Morgunblaðið - 26.11.1994, Page 1
80 SIÐUR LESBOK/C/D
271.TBL.82.ÁRG. LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sveinki
heimsækir
Haítí
JÓLASVEINAR eru
óvenju snemma á ferðinni
en þeir eru komnir á kreik
í Karíbahafi. Heimsótti
einn slíkur bandarískar
hersveitir á Haítí í gær.
Snjór sést aldrei þar í
landi og því ekki hægt að
brúka hestasleða. Her-
jeppi kom því að góðum
notum en myndin var tek-
in er sveinki ók inn í
Warrior-herstöðina í
Port-Au-Prince.
Sókn Serba að Bihac
veldur ofsahræðslu
Zagreb. Reuter.
Reuter
OFSAHRÆÐSLA greip um sig
meðal íbúa Bihac-borgar í gær þeg-
ar serbneskir hermenn héldu áfram
sókn sinni að „griðasvæðinu" um-
hverfís hana. Aðeins 300 múslimsk-
ir hermenn eru eftir í borginni til
að verja hana.
Sjúkrahúsið í Bihac er fullt af
særðu fólki og engin matvæli eru
lengur fáanleg á mörkuðum og í
verslunum. Enginn hættir sér leng-
ur út á göturnar og fólk grætur af
ótta á heimilunum, að sögn Monique
Tuffelli, starfsmanns Flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna sem
var í miðborginni í gærmorgun.
Spenna gífurleg
„Allt er með kyrrum kjörum í
miðborginni en spennan er gífur-
leg,“ sagði hún. „Fólkið er örvænt-
ingarfullt, grætur og lætur tilfinn-
ingar sínar ákaft í ljós.“
Bosnískir stjómarhermenn sögðu
að íbúar þorpa í grenndinni væru
að flýja til Bihac-borgar og lík lægju
eins og hráviði um vegina. Talið er
að um 70.000 manns séu í borginni.
Sir Michael Rose, yfirmaður frið-
argæsluliðs Sameinuðu þjóðanna,
sagði að vopnahlé hefði tekið gildi
á svæðinu í gærmorgun. Haris
Silajdzic, forsætisráðherra Bosníu,
sagði að serbneskar hersveitir
hefðu þó hafið árásir á Bihac að
nýju.
Flugvélar NATO sveimuðu yfír
Bihac í gærkvöldi vegna sprengju-
árása Serba á borgina en gripu þó
ekki til loftárása á stöðvar þeirra.
■ Tillögunum vísað til/24
Major
íhugar
þjóðar-
atkvæði
London. Daily Teiegraph.
JOHN Major forsætisráðherra og
ríkisstjórn íhaldsflokksins íhuga að
efna til þjóðaratkvæðis um afstöðu
Breta til Evrópusambandsins (ESB)
til þess að sameina flokkinn á ný.
Ihaldsmenn hafa verið andvígir
þjóðaratkvæði en hugmyndin er nú
rædd ítarlega á bak við tjöldin vegna
tilrauna Majors og forystumanna í
þingliði flokksins til að koma í veg
fyrir að frumvarp stjórnarinnar um
aukin útgjöld til ESB verði fellt er
það kemur til atkvæða á mánudag.
Falla frá andstöðu
Margt þótti benda til þess í gær-
kvöldi að Evrópuandstæðingar
myndu falla frá andstöðu við frum-
varpið.
Hins vegar var
ekki útilokað að
þeir myndu reyna
að knýja fram nýtt
leiðtogakjör. Góð
frammistaða Sir
Nicholas Bonsor í
kjöri um formann
1922-nefndarinn-
ar þykir ýta undir
líkur á því en heimildir herma að
einungis hafi munað 15-35 atkvæð-
um á honum og Sir Marcus Fox sem
náði endurkjöri sem formaður
nefndarinnar.
Major og Douglas Hurd utanrík-
isráðherra eru sagðir hafa í aðalat-
riðum fallist á þjóðaratkvæði ef það
getur orðið til þess að skapa ein-
ingu í flokknum og afstýra nýju
leiðtogakjöri. Kenneth Clarke fjár-
málaráðherra, sem hefur verið
harðasti andstæðingur þjóðarat-
kvæðis, er einnig sagður hafa látið
af andstöðu sinni.
Hurd sagði í samtali við útvarps-
stöðina BBC í gær að það væru
mistök að útiloka þjóðaratkvæði um
afstöðuna til ESB og niðurstöður
ríkjaráðstefnunnar sem hæfíst
1996.
■ Undirbúa kröfu um nýtt/22
Gro Harlem Brundtland í kappræðum um ESB-aðild
ESB verður mikil-
vægara en NATO
Ósló. Morgunblaðið.
