Morgunblaðið - 26.11.1994, Side 22
22 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
„Leigubílastríð“
í SUÐUR-Afríku geisar blóðugt
stríð á milli leigubílstjóra, sem
berjast um viðskiptin með því að
vega hver annan og stundum far-
þegana líka. í bænum Hamman-
skraal skammt frá Pretoríu féllu
fimm menn í gær í átökum af
þessu tagi en að minnsta kosti
30 menn háfa fallið á árinu. Var
þá meðal annars kveikt í þessari
smárútu.
Engin skýring á ung-
mennamorði í Svíþjóð
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ENGIN skýring hefur komið fram
á því hvers vegna tveir bræður,
sextán og sautján ára, drápu fímmt-
án ára félaga sinn í sænska bænum
Bjuv á sunnudagskvöldið. í fréttum
hefur komið fram að bræðumir
hafí talað um það undanfama mán-
uði að drepa drenginn, sem þeir
þekktu, en umgengust ekki mikið.
í hominu á skólalóðinni, þar sem
lík hins fimmtán ára drengs fannst
liggja blómavendir innanum logandi
kerti. Piltinum virðist hafa verið
ráðinn bani með steini og var and-
lit hans svo illa skaddað að nokk-
um tíma tók að bera kennsl á líkið.
Foreldrar hans eru skildir þegar
hann kom heim til hvorugs þeirra
á sunnudagskvöldið, hélt hvort um
sig að hann væri hjá hinu. Líkið
fannst svo á mánudagsmorgun og
vom bræðumir þá settir í gæslu-
varðhald vegna gruns um morðið.
Svo virðist sem bræðumir hafi
rætt í nokkra mánuði um að drepa
piltinn og meðal annars reynt að
kaupa byssu til ódæðisins. Haft er
eftir skólastjóra skólans, þar sem
drengimir þrír vom við nám, að
þeir hefðu allir verið venjulegir
drengir frá venjulegum heimilum.
Sænskir læknar og skólafólk,
sem rætt hefur verið við em sam-
mála um að ofbeldi fari vaxandi
meðal ungmenna og umgengnis-
venjur gerist harðneskulegri.
Andstæðingar Johns Majors hugsa honum þegjandi þörfina
Undirbúa kröfu um
nýtt leiðtogakj ör
London. The Daily Telegraph, Reuter.
ÖRUGGT má heita, að John Maj-
or, forsætisráðherra Bretlands, og
ríkisstjórn hans beri sigur úr být-
um í atkvæðagreiðslunni á mánu-
dag um aukin framlög til Evrópu-
sambandsins, ESB. Evrópuand-
stæðingarnir í íhaldsflokknum
kæra sig ekki fremur en aðrir
íhaldsmenn um kosningar nú eins
og Major hótar verði frumvarpið
fellt en þeir em ævareiðir vegna
hótunarinnar og hyggja á hefndir.
Segjast þeir vera nálægt því að
tryggja sér stuðning 34 þing-
manna, tíunda hluta þingflokks-
ins, sem þarf til að krefjast nýs
leiðtogakjörs, og em fréttir um,
að hugsanlega muni Norman Lam-
ont, fyrrverandi fjármálaráðherra,
bjóða sig fram gegn Major.
Þessar væringar í íhaldsflokkn-
um, svo alvarlegar sem þær em,
eru þó líklega aðeins forsmekkur-
inn af því, sem koma skal þegar
Evrópusambandsríkin taka
Maastricht-samninginn til endur-
skoðunar 1996.
„Það er líklegt, að nú komi til
mótframboðs gegn Major,“ sagði
einn Evrópuandstæðinganna,
þingmaðurinn Bill Walker, í gær
og þingmaðurinn Iain Duncan
sagði, að Major myndi fá að gjalda
þess að neyða Evrópuandstæðing-
ana til að samþykkja aukin fram-
lög til ESB.
Er Norman Lamont nefndur
sem hugsanlegur mótframbjóð-
andi gegn Major þótt hann segist
JOHN Major ásamt Normu,
eiginkonu sinni.
sjálfur ekki hafa neitt slíkt á pijón-
unum.
1922-nefndin
íhaldsflokkurinn hefur aðeins
14 sæta meirihluta á þingi og því
taldi Major að ekki væri um annað
að ræða en lýsa yfír, að atkvæða-
greiðslan um ESB-frumvarpið
væri jafnframt traustsyfírlýsing á
stjómina. Samþykktu allir ráð-
herramir að segja af sér yrði fmm-
varpið fellt og boða til nýrra kosn-
inga. Þeim myndi flokkurinn ör-
ugglega tapa.
