Morgunblaðið - 26.11.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 31
AÐSENDAR GREIINIAR
frummælendur á lokuðum fundi
Vinnuveitendasambands íslands og
Verslunarráðs íslands 14. október
sl. Þar voru saman komnir helstu
forstjórar landsins, flestir úr Sjálf-
stæðisflokknum. Samkvæmt heim-
ildum undirritaðs var einn þeirra
Vilhjálmur Egilsson framkvæmda-
stjóri Verslunarráðs og alþingis-
maður Sjálfstæðisflokksins. Vil-
hjálmur er einnig varamaður í ut-
anríkismálanefnd Alþingis, og hef-
ur því verið bundinn trúnaði úm
innihald skýrslunnar frá Sjávarút-
vegsstofnun HÍ.
Þar sém Einar hefur gagnrýnt
það að skýrslurnar hafi verið
kynntar á ráðstefnu Alþýðuflokks-
ins, þá hlýtur hann að telja það
ámælisvert að Vilhjálmur Egilsson
ijúfi trúnað sinn og boði til leyni-
fundar með helstu forstjórum
landsins og taki þar sjálfur þátt í
umræðum. Vilhjálmur hlýtur að fá
bágt fýrir hjá flokksráðinu. Forsæt-
isráðherra hefur lýst því yfir, með-
al annars á Alþingi, að ekki eigi
að ræða skýrslurnar fyrr en þær
verði fullbúnar. Hann telur að ekki
verði nein vitræn umræða um ESB
fyrr en endanlegar skýrslur liggi
fyrir. Það hefur þá varla verið nein
vitræn umræða í gangi á leyni-
fundi VSÍ og Verslunarráðs?
Leynifundur
Nú hefur það einnig verið upp-
lýst að á meðan Einar K. Guðfinns-
son var í þagnarbindindi vestur í
Ósvör, var Davíð Oddsson á leyni-
fundi með vini sínum Carl Bildt
norður í Tromsö. Þar upplýsti ís-
lenski forsætisráðherrann hinn nor-
ræna kollega sinn um það að Evr-
ópusinnar skyldu nú ekki útiloka
að það kæmi ESB-umsókn frá ís-
landi á næstunni. A blaðamanna-
fundi sagði Davíð að það gæti vel
verið að hann skipti um skoðun í
ESB-málinu eftir svona tvö ár. A
milli funda brá Davíð sér í mót-
mælagöngu nei-hópsins í Noregi
og lét Einar í Bolungarvík vita af
því.
Greinilegt er að Sjálfstæðis-
flokkurinn vill banna alla umræðu
um ESB. Þrátt fyrir að mikill meiri-
hluti kjósenda flokksins sé hlynntur
ESB-umsókn er málið viðkvæmt á
landsbyggðinni, sérstakléga fyrir
Einar K. Guðfinnsson. Hann er
ekki að kalla eftir skýrslum HÍ til
þess að kynna þær almenningi,
heldur til þess að pukrast með þær
í skúmaskotum. Sjálfstæðismenn
gagnrýna Alþýðuflokkinn fyrir að
beita sér fyrir opinni og skynsam-
legri umræðu um ESB, en standa
sjálfir fyrir lokuðum forstjórafund-
um um sama málefni. Þannig hafa
þeir ráðist að tjáningarfrelsi al-
mennings, á sama tíma og formað-
ur flokksins lofar ESB-umsókn á
leynifundum í útlöndum. Hvílíkir
þingmenn, hvílík flokksforysta,
hvílíkur flokkur!
Höfundur situr í framkvæmda-
sljóra Alþýðuflokksins —
Jafnaðarmannaflokks ísiands.
Bætt lífskjör
til framtíðar
Friðrik Sophusson
MEÐAN fsland var
bundið á klafa hafta,
boða og banna ríktu um
margt sérstök lögmál í
efnahagslífi hér á landi.
Þessi tími er sem betur
fer liðinn. Nú ríkir frelsi
á flestum sviðum við-
skipta hér á landi líkt
og í flestum helstu við-
skiptalöndum okkar. í
tíð núverandi ríkis-
stjómar hafa mikilvæg
skref verið stigin í átt
til aukins fijálsræðis og
opnari viðskipta við
önnur lönd. Hér má
nefna EES-samninginn
við Evrópusambandið,
nýtt GATT-samkomulag, frelsi í fiár-
magnsviðskiptum við önnur lönd o.fl.
011 þessi atriði hafa leitt til þess
að nú ríkja hér á landi sömu efna-
hagslögmál og annars staðar. Þannig
veldur samdráttur í framleiðslu hér
innanlands minni hagvexti og skerð-
ingu á kaupmætti þjóðarbúsins. At-
vinna minnkar og atvinnuleysi eykst.
