Morgunblaðið - 24.09.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1994 17
ERLENT
Adams fær
áritun
London. Reuter.
GERRY Adams, leiðtogi Sinn Fein,
stjómmálaarms írska lýðveldishers-
ins, IRA, mun fá vegabréfsáritun til
Bandaríkjanna og hyggst hann fljúga
vestur í dag. John Major, forsætisráð-
herra Bretlands, segir hugsanlegt, að
viðræður við Sinn Fein hefjist fyrir
jól verði vopnahléið virt.
Talsmaður bandaríska sendiráðsins
í London sagði, að Adams fengi árit-
unina í Belfast en hann ætlar að fara
til níu borga í Bandaríkjunum til að
afla stuðnings við kröfuna um sam-
einað írland.
Breska stjómin hefur verið því
andvíg, að Adams fengi vegabréfs-
áritun ti! Bandaríkjanna en Major
forsætisráðherra sagði í gær á leið
frá Suður-Afríku, að Sinn Fein hefði
staðið við vopnahlésyfírlýsinguna enn
sem komið væri og hugsanlega hæf-
ust viðræður við samtökin fýrir jól.
Reuter
Norska Alþýðusambandið gegn ESB-aðild
Áfall fyrir Brundt-
land og stjórnina
Ósló. Morgunblaðið.
LANDSÞING norska Alþýðusam-
bandsins samþykkti í fyrradag að
mæla gegn aðild að Evrópusam-
bandinu, ESB, með naumum meiri-
hluta. Er samþykktin verulegt áfall
fyrir Gro Harlem Brundtland for-
sætisráðherra en andstæðingar
ESB-aðildar fagna henni sem mikil-
vægum sigri.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunn-
ar, 156 á móti aðild og 149 með,
er einnig mikill ósigur fyrir forystu
Alþýðusambandsins, sem er hlynnt
aðild, en forseti þess, Yngve Haag-
ensen, hét að fylgja henni í hví-
vetna. Brundtland reyndi þó að
bera sig vel og þegar hún var spurð
hvort ekki væri erfitt fyrir Verka-
mannaflokksstjórn að vera í and-
stöðu við Alþýðusambandið þá
sagði hún, að svo væri ekki. Um
aðild að ESB yrði skorið úr í þjóðar-
atkvæðagreiðslu, annars staðar
ekki.
Brundtland sagði, að það hefði
alltaf verið ljóst, að innan Alþýðu-
sambandsins skiptust menn í tvær
fylkingar og þessi niðurstaða hefði
í raun ekki breytt myndinni neitt.
Kvaðst hún viss um, að úrslit þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar í Finnlandi
og Svíþjóð myndu hafa miklu meiri
áhrif á afstöðu Norðmanna.
í skoðanakönnunum kemur fram,
að verulegur meirihluti norskra
kjósenda er andvígur ESB-aðild en
sé gengið út frá, að Finnar og Svíar
samþykki hana þá dregur mikið
saman með fylkingunum.
Brundtland sagði í fýrradag, að
segðu Finnar og Svíar já við aðild
en Norðmenn nei, væri samningur-
inn um Evrópska efnahagssvæðið
í uppnámi. Ákvæði um greiðslur eða
kostnað við hann, stofnanaþáttinn
og skyldur einstakra ríkja myndu
þá gjörbreytast og semjar yrðu um
allt upp á nýtt.
Þjóðaratkvæði
um kynþátta-
frumvarp
SVISSLENDINGAR efna til þjóð-
aratkvæðagreiðslu á morgun,
sunnudag, um stjórnarfrumvarp
sem kveður á um bann við kyn-
þáttamismunun, áróðri gegn inn-
flytjendum og afneitun helfarar
þýskra nasista gegn gyðingum.
Efri deild þýska þingsins sam-
þykkti svipuð lög í gær. Stuðn-
ingsmenn frumvarpsins óttast að
Svisslendingar muni láta óánægju
sína með mikinn fjölda útlendinga
í landinu og vaxandi atvinnuleysi
í ljós með því að hafna frumvarp-
inu. Myndin er af veggspjaldi frá
stuðningsmönnum frumvarpsins,
en á því stendur: „Maður er mað-
ur, er maður, er maður.“
Spenna vegna hátíða-
halda zulu-manna
Mandela
óttast
blóðsót-
hellingar
Höfðaborg. Reuter.
