Morgunblaðið - 24.09.1994, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Hjartansþakkir sendum viö öllum þeim sem
glöddu okkur með heimsóknum, gjöfum og
kveÖjum í tilefni af sextugs afmœlum okkar.
LifiÖ heil.
Guðrúrt Helgadóttir,
Erlingur Loftsson,
Sandlæk.
Víkur Vagnar kynna:
Olíufyllta rafmagnsofna í miklu úrvali
fyrir heimili og sumarhús.
Höfum einnig loftviftur á frábæru verði.
Takmarkað magn.
Komið og skoðið úrvalið hjá okkur.
Höfum sýningu í dag 24. sept. frá kl. 10-16.
Verið velkomin.
Víkur Vagnar
Síðumúla 19, sími 684911.
100% hágæðabómull ★ 2ja ára ábyrgð
Schiesser®
N Æ R F Ö T
Það besta næst þérl
HAGKAUP í
KRINGLUNNI
Heildsölubirgðir: Davíð S. Jónsson & Co. hf. sími 91- 24333
I DAG
SKÁK
llm.sjón Margcir
Pétursson
ÞESSI staða kom upp á
stórmóti Credit Suisse
bankans í Horgen í Sviss
um daginn. Gary Ka-
sparov (2.808 - áætluð
stig) hafði hvítt og átti leik
en Artur Jusupov (2.655)
var með svart og lék síðast
31. - Hf8-c8.
Sjá stöðumynd
32. Dxc8+! - Bxc8, 33.
Hb8 - Rg8 (Eftir 33. -
g6, 34. Hxc8+ - Kg7, 35.
Hc7! - Dxc7, 36. Re8+ tap-
ar svartur drottningunni)
34. Hxc8 - Da7, 35. Kh2
HÖGNIHREKKVÍSI
- De7, 36. He8 og Jusupov
gafst upp, því ef hann víkur
drottningunni undan leikur
Kasparov 37. Bd5. Loka-
staðan á stórmótinu í Horg-
en: 1. Kasparov 8V2 v. af
11 mögulegum, 2.-3. Ju-
supov og Shirov 7 v. 4.-5.
Lautier og Kortsnoj 6 'h v.
6. Gelfand ö'A v. 7. Leko 5
v. 8.-9. Nikolic og Benjam-
in 4‘A v. 10.-11. Miles og
Lutz 4 v. 12. Gavrikov 3 v.
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Kettir eru ekki
einu ofnæmis-
valdamir
KONA hringdi og sagði
að það væri mikill mis-
skilningur hjá fólki að
kettir væru aðalofnæm-
isvaldar á heimilum.
Kattahár geta vissu-
lega valdið ofnæmi, en
þau eru yfirleitt ekki
eina ástæðan fyrir því
að fólk verður vart við
ónot. Það eru svo ótal-
mörg önnur atriði sem
valda viðkvæmu fólki
ofnæmi svo sem teppi,
blóm, fræ og jafnvel lyf
sem fólk tekur.
Flestaliir hafa ofnæmi
fyrir einhverju, en
ónæmiskerfi líkamans
heldur því niðri að vissu
marki. Þegar margir
áhættuþættir blandast
saman aukast líkurnar á
að ofnæmið komi í ljós.
Þessu má líkja við
mæliglas. Við getum
gefið okkur að þegar fjó-
korn er sett í glasið fyll-
ist það til hálfs. í það
er svo bætt húsaryki og
fyllist þá glasið að tveim-
ur þriðju. Þegar fleiri
þættir eru settir í það
hækkar meir og meir í
glasinu, og sé haldið
áfram flæðir á endanum
út úr því.
„ Eins er því varið með
líkamann og ofnæmi.
Líkaminn er eins og
hvert annað ílát sem
flæðir út úr þegar of
mikið er sett í það.
Því getur verið alveg
jafn áhrifaríkt að fjar-
lægja teppi, gluggatjöld
sem íyk safnast í, eða
blóm af heimilum, en
sleppt því að farga kett-
inum, sé vart við ofnæmi
á heimilinu.
Kona þessi vildi líka
taka fram að fólki bæri
að hugsa vel um dýrin,
enda gæti því hefnst fyr-
ir að níðast á málleys-
ingjunum.
Tapað/fundið
Hálsfesti fannst
GULLFESTI fannst í
veitingastofunni í Grens-
ásbæ sl. fimmtudags-
inorgun. Upplýsingar á
staðnum eða í síma
681747.
