Morgunblaðið - 24.09.1994, Side 10
10 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Stjáni í
bíó á
nýju hjóli
KRISTJÁN Guðmundsson,
Stjáni í bíó, var á ferð um
miðbæ Akureyrar á nýja hjól-
inu sínu í vikunni. Það gamla,
sem hann hafði átt árum sam-
an, skemmdist, hann hafði ver-
ið að horfa á eftir kvenfólki,
gleymt sér og lenti upp úr öllu
saman í árekstri. Nú hefur
kappinn fengið nýtt reiðhjól
og því allar leiðir færar. Krist-
ján, sem í daglegu tali er aldr-
ei kallaður annað en Stjáni í
bíó, var starfsmaður Nýja bíós
á Akureyri um árabil, hélt
spenntum bíógestum í skefjum
áður en hann reif af miðunum
og hleypti inn í salinn.
01 Q7H LARUSÞ-VALDIMARSSON,framkvæmdastjori
L I I UVt I 0 / V KRISTJAN KRISTJANSSON. loggiltur fasteigjiasali
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Einbýlishús - gott verð - eignaskipti
Nýlega staekkað og endurnýjað steinhús, ein hæö, 129,5 fm nettó á
vinsælum stað í Hafnarfirði. Góður bílsk. 36 fm. Lóð - trjágarður 630
fm. Skipti mögul. á 4ra herb. hæð í austurborginni eða í austurbænum
í Kópavogi.
Glæsileg endaíbúð - gott verð
Endurnýjuð 4ra herb.‘sólrík íbúð 108,6 fm á 1. hæð við Hraunbæ.
Nýtt eldhús. Sérhiti. Kjallaraherb. með snyrtingu. Skipti mögul. á góðri
2ja herb. íb.
40 ára húsnæðislán kr. 3,3-5,0 millj.
Nokkrar 3ja herb. íbúðir mjög góðar m.a. við:
Vallarás 5. hæð. Lyftuhús. Parket. Útsýni. Endurb. sameign.
Furugrund. 7. hæð. Lyftuhús. Útsýni. Bílgeymsla. Tilb. óskast.
Dvergabakka. 3. hæð. Suðurendi. Parket. Ágæt sameign.
Eiríksgötu. Jarðhæð. Innr. og tæki ný. Vinsæll staður.
Súluhóla. Suðuríbúð. Eins og ný. Ágæt sameign. Fráb. kjör.
í gamla góða vesturbænum
Getum boðið glæsil. sérhæð um 150 fm auk bílsk. í skiptum fyrir
góða 3ja-4ra herb. íb. í borginni eða nágrenni.
2ja herb. - gott verð - góð kjör
Kríuhólar. Lyftuhús. 7. hæð. 63,6 fm. Fráb. útsýni. Tilb. óskast..
Sólvallagöta. í kjallara. Samþykkt. Rúmg. föndurherb. Tilb. óskast.
Barðavogur. Mjög góð. Stór. Samþykkt. Sérinng. Tilb. óskast.
Tómasarhagi. Glæsil. stór suðuríb. í kj. Allt sér.
• • •
Opið ídag kl. 10-14.
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
ALMENNA
FASTEIGHASAUM
UUGWÉGM8SÍMAR2ÍÍ5^Í37Ö
Vetrarstarf
hvítasunnu-
kirkjunnar
VETRARSTARF hvítasunnukirkj-
unnar er nú að hefjast. Barnastarf-
ið, Kristileg krakkasamtök hvíta-
sunnukirkjunnar verður hvern föstu-
dag kl. 17.15 og er ætlað börnum
frá 3ja til 12 ára og verður þeim
skipt niður í hópa sem hver fær efni
og föndur við sitt hæfi. Sérstakar
bænasamkomur verða á föstudögum
kl. 20.30. Samkomur fyrir unglinga
eru á laugardögum kl. 20.30.og ai-
mennar samkomur á sunnudögum
kl. 15.30. Boðið verður upp á biblíu-
lestra í kirkjunni á miðvikudögum
og biblíuleshópa í heimahúsum á
þriðjudögum. Samvera eldri borgara
verður fyrsta fimmtudag hvers mán-
aðar kl. 16 - 17 og síðar í haust
verður boðið upp á hjónanámskeið
og fundir verða einnig fyrir þá sem
eiga og hafa átt í erfiðleikum með
vímugjafa.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Mess-
að verður í Akureyrarkirkju kl.
11.00 á morgun. Guðsþjón-
usta verður að Seli kl. 14.00.
Guðsþjónusta að Hlíð kl.
16.00. Biblíulestrar hefjast
næstkomandi mánudag í
Safnaðarheimilinu kl. 20.30.
GLERÁRKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11.00. Barna-
starf vetrarins verður kynnt og
eru foreldrar, afar og ömmur
hvött til að fjölmenna með
börnum sínum og barnabörn-
um. Bænastund kvenna hefst
kl. 20.30 á mánudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjöl-
skyldusamkoma kl. 16.00 á
sunnudag, ungt fólk og krakk-
ar frá Reykjavík sjá um dag-
skránna. Kvöldsamkoma fell-
ur niður.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sam-
koma í umsjá ungs fólks í kvöld
kl. 20.30. Safnaðarsamkoma
kl. 11.00 á morgun. Vakningar-
samkoma kl. 15.30. Samkoma
með blökkumanninum og
saxófónleikaranum Reggie
Dabbs kl. 20.00 næstkomandi
mánudagskvöld. Unglingar og
ungt fólk hvatt til að mæta.
