Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994
EVROPA
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Mikið saltað í Nes-
kaupstað og á Höfn
SÍLDARSÖLTUN á vertíðinni hef-
ur gengið vel í haust. Alls hafði
verið saltað í 107.000 tunnur í
upphafi vikunnar. Mest hafði þá
verið saltað af einstökum fyrir-
tækjum hjá Síldarvinnslunni í Nes-
kaupstað, um 29.000 tonnur, en
af einstökum stöðum hafði mest
verið saltað á Hornafirði, í 29.120
tunnur. Það er Síldarútvegsnefnd,
sem tekur saman upplýsingar af
þessu tagi vikulega.
12% af söltun
síðasta árs
Samkvæmt samantekt Síldarút-
vegsnefndar nam heildarsöltun á
sama tíma í fyrra 56.707 tunnum,
en þá var alls saltað í 95.624 tunn-
ur. Söltunin nú er því þegar orðin
12% en heildarsöltunin í fyrra.
Samkvæmt yfirliti Samtaka
fiskvinnslustöðva vantaði því um
27.000 tonn upp á að kvótinn
væri fullnýttur. Langt er komið
með að frysta og salta upp í samn-
inga, en ekki mátti þó bræða meira
en um 16.000 tonn frá og með
upphafi vikunnar, ætti að fást næg
síld til söltunar og frystingar.
Norðmenn um 105.250 tonn af
frystri síld á síðasta ári og 10.700
tunnur af saltsíld. Mest af frystu
síldinni fór til Póllands, þar sem
hún er meðal annars þídd upp og
söltuð. Um 40% af norsku saltsíld-
inni fóru til Svíþjóðar.
Hér fer á eftir yfirlit Síldarút-
vegsnefndar yfir þá staði, þar sem
mest hefur verið saltað af síld:
Síldarsöltunin
Síld Samtals
önnur en flök Flökuð síld tunnur
Vopnafjörður 3.837 173 4.010
Seyðisfjörður 14.412 0 14.412
Neskaupstaður 19.374 9.601 28.975
Eskifjörður 6.665 5.658 12.323
Reyðarfjörður 3.132 0 3.132
Breiðdalsvík 1.052 0 1.052
Djúpivogur 3.663 1.091 4.754
Hornafjörður 22.115 7.005 29.120
Vestmannaeyjar 3.392 2.957 5.449
Grindavík 422 2.535 2.957
Akranes 895 0 895
Samtals tunnur 78.959 28.120 107.079
Coldwater
verðlaunað
COLDWATER Seafood Corp. dótt-
urfyrirtæki SH í Bandaríkjunum, er
eitt þeirra fyrirtækja, sem nú hafa
hlotið sér stök verðlaun fyrir mark-
aðssetningu sjávarafurða þar vestra.
Það er sjávarafurðatímaritið Seafood
Business, sem nú veitti verðlaun af
þessu tagi 10 árið í röð.
Coldwater hefur áður unnið til
þessara verðlauna. Nú hlaut Coldw-
ater viðurkenningu fyrir markaðs-
etningu á „sjávarafurðasaltati í
brauðmylsnu" (Breaded Seafood
Salads). Um er að ræða fimm teg-
undir af sjávarafurðasalati, Waldorf
Salad De Mar, Ceasar Seafood Salad,
Santa Fe Seafood Salad, Antipasto
Seafood Salad og Pesto Pesce Salad.
Til að ljðka fyrir markaðssetningu
þessara afurða voru sérstök upp-
skriftakort gefin út og opnað grænt
símanúmar, þar sem gefnar voru
uppskiftir og upplýsingar um afurð-
imar. Fimm mánaða markaðsátak
jók söluna um 16%. Tímaritið veitir
einnig innflytjendum, smásölum og
örðum markaðsgeirum viðurkenn-
ingar og nú fékk útflutningsráð sjáv-
arafurða í Noregi viðurkenningu fyr-
ir markaðskynningu á norskum
þorski.
Faxafeni v/Suðurlandsbraut, sínii 686999
Leiðtognm A-
Evrópu ekki
boðið til Essen
Brussel. The Daily Telegraph.
LEIÐTOGAR Austur-Evrópuríkj-
anna, sem sótt hafa um aðild að
Evrópusambandinu, eru mjög sárir
yfir að hafa ekki verið boðnir á leið-
togafund ESB í Essen í Þýskalandi
í næsta mánuði.
Samkvæmt heimildum innan ESB
er helsta ástæða þess að leiðtogum
Tékklands, Ungveijalands, Póllands,
Slóvakíu, Búlgaríu og Rúmeníu var
ekki boðið, það hversu hægt miðar
með afgreiðslu aðildarumsókna
þeirra. Það væri hreinlega „neyðar-
legt“ fyrir sambandið ef austur-evr-
ópsku leiðtogarnir kæmu til Essen.
Þjóðveijar höfðu gert sér vonir um
að þeir gætu lokið formennsku sinni
í ráðherraráðinu með fundi þar sem
ljóst værí að aðild þessara ríkja væri
yfirvofandi. Var meðal annars rætt
um að samþykkja fasta tímaáætlun
varðandi aðildarviðræðurnar. Sú
hugmynd fékk ekki hljómgrunn með-
al annarra aðildarríkja.
