Morgunblaðið - 26.11.1994, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 37
MINNINGAR
ÓLAFUR SKAG-
FJÖRÐ ÓLAFSSON
var ein brauðsneið eða stórsteik, allt
var þetta listavel gert. Hún var bak-
ari af guðs náð og stóð í bakstri
fram á síðasta dag.
Hún átti mjög gott með að sam-
lagast hvaða aldurshópi sem var, þó
hún hafi verið 80 ára gömul var hún
ung í anda.
Alltaf tók hún málstað þeirra sem
minna máttu sín, og mátti ekkert
aumt sjá. Börnum var hún sérlega
góð og hændust þau mjög að henni,
hún lék við þau, söng og spilaði á
munnhörpuna sína.
Henni fannst gaman að veiða og
var mjög fiskin.
í litla sælureitnum í Borgarfirði
átti hún margar góðar stundir, og
þangað var gott að koma, því amma
var afar gestrisin og enginn fór
svangur frá henni.
En allt tekur enda um síðir.
Elsku amma mín, minningarnar
um þig eru bjartar og fagrar og ég
hugsa ti! þess dags er við hittumst
á ný.
Hvíl þú í friði.
Leiddu mína litlu hendi
ljúfi Jesú þér ég sendi.’
Bæn frá mínu bijósti sjáðu
blíði Jesú að mér gáðu.
Guð gefi okkur öllum styrk.
Margrét Þóra Benediktsdóttir
og fjölskylda.
Nú hafa leiðir okkar ömmu skilið
í bili. Hún lést skyndilega á heimili
sínu í návist elsku afa sem hún unni
svo mjög. Minningarnar streyma
fram , minningar um glaða og káta
ömmu, náttúrubarn sem naut þess
að fara í veiði, jafnt silungs- sem
sjóstangaveiði, og vildi helst hvergi
annars staðar vera en í litla notalega
sumarhúsinu sínu í Borgarfirði.
Amma var afskaplega mikil húsmóð-
ir og ávallt var slegið upp veislu ef
einhver leit inn og alltaf var allt svo
smekklega fram borið og girnilegt.
Sama gilti hvort væri heima á Tjarn-
argötunni eða í sumarhúsinu í Borg-
arfirðinum og aldrei fannst henni
nógu mikið borðað eða nógu mikið
fram borið.
Amma lifði lífinu lifandi og var
mjög raungóð og bóngóð. Hún fylgd-
ist vel með afkomendum sínum og
var mikil barnagæla. Við sem unnum
henni söknum hennar en minnumst
þess jafnframt að elska hennar og
umhyggja fyrir okkur í jarðvistinni
mun fylgja okkur áfram og hún mun
vaka yfir velferð okkar allra, þó sér-
staklega yfir litla augasteininum sín-
um henni Þóru Kristínu sem hún
vildi allt fyrir gera. Við fengum að
hafa hana hjá okkur hressa og káta
og fyrir það skal þakka. Að leiðarlok-
um vil ég kveðja hana með ljóði eft-
ir Benedikt Gröndal og bið góðan
Guð að geyma elskuna hana ömmu
með þökk fyrir allt.
Stjaman á himni heiðum
hlæjandi vekur ljós,
glóir á geisla leiðum
glitrandi himinrós.
Signhild.
-4- Ólafur Skagfjörð Ólafsson
* var fæddur 10. september
1971. Hann lést á Borgar-
spítalanum 15. nóvember sl.
Utför hans var gerð frá Stað-
arhólskirkju í Saurbæ 24. nóv-
ember.
MÁNUDAGINN bárust mér þær
harmafregnir að Ólafur Skagfjörð
væri dáinn. Það var eins fjar-
stæðukennt eins og mest gat verið.
Óli, þessi fyrirmyndar drengur
væri tekinn á brott í blóma lífsins.
Er ég rifja upp mín fyrstu kynni
við Ólaf var það þegar við hitt-
umst á Laugum í Dalasýslu 7 og
8 ára gamlir eins og aðrir sveita-
krakkar. Við þekktumst nú ekki
mikið en vissum um hvor annan,
en árin liðu og tókst vinskapur
með okkur Óla er við urðum her-
bergisfélagar í eldri deildinni.
Fljótt komst maður að því hve
mikinn persónuleika Óli Skag-
fjörð hafði að geyma, rólegur og
traustur og hafði góðan talanda.
