Morgunblaðið - 24.09.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1994 9
FRÉTTIR
ERU ÞEIR AÐ FA’ANN?
Slagreðrið gerði
gæfumuninn
LJÓST er, að Grímsá verður í
fjórða sæti yfir íslensku laxveið-
iárnar. Veiði lauk í ánni 20. sept-
ember og komu 1.450 laxar á land.
Það er lakara en í fyrra, en eigi
að síður mjög gott, sérstaklega
ef mið er tekið af því að júnímán-
uður var mjög slakur og veiði datt
einnig mjög niður er leið á ágúst
vegna þurrka.
Fiskur var að ganga í Grímsá
fram á síðasta dag og einnig var
sjóbirtingsveiði með besta móti.
Síðasta hollið í ánni veiddi 25 laxa,
gekk illa framan af, en veiðin tók
svo kipp er rok og rigning helltist
yfir landið.
Þverá endaði með 1.610 laxa,
en enn mun eitthvað vera málum
blandið með lokatölu í Norðurá.
Er verið að athuga hvort einhvetj-
ir 20 laxar hafi verið tvíbókaðir,
og einnig hvort að septemberaflinn
hafi að fullou verið tekinn með í
heildartöluna sem birt var strax í
vertíðarlok. í bili er talað um loka-
töluna 1.625 laxa, en samkvæmt
framanskráðu gæti talan breyst.
Hátt í 2.000 silungar, sjóbirt-
ingar, staðbundnir urriðar og
bleikjur hafa veiðst í Flóðinu í
Grenlæk það sem af er. Er þar
innifalin vorveiði og síðan síðsum-
arsveiði. Veiði hefur verið góð að
undanförnu, talsvert virðist vera
af sjóbirtingi og er hann fyrir
nokkru byijaður að ganga af
krafti. Annars staðar í Grenlæk
er útkoman góð eftir því sem
næst verður komist, en erfitt er
að fá heildartölu yfir veiði í lækn-
um.
Þá hefur áin Jónskvísl, sem fell-
ur í Grenlæk, gefið nokkuð vel í
haust. Þar er bæði sjóbirtingur og
staðbundinn urriði. Hin seinni ár
hefur svæði þetta verið dauft, en
í haust hefur lifnað aðeins yfir því
og á annað hundrað fiskar hafa
veiðst, þeir stærstu 7-9 pund. í
Jónskvísl rennur Sýrlækur og þar
hefur verið dijúg urriðaveiði þótt
lækurinn sé hálfgerð spræna.
Slakt meðallag í Elliðaám
Það veiddist 1.131 lax í Elliða-
ánum í sumar og til samanburðar
veiddist í fyrra 1.391 lax. Meðal-
veiði í ánum á árunum 1974 til
1992 er 1.422 laxar. Á hitt ber
GUÐNI B. Einarsson með
stærsta laxinn úr Stóru-Laxá
í Hreppum í sumar, 23 punda
hæng sem, hann veiddi á
Black Sheep nr. 8 21. ágúst.
að líta, að þrisvar á umræddu
tímabili, 1974, 1975 og 1988,
veiddust yfir 2.000 laxar í ánni,
en minnst var veiðin árið 1980 er
aðeins 928 laxar komu á land.
Samkvæmt þessu má ef til villa
segja að veiðin nú hafi verið í slöku
meðallagi.
Lélegt í Soginu
Stærsti laxinn í sumar var 18
punda fiskur sem veiddist í Efri
Kistu á flugu.
Það var ekki gott í Soginu þetta
sumarið, það veiddust aðeins 250
laxar á svæðum Stangaveiðifé-
lagsins sem er mun lakara heldur
en veiðin síðustu sumur,“ sagði
Ólafur K. Ólafsson formaður Ár-
nefndar Sogsins í samtali við
Morgunblaðið, en veiði lauk í ánni
þann 20. september. Hluti af
ástæðunni fyrir þessari veiði er
léleg nýting veiðileyfa á vissum
svæðum, s.s. í Bíldsfelii, en þegar
öllu er á botninn hvolft var Ólafur
á því að það hefði hreinlega verið
lítið af laxi í ánni þetta sumarið.
Við tölu Ólafs má bæta nokkrum
.löxum af svæðum Þrastalundar
og Torfastaða. Nánar tiltekið um
veiðina komu 44 laxar úr Bílds-
felli, 75 úr Ásgarði, 73 úr Alviðru
og 55 úr Syðri Brú.
Á silungasvæðinu vissi Ólafur
af þremur löxum til viðbótar, eða
alls 250 laxar. Þá veiddust rúm-
lega 300 bleikjur, allt að 5 punda,
en flestar 2 til 2,5 pund. Stærsta
laxinn veiddi Jón Þ. Einarsson á
Breiðunni í landi Bíldsfells. Það
var 22 punda hængur sem tók
fluguna Borac, sem ku vera ensk
að uppruna, silfruð á búkinn og
með blátt og gult í væng.
Nefnd um
skiparekstur
Landhelgis-
gæslunnar
DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur
skipað nefnd til að gera heildarút-
tekt á núverandi skiparekstri Land-
helgisgæslu íslands og þörfum til
næstu framtíðar með hliðsjón af
þeim verkefnum m.a. við björgun
og eftirlit, sem Landhelgisgæslunni
er ætlað að sinna.
Ennfremur er nefndinni ætlað að
leggja mat á og gera tillögur um
þá kosti sem væru álitlegastir þegar
kemur að því að endurnýja skipa-
stól Landhelgisgæslunnar.
I nefndinni eiga sæti Hafsteinn
Hafsteinsson, forstjóri Landhelgis-
gæslunnar, sem er formaður nefnd-
arinnar, Viggó Maack, verkfræðing-
ur, Þórður Ásgeirsson, forstjóri
Fiskistofu og Þórhallur Arason,
skrifstofustjóri í fjármálaráðuneyti.
Sneaker BdllS? lyktargleypirínn leysJr vandann!
íallan skófatnað, töskur og hirs/ur. Fæst íhe/stu
skóbúðum, sportvöruvers/unum og skóvinnustofum.
J*
Heildsölubirgðir
S/mi 91-629196 - Fax 91-629132
Ný kjólasending
Samkvæmiskjólar,
Brúðarkjólar, smókingar og kjólföt í miklu úrvali.
Fataviðgerðir - fatabreytingar.
Fataleiga Garðabæjar Opið iau. frá kl. 10-14
Garðatorgi, sími 656680. og virka daga frá kl. 9-18.
HU5GAGNA-
UTSALA
Seljum næsfru daga mikið úrval
af húsgögnum með
20-60%
afslætti
Td. vatnsrúm - veqghúsqöqn
eldhúsborð - borostofuboro
eldhússtóla - boröstofustóla
unglinpahúsaögn - sófasett
sofaboro og m.fl.
OpiS til kl. 16.00 í dag
ocj frá 14 - 16 sunnudag
Visa og Euro raðgreiðslur
HUSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 654 100
nýi haust
vetrarlisti
ew /-oo/mw^rts
Laugavegi 13 - Sími (91) 625870
Athugið: Opið laugardag 10.00-16.00 og sunnudag 13.00-17.00 [