Morgunblaðið - 06.11.1994, Qupperneq 1
£|J MMU £
SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 BLAÐ B
Börnin settu jafnan svip á heimsóknir forsetans Georgia og Sveinn Björnsson ó efri órum Íbúar á Neskaupslað fogno þjóðhöfðingjanum
ÞRIR STUTTIR KAFLAR UR ÆVISOGU
• •
SVEINS BJORNSSONAR
FORSETA EFTIR GYLFA GRÖNDAL
Forlagið sendir nú frá sér ævisögu
Sveins Björnssonar forseta eftir
Gylfa Gröndal, en hann tiefur áður
skrifað bækur um forsetana Kristján
Eldjárn og Ásgeir Ásgeirsson.
Sveinn Björnsson er sannkallaður
brautryðjandi, og fáir hafa gerst
frumkvöðlar á jafn mörgum og mikil-
vægum sviðum í íslensku þjóðlifi.
Hann hafði forystu um stofnun ís-
lenskra þjóðþrifafyrirtækja, eins og
til dæmis Eimskipafélags íslands;
hann vai- annar tveggja fyrstu
hæstaréttarlögmanna hér á landi;
hann var fyrsti og lengi eini sendi-
herra íslands; hann var ríkisstjóri —
og loks fyrsti forseti íslands. Slíkur
maður hlýtur að skipa háan sess í
sögu þjóðarinnar.
Morgunblaðið birtir hér á eftir þijá
stutta kafla úr sögu Sveins Bjömsson-
ar frá þremur skeiðum ævi hans: Frá
þeim tíma er hann var ungur lögfræð-
ingur í Reykjavík, frá sendilterraárum
hans og loks forsetatíð;
Á tímabili heimastjórnar hefst öld
framfara og nýjunga á íslandi. Sam-
tímis eru bláðadeilur illvígari og per-
sónulegri en löngum fyrr og síðar,
og málaferli vegna meiðyrða þar af
leiðandi tíðari.
Björn ritstjóri hefur í hendi sinni
einn beittasta penna landsins, svo
að ekki líður á löngu, þar til Sveinn
Björnsson fær það hlutverk að ann-
ast slík mál fyrir hönd föður síns.
Þorsteinn Gíslason, ritstjóri Lög-
réttu, er ekki síður hvassyrtur í skrif-
um sínum en Björn í ísafold. Hinn
19. febrúar 1908 skrifar hann eftir-
farandi í blað sitt um skáldið Guð-
mund Friðjónsson frá Sandi:
„Hann er að verða einhver leiðasti
blekbullari landsins. Hann ræpir og
ræpir hvar sem hann kemst að, bull-
ar og bullar út í allt, hvort hann ber
nokkuð skynbragð á það eða ekki
neitt. Tvær greinar flutti „Eimr.“
nýlega eftir hann um dána merkis-
menn, hvort bullið öðru verra, nema
það sem var tínt upp eftir öðrum.
Og „Skírnir" flutti eina nýlega litlu
betri. Þó tekur blaðavaðall hans út
yfir allt. Þarna tvístígur hann í „ísa-
fold“ og_„Norðurlandi“, hleinagleiður
SJÁ BLS. 2