Morgunblaðið - 24.09.1994, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1994 11
I
í
►
I
)
í
I
>
í
I
§
»
»
LAIMDIÐ
Fjársöfnun til
kaupa á sjákralyftara
Þórshöfn —
Skemmtun og kaffi-
sala var haldin fyrir
skömmu í félags-
heimilinu Þórsveri
og var ágóðanum
varið til kaupa á
sjúkralyftara fyrir
dvalar- og hjúkrun-
arheimilið Naust.
Frumkvæðið að
söfnuninni átti
Kristján Sigfússon
og fékk hann gott
fólk í lið með sér til
þess að hrinda mál-
inu í framkvæmd. Árangurinn lét
ekki á sér standa og fullt hús var í
félagsheimilinu og undirtekir góðar.
Margir vildu styrkja gott málefni og
lögðu margir sitt af mörkum, bæði
einstaklingar og fyrirtæki.
Styrkir voru í ýmsu formi; stór
fjárframlög bárust, konur bökuðu
fyrir skemmtunina og starfsfólk
Nausts gaf einnig sína vinnu. Hljóm-
sveit Kristjáns Sigfússonar, Félag-
arnir, spilaði ljúfa harmonikkumúsík
fyrir kaffigesti og það var einnig til
styrktar málefninu.
Söfnunin gekk vonum framar því
á þessum eina degi safnaðist nægileg
fjárhæð til kaupa á umræddum
sjúkralyftara en verð hans er um 270
þúsund krónur.
Sigrún Óskarsdóttir, hjúkrunar-
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
SIGRÚN Óskarsdóttir, hjúkrunarforstjóri á
Nausti, þakkar Kristjáni Sigfússyni, meðlimi
í hljómsveitinni Félögunum, fyrir framtakið.
forstjóri á Nausti, ogKristján Sigfús-
son voru að vonum ánægð yfir því
hversu vel söfnunin gekk. Áð sögn
Sigrúnar kemur sjúkralyftarinn í
góðar þarfir. Fyrir rúmliggjandi
sjúklinga er þetta þægilegri flutn-
ingsmáti og léttir einnig starfsfólki
vinnuna og flutti Sigrún Kristjáni
bestu þakkir fyrir frumkvæðið fyrir
hönd dvalarheimilisins.
Aukið félagsstarf
Dvalarheimilið Naust er til húsa í
gömlu heilsugæslustöðinni. Þar fer nú
fram félagsstarf aldraðra en að sögn
Sigrúnar hefur verið sótt um leyfí fyr-
ir fleiri vistrýmum til ráðuneytisins og
segir hún mjög brýnt að þau leyfi
fáist. Einnig verður aðstaða til dagvist-
unar og skammtímavistunar.
Handknattleikslandslið framtíðarinnar í æfingabúðum á Þorlákshöfn
OPIÐ HÚS
BARMAHLÍÐ - SÉRHÆÐ
Góð 4ra herb. íbúð á 2. hæð í fjórbhúsi ásamt bílskúr. Töluvert end-
urnýjuð eign. Opið hús laugardag kl. 16-18.
Upplýsingarísíma 50386 eða hjá Valhús, sími 651122 millikl. 11 og 13.
30 dreng-
ir æfðu
stíft
OPIÐIDAG11-14
DALSBYGGÐ 15 EINB.
GLÆSILEG EIGN
Ca 250 fm einbhús á einni og
hálfri hæð m. innb. tvöf. bílsk.
Húsið stendur á mjög góðum
stað í lokaðri botnlangagötu.
Suðvesturgarður og verönd. 4-5
svefnh. Vandaðar eikarinnr.
Parket og flísar á gólfum. Fallegt og vel byggt hús. Áhv. húsbr. til 25
ára með 5,75% vöxtum ca 9,0 milli. Verð 16,5-16,9 milli. 3932.
FUNAFOLD - EINBÝLI
Vorum að fá í einkasölu glæsil.
239 fm einb. ásamt 38 fm bílsk.
Húsið er fullb. á vandaðan hátt
og er mjög vel staðsett neðan
við götu í botnlanga. 4-5 svefn-
herb. Fallegt útsýni. Til greina
koma skipti á ód. Áhv. 4,8 millj.
hagst. lán. Verð 17,5 millj. 3906.
KRÓKABYGGÐ - MOS. - BYGGSJ. 5.100 ÞÚS.
Nýlegt raðhús 103 fm á einni hæð. Tvö rúmg. svefnherb. Sér bílast. og
sérlóð. Verð aðeins 8,4 millj. Mjög ákveðin sala. 3697.
