti slíka skerðingu á
rétti fjölmiðla til að fjalla um
þjóðmál. Dönsku dómararnir
töldu fréttamanninn, Jens Olaf
Jersild, hafa átt þátt í að koma
kynþáttahatri á framfæri í
þætti sínum árið 1985 er hann
ræddi við hóp sem andvígur
er litum innflytjendum. Jersild
greiddi sekt, 10.000 ísl kr., en
fær hana nú endurgreidda.
Reuter
SÞ hætt að beina flóttafólki til Rúanda vegna ofsókna stjórnarhers tutsa
um
Genf. Reuter.
Gæsluliðar SÞ verða látnir stilla til
friðar í suðausturhluta landsins
Ásakanir
FLÓTTAMANNAHJALP Same'in-
uðu þjóðanna (SÞ) í Genf skýrði frá
því í gær að samkvæmt upplýsing-
um, sem stofnunin hefði aflað,
hefðu hermenn nýju valdhafanna í
Rúanda með vitund stjómvalda
myrt þúsundir hútúa til að hefna
fjöldamorða á tútsum fyrr á árinu.
Stofnunin hefur hætt að hvetja
hundruð þúsunda rúandískra flótta-
manna í nágrannaríkjunum til að
snúa aftur til heimalandsins og um
120 kanadískir og ástralskir friðar-
gæsluliðar voru í gær sendir í
skyndi til suðausturhluta Rúanda
þar sem ástandið er sagt verst núna.
Forseti Rúanda, Pasteur Bizi-
mungu, vísaði staðhæfingum SÞ á
bug æn viðurkenndi að einstakir
hermenn hefðu „brotið reglur".
Bizimungu, sem sjálfur er af
hútú-ættum, sagði að erfitt yrði að
fá þjóðirnar tvær til að sættast en
sagði umheiminn hafa gert illt verra
með því að teija fyrir skipan stríðs-
glæpadómstóls yfir hútú-mönnum
sem tekið hefðu þátt í ijöldamorð-
unum á tútsum.
Embættismenn SÞ ræddu *Við
ráðamenn í Rúanda í gær til að fá
þá til að samþykkja sameiginlega
rannsókn á fjöldamorðunum.
Frásagnir flóttafólks
Ron Redmond, talsmaður flótta-
mannahjálparinnar, sagði ljóst af
þeim upplýsingum, sem stofnunin
hefði fengið hjá um 300 flóttamönn-
um, að stjórnarhermenn hefðu
framið fjöldamorð á ákveðnum
svæðum í Rúanda. „Áætlað er að
fórnarlömbin liafi skipt þúsundum
hvorn mánuðinn,“ sagði Redmond
og vísaði til tveggja mánaða tíma-
bils frá síðari hluta júlí.
Föðurlandsfylking Rúanda, sem
náði höfuðborginni, Kigali, á sitt
vald í júlí og myndaði nýja stjórn,
hefur lofað að grípa ekki til hefnd-'
araðgerða gegn hútúum vegna
drápanna á um miiljón tútsum í
tveggja mánaða borgarastyijöld.
Nýja stjórnin hefur þó viðurkennt
að hermenn stjórnarflokksins, Föð-
urlandsfylkingarinnar, sem er eink-
um skipuð tútsum, hafi drepið um
60-70 hútúa á ýmsum svæðum síð-
ustu mánuði. Sjö hermenn voru
handteknir vegna þessara glæpa.
Cedras yfir-
gefi Haítí
BANDARÍSKUR hermaður ræð-
ir við Haítíbúa í búðum Banda-
ríkjaiiers hjá flugvelli Port-au-
Prince í gær. Hermennirnir sjá
nú um að her og lögreglulið her-
foringjastjórnarinnar gangi ekki
í skrokk á óbreyttum borgurum
og stuðningsmönnum Jean-
Bertrands Aristide forseta, sem
segist munu halda heim innan
skamms. Warren Christopher,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sagði í gær að stjórnvöld
í Washington vildu sem fyrr
stuðla að því að Raoul Cedras,
leiðtogi herforingja, færi úr
landi en Cedras segist hvergi
fara og vill að kosið verði í land-
inu sem fyrst. Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti hét því í gær að stór-
auka matvæíáaðstoð við Haíti.