Honum gekk vel í skóla og hafði
ekkert fyrir því að semja ritgerð-
ir og kunni vel að koma vísum
fram. Hann var fastur á sinni
meiningu og vissi upp á hár hvað
hann vildi og stóð eins og klettur
ef eitthvað bjátaði á. Búskapur
var honum ofarlega í huga og
hann talaði mikið um búskapinn
í Þurranesi, sem hann var stoltur
af. Því búskapurinn var honum
líka vel til sóma. Eins og allir
+ Edda Filippusdóttir fædd-
ist í vesturbænum í Reykja-
vík 22. mars 1934. Hún andað-
ist á heimili sínu 18. nóv. síð-
astliðinn. Útför Eddu var gerð
frá Fossvogskirkju föstudag-
inn 25. nóvember sl.
LÁTIN er Edda Filippusdóttir,
Lynghaga 7, Reykjavík, sextug að
aldri. Edda tengdist Hagaskóla
með þeim hætti að hún sá um
ræstingar í mörg ár á vænu stykki.
Starf sitt innti hún af hendi og
kvartaði aldrei þótt stykkið væri
oft erfitt, einkum eftir stórar
skemmtanir í húsinu.
Edda var alltaf tilbúin í óvænt
útköll, órög til vinnu og vandvirk.
Síðastliðið haust flutti hún sig í
mötuneyti kennara og gerðist mat-
ráðskona okkar. Hún gekk engan
vita er fyrirmyndarbúskapur í
Þurranesi.
Hann undi sér vel við skepnur
og var mikill hestaáhugamaður og
einstaklega flinkur hestamaður
því hann gat riðið hrossum sem
aðrir gátu ekki setið og tók á þessu
með lægni en ekki eins og þetta
væri eitthvert vandamál. Það orð
þekkti Ólafur ekki.
Einhverra hluta vegna skildu
leiðir okkar urri tíma, þó við hefð-
um ákveðið að halda félagsskapn-
um áfram þegar ég fór suður í
nám og hann fór í nám á Hvann-
eyri og nam búfræði, en vinskap-
urinn endurnýjaðist þegar við unn-
um saman í Fóðuriðjunni og voru
þá oft rifjaðar upp gamlar minn-
ingar frá Laugum.
Minning Óla Skagfjörðs mun
aldrei gleymast og megum við
skólafélagar og gamlir vinnufélag-
ar vera ánægðir að hafa kynnst
Óla Skagfjörð, því persónuleiki
hans var einstakur.
Ég bið Guð að gefa Óla, Ing-
unni, Sigrúnu, Sigurbjörgu, Jóni
Inga og Steingrími styrk til að
komast yfir sorgina.
Far þú! friði
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt
Gekkst þú með Guði
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Bogi Kristinsson.
veginn heil til skógar en var þó
jafnan mætt fyrst allra á morgn-
anna og búin að hella uppá þegar
aðrir mættu til vinnu.
Þegar skammt var liðið á þetta
ár kom í ljós að hún var með
krabbamein á háu stigi. Hún tók
þessum tíðindum með ótrúlegri
stillingu, hvarf frá vinnu og var
staðráðin í því að fá það sem hún
gæti út úr lífinu meðan það entist.
Edda var dugleg að heimsækja
gamla vinnustaðinn sinn og við
gátum glaðst með henni stutta
stund í kennarastofunni í tilefni
sextugsafmælis hennar í mars.
Starfslið Hagaskóla vottar börn-
um hennar og öðrum ættingjum
innilega samúð sína. Minningin um
glaðsinna og góða konu lifir. Hún
hvfli í friði.
Starfsfólk Hagaskóla.
EDDA
FILIPPUSDÓTTIR
t
Sonur okkar og bróðir,
KRISTJÁN REYNIR
GUÐMUNDSSON,
Háteigsvegi 42,
lést í Borgarspítalanum 24. nóvember.
Dóra Reyndal, Guðmundur Guðmundsson,
Edda Guðmundsdóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir.
t
Elskuleg fraenka okkar,
STEINUNN EINARSDÓTTIR
frá Nýjabæ,
áðurtil heimilis
f Lönguhlfð 3,
andaðist í Hafnarbúðum 24. nóvember.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Ingveldur og Pálheiður Einarsdætur.
t
Þökkum innilega vinarhug og hluttekningu við andlát og útför
ÞORGEIRS SIGURÐSSONAR
trésmiðs
frá Hólmavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Jósefsspítala, Hafnarfirði.
Börn, tengdabörn,
. barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
JÓNINNA ÞÓREY HAFSTEINSDÓTTIR,
Sogavegi136,
Reykjavfk,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 24. nóvember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ólafur Guðlaugsson,
Laufey Ólafsdóttir,
Ari Ólafsson.
Ástkær eiginkona mín,
GUÐRÚN MARTEINSDÓTTIR
dósent í hjúkrunarfræði,
Hraunbæ 84,
lést á heimili sínu 24. nóvember.
Fyrir hönd foreldra, systkina, barna
og barnabarns,
Haraldur Þór Skarphéðinsson.