GRO Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra Noregs, segir að í framtíð-
inni verði Evrópusambandið (ESB)
mikilvægara fyrir öryggishagsmuni
Noregs en Atlantshafsbandalagið
(NATO). „Með ESB-aðild hafa Sví-
þjóð og Finnland meiri áhrif á ör-
yggismál í Evrópu en við,“ sagði
Brundtland í sjónvarpsumræðum
leiðtoga stjórnmálaflokkanna í
Norska ríkissjónvarpinu í gær-
kvöldi.
Talið er að umræðurnar, sem eru
þær síðustu fyrir þjóðaratkvæða-
greiðsluna um ESB-aðild á mánu-
dag, geti haft afgerandi áhrif á
afstöðu þeirra, sem enn hafa ekki
gert upp hug sinn.
Deildu um ESS
Umræðurnar einkenndust nokk-
uð af snörpum orðaskiptum Brundt-
land og Anne Enger Lahnstein, for-
manns Miðflokksins. Brundtland
sakaði Lahnstein um lygar þegar
sú síðarnefnda hélt því fram að fjár-
málaráðherrar ESB hefðu fyrir
Fylkingar hníf-
jafnar í könnun
Scan-Facts
hálfum mánuði samþykkt að gera
atlögu að réttindum launafólks.
Konurnar tvær deildu einnig um
EES-samninginn. „Mér þykir leitt
að segja það, en ég hef þegar feng-
ið skýrslur frá evrópskum höfuð-
borgum um að valdhafar í ESB-
ríkjum vilji taka upp mál, sem
tengjast EES-samningnum, standi
Norðmenn utan ESB,“ sagði
Brundtland.
Lahnstein sagðist telja að EES-
samningurinn væri ekki í hættu.
Hún væri hins vegar ekki hrifin af
honum. „Ef þessi samningur gagn-
ast okkur ekki eða ekki verður stað-
ið við hann, eins og Verkamanna-
flokkurinn heldur fram, þá segi ég
að við getum tekið því með fullkom-
inni rósemi, því að við höfum þenn-
an markaðsaðgang," sagði hún og
vísaði þar til fríverzlunarsamnings
Noregs við ESB frá 1972.
Lahnstein neitaði að svara spurn-
ingum um það hversu stóran meiri-
hluta þyrfti ESB-aðild í vil til að
flokkur hennar legðist ekki gegn
aðildarsamningnum i Stórþinginu.
Brundtland sakaði hana og aðra
ESB-andstæðinga hins vegar um
að nota stjórnarskrána gegn þegn-
unum, sem henni væri ætlað að
þjóna.
Lítil breyting í
skoðanakönnunum
Niðurstöður skoðanakannana,
sem birtar voru í gær, benda til lít-
illa breytinga. I könnunum Gallup
og MMI töpuðu stuðningsmenn einu
prósentustigi, en bættu einu við sig
í könnun Scan-Facts, sem sýnir að
fylkingarnar séu hnífjafnar. Sé tek-
ið meðaltal kannananna njóta
stuðningsmenn rúmlega 46% fylgis
og andstæðingar tæplega 54%.
■ Er munurájá-og/28
Reuter
Tekinn af
dauða-
skránni
NAFN kóreska lautinantsins Cho
Chang-ho var afmáð við athöfn
af skrá yfir hermenn sem taldir
voru hafa fallið í Kóreustríðinu
1950-53. Kom í ljós að hann var
lifandi er honum tókst að flýja
frá Norður-Kóreu í síðasta mán-
uði, 64 ára að aldri. Hann var
tekinn til fanga 1951 af Kínverj-
um sem börðust við hlið Norðan-
manna og hafður í fangabúðum
í 13 ár. Þá tók við þrælkunar-
vinna í námu í önnur 13 ár eða
til ársins 1977. Akvað hann fyrir
tveimur árum að flýja til þess
að þurfa ekki að deyja og verða
grafinn í Norður-Kóreu. Komst
hann úr landi á fleka og var
bjargað um borð í suður-kóresk-
an varðbát undan hafnarborg-
inni Kunsan. Cho, sem stendur
hér við töfluna með nöfnum fall-
inna hermanna í þjóðargrafreitn-
um í Seoul, var hækkaður í tign
í gær úr undirlautinant í yfirlaut-
inant. Þá snæddi hann hádegis-
verð með Kim Young-sam for-
seta sem sæindi hann æðstu heið-
ursorðu sem veitt er hermönn-
um. Cho verður afmunstraður
úr hernum við hátiðlega athöfn
í dag, laugardag.