Jafnframt minnkar káupmáttur al-
mennings og telqur ríkissjóðs
skreppa saman. Auknar atvinnuleys-
isbætur og minni tekjur ríkisins hafa
þannig óhjákvæmilega í för með sér
aukinn halla á ríkissjóði, nema gripið
sé til sérstakra ráðstafana.
Á árunum 1990-1.993 einkenndist
efnahagsástand á alþjóðavettvangi
af stöðnun og jafnvel samdrætti.
Verulega dró úr hagvexti í flestum
ríkjum heims. I kjölfarið jókst at-
vinnuleysi og halli á ríkissjóði fór
vaxandi. Jafnframt fóru vextir
hækkandi. Það er því ekki að ósekju
að þessi vandamál hafa verið fyrir-
ferðarmikil í efnahagsumræðu á al-
þjóðavettvangi undanfarin misseri.
Almenn samstaða um
grundvallaratriði í hagstjórn
Það sem vekur ef til vill mesta
athygli í þessari umræðu er hversu
sammála menn eru um grundvallar-
atriði í hagstjóm, hvort sem um er
að ræða fulltrúa svokallaðra hægri
eða vinstri flokka. Menn eru sam-
mála um orsakasamhengið, þ.e. að
minni hagvöxtur valdi auknu at-
vinnuleysi og meiri halla á ríkissjóði
sem aftur leiði til hærri vaxta og
dragi enn frekar úr fjárfestingum
og hagvexti og koil af kolli.
Almenn samstaða ríkir einnig um
hvaða leiðir séu heppilegastar til
þess að bregðast við þessum vanda-
málum. Þetta kom glöggt í ljós á
fundi Ijármálaráðherra Norðurlanda
sem haldinn var fyrr í þessum mán-
uði í Tromso. Ráðherrarnir voru allir
sammála um að nú þegar rofaði til
í efnahagsmálum væri meginvið-
fangsefni hagstjórnar að nýta efna-
hagsbatann til þess að
draga úr halla ríkis-
sjóðs. Það sé forsenda
lægri vaxta, nýrrar
fjárfestingar í atvinnu-
lífinu og aukins hag-
vaxtar og þar af leið-
andi skilyrði fyrir auk-
inni atvinnu og minnk-
andi atvinnuleysi.
Mikilvægt er að
vekja enn og aftur at-
hygli á þessum sjónar-
miðum og þeirri al-
mennu samstöðu sem
ríkir um þau í efnahags-
umræðu á alþjóðavett-
vangi. Þetta eru sömu
sjónarmið og núverandi
ríkisstjórn hefur haft að leiðarljósi.
Ríkisstjómin féllst á að tímabundinn
útgjaldaauki og skattalækkanir væru
réttlætanlegar til þess að greiða fyr-
ir kjarasamningum á tímum sam-
dráttar og stöðnunar í efnahagslíf-
inu. Nú hefur rofað til og því er
mikilvægt að.einbeita sér að því að
ná niður hallanum á ríkissjóði.
Ný vaxtarskilyrði hafa skapast
Margt bendir til þess að nú hafi
orðið ákveðin þáttaskil í efnahags-
málum hér á landi. Langvinnt tíma-
bil stöðnunar og samdráttar virðist
að baki og framundan hillir undir
hægfara efnahagsbata. Orsakir
þeirra erfiðleika sem íslenskt efna-
Langvinnt tímabil
stöðnunar og samdrátt-
ar virðist að baki, segir
Friðrik Sophusson, og
framundan hillir undir
hægfara efnahagsbata.
hagslíf hefur gengið í gegnum á
þessu stöðnunartímabili eru margvís-
legar.
Til viðbótar við óhjákvæmilegar
skerðingar á aflaheimildum bættist
að um árabil hafði verið vanrækt að
treysta undirstöður heilbrigðs at-
vinnulífs. Ekki var hugsað nægilega
um að bæta almenn rekstrarskilyrði
atvinnulífsins heldur var áherslan um
of á sértækum stuðningsaðgerðum
við éinstakar atvinnugreinar og jafn-
vel einstök fyrirtæki. Jafnframt tókst
ekki að hemja verðbólguna og efna-
hagslífið einkenndist af miklum
óstöðugleika. Framleiðni - sem er
undirstaða verðmætasköpunar - var
því lítil. Forsendur varanlegs hag-
vaxtar voru því einfaldlega ekki fyr-
ir hendi. Þetta kom berlega í ljós
þegar að kreppti í sjávarútvegi.