Lyklakippa fannst
LYKLAKIPPA með fjór-
um lyklum og litlum skó
fannst við rörið á Nesja-
vallaveginum fyrir rúmri
viku. Upplýsingar í
31089.
Úlpa tapaðist
BLEIK glæný telpnaúlpa
á ca níu ára tapaðist
fyrir helgi við Öldusels-
skóla eða nágrenni. Skil-
vís flnnandi vinsamlega
hafí samband í síma
670443.
Hamstrabúr
EF EINHVER þarf að
losna við hamstrabúr þá
þigg ég það.
Upplýsingar í síma
666848. Rebekka.
Kettlingnr óskast
ÓSKA eftir kettlingi,
helst læðu. Upplýsingar
í síma 650302.
FJÖLNIR SÆMUNDS-
SON, ÖLDUGÖTU 35,
HAFNARFIRÐI.
Pennavinir
FJÓRTÁN ára pólskur pilt-
ur með mikinn landafræðiá-
huga og þar er ísland efst
á blaði:
Maeiej Banianewski,
ul. Kusociriskiego 17/29,
88-100 Inowroclaw,
Poland.
Víkveiji skrifar...
Starf stjórnmálamanns er oft
erilsamt og menn geta þurft
að bregðast við óvæntum uppákom-
um. Halldór Blöndal samgÖnguráð-
herra hefur þurft að klippa á marg-
an borðann í sínu starfl og þurft
hefur að sjá til þess að borðaklipp-
ingar stönguðust ekki á við önnur
mikilvæg verkefni ráðherrans. Vík-
verji fregnaði að það hefði þess
vegna orðið uppi fótur og fit í sam-
gönguráðuneytinu þegar vegagerð-
armenn luku lagningu bundna slit-
lagsins um Bólstaðarhlíðarbrekku
tveimur dögum á undan áætlun.
Ráðherrann brá hins vegar við
skjótt og var kominn norður á
nokkrum klukkutímum til að aka
fyrstur síðasta spottann, sem lagð-
ur er bundnu slitlagi á leiðinni milli
Reykjavíkur og Akureyrar.
xxx
Frétt í Morgunblaðinu í gær
vakti athygli Víkverja. Sagt
var frá því að fyrsti sumarbústaður-
inn hefði verið endurreistur í
Tungudal, þar sem snjóflóð eyddu
sumarbústaðabyggð Isfirðinga í
vor, einni viku og tveimur klukku-
tímum eftir að byggingarleyfið
fékkst. Það er ekki að spyrja að
hörku og dugnaði Vestfirðinga þótt
á móti hafi blásið.
xxx
Símaþjónustan einn+einn, sem
auglýsir stíft „stelpur eru í
strákaleit — strákar eru í stelpu-
Ieit“ virðist reyna að höfða til ungl-
inga fremur en þeirra, sem komnir
eru á fullorðinsár. Það skal ekki
dregið í efa að hjónabandsmiðlun
eða „stefnumótaþjónusta“ í gegn-
um síma getur átt rétt á sér. Hins
vegar þjónar hún einkum tilgangi
sínum í stærri þjóðfélögum, þar sem
mannleg samskipti eru af öðrum
toga en í smábæjarsamfélaginu í
Reykjavík. Þeir, sem notfæra sér
slíkt, eru þá yfirleitt fólk, sem vinn-
ur mikið og fer lítið út að skemmta
sér eða á fáa félaga í stórborginni.
Unglingar hafa hins vegar sínar
leiðir til að kynnast hinu kyninu —
í partíum, á skemmtistöðum, á rúnt-
inum eða í skólanum.
xxx
Foreldrar unglinga á gelgju-
skeiði hafa tjáð Víkverja að
þessi stefnumótaþjónusta sem rekin
er í gegnum sima virðist fyrst og
fremst til þess ætluð að plokka
peninga af unglingum, sem liggi í
símanum sér til skemmtunar. Fleiri
og fleiri grípi því til þess ráðs að
láta loka síma sínum fyrir samtölum
í númer, sem byija á 99 — og kost-
ar 40 krónur á mínútu að hringja
í. Eitthvað mun vera um að foreldr-
ar séu farnir að bindast samtökum
um slíkt, enda gefst slíkt oft vel,
líkt og varðandi reglur um útivistar-
tíma ungu kynslóðarinnar.