NELSON Mandela, forseti Suður-
Afríku, óttast að mannskæð átök
blossi upp milli stríðandi fylkinga
zulu-manna um helgina vegna fyr-
irhugaðra hátíðahalda í KwaZulu-
Natal til heiðurs Shaka konungi, sem
stofnaði ríki zulu-manna á nítjándu
öld. Her Suður-Afríku er með mikinn
viðbúnað í KwaZulu-Natal til að af-
stýra blóðsúthellingum.
Stjórn Inkatha-frelsisflokksins í
KwaZulu-Natal hefur ákveðið að
efna til hátíðahaldanna þrátt fyrir
andstöðu Goodwills Zwelithinis, kon-
ungs zulu-manna, sem hefur rofið
tengsl sín við leiðtoga flokksins,
zulu-höfðingjann Mangosuthu But-
helezi. Svo virðist sem konungurinn
sé að snúast á sveif með Afríska
þjóðarráðinu (ANC), flokki Mandela.
Buthelezi, sem er. innanríkisráð-
herra í stjórn Mandela, sagði á
stormasömum fundi á þingi Suður-
Afríku í fyrradag að aðeins þing
KwaZulu-Natal gæti aflýst hátíða-
höldunum. Inkatha-frelsisflokkurinn
er með meirihluta á þinginu.
Buthelezi kvaðst ekki búast við
átökum vegna hátíðahaldanna.
Valdabaráttan meðal zulu-manna
hefur kostað meira en 10.000 manns
lífið undanfarinn áratug, en dregið
hefur úr ofbeldinu eftir fyrstu þing-
kosningarnar með þátttöku allra
kynþátta í Suður-Afríku í apríl.
Rússneski kiarnorkuheraflinn verður fyrir óveniulegum innheimtuaðgerðum
Moskvu. The Daily Telegraph.
MIKIÐ írafár varð innan Kremlar-
múra á fimmtudag, er starfsmaður
rafmagnsveitna hins opinbera
skrúfaði fyrir rafmagn til höfuð-
stöðva kjarnorkuheraflans vegna
vangoldinna rafmagnsreikninga.
Viktor Tsjernomyrdín forsætisráð-
herra brást æfur við og krafðist
þess að starfsmanninum yrði refs-
að. Rafmagnsveiturnar hefðu
gengið allt of langt í innheimtuað-
gerðum sínum og þættust „vera
heilagri en páfínn".
Reikningur kjarnorkuheraflans,
sem eru í Odintsovo, skammt frá
Moskvu, hljóðar upp á sem svarar
450 milljónum ísl. kr. Er rafmagn-
ið var tekið af höfuðstöðvunum
Rafmagn tekið
af heraflanum
fóru tvær varaaflstöðvar þegar í
gang og mun þetta því ekki hafa
haft áhrif á varnir landsins. Tals-
maður heraflans sagði hins vegar
að aðgerðir á borð við þessa gætu
haft í för með sér alvarleg vanda-
mál við stjórn kjarnorkuvopnanna.
Rafmagni var komið á að níutíu
mínútum liðnum eftir að yfirmaður
heraflans hafði látið í sér heyra.
Niðurskurður til
varnarmálaráðuneytis
Vamarmálaráðuneytið er ein
skuldseigasta stofnun Rússlands.
Hefur hún ekki greitt neina raf-
magnsreikninga frá því í janúar og
í Moskvu einni er reikningurinn kom-
inn upp í sem svarar 1,8 milljarði
punda. Margir skuldareigendur
vamarmálaráðuneytisins vildu
gjaman segja því til syndanna enda
eiga þeir sjálfír í miklum fjárhagserf-
iðleikum vegna skulda ráðuneytisins.
Aðeins rafweitumar hafa hins vegar
lagt í það. Á tímum Sovétríkjanna
tilheyrðu yfírmenn vamarmálaráðu-
neytisins yfírstéttinni en nú em aðr-
ir tímar og framlög til vamarmála
hafa verið skorin mikið niður.
Talið er að lokunin verði til að
auka enn frekar áhyggjur manna
af því hvort Rússar séu færir um
að verja kjarnavopn sín og aðra
staði þar sem geislavirk efni er að
finna. Þær jukust mjög vegna
nokkurra tilrauna til að smygla
geislavirkum efnum frá Rússlandi
til Þýskalands í sumar.