FURUBYGGÐ - GLÆSILEG. Vorum að fá í einkasölu glæs-
il. fullb. raðhús 110 fm m. sérl. vönduðum innr. Áhv. húsbr. 5,3 millj.
Verð aðeins 8,8 millj. 3549.
VANTAR RAÐHÚS - FANNAFOLD/FUNAFOLD.
Vantar raðhús f. traustan kaupanda. á ca 10-11 millj. m. bílskúr. Nánari
uppl. veitir Bárður Tryggvason.
Þorlákshöfn - Handboltaskóli HSÍ
fyrir drengi fædda 1980 var í Þor-
lákshöfn um síðustu helgi. Alls voru
mættir um 30 drengir úr 12 félögum.
Æfingár voru mjög stífar og stóðu
frá föstudagskvöldi fram á sunnu-
dag. Leiðbeinendur í skólanum voru
Heimir Ríkharðsson, þjálfari U-16
landsliðs, Guðmundur Sigfússon, að-
stoðarþjálfari, Þorbergur Aðalsteins-
son, landsliðsþjálfari, Einar Þorvarð-
arson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, og
Gunnar Kjartansson, alþjóðadómari
í handknattleik.
Heimir sagði að nú væri aftur
farið að leggja meiri áherslu á ung-
lingastarfið og hugað að landsiiði
framtíðarinnar. Þessi hópur var val-
inn í vor. Forráðamenn félagsliðanna
tilnefndu nokkra leikmenn sem
mættu í æfingabúðir og úr þeim
hópi var svo valinn þessi 30 manna
kjarni. Fyrirhugað er að fjölga eitt-
hvað í hópnum.
Þorbergur Aðalsteinsson sagði i
sínum fyrirlestri frá því hvernig upp-
byggingu landsliðsins væri háttað
og hvernig þessi hópur kemur inn í
þá mynd. Upp úr aldamótum verða
þessir drengir uppistaða U-21 árs
landsliðsins og jafnvel sumir komnir
í A-Iandsliðshópinn.
Erfiðar æfingar
Auðunn Jóhannsson, annar fulltrúi
heimamanna í hópnum, sagði að
þessi helgi væri búin að vera ansi
erfið, margar góðar æfingar og fyrir-
lestrar. Hann var ekki í nokkrum
vafa um að þessar landsliðsæfíngar
yngri flokkana og fyrirhuguð þátt-
taka í mótum kæmi til með að efla
handboltann verulega. Samkeppnin
í félögunum hefur aukist og strák-
arnir verða að sýna metnáð og vinna
vel til að halda sér í hópnum. „Fyrir
okkur í Þorlákshöfn, sem erum til-
tölulega ungir í handboltanum, er
það að fá handboltaskólann hingað
alveg ómetanlegt.
Gimli, fasteignasala,
Þórsgötu 26, sími 25099.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
LANDSLIÐSMENN framtíðarinnar í æfingabúðum í Þorlákshöfn ásamt þjálfurum sinum, Heimi
Ríkharðssyni, vinstra megin við hópinn, og Guðmundi Sigfússyni, hægra megin.
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
SUNDLAUGIN er í fullri notkun og mikið buslað.
Bjarnarfj örður
Fjölmenni á réttarballi
Laugarhóli - Réttað var í Skarðs-
rétt í Bjarnafirði á Ströndum um
síðustu helgi og þá strax á eftir
haldið réttarball á Laugarhóli.
Mætti þar til leik á annað hundrað
manns.
Sundnámskeið hafa staðið frá
septemberbyrjun og verða fram í
nóvember en þá verður fermingar-
barnamót haldið þar.
Það var fjölmennt í Bjarnarfirði
helgina 16.-18. september sl. En
þá fór fram fyrsta leit að fé á af-
réttinum allt frá Selárdal norður í
Kaldbak. Réttar var í Skarðsrétt á
bökkum Bjarnarfjarðarár. Um
kvöldið var svo haldið réttarball á
Laugarhóli og mættu þar yfir eitt
hundrað manns sem er óvenju fjöl-
mennt. Skólahaldi er nú lokið á
Laugarhóli en þó hefur verið mikil
starfsemi í húsinu.
í haust hófust svo sundnám-
skeið um mánaðamótin ágúst-sept-
ember. Fyrst voru námskeið fyrir
Drangsnesskóla fram til 10. sept-
ember. Þá hófust námskeið fyrir
Grunnskólann á Hólmavík 12.
september og standa þau til 4.
október.