A fímmtudag vann Major mikil-
vægan sigur í stríðinu við ESB-
andstæðingana þegar stuðnings-
maður hans, Sir Marcus Fox,
stóðst áhlaup ESB-andstæðings-
ins Sir Nicholas Bonsors á form-
annsembættið í hinni áhrifamiklu
1922-nefnd. Sér hún um mál, sem
snerta leiðtogakjör í flokknum, og
til hennar verða ESB-andstæðing-
ar að snúa sér fyrir nk. miðviku-
dag ætli þeir sér að skora Major
á hólm.
í gær hafði Fox ekki fengið
neitt erindi þess efnis og hann
gerði lítið úr möguleikum ESB-
andstæðinga á að fá nógu marga
til að krefjast leiðtogakosninga.
Hæðast að Lamont
Stuðningsmenn Majors gera
heldur ekki mikið úr hugsanlegu
framboði Norman Lamonts gegn
forsætisráðherranum. „Norman
„vonlausi“ á ekki minnstu mögu-
leika,“ sagði Terry Dicks, stuðn-
ingsmaður Majors, og bætti því,
að forsætisráðherrann ætti að
beija niður andstöðuna innan
flokksins með harðri hendi. „Það,
sem hann ætti að gera, er að gefa
þessum mönnum vel úti látið spark
í afturendann og koma þeim í
skilning um, að þeir eigi ekki
heima í flokknum."
Ríkisstjórn íhaldsflokksins var
hætt komin í júlí 1993 þegar deilt
var um staðfestingu Maastricht-
samningsins og hann verður
endurskoðaður 1996. Þá verða
ESB-andstæðingamir annaðhvort
að hrökkva eða stökkva og hugs-
anlega eru deilurnar nú eins og
lítill gustur miðað við storminn,
sem þá mun bresta á.
Þingmaðurinn Alessandra Mussolini hefur enn á ný beint athyglinni að fjölskyldu afa síns
London. The Daily Telegraph.
ALESSANDRA Mussolini, þingmaður nýfas-
ista á ítalska þinginu og sonardóttir Benitos
Mussolini, tilkynnti fyrir skömmu að hún
væri bamshafandi. Víst er að eignist hún
dreng, fær hann nafnið Benito, enda hefur
Alessandra minningu afa síns í heiðri. Hún
hefur meira að segja bijóstmynd af honum
í svefnherbergi sínu. Þetta hefur hins vegar
vakið upp spurningar um hvað varð af öðmm
meðlimum Mussolinifjölskyldunnar eftir að
fjölskyldufaðirinn Benito var skotinn 28.
apríl 1945 ásamt ástkonu sinni, Clöru
Petacci.
Mussolini átti fímm böm með eiginkonu
sinni Rachele; Eddu, Vittorio, Bruno, Romano
og Önnu Mariu. Þá átti hann nokkur böm
með hinum fjölmörgu ástkonum sínum en
lítið sem ekkert er vitað um þau.
Árið 1945 reyndi Rachele að flýja til Sviss
en var tekin höndum og haldið í fangelsi í
sjö mánuði. Eftir að hún var látin laus, opn-
aði hún, eins og svo margir ítalir, lítið hótél
og matsölustað í Carpena, skammt frá Rim-
ini.
Á matseðlinum var boðið upp á rétti á
borð við Svartstakkaspagetti og Benitobuff.
Varð staðurinn fljótlega nokkurs konar helgi-
staður fasista.
Matsölustaðurinn naut þó ekki meiri vin-
sælda en svo, að árið 1968 óskaði frú Mussol-
ini eftir því að ríkið greiddi henni eftirlaun,
þar sem maður hennar hefði starfað fyrir
hið opinbera í rúm tuttugu ár. Hún fékk
greitt sem svarar tveimur milljónum kr. og
24.000 kr. á mánuði. Hún lést árið 1979,
83 ára.
Flug og jass
Tvö barna Mussolinis dóu ung. Bruno, sem
erft hafði flugáhuga föður síns, fórst með
sprengjuflugvél sinni árið 1941. Anna Maria,
sem fékk lömunarveiki er hún var barn, gift-
ist síðar sjónvarpsþul og eignaðist með hon-
um tvær dætur. Hún lést árið 1968.
Faðir Alessöndru, er Romario, 67 ára,
yngsti sonur Benitos. Móðir hennar er Maria
Scicolone, systir Sophiu Loren. Romario hef-
ur engan áhuga á stjómmálum en hlaut tón-
listaráhugann í arf frá föður sínum, sem lék
á fíðlu, og er hann jasstónlistarmaður. Sagt
Hvað varð um
afkomendur
Mussolinis?
