Morgunblaðið - 24.09.1994, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1994 13
VIÐSKIPTI
Símayfirvöld
Notenda-
búnaður
hlutí síma-
þjónustu
„NOTENDABÚNAÐUR er að okkar
mati nánast óaðskiljanlegur hluti af
símaþjónustu. Þetta er ekki einungis
okkar skoðun heldur er þetta al-
mennt viðhorf í heiminum. Það er
nánast óþekkt að símafyrirtæki selji
ekki símabúnað," sagði Guðmundur
Björnsson, aðstoðarpóst- og síma-
málastjóri, aðspurður um hvaða rök
væru fyrir því að stofnunin selji yfír-
leitt notendabúnað. Eins og komið
hefur fram úrskurðaði Samkeppnis-
ráð um fjárhagslegan aðskilnað milli
söludeildar notendabúnaðar og Pósts
og síma og þeirrar starfsemi sem
nýtur einkaleyfísverndar.
Hrefna Ingólfsdóttir, blaðafulltrúi
Pósts og síma bætti því við að sala
á notendabúnaði væri liður í þeirri
stefnu stofnunarinnar að bjóða heild-
arlausnir fyrir sína viðskiptavini.
I Þessi þjónusta væri einnig mikilvæg
fyrir íbúa á landsbyggðinni sem
gætu keypt bæði síma- og faxbúnað
á öllum pósthúsum. Benti hún jafn-
framt á að erlendum símafyrirtækj-
um væri heimilt að selja notendabún-
að ef þau myndu ákveða að setja
upp útibú hér á landi.
Einkaréttur Pósts og síma í sölu
á notendabúnaði var afnuminn árið
1984 og hefur stofnunin því keppt
við einkafyrirtæki á þessu sviði um
tíu ára skeið. „Tilvist Pósts og síma
; hefur tryggt raunverulega sam-
keppni á markaði fyrir notendabún-
að. Eg tel að verðið á þessum bún-
aði væri hærra ef Póstur og sími
væri ekki á markaðnum. Þegar far-
. símakerfið var sett á fót var tekin
ákvörðun um að Póstur og sími seldi
ekki farsíma. Þegar við fengum leyfí
til að selja farsíma tveimur árum
seinna skilaði sér loksins hingað sú
verðlækkun sem hafði orðið -í ná-
grannalöndunum," sagði Hrefna Ing-
ólfsdóttir.
Húsnæðisstofnun
Rekstrar-
kostnaður
minnkaði
um 10%
REKSTRARKOSTN AÐUR Hús-
næðisstofnunar ríkisins nam samtals
400 millj. kr. á árinu 1993 á verðlagi
þess árs og hafði minnkað um 10%
frá árinu þar á undan. Kom þetta
fram í erindi, sem Sigurður E. Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri stofn-
unarinar, flutti á ársfundi hennar í
gær. Að frádregnum þjónustutekjum
nam rekstrarkostnaðurinn hins vegar
aðeins 177 millj. kr. og hefur ekki
verið lægri frá því fyrir árið 1985.
Sigurður kvað ýmsar ástæður vera
fyrir minni rekstrarkostnaði. í fyrsta
lagið hefði rekstur Húsnæðisstofnun-
arinnar færzt í eðlilegt horf á síð-
ustu árum eftir mjög dýrarar og
umfangsmiklar breytingar á hús-
næðiskerfí landsmanna hvað eftir
annað á umliðnum árum.
í máli Sigurðar kom einnig fram,
að bein peningalán Húsnæðisstofn-
unarinnar hefðu numið 4.809 millj.
kr. í fyrra, sem jafngilti 23% raunvirð-
islækkun miðað við árið þar á undan.
Húsbréfalán hennar námu hins vegar
12.016 millj. kr. Samtals námu þessar
lánveitingar því 16.825 millj. kr., sem
jafngilti tæplega 13% raunvirðislækk-
un frá árinu á undan. Lán þessi voru
veitt til byggingar eða kaupa á sam-
tals 4989 íbúðum og væri þar um
tæplega 20% fækkun að ræða.
GRAFlSK HONNUN: MERKISUENN HF.