Kristileg krakkasamtök næsta
föstudag kl. 17.15 og bæna-
samkoma kl. 20.00.
Málverkasýning
AÐALHEIÐUR S. Eysteinsdóttir
opnar málverkasýningu á Café Kar-
óíinu í dag, laugardaginn 24. sept-
ember. Sýningin stendurtil 29. októ-
ber næstkomandi.
EYJAFJÖRÐUR
Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
H O L T
Strandgötu 13, Akureyri, sími 96-21967.
Til sölu jörðin Mið-Samtún, Glæsibæjarhreppi, ásamt
1.500 kg. sauðfjárkvóta, heyvinnuvélum og húsakosti.
Einkasala. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Til sölu býlið Laugasteinn, Svarfaðardal, ásamt 5,0 ha
landi, 1,2 ha ræktaðir. Stórt íbúðarhús 250—300 m,
bílskúr 51,0 m, 10—15 hesta hesthús m/hlöðu.
Tónlistarfr æðingnr
flytur fyrirlestur
DANSKI tónlistarfræðingurinn Mogens Wenzel Andreasen flytur fyrirlestur
í Deiglunni á mánudagskvöld kl. 20.00 og er á vegum Tónlistarskólans á
Akureyri. Hann fjallar um þjóðlega tónlist danska tónskáldsins Carls Nielsens.
Mogens Wenzel Andreasen er
áhorfendum spumingakeppninnar
Kontrapunkts að góðu kunnur en hann
vakti þar athygli sem litríkasti mælsk-
asti og fróðasti meðlimur dönsku sveit-
arinnar og hressti oft upp á með orð-
heppni og kímnum tilsvörum.
í fyrirlestrinum mun hann bregða
ljósi á þjóðlega hlið risans í danskri
tóniistarsögu, hins þjóðernisróman-
tíska Carls Nietsen, m.a. í saman-
burði við samtímatónskáld í Dan-
mörku og hinum Norðurlöndunum.
Fyrirlesturinn er ætlaður almenn-
ingi og ekki miðaður við áheyrendur
með sérstaka þekkingu á tónlist.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
dönsku og sagt er að Andreasen sé
sérlega skírmæltur og því óþarfi að
láta hann fram hjá sér fara vegna
dönskufælni.
Sinfónían
með tónleika
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands er
nú á ferðalagi um Norðurland.
í dag verða tónleikar í íþróttahús-
inu á Sauðárkróki kl. 14 og í KA-hús-
inu á Akureyri kl. 21. Síðustu tón-
leikamir verða á Húsavík kl. 14 á
sunnudag. Hljómsveitarstjóri er aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, Osmo Vánská, en ein-
leikari er Sigrún Eðvaldsdóttir.
Efnisskráin er sú sama og verður
á fyrstu áskriftartónleikum hljóm-
sveitarinnar í Reykjavík að undan-
skildu verki Olivers Kentish, Mitt
fólk.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra afhjúpar skjöldinn á Oxna-
dalsheiði, sem settur var upp í tilefni áfangans.
Stórum áfanga í vegagerð fagnað
Bundið slitlag
milli norð-
urs og suðurs
STÓRUM áfanga í vegagerð var
fagnað í gær, við Sesseljubúð á Öxna-
dalsheiði og á Akureyri þegar Hall-
dór Blöndal samgönguráðherra opn-
aði með formlegum hætti samfellt
bundið slitlag frá höfuðborginni
Reykjavík og til höfuðstaðar Norður-
lands, Akureyrar. Við þennan áfanga
komast Húsvíkingar einnig á bundnu
slitlagi suður til Keflavíkur.
Stytti upp
Á Öxnadalsheiðinni gekk á með
slydduéljum en þegar ráðherrann,
forsvarsmenn Vegagerðarinnar og
fylgdarlið mætti á staðinn stytti
upp og var skjöldur sem Vegagerð-
in lét gera af þessu tilefni afhjúpað-
ur í ágætu veðri. Síðan var haldið
til Akureyrar þar sem efnt var til
kaffisamsætis í tilefni dagsins.
Fyrir aldarfjórðungi voru einungis
8 kílómetrar leiðarinnar komnir með
bundið slitlag, allir innan þéttbýlis í
Reykjavík eða á Akureyri. Árið 1980
voru 10% leiðarinnar með slitlagi en
það ár má segja að byijað hafi ver-
ið af krafti á þessu verkefni. Síðsum-
ars árið 1985 gátu menn ekið á slit-
Iagi á um helmingi leiðarinnar og
fimm árum síðar voru einungis 50
kílómetrar eftir, erfiðustu og kostn-
aðarsömustu kaflarnir þar sem end-
urbyggja þurfti veginn. Því verki
lauk síðla sumars og síðustu slitlag-
skaflarnir voru lagðir, annars vegar
um Bakkaselsbrekku og hins vegar
um Bólstaðarhlíðar- eða Botnastaða-
brekku, um 5 kílómetra á hvorum
stað.
í
i
í
c
i
I
í
i
<
(
1