BRÚÐKAUP Eddu Mussolini og Gale-
azzo Ciano greifa. Benito Mussolini Iét
síðar taka greifann af lífi.
hefur verið um Romario að hann
sé jafngóður tónlistarmaður og
faðir hans var síæmur. Romario
skildi við móður Alessöndru á
áttunda áratugnum, giftist fljót-
lega aftur og eignaðist aðra dótt-
ur, sem er lögfræðingur.
Blaðamaður í S-Ameríku
Elsti sonur Mussolinis er Vitt-
orio, sem hafði mikinn áhuga á
flugi eins og Bruno bróðir hans.
Hann tók þátt í loftárásum sem
gerðar voru á Abbyssiníu, er nú
heitir Eþíópía, á ámnum
1935-37 og sagði það „góða
skemmtun“ að varpa sprengjum
á konur og börn. Hann var for-
Alessandra
Mussolini.
MUSSOLINI-fjölskyldan 1930. Rachele
með Önnu Mariu, Romano í fangi föður
síns, Bruno, Edda og Vittorio.
ingi í ítalska flughemum í
heimsstyijöldinni síðari.
Eftir að Mussolini var drep-
inn, fór Vittorio huldu höfði,
fékk sér gerviskegg og flúði til
Suður-Ameríku. Komst hann
um borð í skip sem var á Ieið
til Úrúgvæ og komst til Argent-
ínu á fölsuðu vegabréfí.
Fljótlega komst upp um hann
og í maí 1947 hafði The Daily
Telegraph eftir honum að hann
væri auralaus. Honum var leyft
að dvelja áfram í landinu eftir
að hafa greitt sekt og gekk í
hin og þessi störf áður en hann
gerðist blaðamaður, fréttaritari
fasistablaðsins II Secolo d’Italia.
Vittorio sneri aftur til Ítalíu árið 1959 þar
sem hann var ákærður fyrir liðhlaup á stríðs-
tímum en var sýknaður. Ástæða þess var
sú að árið 1943 sneri hann ekki aftur úr
leyfí, heldur fór á fund Adolfs Hitlers í Þýska-
landi, til að biðja hann um að bjarga föður
sínum. Hitler varð við þeirri ósk.
Árið 1970 fluttist Vittorio aftur til Ítalíu,
þar sem hann hefur búið síðan. Hann gaf
út bók um konumar í lífi föðurs síns árið
1973. Vittorio er tvígiftur, á tvö börn og býr
nú í Carpena. Hann er 78 ára og hefur látið
nokkuð í minni pokann fyrir elli kerlingu.
Dóttirin orðuð við Juan Peron
forseta Argentínu
Edda, elsta dóttirin, fæddist árið 1910.
Hún giftist Galeazzo Ciano greifa, utanríkis-
ráðherra í stjórn Mussolinis. Ciano sveik
tendaföður sinn í valdaráni árið 1943 og
þegar Mussolini komst aftur til valda með
aðstoð Þjóðveija,'" fyrirskipaði hann að
tengdasonurinn yrði tekinn af lífi.
Edda fyrirgaf föður sínum aldrei og hún
giftist ekki aftur. Hún var þó orðuð við Juan
Peron, forseta Argentínu. Edda á þijú börn,
tvö eru enn á lífi. Hún á við áfengisvanda að
stríða.
Hvað varð af auðnum?
ítalir virðast ekki hafa lagt mikið hatur á
afkomendur Benitos Mussolini. Raunar nýtur
flokkurinn sem Alessandra Mussolini situr á
þingi fyrir, meiri stuðnings en flokkur for-
sætisráðherrans, Silvios Berlusconis.
Skýringin á þessu er að hluta sú að ítalir
báru ekki ábyrgð á Helförinni og Mussolini
var ekki eins mikill gyðingahatari og Hitler.
Ein eftirlætis ástkona hans var raunar gyð-
ingur, Margherita Sarfatti. Þá var eina lífs-
von gyðinga í Frakklandi í heimsstyijöldinni
síðari sú að vera í suð-austurhéruðunum, sem
ítalir réðu.
Enginn veit hins vegar hvað varð af
auðæfum Mussolinis. Fullyrt er að er hann
náðist á flótta árið 1945, hafi hann haft
meðferðis vagnfylli af gullstöngum. Ef litið
er til þess hversu lítið böm hans hafa borist
á, verður að teljast afar ólíklegt að þau hafi
komist yfír nokkurn hluta auðæfanna.