Morgunblaðið - 26.11.1994, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 27
LISTIR
Ovenjulegnr kvartett
TONLIST
llljómdiskur
CLUSTER ENSEMBLE
Mikael Helasvuo, flautur, Pekka
Savijoki, saxófónar, Jukka Savijoki,
gítar, Timothy Ferchen, slagverk.
ONpiNE digital ODE 808-2,
dreifing Japis.
HÉR ER um að ræða hljómdisk
sem rík ástæða er til að vekja at-
hygli á. Cluster Ensemble er mjög
svo óvenjulegur kvartett — ekki
vegna þess að hann flytur nútímatón-
list, heldur vegna hljóðfæraskipunar
(flautur, saxófónar, gít-
ar, slagverk), sem veld-
ur því að mörg (kannski
flest) verkanna á efnis-
skrá kvartettsins eru
beinlínis samin fyrir
hann, og á því er ekki
undantekning hér.
Þessi finnski kvartett
var stofnaður 1978 og
hefur haldið konserta
vítt og breitt um Skand-
inavíu; í Hollandi, Bret-
landi og Japan. Hljóð-
færaleikaramir eru í
einu orði sagt frábærir,
enda „sólóistar" á sín
Atli Heimir Sveinsson
hljóðfæri, en sem einn
maður í samleik.
Tónskáldin sem eiga
verkin á þessum hljóm-
diski eru Miklós Maros
(Clusters for Cluster),
Jouni Kaipainen (Far
from Home), Atli Heim-
ir Sveinsson (Karin
Mánsdotters vaggvisa
för Erik XIV), Usko
Meriláinen (Simultus
for four), Erik Berg-
man (Mipejupa) og Ka-
ija Saariaho (Adjö). Ég
ætla mér ekki þá dul
að fara hér í tónfræði-
legar vangaveltur (enda stórhættu-
legtí), tónlistin er býsna dæmigerð
fyrir það sem var að gerast „á
fremstu víglínu" eftir seinna stríð
og fram á okkar daga — svosem
margumræddur „minimalismi", „ser-
ial“-tónlist, en þó fyrst og síðast
hljómstúdía og pælingar um kyrr-
stöðu og hreyfmgu, oft út frá ströng-
um forsendum. Oftast þykist ég samt
fínna útúr slíkri músík hvort hún er
skandinavísk eður ei, og svo er einn-
ig að þessu sinni. Miklos Maros, sem
fæddur er Ungverji en býr og starfar
í Finnlandi, iðkar hér einhvers konar
minimalisma með skemmtilegum
árangri, og kannski mætti heimfæra
verk Kaipainens að einhveiju leyti
undir serial-músík í nokkuð frjálsleg-
um og skáldlegum anda. Verk Atla
Heimis (frá 1979) er byggt um ljóðl-
ínur eftir Z. Topelius (Sofðu, storm-
hrakta hjarta, sofðu -), þar sem tón-
ar og orð tvinnast saman í hljómvoð
sem ofin er úr „statískum" þáttum
og hreyfingu — með næstum ex-
pressionískum áhrifum. Fallegt verk
og sterkt í mjög góðum flutningi
sópransöngkonunnar Eevu-Liisa Sa-
arinen. — Ek. „smáfuglaleikur",
stundum nokkuð æsilegur, á takt-
föstum — en „statískum" — grunni
einkennir verk Meriláinen meðan
Erik Bergman .byggir á meira frelsi
— og fer stundum geyst. Verk Kaiju
Saariaho er samið fyrir sópran (Tu-
ula-Maria Tuomela), flautu og gítar.
Hér er allt þétt ofið, tónar og litir.
Verkið hefst í angist og endar í lausn
og gáttir standa opnar.
Þetta er m.ö.o. hljómdiskur fyrir
áhugafólk um nútímatónlist.
Oddur Björnsson
Lúðrasveit
Reykjavíkur
Aðventu-
tónleikar í
Ráðhúsinu
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur
hefur staðið fyrir mánaðarleg-
um fjölskyldutónleikum í Ráð-
húsi Reykjavíkur á ári fjöl-
skyldunnar. Sunnudaginn 27.
nóvember verða þriðju fjöl-
skyldutónleikarnir og verða
þeir tileinkaðir bömum og
öðru söngglöðu fólki. Börn úr
Arbæjarskóla munu syngja,
spila og „stjórna" hljómsveit-
inni.
Fjórðu fjölskyldutónleikar
lúðrasveitarinnar á starfsárinu
verða haldnir laugardaginn 4.
desember og verða sérstakir
aðventutónleikar. Lúðrasveit
Reykjavíkur og Lúðrasveit
Hafnarfjarðar munu leika
saman þekkt hátíðalög og jóla-
lög. Stjórnandi Lúðrasveitar
Reykjavíkur er Guðmundur
Norðdahl.
Báðir tónleikamir hefjast
kl. 15. Aðgangur verður
ókeypis og allir velkomnir.
Ikonasýning
í Hallgríms-
kirkju
KRISTÍN Gunnlaugsdóttir
myndlistarkona opnar sýningu
á íkonum í Hallgrímskirkju á
morgun, fyrsta sunnudag í
aðventu, kl. 15:30.
Sýningin er haldin í boði
Listvinafélags Hallgríms-
kirkju.
íkon þýðir ímynd Guðs og
eru íkonar trúarleg og guð-
fræðileg list. Þeta em helgi-
myndir málaðar á tré og verða
íkonamálarar að styðjast við
mjög ákveðnar reglur og lög-
mál.
íkonamálun lærði Kristín í
klaustri Fransiskussystra í
Róm, hjá systur Patriciu Pe-
arce. Systir Patricia lést í des-
embermánuði 1992 og tileinkar
Kristín þessa sýningu minn-
ingu hennar.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 14-18. Henni lýkur 18. des-
ember.
Gallerí Greip
Síðasta sýn-
ingarhelgi
Ingimars
SÝNINGU Ingimars Ólafsson-
ar Waage sem nú stendur yfir
á Gallerí Greip lýkur á morgun
sunnudag. Á sýningunni eru
málverk og teikningar.
FORM INNRÉTTINGAR
Ný lína í innréttingum
t»að má nota mörg orð til þess að lýsa FORM imiréttingum en sjón er
sögu ríkari. FORM innréttingar eru umfram allt stílhreinar og
vandaðar. Hvort sem þig vantar iimréttingar í nýiu íLniðina eða ætlar
að endumýja þær gömlu átt þú erindi til okkar. Otal möguleikar í
samsetningu eininga, allt; eftir óskum og aðstæðuin hvers og eins.
ISLENSK FRANILEIÐSLA
í glæsilegum sýningarsal að Smiðjuvegi ó,
Kópavogi, má sjá nokkrar uppsettar FOR/V\
eldhúsinnréitingar, baðinnréttingar.og
fataskápa. I tengslum við sýningarsalinn er
húsgagnaverslun Tréforms hf en þar fæst úrval
vandaðra húsgagna á góðu verði.
INNRÉTTINGAR
FORM innréttingar eru hannaðar
af arkitektunum Birni Skaptasyni
og Hildi Bjarnadóttur. Þau reka
saman ATELIER teiknistofuna í
Reykjavík.
SmiSjuvegur 6, Kópavogur. Sími 44544
SÝNING UM HELGINA!
OPIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG kl. 11-16
Gestum iboð/ð upp á rjúkandi RÍÓ kaffi og FRÓN kex
og Egils appelsín og Freyju sælgæti fyrir börnin.