Frakkar eru til að mynda mjög
uggandi vegna stækkunar banda-
lagsins. Óttast þeir að þegar stórt
landbúnaðarríki á borð við Pólland
fái aðild muni það annað hvort þýða
endalok eða gjaldþrot hinnar sameig-
inlegu landbúnaðarstefnu.
Þar sem slíkt myndi hafa bein
áhrif á franska bændur forðast
franskir stjórnmálamenn umræðu
um málið fyrir forsetakosningarnar
á næsta ári.
A -Evrópuríkin eru mjög óánægð
með hvemig miðar í samskiptunun-
um við ESB. Þrátt fyrir að fríverslun-
arsamningar hafi veríð gerðir við þau
öll eru landbúnaðarafurðir undan-
skildar. „Við höfum fengið fríverslun
með ofurtölvur og gervitungl en
erum útilokaðir frá öllu sem við get-
um hagnast á. Er nema von að við-
skiptajöfnuður okkur gagnvart ESB
fari stöðugj; versnandi," sagði fyrrum
ráðherra í Póllandi.
Pólverjar eru æfir yfir því að jafn-
vel „garðálfar" eru skilgreindir sem
„viðkvæm vara“ sem ekki má flytja
út til Vesturlanda.
Leiðtogum ríkjanna hefur verið
boðið að sækja leiðtogafund ESB
næstkomandi júní í Cannes í Frakk-
landi.
ítalir sækja
ekki um
styrki
• ÍTALÍR eru eina ESB-þjóðin
sem ekki hefur sótt um aðstoð úr
þróunarsjóðum sambandsins. Búið
var að leggja til hliðar 2,6 trilljón-
ir Iíra til handa fátækum svæðum
á Suður-Italíu en enginn beiðni
um styrkveitingu hefur borist.
• ÞJÓÐVERJAR áttu mest við-
skipti við önnur ESB-ríki á fyrstu
sex mánuðum þessa árs. I frétt í
Siiddeutsche Zeitung í gær kemur
fram að 46,5% útflutnings þeirra
hafi farið til annarra ríkja Evr-
ópusambandsins. Þá kemur einnig
fram i blaðinu að verð á þýskum
Iandbúnaðarafurðum hafi lækkað
um 1,9% á öðru ársfjórðungi þessa
árs. '
• EIN af röksemdum andstæð-
inga ESB-aðildar í Noregi er að
ESB sé fjandsamlegt dýrum. ESB-
andstæðingar efndu til fundar
framan við Stórþingshúsið í Ósló
í vikunni og á spjöldum þeirra
stóð að miðstýring landbúnaðar-
kerfisins myndi koma niður á að-
stæðum húsdýra. Jafnframt
myhdi lækkun matvælaverðs þýða
meiri eftirspurn og þess vegna
drápá fleiri dýrum.
• ÞÓTT alþýðusamband Noregs,
LO, hafi formlega tekið afstöðu
gegn ESB-aðild, hafa formenn
ýmissa landssambanda stéttarfé-
laga lýst yfir stuðningi sínum við
aðild. Þetta er talið styrkja stöðu
Úrslit nýjustu skoðana-
kannana um stuðning
við ESB-aðild í Noregi
Kosið verður 28. nóvember
Scan-Fact, Gallup, 24. nóv.
Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra og formanns Verka-
mannaflokksins, en ákvörðun LO
varáfall fyrir hana á sínum tíma.
• ÁFORM ESB um að setja kvótí
á sjónvarpsefni frá ríkjum utan
sambandsins sæta nú gagnrýni
einmitt þeirra fyrirtækja, sem
ætlunin er að vernda með aðgerð-
unum. Hafa fyrirtækin Bertels-
mann AG og Polygram látið í ljós
áhyggjur af því að þessi vernd
kunni að verða til þess að dragi
úr fjárfenstingum í greininni.
Breskir þingmenn óánægðir
með rúmar áfengisreglur
BRESK þingnefnd gagnrýndi í gær
harðlega reglur þær sem gilda innan
Evrópusambandsins um áfengis- og
tóbaksinnflútning einstaklinga milli
landa. Telur nefndin þær of rúmar.
Samkvæmt reglunum getur fjögurra
manna bresk fjölskylda komið heim
með um 920 vínflöskur og fjögur
þúsund vindlinga úr fríinu í Frakk-
landi án þess að greiða nein gjöld,
ef það er til einkaneyslu.
Hefur þetta leitt til mjög tíðra
ferða Breta yfir Ermarsund þar sem
áfengi og tóbak er ódýrara en í Bret-
landi. Þingnefndin segir hinar rúmu
reglur vera hvatningu til innflutnings
á þessum vörum í stórum stíl hvort
sem að það sé til einkaneyslu eða
ólöglegrar endursölu. Hvatti hún til
að heimildimar yrðu þrengdar og að
ferðamenn yrðu að geta sannað að
vörumar væru ætlaðar til einka-
neyslu.
Breskir áfengisframleiðendur, krá-
areigendur og tóbaksfyrirtæki eru
mjög óánægð með þróunina og segj-
ast hafa misst gífurleg viðskipti yfir
til stónnarkaða í frönskum hafn-
arborgum á borð við Calais vegna
hins innri markaðar ESB.
Samtök tollvarða segjast telja að
varlega áætlað verði bresk stjómvöld
af 150 milljónum punda í opinberum
gjöldum á ári vegna þessa innflutn-
ings.