Núverandi ríkisstjóm hefur gjör-
breytt um stefnu. í stað forsjár-
hyggju og ríkisafskipta hefur hún
beitt sér fyrir margvíslegum aðgerð-
um til þess að bæta almenn rekstrar-
skilyrði atvinnulífsins. Hún hefur
lækkað skatta atvinnulífsins og
stuðlað að stöðugleika í efnahags-
málum og jafnvægi í þjóðarbúskapn-
um. Afgangur er á viðskiptajöfnuði .
og erlend skuldasöfnun hefur verið
stöðvuð. Vextir hafa lækkað og eru
lægri en verið hefúr um árabil.
Rekstrargrundvöllur atvinnulífsins
hefur styrkst og störfum fer nú aftur
fjölgandi, Jafnframt hafa ríkisútgjöld
verið lækkuð verulega og heildar-
skattbyrði er lægri en verið hefur
síðan 1987.
Á krossgötum
íslenskt efnahagslíf stendur nú á
krossgötum. Margt bendir til þess
að langvinnt erfiðleikatímabil sé að
baki og framundan efnahagsbati.
Við þurfum að draga réttan lærdóm
af reynslunni og treysta með öllum
tiltækum ráðum þann árangur sem
nú hefur -náðst. Við megum ekki
undir neinum kringumstæðum
hverfa aftur til tíma óstöðugleika,
óðaverðbólgu og erlendrar skulda-
söfnunar. Við þurfum að horfa til
framtíðar sem mun einkennast af
vaxandi samkeppni. Til þess að
standast þá samkeppni þarf íslenskt
atvinnulíf að búa við svipuð og jafn-
vel betri rekstrarskilyrði en erlendir
keppinautar.
Langvarandi halli á ríkissjóði
hækkar vexti og í kjölfarið dregur
úr fjárfestingu og hagvöxtur minnk-
ar. Við þurfum að nýta efnahagsbat-
ann til að minnka halla ríkissjóðs og
snúa þessari þróun við. Skammtíma-
hagsmunir verða að víkja fyrir mikil-
vægari markmiðum til lengri tíma.
Meginatriðið er að lækka erlendar
skuldir, auka atvinnu og treysta var-
anlegan hagvöxt. Það er forsendan
fyrir bættum lífskjörum til framtíðar.
Höfundur er fjármálaráðherra.
ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar
1. nóvember 1994 Mánaðargreiðslur
Elli / örorkulífeyrir(grunnlífeyrir) 12.329
'h hjónalífeyrir 11.096
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega 22.684
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega 23.320
Fleimilisuppbót 7.711
Sérstök heimilisuppbót 5.304
Barnalífeyrir v/ 1 barns 10.300
Meðlag v/1 barns 10.300
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns 1.000
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja bama 5.000
Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja barna eða fleiri 10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur6mánaða 15.448
Ekkjubætur / ekkilsbætur 12 mánaða 11.583
Fullur ekkjulífeyrir 12.329
Dánarbæturí8ár(v/slysa) 15.448
Fæðingarstyrkur 25.090
Vasapeningarvistmanna 10.170
Vasapeningarv/ sjúkratrygginga 10.170 Daggreiðslur
Fullirfæðingardagpeningar 1.052,00
Sjúkradagpeningareinstaklings 526,20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri . 142,80
Slysadagpeningareinstaklings 665,70
Slysadagpeningarfyrir hvert barn á framfæri .. 142,80
Enginn tekjutryggingarauki er greiddur í september og eru bætur því lægri nú en í júlí og ágúst.
ISLENSKT MAL
Kominn er ég heill á húfi heim að dyrum;
eftir það mig enginn spyr um.
Þessa afhendingu orti Stein-
dór Steindórsson frá Hlöðum
fyrir skemmstu (92 ára) heim
kominn úr daglegri gönguför
sinni um Bótina. Hvað er svo í
raun að vera heill á húfi? sagði
hann við mig, þegar við mætt-
umst í Brekkugötunni. Og nú
leitar umsjónarmaður í nýlega
bók dr. Jóns G. Friðjónssonar,
Mergur málsins, svo að allt sé
hér á hreinu.
Húfur er skipsbógur eða hlið
skips. Að vera heill á húfi kem-
ur fyrir í gömlu máli í merking-
unni að vera óskaddaður. í Sörla
sögu sterka segir: „Sigldi hann
nú heim til Noregs og hitti brátt
föður sinn, frændur og vini heila
á húfi.“ Líkingin er sennilega
dregin af mönnum sem bjargast
höfðu úr sjávarháska. Skylt er
þó að geta þess, að afbrigðið
að vera heill á hófi kemur einn-
ig fyrir.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
772. þáttur
og nú eru ekki svo fátíð meðal
enskumælandi manna kvenheit-
in Faith (= trú), Hope (= von)
og Charity (= kærleikur). Svo
heita t.d. þríburar enskir, og eru
þær konur nú mjög aldri orpnar.