Fyrstu helgina í nóvember koma
svo sóknarprestar sýslunnar sam-
an á Laugarhóli með fermingar-
börn næsta vors til kennslu og
kynningar. Verður þá heimavistin
og kennslustofur í fullri notkun.
Aukin þjónusta í verslun
Þorlákshöfn - Þrjár nýj-
ar verslanir voru opnað-
ar í Þorlákshöfn nánast
sama daginn. Einnig hóf
starfsemi sína ný hársn-
yrtistofa.
Skipaþjónusta Suður-
lands, sem rekið hefur
verslun með veiðarfæri,
vinnu-, regn-, útifatnað
og íþróttaskó, hefur nú
fært úr kvíarnar. Þar er
nú lögð áhersla á barna-
og unglingafatnað og á
boðstólum eru mörg
þekkt merki, að sögn
Onnu Lísu Gunnarsdótt-
ur, nýráðins verslunar-
sljóra. Nýja verslunin
hefur hlotið nafnið Jasm-
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
HELGA Halldórsdóttir, hárskeri, í
hársnyrtistofunni Ars.
Stoð sf., sem fram að
þessu hefur rekið bygginga- og
matvöruverslun, hefur líka
stækkað við sig og býður nú fjöl-
breyttar tískuvörur og betri
klæðnað ásamt vísi að skóverslun
sem ekki hefur verið til í Þorláks:
höfn fyrr. Anna Berglind Júlíus-
dóttir, nýráðinn verslunarstjóri,
sagði að viðbrögð fólks hefðu
verið góð og salan færi vel af
stað.
Beint á móti heitir enn ein
verslunin sem opnuð var í síðustu
viku. Eigendur eru Stefán Guð-
mundsson og Hlif Ragnarsdóttir,
sem einnig rekur hársnyrtistof-
una Hárnýjung. Beint á móti býð-
ur upp á blóm, gjafavöru, barna-
föt og fleira.
Helga Halldórsdóttir, hár-
skeri, opnaði nýlega nýja hársn-
yrtistofu sem heitir Ars. Helga
vann áður á Rakarastofu Þóru
Gríms, sem nú hefur hætt rekstri.
EIGNAHÖLLIN
FASTEIGNASALA
Suðurlandsbraut 20
68 OO 57
Opið 11-14 laugardag
og sunnudag
Hæðargarður. 97 fm efri
sérhæð í Smaíbúðahverfi. Leyfi
til að lyfta þaki. Gott parket á
stofum. Nýl. eldhinnr., nýl. gler.
Laus. Lyklar á skrifst.
Kaplaskjólsvegur. 2ja
herb. íb. á 2. hæð með bílskýli.
Laus. Áhv. byggsj. 3,4 millj.
Þingholtin - miðbær. 74
fm 3ja herb. falleg íb. í gamla
stílnum á 3. hæð í vel byggðu
steinhúsi. Ennfremur stúdíóíb.
á sömu hæð. Eignask. mögul.
Blöndubakki. Góð 4ra herb.
íb. á 3. hæð. Stórt herb. í kjall-
ara fylgir með aðg. að snyrt-
ingu. Hagstætt verð. Laus
strax.
Víðimelur. Góð íb. 130 fm.
Allt nýtt. Falleg eign á einum
besta stað í Vesturbænum.
Verð 10,8 millj.
Höfum kaupanda
Vantar góða eign 4ra-5 herb.
með bílskúr í Þingholtunum
Helst nálægt Skólavörðuholti á
verðb. 10,5-11 millj. Staðgr.
Erum að leita. að 3ja herb.
íb. á Melunum eða Högunum.
Góð útb. Verðhugm. 7,4 millj.
Símon Ólason hdl.,lögg. fastsali.
Hilmar Viktorsson viðskfr.
Kristín Höskuldsdóttir, ritari.
Brímir SU til
Djúpavogs
Djúpavogi-Rækjuskipið
Brímir SU 383 kom þriðjudag-
inn 20. september sl. tii
Djúpavogs. Skipið var keypt
frá Brjánslæk og hét áður
Guðmundur Guðjónsson.
Stærð skipsins er 225 tonn
og er það knúið 900 ha. vél
af tegundinni Grená, smíðað
í Fredrikshavn 1070. Eigandi
er Sigurnes hf., Djúpavogi.
Það er búið vélum til rækju-
frystingar og því fylgir 300
tonna rækjukvóti. Skipstjórar
verða Hallgrímur Guðmunds-
son og Sigurður Ingimarsson.
Skipið fór á veiðar miðviku-
daginn 21. september.