Eg er að velta því fyrir mér
hvort kvenmannsnafnið Frið-
semd hafi verið búið til í Kjósar-
sýslu á 17. öld. Ekkert dæmi er
um nafnið fyrr en í manntalinu
1703, en hins er að gæta, að
fyrir daga manntala og kirkju-
bóka var kvenna sjaldnar getið
í skráðum heimildum en karla.
En hvað um það. Árið 1703
var Friðsemd Einarsdóttir, 35
ára húsfreyja í Gufuneskoti, ein
síns nafns í heiminum. Þetta
sérkennilega nafn lifði svo á
suðvestanverðu landinu og lifir
enn. í þjóðskránni 1990 eru níu.
Mig minnir að ein þeirra sé Frið-
semd Thorarensen, ung afreks-
kona í fijálsíþróttum.
Þögnin er best.
Þarf maður nokkuð að segja?
Menn biðja ekki um frest,
búinn er sérhver að deyja.
Hvaðeina sést,
þó langt sé frá landi til eyja.
(Þetta er þú lest,
alstaðar garmarnir geyja.)
(Fannst í rusli, höf. óþekktur,
en sagðist hafa verið að „reyna
að stæla B. Th.!“.)
★
Fátítt var það hérlendis, að
hugtakaheiti væru gerð að
skírnarnöfnum. En forfeður
okkar tóku þó við latnesku nöfn-
unum Fídes og Karítas = trú
og kærleikur. Vonin (Spes) fékk
að fljóta með í sögum. Englend-
ingum var tamara að þýða þetta,
Hlymrekur handan kvað:
Hindústan heitir víst ríki
harla fá eru þar síki,
sjaldgæfar mýrar
og svarðlendur rýrar.
Það er hálent í Hindústanríki.
★
Elsa E. Guðjónsson hélt að í
fyrra hefði verið kveðið niður
hið leiðinlega og óíslenskulega
slagorð: íslenskt, já takk, en
nú hljómar það með endurnýjuð-
um krafti. Elsu þykir framtakið
gott, en orðalagið óviðkunnan-
Iegt. Hún vill miklu heldur: ís-
lenskt að sjálfsögðu eða ís-
lenskt auðvitað.
Umsjónarmaður man til þess
að hann studdi hið síðara í fyrra
og hefur ekki skipt um skoðun.
En erfitt mun að breyta þessu
héðan af.
Fréttamaður komst að orði á
þessa leið: Hann tók ekki dýpra
í árinni en svo að segja, að bylt-
ing hefði orðið ...
Hér átti annaðhvort að vera:
Hann tók ekki grynnra í árinni
en svo... eða: Hann tók svo djúpt
í árinni að segja o.s.frv.
Sýnu alvarlegri er þó sú sljóa
málkennd sem fram kemur í
eftirfarandi setningu úr útvarps-
fréttum: „Ekki allir atvinnurek-
endur vilja styðja þennan mál-
stað.“ Þarna er rétt orðaröð:
Ekki vilja allir atvinnurekend-
ur eða Atvinnurekendur vilja
ekki allir o.s.frv. Enda þótt
orðaröð í íslensku sé býsna
fijáls, er hægt að fara yfir mörk-
in. Við getum ekki sagt: *Ég
ekki vil þetta. Þarna þarf annað-
hvort að vera Ég vil þetta ekki
eða (og þá ef til vill með öðrum
hljóm) Ekki vil ég þetta.
Sú brenglaða orðaröð, sem
dæmi var tekið af hér, er líklega
aðkomin, og þarf að bregða við
hart, áður en þetta nær að spilla
útfrá sér. Sjá t.d. The Econom-
ist, nr. 7886: „Not everyone has
agreed with Bagehot."
Skilríkir menn hafa sagt mér
að á einhverri útvarpsstöð, lík-
lega Bylgjunni, hafi verið sagt
frá því að ógæfusöm kona í
Bandaríkjunum og ekki sann-
sögul, hafi fallið „á lyijaprófi".
í annan stað las glöggur maður
í blaði að „þrumu hefði slegið
niður“. Þetta þótti okkur um-
hugsunarefni. Við vitum að eld-
ingu getur slegið niður og mér
getur slegið niður, ef ég rýk t.d.
of snemma á fætur úr flensu.
En getur þrumunni slegið niður?
Auk þess „skuku“ jarðhræring-
ar Grindavík „í gærnótt". (Stöð
II, 11. nóv.)